Morgunblaðið - 16.01.1986, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 16.01.1986, Qupperneq 46
 46 MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1986 „Hvaöátto vié, „ lattbnn út"r> Eg sem get -eicki -eínu sinni hreyffc mi^-" Hvað heitir gatan? Veit ekki. Er ekki innanbæjar- maður! Með mor^unkaffinu HÖGNI HREKKVlSI Tölvubankarnir eru opnir allan sólarhringinn Til Velvakanda. „ Sparifj áreigandi" spyr í dálki þínum laugardaginn 11. janúar hvort einhver bankanna geti ekki í samkeppnisskyni haft opið fram eftir kvöldi, t.d. einu sinni í viku eða á laugardögum, vegna þeirra sem eiga erfítt með að komast frá vinnu í banka. Vegna þessarar fyrirspumar vill Iðnaðarbankinn minna á að tölvu- bankamir eru opnir allan sólar- hringinn, alla daga vikunnar. Þar er hægt að sinna öllum algengustu bankaviðskiptum, leggja inn, taka út, greiða gíróreikninga, skoða stöðu reikninga og millifæra. Iðnaðarbankinn hefur veitt þessa þjónustu í rúmt ár. Farið var af stað með hana vegna eindreginna óska um lengri opnunartíma, sem fram komu í skoðanakönnun sem bankinn lét gera meðal viðskipta- vina sinna. Tölvubankar em svar við kröfum nútímafólks um sjálfsafgreiðslu í bankaviðskiptum eins og ýmsum öðmm viðskiptum. Ennfremur um þjónustu utan hefðbundins vinnu- tíma ekki síst með tilliti til þess að algengt er orðið að bæði hjónin vinni fullan vinnudag utan heimilis. Það hefur verið okkur í Iðnaðar- bankanum mikil ánægja að vera brautryðjendur f þessari þjónustu hérlendis og við bjóðum „Sparifjár- eiganda" velkominn til viðskipta, allan sólarhringinn, alla daga árs- ins. Magnús Pálsson f orstöðumaður markaðssviðs Iðnaðarbankans. 10100 KL. 10—11.30 frámAnudegi TIL FÖSTUDAGS Um opnunartíma banka Til Velvakanda. Mikil saxnkeppni er nú komin upp milli bankanna um sparifé lands- manna og sjást nú auglýst allra handana gyWWnA J»ar sem b:. kamir \iy'Ak jfull <>g grj-nn skúga. I»að nr af sem áður var þegar Kj»arifc manna rýmaði I bönkunum og er það auðvitad vel. En cill lanjjar mig til að færa í tal og það er hinn samræmdi opnunartími bankanna, þeir eru aðcins oj>nir um miðjan daginn. Það segir sig sjálft að ekki er auðve't fyrir menn sem stunda vinnu alla virka daga vikunnar að komast f banka og sumir komast alls ekki í banka nema með því móti að taka sér fri frá vinnu. Gæti ekki einhver bankinn gert breytingar á opnunartfma sinum f samkeppnis- skyni og haft t.d. opið fram eftir kvöldi einu sinni í viku eða á laugar- dögum. Það myndi koma sér vel fyrir marga vinnnndi menn og varla verða mjög kostnaðarsamt. Sparifjóreigandi i Yíkverji skrifar Vegfarandi, sem býr í byggðun- um sunnan Reykjavíkur kom í gær að máli við Víkveija og kvaðst mjög óhress með þá skoðun, sem fram kom í dálkunum hér í gær, að takmarka eigi lengd þess tíma, sem ljósið við nýju brúna á Kringlu- mýrarbraut logar við þeim, sem koma sunnan og beygja til vinstri inn á brúna. Verið getur, að hann hafí nokkuð til síns máls, en þá vaknar spumingin, hvort brúin sé ekki illa hönnuð? Hefði ekki legið beinast við að akreinin inn á brúna fyrir umferð sem kemur að sunnan, hefði komið samsíða umferð austan Bústaða- vegar og samlagast síðan umferð- inni, líkt og gerist á Skúlagötu, er Sætún kemur inn á hana. Þar er frátekin akrein fyrir Sætúnsum- ferðina, sem samlagast Skúlagötu- umferðinni allt fram á móts við gatnamótin við Klapparstíg. Þar þarf enginn að stöðva og umferðin gengur snurðulaust fyrir sig. En þetta vandamál má enn leysa við brúna yfír Kringlumýrarbraut. Allvíðáttumikið svæði er austan Kringlumýrarbrautar og þar