Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
49
Helga Ingólfsdóttir
ItFGoodrich
Mest seldu JEPPADEKKIN á Islandi
Kynnió ykkur veró og greióslukjör
P175 75R13 31xl050R15LT 35x12 50R151T
LT235 75R15 32xll.50R15LT 31xl0.50Riq.5LT
LT255 85R16 33x12 50R15LT 33xl2.50R16 5LT
30x9 50R15LT
A14RT sf
Vatnagörbum 14 Reykjavik s.83188
Helga leik-
ur Bach
á sembal
Hljómplötur
ÁrniJohnsen
Johann Sebastian Bach heitir
hljómplata sem Fálkinn gaf út
með Helgu Ingólfsdóttur þar sem
hún leikur á sembal franskan for-
leik, ítalskan konsert og franska
svítu nr. IV. Fágun Helgu í t'úlkun
þessara verka, öryggi hennar og
tilþrif undirstrika þá miklu leikni
sem hún býr yfir á hljóðfæri sitt,
en upptaka plötunnar var gerð í
Garðakirkju á Álftanesi í júní-
mánuði sl. ár. Bach varð skjótt
víðfrægur á sínum tíma bæði sem
tónskáld og ekki síður sem óvenju-
legur snillingur í hljóðfæraleik.
Tónlist hans einangraðist nokkuð
um skeið vegna þess að hún þótti
of erfið í flutningi og of flókin til
áheyrnar. Verk hans voru svo flók-
in, margslungin og meitluð að
samtímamönnum þóttu þau yfir-
þyrmandi og réðu ekki við þau, en
þegar timar liðu og menn höfðu
haft tækifæri til þess að læra að
umgangast verk þessa snillings þá
fóru perlurnar að njóta sín smátt
og smátt og það er einmitt þéttleiki
tónverkanna sem seinni tíma
menn hafa dásamað mest í sköpun
Bachs.
Þau verk sem Helga leikur á
plötunni eru gott sýnishorn af því
hvernig Bach sótti efni til ýmissa
strauma tónlistarinnar sem léku á
hans tíð um Evrópu og smíðaði úr
þeim á þann hátt að hann nýtti
það besta sem hægt var að byggja
á úr hverri átt og oftast það sem
erfiðast var að fást við.
Forleikurinn að frönskum hætti
og Konsertinn í ítölskum stíl gaf
Bach út saman í einu hefti árið
1735 undir nafninu Clavierubung
II. Bæði verkin eru skrifuð fyrir
tveggja borða sembal. Franski
forleikurinn er svíta af dönskum
eftir hefðbundnum frönskum
hætti, en ítalski konsertinn er
saminn eftir sniði einleikskonserts
með hljómsveit.
Um frönsku svítuna segir Reynir
Axeslsson í ritgerð á plötuumslagi
um franskan stíl og ítalskan hjá
Bach: „í svítunni í Es-dúr gætir
vart áhrifa frá frönskum stíl nema
í fyrsta þættinum, hann er skrifað-
ur í svonefndum style brié, líkir
eftir lútutónlist með brotnum
hljómum og var mikið eftirlæti
franskra tónskálda sem Bachs
sjálfs. Næsti þáttur, Courante, er
í rauninni glæsileg itölsk corrente,
en framhald svítunnar er að mestu
að hefðbundum þýzkum hætti."
Tónmeistari á Bach-plötu Helgu
var Bjarni Rúnar Bjarnason, en
semballinn er smíðaður af Mark
Stevenson í Cambridge árið 1982,
en fyrirmynd er semball eftir J.D.
Dulcken í Antwerpen frá árinu
1745.
Full ástæða er til að óska Helgu
til hamingju með þessa glæsilegu
hljómplötu.
Verð áður kr. í 1.950,- Jólatilboð kr. 9.950,-
Að sjálfsögðu fylgir segulband með í kaupunum.
F ÁRMÚLA11 SfMI 8*1500
ÚTSÖLUSTAÐIR:
REYKJAVÍK: Þór hf., Ármúla 11
HAFNARFJÖRÐUR:
KEFLAVÍK:
VESTMANNAEYJAR:
SELFOSS:
HVOLSVÖLLUR:
Bókabúð Braga við Hlemm
Kf. Hafnfirðinga
Stapafell hf.
Kjarni sf.
Radio & Sjónvarpsstofan
Kf. Rangæinga
HÖFN:
EGILSSTAÐIR:
REYÐARFJÖRÐUR:
SEYÐISFJÖRÐUR:
HÚSAVÍK:
Kf. Austur-
Skaftfeliinga
Kf. Héraðsbúa
Kf. Héraðsbúa
Stálbúðin
Bókav. Þórarins
Stefánssonar
AKUREYRI:
SAUÐÁRKRÓKUR:
BLÖNDUÓS:
fSAFJÖRÐUR:
BOLUNGARVfK:
BORGARNES:
AKRANES:
KEA - Hljómdeild
Kf. Skagfirðinga
Kf. Húnvetninga
Póilinn
Ljósvakinn
Kf. Borgfirðinga
Bókaskemman
»
t