Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985 Þorskastríð milli Grænlands og EB? Kaupmannahofn, 10. desember. Frá Nils Jörfjen Bruun, (^rænlandNfréttariUra Morfrunblaösins. AP/Símamynd Fyrst var talið, að sovézki fréttamaðurinn væri látinn. Myndin sýnir þá Bernard Lown og Yevgeny Chazov harmi lostna vegna atburðarins. Björguðu í sameiningu lífi sovézks fréttamanns Óvæntur endir á fréttamannafundi þeirra Lowns og Chazovs í Osló Osló, 9. desember. Frá fréttaritara Morgunblaftsina J. K. Laure og AP. FRÉTTAMANNAFUNDUR þeirra Bernhard Lowns og Yevgeny Chazovs frá Alþjóðasamtökum lækna gegn kjarnorkuvá fékk óvæntan en áhrifamik- inn endi í morgun. Sovézkur sjónvarpsfréttamaður, sem þarna var viðstadd- ur, hneig skyndilega niður með hjartaslag. Þeir Lown og Chazov hlupu til og reyndu í sameiningu með hjartahnoði að lífga manninn. Síðdegis í dag var svo tilkynnt, að maðurinn væri enn á lífi. Þykir víst, að það sé snarræði læknanna tveggja að þakka. HORFUR eru á, að til þorskastríðs geti komið með Grænlendingum og Evrópubandalaginu. Grænlenska út- varpið sagði frá því í dag, að fram- kvæmdanefnd bandalagsins hefði upp á sitt eindæmi úthlutað fiski- skipum frá aðildarþjóðunum veiði- kvóta, 12.000 tonnum af þorski við vesturströndina og 11.500 tonnum við austurströndina. Er aðeins um Karin Söder Svíþjóð: Karin Söder tekur við af Falldin Stokkhólmi, 10. deoember. Frá Erík Liden, frétUriUra MorfpmbUAsins. STJÓRN sænska Miðflokksins ákvað í dag, að fyrst um sinn a.m.k. myndi Karin Söder taka við af Thorbjörn Falldin sem formaður flokksins. Fálldin sagði af sér sl. fimmtudag. Thorbjörn Fálldin og Gunnar Hedlund, sem einnig er fyrrum formaður Miðflokksins, styðja báðir Karin Söder sem formann en fyrir nokkru lét hún að því liggja, að hún hygðist hætta af- skiptum af pólitíkinni. Nú, eftir afsögn Fálldins, segir hún, að málin horfi öðru vísi við. Búist hafði verið við, að Olof Johansson, einn af varaformönnum flokksins, kæmi til greina sem formaður og sérstök kjörnefnd innan flokksins lagði það raunar til. Samtímis því var Johansson hins vegar sá, sem harðast gekk fram gegn Fálldin, og þykir það hafa eyðilagt for- mennskudrauma hans. að ræða fiskiskip frá Vestur-Þýska- landi og Bretlandi og fá þau fyrr- nefndu Vt kvótans en þau síðar- nefndu fjórðung. Fyrir aðeins viku ákvað græn- lenska landsstjórnin, að heildar- þorskkvótinn á næsta ári yrði 15.000 tonn við vesturströndina og var það gert til að gefa þorskstofn- inum tækifæri til að rétta úr kútn- um. Fór allur kvótinn til sjómanna á bátum undir 80 tonnum en stóru togararnir fengu hins vegar ekkert þar en 2.250 tonn við austurströnd- ina. EB hefur því úthlutað sjálfu lér kvóta, sem er hátt í tvöfaldur leildarveiðikvóti Grænlendinga. Lars Emil Johansen, sem fer neð sjávarútvegsmál í grænlensku andsstjórninni, sagði í útvarpinu, ið EB hefði ekkert með að gefa ijálfu sér veiðikvóta við Grænland >g því væri ekki ástæða til að taka jetta hátíðlega. Sagði hann, að á aæsta ári yrði enginn þorskur jflögu fyrir útlenda togara. Þegar Grænlendingar gengu úr EB var um það samið, að EB greiddi þeim 214 milljónir danskra króna á ári í fimm ár gegn því að fá leyfi til að veiða innan græn- lenskrar lögsögu. Það