Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 74
74
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
„Svooa i bros-tu pobbí. Hór> er hc\r\d&i
Ást er...
4/í i
jótJLO
... ab gefa hon-
um annaö tæki-
fœri
TM Reg U.S. Pat. Off -alt rights reserved
•1983 Los Angetes Times Syrxticate
Skiptir ekki máli. Drekk allt sem
hnígur!
£g ákvaö í morgun að gera alli
vitlaust og mætti í vinnuna 10
mínútum of seint!
HÖGTSTI HREKKVÍSI
j/ ERTO AV A REyKHÍ^INN FyfZKZ
JOLASVEINtNKl ? "
Sveitasaga úr borginni
Velvakandi góður
Mig langar til að segja þér og
lesendum sögu. Ég bý ekki í
Reykjavík heldur úti á landi. En
dreifbýlingar þurfa stundum að
skreppa til höfuðborgarinnar og
þannig var með okkur fyrir
nokkrum vikum.
Við vorum fimm í bílnum en
eigandi hans er lamaður. Hann
ók jafnframt bílnum. Þegar
komið var til borarinnar lá leiðin
í stórmarkað einn, sem starfað
hefur í rúm tvö ár. Við ætluðum
að versla dálítið og einnig fannst
okkur þjóðráð að nota tækifærið
og fara á salerni. Sérstaklega
þótti okkur það hentugt fyrir
bílstjórann því að í anddyrinu
stóðu þrír hjólastólar til reiðu.
Við rákum augun í stórt skilti
sem á stóð WC, og skunduðum
þangað. En mikil voru vonbrigð-
in. I þessu stóra húsi voru aðeins
tvö lítil klósett sem enginn hjóla-
stóll komst inn í. Það er furðulegt
ef menn halda að lamaðir þurfi
ekki jafnt á klósett sem aðrir.
Því er verið með öll þessi þægindi
fyrir þá sem komast allra sinna
ferða en ekki hina, sérstaklega
þegar gert er ráð fyrir þeim við
innganginn?
Bílstjórinn fór strax út í bílinn
og beið þar eftir okkur hinum.
En þar með er ekki öll sagan
sögð. Þar sem hann situr hinn
rólegasti ber að karl og konu.
Frúin hefur líklega talið sig fína.
Hún leit á númeraskiltið og segir
síðan stundarhátt: „Þeir vita
náttúrlega ekki þessir sveita-
vargar, að það er bannað að
Fatlaöir rekast víöa á hindranir.
leggja í þetta stæði.“ En henni
láðist að líta í framrúðuna á
bílnum og sjá þar spjaldið sem
veitir honum einmitt rétt til að
leggja í þetta ákveðna stæði.
Sveitavargur
Víkverji skrifar
Starfs síns vegna þarf Víkerji
að lesa dagblöðin vandlega og
fylgjast með fréttum og frétta-
tengdum þáttum í útvarpi og sjón-
varpi. í þetta fer geysimikill tími,
ekki sízt í dagblaðaiesturinn.
Helgin fór að mestu í lestur
dagblaða því safnast hafði fyrir
bunki, sem fara þurfti í gegnum.
En áður þurfti að lesa helgarblöðin
og það tók nú aldeilis sinn tíma.
Morgunblaðið er eina blaðið sem
kemur út bæði laugardag og
sunnudag. Laugardagsblaðið var
88 síður að stærð með Lesbók og
Sunnudagsblaðið 128 síður. Sam-
tals eru þetta 216 síður af Morgun-
blaðinu í helgarlesturinn. DV var
80 síður á laugardaginn, NT 60
síður og Þjóðviljinn 36 síður.
Samtals eru þetta 392 síður, öll
blöðin. Það er reynsla Víkverja,
að blaðalestur um helgar taki
nokkrar klukkustundir, ef lesa á
blöðin rækilega.