er unnt að taka slaufu í austur og láta umferðina síðan koma skáhallt inn á Bústaðaveg áður en komið er að brúnni. Er þá hægt að hafa sama háttinn á og hafður er við gatna- mót Sætúns og Skúlagötu og eng- inn verður fyrir töfum á leið sinni yfír brúna. Má þá taka ljósin niður og nota annars staðar. XXX Líkiegast eru íslendingar ein- hver íhaldssamasta þjóð í ver- öldinni og þótt víðar væri leitað. Eflaust vilja menn þó ekki viður- kenna það. Allir muna Qaðrafokið, þegar átti að rífá föaspýtumar, sem nú kallast Torfan og kennd er við bakarameistara er hét Bemhöft. Þá varð einnig mikill handagangur í öskjunni, er hrófla átti við húsum í Gijótaþorpi og mikið var á sínum tíma skrifað um varðveizlu fúaspýt- anna í Fjalakettinum. Nú hefur svo borið við, að Bjamaborg hefur verið auglýst til sölu, heldur óhijálegt timburhús allstórt, sem stendur við Hverfis- götu og Vitastíg. Húsið mun vera byggt á fyrsta áratug þessarar aldar og hefur hin síðari ár þjónað sem leiguhúsnæði borgarinnar. Það kæmi ekki á óvart, ef einhveijir tækju nú upp baráttu fyrir vemdun þessa húss, sem satt að segja hefur ekki verið til prýði í borginni síðast- liðin 40 ár. Húsið er ekki friðað og því má reisa þar nýtt hús. Nú verður gaman að sjá, hvort einhver ber þessar gömlu fúaspýtur í Bjama- borg fyrir bijósti, en borgin áskilur sér rétt til þess að taka hvaða til- boði sem er í húsið eða hafna öllum. XXX Gamalt og gott máltæki segir: Það er of seint að byrgja brunninn, þegar bamið er dottið ofan í. Enn kemur manni þetta orðtæki í hug, þegar Morgunblaðið er lesið í gær, en þar segir, að heilbrigðisráðherra fari fram á aukafjárveitingu til eldvama í Kópavogshæli og á Landspítala. Á Kópavogshæli varð hörmulegur atburður um helgina, er maður lézt af reykeitrun. Eldur kom upp í svefnskála, þar sem fjöldi manns svaf og 13 aðrir vistmenn voru fluttir í sjúkrahús. Forráðamenn hælisins áttu viðtöl við blöð, eftir bmnann og þar lýstu þeir því að þrátt fyrir ítrekaðar óskir hefði ekki fengizt ijárveiting til lágmarks brunavama. Ekki voru einu sinni reykskynjarar í húsinu. Þetta er með ólíkindum. Reykskynj- arar eru ódýr og þörf tæki, sem ættu að vera í öllum húsum, þar sem fólk sefur. Þeir geta og hafa oft bjargað mannslífum. Sjúkrahús eru líka til þess að bjarga mannslíf- um. Það er því ófyrirgefanlegt, að engin eldvamartæki séu í þeim og vonandi verður hinn sorglegi at- burður um helgina til þess að ráða- menn vakni og þessum málum verði strax kippt í viðunandi horf. XXX Gleðifréttir berast utan úr heimi fyrir þjóð, sem byggir á orku- frekum iðnaði eins og t.d. íslenzkur sjávarútvegur er. Olíuverð stór- lækkar og þá sérstaklega gasolía. Einnig hefur orðið veruleg lækkun á verði svartolíu og bensín. Þetta ætti að koma Islendingum vel og jafna olíuinnkaupareikning olíufé- laganna. í öllum alvöru löndum geta bfl- eigendur glaðst yfír lækkun bensín- verðs. En geta Islendingar það? — eða hafa þeir ástæðu til þess? Þvi miður er svarið neitandi og skýring- in er, að þeir eru svo skattlagðir yfír höfuð, að veruleg lækkun á bensíni getur aldrei orðið veruleg lækkun til neytenda. Sannleikurinn er sá, að bensínverð til neytenda er hér 35 krónur fyrir hvem lítra, en innkaupsverðið er um það bil 8 krónur. Lækki það um 10%, munar ekki nema um 80 aura og því er 10% lækkun innkaupsverðs ekki aðeins 2,3% lækkun á útsöiuverði. Þannig má segja, að ríkisvaldið éti upp lækkunaráhrif heimsmarkaðs- verðs, sem í raun hefur sáralítil áhrif á pyngju hins íslenzka skatt- borgará.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.