Morgunblaðið - 16.01.1986, Side 4

Morgunblaðið - 16.01.1986, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1986 Eldur í mjólkur- búinu á Selfossi — skemmdir óljósar en 12.000 lítrum af kakó- mjólk verður að hella niður Selfossi, ló.janúar. UM KLUKKAN 14.30 í dag kom upp eldur í gömlu mjölvinnsluhúsi Mjólkurbús Flóamanna. Mikinn reyk lagði um búið, einkum vestur hluta þess. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, sem kom upp í plastein- angrunarstæðu og kviknaði er verið var að vinna við logskurð. Tjón er ekki að fullu ljóst, en 12.000 lítrum af kakómjólk verður að hella niður vegna reykskemmda. Gamla mjölvinnslan, sem tengist aðalbyggingu búsins að norðan, var í endurbyggingu og búið að fjar- lægja allar vélar fyrir nokkru. Eftir hádegið var sett þar inn nokkurt magn af einangrunarplasti, sem fara átti á útveggi. Einn þeirra starfsmanna, sem unnu við endur- bygginguna, notaði logsuðutæki við að fjarlægja jámrör úr milligólfí. Neistar féllu niður rörið og á pla- steinangrunina fyrir neðan, þar sem eldurinn gaus skyndilega upp. Þeir menn, sem þama voru við vinnu, forðuðu sér snarlega enda fylltist gamla mjölvinnsluhúsið af reyk á skömmum tíma. Mestur reykur komst í vesturhluta búsins, þar sem ekki sá handa skil. í vesturhlutanum eru mjöl- geymslur, ostagerð, pökkun á G-vörum og stór vörugeymsla. Mjölgeymslurnar tengjast hinni nýju mjölvinnslu hússins um ganga, sem þar eru á milli. Reykurinn komst inn í G-vörudeildina um loft- ræstikerfí hennar og fylltist hún af reyk á skömmum tíma og starfs- menn þar forðuðu sér í skyndingu. Starfsmenn búsins brugðust hárrétt við aðstæðum, lokuðu öllum dyrum og heftu þannig útbreiðslu reyksins og forðuðu sér úr húsinu. Þannig barst enginn reykur inn í vöru- geymsluna, þar sem geymdar eru vörur og umbúðir fyrir tugi millj- óna. Svo vel vildi og til, að hin nýja mjölvinnsla mjólkurbúsins var ekki í gangi, en hún dregur inn mikið loft í mjölþurrkarana. Mikið tjón hefði því getað orðið, hefði hún verið í gangi. í tönkun G-vörudeild- arinnar voru um 12.000 lítrar af kakómjólk, sem hellt verður niður. Austurhluti búsins slapp að veru- legu leyti við reyk. Þar eru vélasal- ur, pökkun á nýmjólk, smjörgerð og jógúrtgerð, skyrgerð ogtankaaf- greiðsla. Svo heppilega vildi til að nýlokið var móttöku á mjólk og búið að dæla henni allri í gegn um vélasal- inn út ú stóra geymslutanka. Skemmdir í mjólkurbúinu af völdum reyks koma ekki að fullu í ljós, fyrr en lokið er við að yfirfara allar vélar, pakkaðar framleiðsluvörur og umbúðir. Ekki mun koma til neinn- ar stöðvunar á afgreiðslu búsins á framleiðsluvörum, því þær voru nær allar á öruggum stað í vörugeymsl- unni. Einhveijar framleiðslutafír eru þó óhjákvæmilegar á G-vörum og ostum á meðan allsheijar hrein- geming á búinu fer fram. Síðdegis í dag voru strax sápuþvegnar þær deildir og tæki, sem nota þarf við framleiðslu í fyrramálið. „Þetta verður ein allshetjar hreingeming," sagði einn starfsmannanna, en þegar sumir þeirra yfírgáfu vinnu- stað sinn í dag, voru hvít vinnuföt þeirra grá að lit og þeir krímugir í framan. Búningsherbergi þeirra, snyrting og matsalur fylltust af reyk, en eldhús slapp þó að mestu. Sig. Jóns Slökkviliðsmenn að störfum. Morgunblaðið/Sig. Jóns Hornafj ar ðartogarinn kominn að bryggju á ný LAUST eftir