Morgunblaðið - 16.01.1986, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.01.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR1986 39 Þegar lengstur er gangur sólar á Islandi er eins og Matthías Joch- umsson orðaði það, „skín við sólu Skaga§örður“. I vorblíðunni sækir á ferðamenn þorsti og til svölunar á þrosta sínum komu þeir félagar við á bæ í innsveitum Skagafjarðar er heitir Reykjavellir. Húsbændur þar voru þá Guðrún Andrésdóttir og Pálmi Sveinsson. Rifjast nú upp vísa séra Tryggva Kvarans á Mælifelli: Pálma gistum væna vist veitti fyrstur grönnum. Almakvistum lífsaflist liknar þyrstum mönnum. Ferðunum í Skagafjörðinn fjölg- aði ört þó ekki vegna frekari jarðar- kaupa eða arðs af hlunnindum held- ur vegna heimasætunnar á Reykja- völlum, Hólmfríðar Pálmadóttur, sem Bjami heillaði úr sveitinni í hjónaband í höfuðborgina. 2. júní 1945 gengu þau Bjami og Hólm- fríður í hjónaband og áttu þau því sl. vor 40 ára brúðkaupsafmæli, og aldrei orðið sundurorða. Orlofsferðir þeirra hjóna voru ætíð farnar norður í Skagafjörð, þar eignaðist Bjami marga góða vini sem kveðja hann nú með þökk fyrir margar gleðistundir. Síðasta ferð hans norður var fyrir fimm árum er hann söng og spilaði á gamla orgelið á Reykjavöllumk í fimmtugasafmæli Péturs mágs síns. Mjög kært var með Bjama og tengdaforeldrum hans, hann pass- aði svo vel inn í heimilislífið. Söng- ur, tónlist, gleði og góðvild ívafíð græskulausu gamni ríkti ávallt í navist þessa látna vinar. Bjami var góður söngmaður hafði háa tenór- rödd og mjög tónnæmur, einnig lék hann á hljóðfæri af fíngrum fram, því var hann mjög eftirsóttur á gleðifundum er tekið var lagið í góðra vina hópi líkt og frændi hans Sigfús Halldórsson tónskáld. Undir- rituðum er kunnugt um þrjú lög er Bjami samdi en fór dult með og verður eitt þeirra leikið á orgelið við útförina í dag. Söngnám stundaði Bjami í nokk- ur ár hjá dr. Frans Mixa. Ungur að árum var hann í KR og spilaði fótbolta. Mun hann hafa verið yngsti keppandi frá íslandi á Ólympíuleikunum í Berlín 1936. Þegar KR-ingar færðu upp leikrit Matthíasar,„Utilegumennina“, lék Bjami Ketil-Skræk en Erlendur Ó. Pétursson lék Skugga-Svein. Góður og nærgætinn heimilis- faðir var hann og hjálpaði konu sinni mikið við heimilisstörfin. Bjami og Hólmfríður eignuðust fímm böm, Pálma Ólaf, Önnu Karitas, Kristin, Sigurð og Bjama. Öll hafa bömin fengið í erfðir tón- listarhæfíleika. Að leiðarlokum er margs að minnast sem yrði of langt hér upp að telja og bið ég þeim látna bless- unar Guðs með þökk fyrir góðar endurminningar. Systkinum Bjama, þeim Ingibjörgu og Ingvari, svo og fóstursystur, Sigríði, og fjölskyldum þeirra er vottuð hlut- tekning. Bjarta minningin um blíða brostið og hlýja handtakið hans Bjama verði nánustu aðstandend- um hans að leiðarljósi um ókomin æviár. Sveinn S. Pálmason Þórunn O. Þórðar- dóttir — Minning Fædd 2. janúar 1922 Dáin 9. janúar 1986 Við vitum aldrei hver fær hvíld- ina næst. Að þessu sinni var það Þórunn frænka mín. í dag kveð ég hana í hinsta sinn. Eftir langa dvöl á Vífílsstaðaspítala yfírgaf hún okkur og hvarf á æðri braut. Þórunn