Morgunblaðið - 14.12.1985, Blaðsíða 81
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985
81
Glæsilegur
sigur á Sviss
— og strákarnir leika um 7. sætið
ÍSLENSKA landsliöiö í handknatt-
leik skipaö leikmönnum 21 árs
og yngri vann frækilegan sigur á
liðí Sviss á heimsmeistaramótinu
á Ítalíu í gær. Strákarnir skoruöu
23 mörk gegn 16 mörkum Sviss
og nægöi þaö þeim til aö leika
um sjöunda sæti á mótinu.
islensk liöiö þurfti aö vinna leik-
inn í gaer meö fjögurra marka mun
til aö leika um sjöunda sætiö og
þaö tókst heldur betur hjá þeim.
Þessi árangur veitir þeim sjálfkrafa
rétt til aö leika á næsta heims-
meistaramóti án þess aö leika í
undanriölum.
Svissneska liöiö, sem er sama
liö og B-liö Sviss sem geröi jafn-
tefli viö A-liö á hraömóti í Sviss
fyrr í vetur, faföi forystuna framan
af. íslenska liöiö náöi síðan aö
jafna um miöjan hálfleikinn og
haföi eitt mark yfir, 10:9, þegar
flautaö var til leikhlés.
Jafnt og þétt sigu strákarnir
fram úr og var þaö mest aö þakka
frábærri markvörslu Magnúsar
Inga Stefánssonar úr HK og sterkri
vörn fyrir framan hann. Svisslend-
ingar voru orönir hræddir viö aö
skjóta um tíma því þaö sem vörnin
tók ekki sá Magnús um.
Mikil ánægja var hjá strákunum
eftir leikinn í gær enda tími til
kominn aö þeir færu meö sigur af
hólmi þar sem þeir hafa verið mjög
óheppnir í leikjum sínum til þessa,
tapaö meö litlum mun á síöustu
mínútunum.
Mörk Itlrnds: Hermundur Sigmundsson 6.
Valdimar Grímsson 6, Július Jónasson 5,
Snorri Leifsson 2, Jakob Sigurösson 2, Geir
Sveinsson 1, Árni Friöleifsson 1.
Aörir leikir sem fram fór i gær voru:
Júgóslavia - Sovétríkin 29:29
Svíþjóö - V-Þýskaland 27:25
Danmörk - Tékkóslóvakia 18:16
A-t>ýskaland - ítalia 30:19
S-Kórea - Pólland 27:17.
Athygli skal vakinn á siöasta
leiknum sem hér er upp talinn.
A-landsliö okkar á aö leika gegn
Suöur-Kóreu í úrslitakeppninni í
Sviss í febrúar og ef marka má
þessi úrslit eru þeir meö sterkt liö.
Haukar hafa tök
á Njarðvíkingum
HAUKAR unnu Njarövíkinga í
annaö sinn á þessu keppnistíma-
bili í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leík í gærkvöldi. Þetta eru einu
leikirnir sem Njarövíkingar hafa
tapað á þessu keppnistímabili.
Haukar sígruöu meö tíu stiga
mun, 72-62, í slökum leik í Njarö-
vík. Staöan í hálfleik var 39-35
fyrir Hauka.
Njarðvik leiddi á upphafsmínút-
unum eöa þar til Haukar komust
yfir í fyrsta sinn í hálfleiknum,
14-13. Þá náöu Njarövíkingar sér
aftur á strik og komust yfir, 26-18
og sex mínútur til leikhlés. Síöan
skoruöu Njarövíkingar aöeins þrjú
stig á móti 17 stigum Hauka.
Munurinn var svo fjögur stig í hálf-
leik.
Njarövíkingar jöfnuöu í upphafi
seinni hálfleiks, 39-39. Eftir það
tóku Haukar leikinn í sínar hendur
og sigu jafnt og þétt fram úr og
sigruöu örugglega, 62-72.