Það er líka reynsla Víkverja að
þeim tíma sé vel varið. í íslenzkum
blöðum er ótrúlega margt áhuga-
vert að finna sérstaklega í helgar-
blöðunum. Það er vafalaust eins-
dæmi að jafnlítið þjóðfélag og
ísland bjóði upp á jafn fjölbreytta
og viðamikla dagblaðaútgáfu. Og
því má bæta við að blöð eru ódýr
á íslandi. Það kostar til dæmis
ekki nema 450 krónur á mánuði
að fá Morgunblaðið heimsent 6
daga vikunnar eða innan við 20
krónur hvert eintak. ódýrari þjón-
ustu er óvíða að fá.
xx.x
Við dagblaðalestur er gott að
bregða góðri plötu á fóninn.
Um þessa helgi varð ein plata oftar
fyrir valinu en önnur, þ.e. splunku-
ný plata Gunnars Þórðarsonar,
„Borgarbragur". Platan er gefin út
í tengslum við 200 ára afmæli
Reykjavíkur á næsta ári og af því
tilefni hefur Davíð Oddsson borg-
arstjóri samið mjög góðan texta
við eitt albezta lag plötunnar, „Við
Reykjavíkurtjörn". Aðra texta
hefur Ólafur Haukur Símonarson
samið og tekst þeim báðum vel
upp, Ólafi og Davíð, að rifja upp
minningar úr borginni með textum
sínum.
En mesta heiðurinn af plötunni
á Gunnar Þórðarson. Sá sem þess-
ar línur ritar hefur fylgst með tón-
listarferli Gunnars og þorir að
fullyrða, að þetta er ein hans bezta
plata ef ekki sú bezta. Lögin á
plötunni eru ekki fljótgripin en það
er einmitt einkenni góðra laga. En
þegar platan hefur verið spiluð í
nokkur skipti grípa lögin hlustand-
ann hvert af öðru. Frábær plata,
sem hægt er að mæla með fyrir
þá sem unna góðri dægurlagatón-
list.
Og áður en skilið er við Gunnar
Þórðarson getur Víkverji ekki
stillt sig um að minnast ánægju-
legrar fréttar, sem hann sá í
Morgunblaðinu fyrir nokkrum
dögum. Til stendur að bjóða upp á
skemmtidagskrá í veitingahúsinu
Broadway eftir áramótin, þar sem
eingöngu verða leikin lög eftir
Gunnar. Fremstu dægulagasöngv-
arar okkar munu flytja lögin
ásamt hljómsveit Gunnars sjálfs.
Þeir eru eflaust margir, sem bíða
eftir þessari dagskrá með óþreyju.
XXX
Menningarneyzla" helgar-
innar var ekki eingöngu
bundin við dagblöðin og Gunnar
Þórðarson. Skrásetjari brá sér í
nýjan og vinalegan sýningarsal á
Seltjarnarnesi, sem hlotið hefur
nafnið Listver. Þar sýnir Sveinn
Björnsson lögregluforingi og list-
málari í Hafnarfirði 25 myndir,
sem hann hefur málað undir áhrif-
um frá ljóðum Matthíasar Johann-
essen. Ljóð Matthíasar eru alþekkt
og þau hafa magnað Svein til
slíkra átaka að fullyrða má að
þetta sé einhver bezta sýning sem
Sveinn hefur haldið. Það er synd
að sýningin skuli aðeins hafa verið
opin í eina viku, en henni lauk á
sunnudaginn.
XXX
Haft er eftir Halldóri Guð-
bjartssyni bankastjóra Út-
vegsbankans í NT sl. fimmtudag,
að sparifjáreigendur hefðu tekið út
mun meira fé í nóvember en þeir
lögðu inn í bankann. Sagði Halldór
að um væri að kenna rógi, sem
bankinn hefði orðið fyrir.
Það er undarleg árátta margra
málsmetandi manna á íslandi að
geta ekki kallað hlutina sínum
réttu nöfnum í opinberri umræðu.
Auðvitað mátti búast við mikilli
umræðu um Hafskipsmálið í fjöl-
miðlum í kjölfar þeirra frétta að
fyrirtækið væri á barmi gjaldþrots
og við blasti einnig stórtap Útvegs-
bankans. Nú hefur komið í ljós að
þessi stóri banki mun tapa a.m.k.
350 milljónum og hann stendur á
brauðfótum eftir þessa blóðtöku.
Hér hafa átt sér stað alvarleg
mistök og það eru örgustu öfug-
mæli að kalla umræðu um málið
róg.