Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
19
Bók um kynfræðslu til iimræðu í borgarstjóm:
Skólasafnanefndin hefur
áfram ákvörðunarvald
BÓKIN ÞÚ OG ÉG varð tilefni
allsnarpra umræðna á borgarstjórn-
arfundi á fímmtudagskvöld. Adda
Bára Sigfúsdóttir (Alþýðubandalag)
sagði í ræðu sinni að skólasafnafólk
hlyti að ráða því hvaða bækur væru
keyptar í skólabókasöfnin og það sé
ekki hlutverk borgarinnar að segja
til um það.
Alþýðubandalagið lagði fram
tillögur þess efnis að val á bókum
í skólabókasöfn væri verkefni
kennara, skólastjóra og starfsfólks
bókasafna. Ennfremur kom þai
fram að borgarstjórn lýsi því yfir
að fræðsluráð hafi hvorki heimild
til að segja til um hvernig nota
skuli bækur sem keyptar eru til
afnota í skólum né að ráðið geti
ekki ákveðið frestun á bókakaup-
, um fyrir skólabókasöfn ef kaupin
geta átt sér stað innan ramma
fjárhagsáætlunar. Tillögur þessar
ásamt tillögu Magdalenu Schram
(Kvennaframboði), sem hjó í sömu
átt, voru allar felldar. Þær hlutu
aðeins stuðning fulltrúa minni-
hlutaflokkanna. í máli Ragnars
Júlíussonar (Sjálfstæðisflokki)
formanns fræðsluráðs kom m.a.
fram að hann teldi það „undarlegt
áhugamál kjörinna borgarfulltrúa
að vilja banna skólasafnanefnd
sem kjörin er af fræðsluráði (og
einungis eiga i sæti kennara-
menntaðir menn, innsk. blm.) að
koma nálægt innkaupunum en fela
bókavalið ríkisstarfsmönnum".
Eins og áður hefur komið fram
lagðist skólasafnanefnd gegn því
að bókin yrði keypt í skólabóka-
söfn. Ragnar sagði ennfremur í
ræðu sinni: „En svo getur það verið
Söngvakeppni Evrópu:
Ríkisútvarpið
auglýsir eftir
sönglagi
RÍKISÚTVARPIÐ hefur auglvst eft-
ir sönglagi sem yrði framlag Islands
í Söngvakeppni Evrópu sem haldin
verður vorið 1986. Þau skilyrðu eru
sett að lagið megi hvorki hafa kom-
ið út áður né hafa verið flutt í út-
varpi eða sjónvarpi. Það má ekki
taka meira en þrjár mínútur í flutn-
ingi og því skal fylgja frumsaminn
texti á íslensku. Skilafrestur er til
15. janúar.
Pétur Guðfinnsson fram-
kvæmdastjóri sjónvarpsins sagði
að enn hefði ekki verið gengið frá
því hvernig tilhögun keppninnar
verður háttað hér heima. „Undir
öllum kringumstæðum verður
lokakeppnin í beinni útsendingu
sjónvarpsins í febrúar, en ekki er
enn ljóst að öðru leyti hvernig
staðið verður að vali keppenda.
Þetta skýrist allt upp úr áramót-
unum“ sagði Pétur.
Pétur var spurður hvort íslend-
ingar gætu haldið keppnina hér á
landi ef svo færi að þeir ynnu. „Ég
er hræddur um að mönnum þættu
aðstæður okkar ekki nógu góðar
hér. En ef svo færi að íslendingar
ynnu þessa keppni í vor geri ég ráð
fyrir að við myndum semja við
önnur Norðurlönd um að halda
keppnina þar. Að vísu er það gert
að skilyrði að sá sem vinnur á að
halda keppnina að ári en fordæmi
eru fyrir þvi að hún hafi verið
haldin annars staðar og nú var
ákveðið að ganga fram hjá þessu
skilyrði gagnvart okkur" sagði
Pétur Guðfinnsson.
spursmál um óskynsamleg vinnu-
brögð hvort öllum kennurum
grunnskóla borgarinnar — um 800
talsins — sé falið að meta eina og
sömu bókina eða hvort það gerir
margfalt minni hópur kjörinna
fulltrúa sem ættu að geta verið
þverskurður heildarinnar". Ragn-
ar vitnaði ennfremur i umsagnir
nokkurra valinna aðila áður en til
afgreiðslu málsins kom. Þetta eru
skólayfirlæknir, borgarlæknir,
fræðslustjóri Reykjavíkurum-
dæmis, deildarstjóri námsefna-
gerðar hjá Námsgagnastofnun,
stjórn félags skólastjóra í grunn-
skólum Reykjavíkur og loks full-
trúa KFR í fræðsluráði. I flestum
umsögnunum kom fram að ýmis-
legt sé gott um bókina að segja,
svo sem frágangur og stíll og
ennfremur sá hlutinn, sem fjallar
um likamsfræðilegu atriðin. En
þegar kemur að siðfræðinni, þá
telji þeir hinir sömu ýmsu ábóta-
vant. í umsögn borgarlæknis,
Skúla G. Johnsen, segir m.a.
