Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985 67 Iðngarðar opnaðir á Egilsstöðum HgiLsstöóum, 1. desember. IÐNGARÐAR voru formlega opnað- Morgunblaöiö/ólafur Iðngarðar eru á jarðhæð hússins Lyngás 12, sem áður var verkstæði Brim- áss hf. Norðmenn og varnir þeirra Það er ekki hægt að skiljast svo við áðurnefnt skrif Björns, að ekki sé vakin athygli á eftirfarandi klausu í grein hans: . þá ætla Norðmenn að verja land sitt þar með því að heyja skæruhernað 1 fjöllum og tefja framrás óvinarins með öllum til- tækum ráðum, svo sem með því að sprengja vegi og brýr. Vegirnir í Norður-Noregi eru ekki lagðir til þess að vera flutningaleiðir á ófriðartímum og stuðla að því að byggð haldist í þessum hluta Noregs eins og annars staðar. Meðal þeirra raka sem Norðmenn nota til þess að verja byggðastefnu sína eru þau að öryggi landsins krefjist þess að fólk búi í nágrenni sovésku landamæranna. Hafa Norðmenn notað þessi rök í fjáraflaskyni vegna vegagerðar?" Norðmenn virðast hvorki trúa á „kjarnorkuvetur", né það að „kjarnorkuvopn veiti manninum mátt til að gjöreyða öllu lífi á jörðunni“ þó svo að Björn hafi uppfrætt okkur um þær staðreynd- ir. Þeir virðast samt hafa komið auga á byggðagildi vegakerfis á friðartímum og látið því NATO borga fyrir það purkunarlaust. Þó það sé það fyrsta sem þeir ætla að sprengja í ófriði! Ekki kem ég auga á hvað verður um íbúana við landamærin, skv. upplýsingum Björns, sem verða eins og lýs milli tveggja nagla, annarsvegar sovézka bjarnarins og hinsvegar sprengjusveita norska hersins, sem sprengja upp undankomuleið- ir þessara norsku framvarða. Fyrir hverja var þá öryggið sem fólst i búsetu þeirra þarna? Skyldu Norð- menn vera sammála þessum her- fræðiopinberunum Björns og stríðsáætlunum? Gera Norðmenn ráð fyrir takmörkuðu stríði og fórn minni hagsmuna fyrir meiri? Hvernig ætli mönnum gangi að verjast geislaveikir á fjöllum í kjarnorkuvetri með eyddar byggð- ir að baki sér? Enginn sér fyrir endann á nýrri heimsstyrjöld. Það er í sjálfu sér ágætt að gylla afleiðingarnar ekki fyrir neinum. En það má heldur ekki stuðla að uppgjöf með til- gangslausu svartsgallarausi á borð við grein Björns. Mannkynið mun ekki deyja út í kjarnorkustyrjöld og jörðin mun rísa aftur iðjagræn úr Surtarloga. Jarðsöguna munar ekkert um það þó endurreisnin taki einhverjar árþúsundir. Ég hygg til dæmis, að Gísli okkar á Uppsölum myndi ekki einu sinni heyra um styrjöldina fyrr en löngu eftir að henni lauk. Hann færi kannski að undrast ef Mogginn kæmi ekki lengi í Selárdal. Og þannig mætti bollaleggja enda- laust. Að lokum Kannske skilur okkur Björn fyrst og fremst á um það, að hann kýs sér að falla í fyrstu hrinu styrjaldar, en ég, vegna meðfædds bleyðiskapar, vil fresta þeirri aðgerð sem lengst. Eg vil hinsvegar trúa því fram I rauðan dauðann, að þar sem er vilji þar er vegur. Ég er á móti hverskonar uppgjafarhugsunar- hætti og brýni fyrir mönnum ein- kunnarorð skátanna: Vertu við- búinn. Ég held að engan skaði að búa sig undir hið versta, því það góða skaðar ekki, eins og Gunnar heit- inn Thoroddsen minnti menn á stundum. Umfram allt er áríðandi fyrir almenning að láta sig þessi mál varða og láta ekki sjálfskipaða „sérfræðinga" taka fyrir sig af- drifaríkar ákvarðanir, án rök- semdafærslu og umræðna. Mannsins eigin skynsemi verður ávallt það dýrmætasta sem hann á. Þegar um er að ræða stríð eða frið stígur þessi eiginleiki fram sem eina von mannkynsins. Rækt- um hana því sem bezt öllum stund- um. Því skiptir meginmáli að við séum ávallt árvökur á eigin kostn- að. ir hér á Egilsstöðum í dag aö viö- stöddum sveitarstjórnarmönnum og leigjendum iöngaröanna. I máli Einars Rafns Haraldsson- ar, formanns atvinnumálanefndar Egilsstaðahrepps, við opnunarat- höfnina í dag kom m.a. fram að samþykkt var í sveitarstjórn fyrir réttum tveimur árum að undan- genginni könnun að koma á fót sérstökum iðngörðum hér á Egils- stöðum til að treysta atvinnuupp- byggingu í sveitarfélaginu. I framhaldi þeirrar samþykktar var ákveðið að festa kaup á fyrrum verkstæðisrými Byggingafélagsins Brúnáss hf. að Lyngási 12. Um er að ræða 980 ferm. rými sem þykir henta bærilega til þessara hluta. Kaupverð var um 10 millj. króna og voru kaupin fjármögnuð með lánum úr Iðnlánasjóði og Byggða- sj >ði. í haust hefur verið unnið að innréttingu iðngarðanna en sex fyrirtækjum hefur verið úthlutað rými í hinum nýju iðngörðum: Prjónastofunni Dyngju, Innrömm- un og speglagerð Páls Péturssonar, Birkitré (trésmíðafyrirtæki bræð- ranna Þorvarðar Bessa og Jóns Einarssonar), Trésmíðaþjónustu Kristins Kristmundssonar, Svæð- isstjórnum málefna fatlaðra á Austurlandi vegna verndaðs vinnustaðar og Rafvélaverkstæði Unnars Heimis Sigursteinssonar — sem þegar hefur flutt starfsemi sína í hið nýja húsnæði. Önnur fyrirtæki munu flytja starfsemi sína í iðngarðana næstu vikurnar. Leiga í iðngörðunum er að sögn Einars Rafns undir markaðsverði en vísitölubundin. Gert er ráð fyrir því að leigjendur kaupi húsnæðið að ákveðnum leigutíma liðnum — en söluandvirðinu verði varið til frekari uppbyggingar atvinnuhús- næðis. í máli sveitarstjóra, Sigurðar Símonarsonar, kom m.a. fram að sveitarstjórn lætur nú kanna möguleika á viðbyggingu til suðurs við núverandi húsnæði iðngarð- anna — þar sem eftirspurn hefur verið mikil. — Ólafur , •.» 'í-''"'" >|V V -> H. HELGASON SIMAR 18493-22516 Cjs FÁST AÐEINS Á HÁRSNYRTISTOFUM. Höíundur er verkfræðingur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.