Oddný Þórðardóttir fæddist 2. janúar 1922 að Eskiholti í Borgarfírði. Foreldrar hennar voru Loftveig Guðmundsdóttir og Þórður Oddsson bóndi f Eskiholti. Þau hjón- in eignuðust stóran stúlknahóp og einn dreng en hann lést í æsku. Þórunn var yngst þeirra systra en þær sem eftir lifa em Kristín, Guðfinna Þóra, Halldóra og Rósa. Ungar misstu þær systur foður sinn og fluttust þá til Hafnarfjarðar en síðar til Reykjavíkur, þar sem þær ólust upp hjá móður sinni og stjúpa, Gesti Gunnlaugssyni. Á efri ámm sínum fluttust þau Loftveig og Gestur ásamt Þómnni að Meltungu f Kópavogi. Þar hlúði hún að þeim, en móðir hennar lést árið 1968 og Gestur stjúpi hennar árið 1984. Þómnn bjó sfðan alla tíð í Meltungu. Hún eignaðist þrjú böm með sambýlismanni sínum, Jóni Ámasyni, þau em Gestur Jónsson, Svanhildur Jónsdóttir og Jóna Jóns- dóttir. Jón lést sama ár og Þómnn ól þeirra yngsta bam, Jónu. Það var ljóst á síðari ámm að Þómnn var mikill sjúklingur og hún lagðist oft inn á sjúkrahús. í fyrstu var um skammtfma legur að ræða, en seinna kom f ijós að hún átti ekki afturkvæmt heim. Bamabömin glöddu hjarta henn- ar, en þar sem þau búa úti á landi, sá hún þau sjaldan og sum aldrei. Þómnn var vinur vina sinna og skrafaði margt á góðum stundum. Hún átti það til að brosa að lífinu þrátt fyrir slæma heilsu og lítið þol. Það þarf sterkt hjarta til að standast allar þær raunir í lífínu sem Þómnni vom settar. En hún stóðst þær og sýndi okkur, að þrátt fyrir mótbámr er alltaf þess virði að lifa og minnast gleðistundanna. Svo plmörg perlan, hrein sem geislans giit var grafin djúpt! hafsins leyndardóm, svo plmargt blómið átti ylmi og lit á öræfin að sóa, dauð og tóm. (ThomasGrey) Megi hún hvíla í friði. HaUdóra Birting afmælis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargrein- ar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minning- arorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Meginregla er að minningargreinar birtist undir fullu höfundarnafni. Fjölbreytt námskeiö og snyrtivörur fyrir ungar og djarfar konur á öllum aldri Getum nú aftur innritað'nýja nemendur á hin vinsælu námskeið okkar f dag- og kvöldmálun. Við bjóðum glæsilegt úrval af nýjum og fjölbreyttum snyrtivörum og þjónustu fyrir Ongar og djarfar konur á öllum aldri. BJÖÐUM EINNIG UPP A LJÓSABEKKI. Einkaumboð fyrir No Name snyrtivörur, Bal A Versalles ilmvötn, Escapade húö- og hárkrem með blóma- fræflum v : Zetulið Mímis er nafn á námskeió- um fyrir þá sem kunna málin þokkalega eða jafnvel prýðilega en skortir tækifæri til aó halda þeim vió. Mímir býður uppá mögu- leika til aó vióhalda mála- kunnáttunni á skemmtilegan hátt á veitingahúsinu Gauki á Stöng í vetur. Umræóustjórarnir eru erlendir og þú ert á zetuliós- æfingum einu sinni í viku á mánu- dögum, hittir sama fólkið við sama boró á sama tíma, kl. 18.00. Zetuliös-æfingar verða haldnar í emu smni 1 viru sama fólkið á sama tíma við sama borð öðrum tungumálum ef næg þátttaka fæst. Upplýsingar og Innrltun í sfma 10004 21655 Mímir ÁNANAUSTUM 15 RITARASKÓLI ORO/MYND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.