„Hinsvegar (vegna kaflanna um
kynlíf, um fóstureyðingar og um
afbrigðilegar kýnhneigðir, get ég
alls ekki mælt með að bókin liggi
frammi á skólasöfnum grunnskóla
í borginni." Þau Gerður Steinþórs-
dóttir (Framsóknarflokki) og Sig-
urður E. Guðmundsson (Alþýðu-
flokki) tóku einnig til máls og kom
fram í máli þeirra óánægja með
viðbrögð meirihlutans við þessu
máli. Var það samdóma álit minni-
hlutans að það væri ekki verkefni
borgarstjórnar að ritskoða bóka-
lista í skólum. Jóna Gróa Sigurðar-
dóttir (Sjálfstæðisflokki) tók til
máls og vitnaði m.a. í áðurnefnda
bók. Benti hún á meðal annars í
kafla þar sem rætt væri um sam-
kynhneigð að þar var orðið „stein-
runnið" notað um hið hefðbundna
samband karls og konu. Samkyn-
hneigðin, sem greinilega var sett
upp sem andstæðan við hið „stein-
runna" kynhlutverk var með þessu
sett í einhvern annan og betri
flokk. Þar sem þessi bók væri
ætluð sem kennslubók á háskóla-
stigi teldi hún ekki ástæðu til að
styðja þá tillögu að slík bók
kæmist í hendur jafnvel 5 ára
barna á skólabókasöfnum. Guðrún
Ágústsdóttir sagði í lok ræðu
sinnar að þessi vinnubrögð sýndu
„forræðishyggju á háu stigi".
Sinclair QL128 K tölvan
á nánast allt sameiginlegt með miklu stœrri tölvum
nema verðið: 13.500 #— krónur fyrir
tölvuna og fjóra hugbúnaðarpakka.
^\pglýsinga-
síminn er 2 24 80
Sinclair QL tölvan er allt það sem hinn
reyndi tölvunotandi leitar að, en einnig
skemmtilegur félagi og kennari fyrir
byrjandann. Þegar þú færð þér QL þá
ertu að gera sérlega hagstæð-kaup.
Tölvunni fylgja nefnilega fjórir hugbún-
aðarpakkar, - þér að kostnaðar-
lausu. Samanlagt eru þeir á svipuðu
verði og tölvan!
MEÐ ÍSLENSKUNA Á HREINU
Lyklaborð Sinclair QL er gert fyrir
íslendinga. Hugbúnaðarpakkinn er
fullkomlega aðlagaður íslensku máli og
ritvinnslan er jafn íslensk og þjóðsög-
urnar! Þannig eiga góðar tölvur að vera.
ÖFLUG OG NOTADRJÚG TÖLVA
Sinclair QL er 128 K, og má stækka í
640 K. Hún hefur létt lyklaborð í
ritvélarstíl og með aðstoð 2ja inn-
byggðra míkródrifa er hægt að spila allt
að 90 K forrit inn á smásnældu (snæld-
ettu) á aðeins 6 sekúndum, - og svo
auðvitað sækja það þangað seinna.
Forritunarmál QL er hið öfluga Super-
basic. QL-in hefur yfir að ráða 8 lita
háupplausnargrafík, ellefu tengimögu-
leikum við jaðarbúnað m.a. við prent-
ara, modem og allt að 63 aðrar QL
tölvur. Að sjálfsögðu er hægt að tengja
hana við sérstakan skjá eða venjulegt
sjónvarp.
FJÓRIR HUGBÚNAÐARPAKKAR
Þú getur byrjað að notaSinclairQLstrax
því fjórir hugbúnaðarpakkar fylgja:
Ritvinnsluforrit af bestu gerð, forrit fyrir
grafík, félagaskrá eða „spjaldskrá" og
áætlunargerð fyrir heimilið.
Hefurðu fengið nægju þína af tækni-
upplýsingum? Taktuþá smáhvíld en
hafðu síðan samband við okkur í
tölvudeild Heimilistækja. Við lumum á
fleirum handa þér!
ö
Heimilistæki hf
TÖLVUDEILDSÆTÚNI8 - SÍMI27500