klukkan fimm í gærmorgun tókst að ná togaranum Þórhalli Daníelssyni SF af strandstað í Hornafjarðarhöfn og var hann kominn að bryggju um hálftima síðar. Verið er að meta tjónið, sem orðið hefur í togaranum við slysið í höfninni á mánudagskvöld- ið. Ljóst er að nokkrir mánuðir líða þar til togarinn heldur aftur til veiða. Sjópróf vegna slyssins hófust í gær. í fyrrakvöld tókst að loka öllum „Þegar fór að falla að um hálf opum á togaranum, þar sem hann lá á hliðinni í höfninni. Þá barst björgunarmönnum og kraftmikil dæla frá Vegagerð ríkisins og fór dæling á sjó úr skipinu þá að bera eðlilegan árangur, að þvf er Her- mann Hansson, framkvæmdastjóri útgerðar skipsins, sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær. fimmleytið var togað í togarann með vélgröfu úr landi og þá tókst að rétta hann við. Síðan biðum við eftir flóðinu og stuttu síðar dró Steinunn SF togarann að bryggju, þar sem hann er nú,“ sagði Her- mann. „Það er dálítil slagsíða á honum ennþá en það stafar af því að það á eftir að dæla olíu á milli tanka." Hermann sagði að björgunar- menn hefðu staðið sig feiknarlega vel - félagar í björgunarfélaginu, skipveijar á togaranum, skipveijar á Steinunni og aðrir, sem lögðu hönd á plóginn. Enn hefur ekki verið gerð tilraun til að ná vélbátnum Hafnarey SF upp en togarinn sökkti bátnum þegar hann sigldi stjómlaus yfír höfnina í vonskuveðri á mánudags- kvöldið. Tjón eigenda Hafnareyjar verður væntanlega bætt af trygg- ingarfélögum bátsins og togarans. Málflutningur vegna Fijáls útvarps; Akæran brot á grunn- reglu íslensks rettar Morgunblaðið/Ámi Sæberg Úr réttarsal I Sakadómi Reykjavíkur, frá vinstri: Sverrir Einarsson sakadómari, Hjördís Þorsteins- dóttir, dómritan. A ákærubekk: Kjartan Gunnarsson, formaður Útvarpsréttarnefndar og framkvæmda- stjóri Sjálfstæðisflokksins, dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Eirikur Ingólfsson fulltrúi í mennta- málaráðuneytinu og Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. veijandi. — segir Jón Steinar Gunnlaugsson, hrl. verjandi ákærðu í SAKADÓMI Reykjavíkur fór fram munnlegur málflutningur f gær í máli ákæruvaldsins gegn Kjartani Gunnarssyni formanni útvarpsréttamefndar og fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks- ins, dr. Hannesi Hólmsteini Giss- urarsyni og Eiríki Ingólfssyni fulltrúa í menntamálaráðuneyt- inu vegna útvarpsrekstrar dag- ana 2. til 10. október 1984. Þá stóð yfir verkfall félagsmanna í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og höfðu starfsmenn Ríkis- útvarpsins lagt niður vinnu. Akærðu er gefið að sök að hafa brotið lög um einkarétt Ríkisút- varpsins til útvarpsflutnings og að hafa ekki sótt um leyfi til fjarskipta. Enginn fulltrúi ákæruvaldsins var í réttarsalnum en veijandi hinna ákærðu, Jón Steinar Gunnlaugsson hrl., fór fram á sýknun á báðum liðum ákærunnar og sagði meðal annars að einkaréttur Ríkisútvarps- ins til útvarpsflutnings hefði fallið niður þegar útsendingar þess hættu með útgöngu starfsmanna. Akærðu hefðu gripið til neyðarréttar og stofnað félagið Frjálst útvarp, vegna brýnnar nauðsynjar á að gefa almenningi kost á að fylgjast með þjóðmálum í þeim sviptingum sem þá áttu sér stað í verkfalli BSRB og bókagerðarmanna. Hlutdrægar fréttir Þegar Ríkisútvarpið hóf fréttaút- sendingar tvisvar