Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRTn.IimAOUR 10. DESEMBER1985
61
Megum við fá
meira að heyra?
— eftirJónu
Rúnu Kvaran
Á rökkvuðum vetrarkvöldum er
fátt eins þægileg afþreying og tón-
list, sem lætur vel í eyrum og lyftir
sálinni ögn. Smekkur manna á
slíka tón list er vafalaust ákaflega
misjafn, eins og gengur. Það er því
óþarfi að fara útí umræður, sem
kynnu að orka tvímælis, enda situr
síst á þeirri, sem þetta hripar, að
benda fólki á hvað velja skal. Af
ástæðu, sem ég kann ekki að skýra,
áskotnaðist mér hljómplatan
„Dawn of the Human Revolution".
Hún inniheldur það, sem að mínu
mati getur talist frábær afþrey-
ingartónlist, en er þó einkennilega
uppbyggjandi um leið. Um árabil
hefur sú, er þetta ritar, fært sér í
nyt svokallaða „popptónlist" ekki
síður en klassiska tónlist sér til
sáluhjálpar og þannig jafnvel
aukið lífskraft sinn þegar erfiðlega
hefur árað.
Hljómplata sú, sem hér verður
litillega gerð að umræðuefni, er
sólóplata hins gamalkunna og
snjalla popplistamanns, Herberts
Guðmundssonar. Hljómplata þessi
er fyrir margra hluta sakir ein-
staklega athyglisverð, raunar
hreint listaverk. Ef ég man rétt
er þetta önnur sólóplata Herberts
og er óhætt að fullyrða, að drengn-
um hafi svo sannarlega farið fram.
Tónlistin sameinar einhvern
veginn í senn kraft og mýkt. Lögin
eru einkar hugljúf og heillandi, en
ólík innbyrðis. Sem söngvari sýnir
Herbert mikinn sveigjanleika.
Hljóðfæraleikur allur til fyrir-
myndar. Ekki má gleyma bakrödd-
unum, sem eiga sinn þátt í áhrifum
tónlistarinnar.
Taxtar laganna gefa vísbend-
ingu um það, að Herbert sé maður
síns tíma og afar leitandi, en virð-
ist þó við nánari athugun hafa
eignast eitthvað það hið innra, sem
gerir honum kleift að hrífa mann
með á sinn persónulega og einlæga
hátt.
Jóna Rúna Kvaran
Mikil gróska hefur verið í svo-
kallaðri „popptónlist” á undan-
förnum árum hér sem víðast hvar
í heiminum. Það er því mjög
ánægjulegt til þess að vita, að
maður geti í framtíðinni átt von á
hljómplötum í sama gæðaflokki
og þessi sólóplata Herberts er. Sé
tekið mið af þeim plötum, sem
hafa komið á markaðinn á þessu
ári hérlendis, er alveg augljóst,
hvert stefnir með íslenska popp-
tónlist; hún gæti orðið markað-
svara erlendis með sama áfram-
haldi.
Eitt er það, sem greinarhöfund-
ur á erfitt með að sætta sig við á
þessari plötu, en það er af hverju
textagerð er höfð á ensku. Væntan-
lega hefur Herbert sínar ástæður
til þess, og þvi ekki ástæða til að
fara nánar úti þá sálma að sinni.
En hvað sem öðru líður — til
hamingju, Herbert. Megum við fá
meira að heyra.
Höíundur er rid nim í hárgreiöslu.
Morgunbladid/Diörik Jóhannsson
Endurhæringardeildin er til húsa í Hoilsugaeshistöðinni í Borgarnesi.
Borgames:
Basar til styrktar
endurhæfíngardeild
Hrannatúni f Andakfl, 2. desember.
Fjáröflunarnefnd Sambands
borgfirskra kvenna heldur basar í
grunnskólanum í Borgarnesi laugar-
daginn 14. desember kl. 13.00.
Verkalýðskór Borgamess mun
syngja jólalög undir stjórn Ingi-
bjargar Þorsteinsdóttur. Nefnin hef-
ur að undanförnu undirbúið basar-
inn og selur kaffi og rjómavöflur á
staðnum.
Fjáröflun þessi er til styrktar
endurhæfingardeild Heilsugæslu-
stöðvarinnar í Borgarnesi og hafa
flest aðildarfélög SBK unnið muni
á basarinn. Einnig hafa fyrirtækin
Akraprjón, Prjónastofa Borgar-
ness og Kaupfélag Borgfirðinga
lagt málefninu lið og þakkar SBK
þennan stuðning af alhug.
Endurhæfingardeildin hefur að
undanförnu gegnt vaxandi hlut-
verki og er oftast langur biðlisti
manna, sem þyrfti að njóta góðrar
starfskrafta þar sem fyrst. Tækja-
kostur hefur verið tilfinnanlegur
og vonast SBK eftir góðum stuðn-
ingi Borgfirðinga nk. Iaugardag.
DJ.
Gimilegur ostabakki gerir
ávallt lukku.
Við óvænt innlit vina, sem
ábætir í jólaboðinu eða sér-
réttur síðkvöldsins.
OSTABAKKI-GÓÐ TILBREYTING
ORÐIÐ
Láttu hugmyndaflugið ráða ferð-
inni, ásamt því sem þú átt af
ostum og ávöxtum. Sannaðu
til, árangurinn kemur á óvart.
ABRAUÐINU OG SÚKKUIA
5) 11 11