var þó tekið fram, að fiskimenn frá EB-löndum mættu aðeins veiða þann fisk, sem Grænlendingar geta ekki sjálfir tekið. Á þessu ári hafa sjómenn frá EB-löndum engan fisk fengið en EB hefur þrátt fyrir það fengið 214 milljónirnar með skilum. Þeir telja sig einnig eiga að fá þær á næsta ári þótt enginn fiskur geti komið í staðinn. Átta ísraelskir hermenn farast ÁTTA ísraelskir hermenn týndu lífi og sjö særðust í eldsvoða, sem varð fyrir dögun í morgun og eyðilagði hermannaskála á vestur- bakka Jórdanárinnar. Talið var, að um eldsvoða væri að ræða og hefði eldurinn kviknað út frá kerti, sem kveikt hefði verið á í tilefni hátíðisdags gyðinga, er kenndur er við Hanukkam. Ekki var þó útilokað, að um íkveikju gæti verið að ræða. Læknarnir tveir eru báðir í hópi fremstu hjartalækna heims. Er einhver í salnum hrópaði á hjálp og benti á manninn, þar sem hann hafði hnigið hnigið niður, hlupu þeir tveir umsvifalaust niður í salinn, hentu af sér jökkunum og hófu hjartahnoð á manninum. Um 20 mínútur liðu, áður en sjúkrabíll kom á vettvang og að áliti þeirra Lowns og Chazovs var maðurinn þá þegarlátinn. „Þegar hættuástand kemur upp, þá vinnum við saman, sama hver í hlut á. Að því höfum við verið vitni í dag,“ sagði Lown, sem var með tárin í augunum eftir at- burðinn. Sovézki fréttamaðurinn hneig niður, er fréttamannafundurinn hafði staðið yfir í tæpan klukku- tíma. Um 200 fréttamenn voru þarna til staðar og var andrúms- loftið hlaðið talsverðri spennu. Var Chazov hvað eftir annað spurður um Andrei Sakharov og hvort hann harmaði ekki að hafa árið 1973 undirritað bréf frá sovézku vísindaakademíunni, þar sem Sakharov var hrakyrtur. Chazov neitaði að svara þessum spurningum og sagði: “Þetta er ekki persónulegur fréttamanna- fundur minn. Ég er hér sem full- Bandaríkjadollar hækkaði aðeins í dag gagnvart flestum gjaldmiðlum heims. Sterlingspundið lækkaði hins vegar og er hugsanlegu olíu verð- stríði við samtök olíutútflutnings- ríkjanna kennt um. I dag kostaði pundið 1,4620 doll- ara (1,4780), en annars var gengi trúi fyrir Alþjóðasamtök lækna gegn kjarnorkuvá og vil halda mér við þær spurningar, sem snerta þessi samtök." Bernard Lown tók undir þessi ummæli og lagði áherzlu á, að það skipti miklu máli, að samtökin einbeindu sér að einu málefni það er hættunni á kjarnorkustríði. Á morgun, þriðjudag, hyggjast mörg norsk samtök efna til mót- mælaaðgerða bæði inni í hátíðasal háskólans og úti fyrir, á meðan afhending friðarverðlauna Nóbels fer fram. Er ætlunin að beina athygli fólks einkum að framferði sovézkra stjórnvalda gangvart Andrei Sakharov, en aðgerðimar fara einnig fram til stuðnings öðrum samvizkuföngum í Sovét- ríkjunum. dollarans þannig, að fyrir hann fengust 2,5310 vestur-þýzk mörk (2,5270), 2,1113 svissneskir frankar (2,1078), 7,7200 franskir frankar (7,7150), 2,8515 hollenzk gyllini (2,8445), 1.723,00 ítalskar lírur (1.725,50), 1,3978 kanadiskir doll- arar (1,3962) og 203,42 jen (202,97). GKNGl GJALDMIÐLA London, 9. deoember. AP. RAFIÐJAN SF. igimis umboðið Ármúla 8 108 Reykjavík Sími 91-82535 H. 133, br. 58, d. 60, 270 litra, m/frysti H. 144, br. 60, d. 60, 340 litra, m/frysti Kr. 22.800.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.