Þetta var sjálfsagt einn lélegasti
leikur Njarövíkinga í vetur. Árni
Lárusson lék ekki meö og Valur
Ingimundarson var mjög slakur og
skoraði aöeins fimm stig i leiknum
og þau öll í fyrri hálfleik. Allt Njarö-
UMFN — Haukar
62:72
víkurliöiö átti miöur góöan dag.
Hjá Haukum var Pálmar Sigurös-
son yfirburöamaður og má segja
aö hann hafi unniö leikinn fyrir
Hafnfiröinga meö góöri aöstoö
ivars Webster í vörninni. Ólafur
Rafnsson stóö einnig vel fyrir sínu.
Stig UMFN: Krístinn Einarsson 12, isak
Tómasson 10, Ingimar Jónsson 10, Jóhannes
Krislbjðrnsson 10. Heigi Rafnsson 7, Valur
Ingimundarson 5, Hreiðar Hreiöarsson 4, Eliert
Magnússon 4.
Stíg Hauka: Pélmar Sigurösson 35, Ólatur
Rafnsson 16, Krlsllnn Kristinsson 6. Ivar
Webster 5, Hennlng Henningsson 4, Reynlr
Kristjénsson 4 og ivar Asgrimsson 2.
ÓTh.
Kvennalandsliðiö:
Fjórtán marka tap
gegn Tékkóslóvakíu
ÍSLAND tapaði fyrir Tékkóslóvak-
íu, 14-28, í B-riöli heimsmeistara-
keppni kvenna í handknattleik í
Vestur-Þýskalandi í gærkvöldi.
Staðan í hálfleik var 12-6 fyrir
Tékka.
Leikur íslenska kvennaliösins
var nokkuö sveiflukenndur og
sáust oft góðir kaflar, sérstaklega
í seinni hálfeik. Besti leikmaöur
liösins var Gyða Úlfarsdóttir, mark-
vöröur, hún varöi alls 12 skot í
leiknum.
„Viö eigum einfaldlega langt í
land meö aö standa jafnfætis
þessum sterku liöum í keppninni,"
sagöi Helga Magnúsdóttir, einn af
fararstjórum íslenska liösins.
Mörk islands: Erla Rafnsdóttlr 5, Guörún
Gunnarsdóttir 3, Margrét Theodórsdóttir 2,
Arna Steinsen, Erla Luövíksdóttir, Eva Bald-
ursdóttir og Ingunn Bernódusdóttir eitt mark
hver.
íslensku stúlkurnar leika næstu
daga í botnriöli keppninnar og eru
í riöli meö Dönum, Svisslendingúm
og Bandaríkjunum. Fyrst leika þær
viö Bandaríkin á sunnudag.
Barnaskíða- Unglingaskíöa-
pakki pakki
Atomic-skíöi m. stálköntum 90—150 sm. Caber- Unglingaskíöi 130—175 sm. Atomic — Dynamic.
skíöaskór. Salomon-bindingar. Atomic-stafir. Salomon-bindingar. Caber-skór. Atomic-stafir.
Kr.
6.900,-
Kr
6.900.-
UNGLINGASKÍÐAPAKKI
Atomic-unglingaskíöi 140—175 sm. Saio.non-skór st. 35—45. Salomon-bindingar 30—90 kg.
Atomic-stafir.
11.900.-
Gönguskíöa-
pakki
Jarvinen-skíöi 190—215 sm. Salomon-skór st.
35—46. Salomon-bindingar. Jarvinen-stafir.
5.900.-
GÖNGUSKÍÐAPAKKI
Atomic-skíöi meö stálköntum 190—215 sm. Salomon-skiði. Salomon-bindingar. Jarvinen-stafir,
allar lengdir.
8.500.-
A
Bikarinn
\f Laugavegi 116 vió Hlemm, símar 26690 -14390. Skólavörðustíg 14, símar 24520 -17054,
mssasmasB
3mHH
ZZáLnSSi