á dag 6. október 1984 var ákveðið að halda áfram útsendingum í Fijálsu útvarpi, því ekki þótti tryggt að í fréttaflutningi Ríkisútvarpsins yrði gætt hlutleysis á meðan starfsmenn fréttastofunn- ar ættu í kjarabaráttu. í máli veijandans kom fram að óttinn reyndist ekki ástæðulaus og máli sínu til stuðnings lagði hann fram afrit af fréttum, sem lesnar voru í fréttatíma Ríkisútvarpsins eftir að útsendingar hófust á ný. Hann gagniýndi meðal annars notkun fréttamanna á orðinu „ólög- legar" um einkaútvarpsstöðvar, í því kæmi fram ótímabær áfellis- dómur. Benti hann meðal annars á að í fréttatíma daginn sem starfs- menn í Starfsmannafélagi Reykja- víkurborgar gengu til atkvæða- greiðslu um nýgerð drög að kjara- samningi, hefði einungis verið haft samband við Krisiján Thorlacius formann BSRB og lesin upp frétt, þar sem hann hvatti fólk til að sýna samstöðu og fella samningana. Það hefði ekki verið fyrr en daginn eftir að Haraldur Hannesson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar fékk tækifæri að eigin frum- kvæði til að skýra sitt mál en þá var kjörfundi lokið. Kjaradeilunefnd, óháðum aðila, hafí þótt ástæða til að senda frétta- stofu Ríkisútvarpsins fréttatilkynn- ingu til að skýra hlutverk sitt. Þrátt fyrir beiðni um að fréttin yrði lesin upp óbreytt hafi upphafskaflanum verið sleppt en þar kemur meðal annars fram, að fréttastofa Ríkisút- varpsins hafí sjaldan séð ástæðu til að leita álits hjá nefndinni, á þeim málum, sem hún fékkst við og hafí viðleitni hennar til að fá fréttir lesnar ekki borið árangur. Taldi veijandinn sannað að rök ákærðu fyrir áframhaldandi útvarpssend- ingum hafí verið réttmæt. Nýlög Sýknukröfu sína byggir veijand- inn meðal annars á því, að nú séu gengin í gildi ný útvarpslög, sem heimila útvarpsrekstur að fengnu leyfí. í því sambandi visar hann í upphaf 2. gr. almennra hegningar- laga en þar standi: „Hafí refsilög- gjöf breyst frá því að verknaður var framinn til þess er dómur geng- ur, skal dæma eftir nýrri lögunum, baeði um refsinæmi verknaðar og refsingu ..." Það væri því ljóst að ekki væri hægt að dæma eftir útvarpslögum sem ekki væru lengur í gildi og yrði að taka mið af nýju útvarpslögunum. Enginn frá saksóknara Taldi veijandi ákæruna af póli- tískum toga. Ljóst væri að fjöldi annarra útvarps- og sjónvarps- stöðva, sem sjónvarpa í gegn um kapalkerfi, hefðu verið og væru enn starfandi um allt land án þess að ákæruvaldið hefði séð ástæðu til að kæra þá starfsemi. Væri aðeins ákært vegna stöðva, sem sætt hefðu gagnrýni opinberra starfsmanna í verkfalli. Brotið væri gegn reglunni, að allir væru jafnir fyrir lögunum. „Ég skoraði á ríkissaksóknara að mæta og flytja mál sitt munn- lega,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugs- son að lokum. „Hann mætir ekki. Þessi meðferð ákæruvaldsins er andstæð lögunum og brot gegn stjómarskrárbundinni gmnnreglu íslensks réttar. Jafnrétti manna fyrir lögunum." Sverrir Einarsson, sakadómari, dæmir í þessu máli. Fjölmenni var við málflutninginn f sakadómi Reykjavíkur í gær. Að lokinni ræðu veijanda flutti dr. Hannes H. Giss- urarson, einn ákærðra, ræðu með leyfi dómarans. Færði hann heim- spekileg, lögfræðileg og söguleg rök fyrir réttmæti þess, að FVjálst útvarp hóf starfsemi sína.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.