Morgunblaðið - 16.01.1986, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.01.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1986 31 Frá opnun Listahátíðar unga fólksins á Kjarvalsstöðum. Kjarvalsstaðir: Listahátíð unga fólksins lýkur á sunnudagskvöld LISTAHÁTÍÐ unga fólksins stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum á vegum íþrótta- og tómstunda- ráðs Reykjavíkur. Hátíðinni lýk- ur á sunnudagskvöld kl. 22.00. í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30 koma nemendur úr Hagaskóla og fara með eftirhermur og sýningar- flokkurinn Kisa sýnir hreyfilist. Annað kvöld, föstudag, á sama tíma, flytja nemendur úr Æfínga- skóla KHÍ leikritið „Partý" eftir Odd Bjömsson. Á laugardag kl. 15.00 kemur íslandsmeistarinn í diskódansi, Helena Jónsdóttir, og sýnir diskódans og Máni Svavars- son leikur framsækna rafmagns- tónlist. Á lokadegi hátíðarinnar sem er á sunnudaginn koma dansarar frá Listdansskóla Þjóðleikhússins kl. 15.00 auk þess sem Strengja- kvartett frá Tónlistarskólanum í Reykjavík flytur nokkur lög. Allir eru velkomnir á hátíðina og er aðgangur ókeypis. Sáifræóistöóin Námskeið BÖRNOG SJÁLFSTRAUST Lærðu að þekkja persónuleg viðbrögð þín og kynntu þér árangursríkar aðferðir sem auka sjálfsöryggi barna. ---------------- Efni námskeiðs: ---------------------- • Samskipti fullorðinna — áhrif á börn • Hver eru æskileg/óæskileg viðbrögð fullorðinna • Staða barns í fjölskyldu — samband systkina • Nýjar leiðir: — að minnka árekstra ' — að auka samvinnu — að styrkja sjálfstraust Leiðbeinendur sálfræðingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. Innritun og nánari upplýsingar í síma Sálfræðistöðvarinnar: 687075 milli kl. 10 og 12 fh. iMtogmi&lfitoffe Metsölublaó á hverjum degi! Þetta er auglýsing frá Mæðrabúðinni Utsala afsláttur Mikið úrvai af barnafatnaði á 0—6 ára. Peysur frá 395 kr. Jogging frá kr. 450. Buxur frá kr. 490. Bankastræti 4, sími 12505

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.