Morgunblaðið - 13.02.1986, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
j
STOFNAÐ1913
36. tbl. 72. árg.______________________FIMMTUDAGUR13. FEBRÚAR1986___________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Filippseyjar:
> > > AP/Símamynd
VETRARRIKIIROM
Mikið vetrarríki er víða í Evrópu og frosthörkur sums staðar meiri en elstu menn muna. Á Ítalíu liggur
næstum landið allt undir hvítri mjallarbreiðu, sem gert hefur ökumönnum og öðrum erfitt fyrir, en krakk-
amir kunna þeim mun betur að meta snjóinn. Þessi rómversku böm réðu sér ekki fyrir kæti þegar þau
renndu sér á snjóþotum niður hæðardragið við Colosseum.
Sikorsky og Fiat
hrepptu Westland
London, 12. febrúar. AP.
HLUTHAFAR í Westland-þyrlufyrirtækinu breska
ákváðu í dag að taka kauptilboði bandarísku Sikorsky-
verksmiðjanna. Þar með var bundinn endi á tilraunir
evrópskrar fyrirtækjasamsteypu til að ná meirihluta í
fyrirtækinu.
í atkvæðagreiðslunni fóm leikar
þannig, að 67,8% hiuthafa vildu
taka tilboði Sikorskys og Fiats á
Ítalíu en 32,2% vom því andvíg.
og Leon Brittan, fyrmrn iðnaðar-
ráðherra. Heseltine sagði í dag,
að hann teldi fráleitt að selja fyrir-
tæki, sem tengt væri vömum
landsins, í hendur manna, sem
ekki væri vitað hveijir væm. Átti
hann þá við ónafngreindu fyrir-
tækin sex en orðrómur hefur verið
um, að þar sé um að ræða breska
eða svissneska banka.
Aðeins þurfti til einfaldan meiri-
hluta að þessu sinni. Strax í fund-
arbyijun fóra evrópsku fyrirtækin
fram á, að atkvæðagreiðslunni
yrði frestað í þijár vikur en því
var hafnað með sama meirihluta
og samþykkti tilboð Sikorskys.
David Home, starfsmaður
Lloyds-banka og ráðgjafi evrópsku
fyrirtækjanna, krafðist frestunar
á atkvæðagreiðslunni á þeim for-
sendum að nýlega hefðu sex
ónafngreind fyrirtæki keypt rúm
20% hlutabréfa í Westland og
kvaðst hann gmna, að þau kaup
hefðu verið gerð til að greiða fyrir
sölunni til Sikorskys. Sir John
Cuckney, stjómarforseti West-
lands, kvað ekki unnt að bíða
lengur vegna óvissunnar um fram-
tíð Westlands og nokkur hundmð
verkamanna hjá Westland, sem
söfnuðust saman fyrir utan fund-
arstaðinn, hvöttu til að tilboði
Sikorskys yrði tekið.
Deilumar um Westland-málið
hafa reynst Margaret Thatcher,
forsætisráðherra, þungar í skauti
og tveir ráðherrar hafa sagt af sér
vegna þess, þeir Michael Heselt-
ine, fyirum vamarmálaráðherra,
Reagan varaður
við siguryfirlýs-
ingum Marcosar
Manila, 12. febrúar. AP.
CORAZON Aquino, forsetaframbjóðandi stjórnarand-
stöðunnar á Filippseyjum, kvaðst í dag hneyksluð á
þeim orðum Reagans, Bandaríkjaforseta, að jafnt sljóm
sem stjómarandstaða kynnu að hafa ástundað kosninga-
svindl. Varaði hún hann við að samþykkja siguryfirlýs-
ingar Marcosar og undir þau orð hafa bandarískir þing-
menntekið.
„Ég tel, að ekki aðeins Filippsey-
ingar, heldur einnig mikill meiri-
hluti Bandaríkjamanna og þing-
manna þeirra mundu fordæma það
ef Bandaríkjaforseti féllist á, að
Marcos hefði sigrað," sagði Coraz-
on Aquino í dag og kvaðst hún
hneyksluð á þeim orðum Reagans,
að hugsanlega hefðu bæði stjóm
Bill Paul, forstjóri Sikorsky, og
Sir John Cuckney, stjómarfor-
maður Westland, eftir atkvæða-
greiðsluna. AP/Sfmamynd
og stjómarandstaða staðið að
kosningasvindli. Vakti hún athygli
á, að alþjóðlegar eftirlitsnefndir,
þar á meðal sú, sem Reagan sendi,
hefðu aðeins orðið vitni að kosning-
asvindli stjómarinnar.
John Kerry, öldungadeildarþing-
maður, sem var í bandarísku eftir-
litsnefndinni á Filippseyjum, sagði
í dag, að enginn vafi léki á, að
stjómvöld á Filippseyjum hefðu
haft í frammi stórkostlegt kosn-
ingasvindl og að Bandaríkjastjóm
gæti ekki leitt það hjá sér. Kerry
og Richard Lugar, öldungadeildar-
þingmaður, formaður eftirlits-
nefndarinnar, hafa báðir varað
Reagan forseta við að taka sigur-
yfirlýsingar Marcosar trúanlegar.
Þingið á Filippseyjum bjóst í dag
til að hefja talningu atkvæða en
það hafði upphaflega hálfan mán-
uð til þeirra starfa. Síðustu tölur
frá kosninganefnd stjómarinnar
era þær, að Marcos hafi 52% at-
kvæða en óháð kosninganefnd
segir aftur á móti, að þessi sé
atkvæðatala Corazon, mótfram-
bjóðanda Marcosar.
Shcharansky ætlar að halda
mannréttindabaráttunni áfram
vegna þeirra sem
„ég hvarf frá og
enn sitja í fangelsi“
Jerúsalem, 12. febrúar AP.
ANATOLY Shcharansky fagnaði í
dag fengnu frelsi og hét því jafnframt
að láta ekki merkið niður falla í
mannréttindabaráttunni. Kvaðst hann
eiga skuld að gjalda þeim mönnum,
sem „ég hvarf frá og enn sitja í fang-
elsi“.
„Á þessum mesta hamingjudegi í lífí mínu
verður mér hugsað til þeirra, sem ég fór frá
í fangelsunum og í vinnubúðunum, til manna,
sem ekki vilja gefast upp í baráttunni fyrir
mannréttindum. Ég vona, að andlegur styrkur
þeirra hjálpi okkur til beijast áfram fyrir
frelsinu," sagði Shcharansky í Jerúsalem í dag
en þangað kom hann til að biðjast fyrir við
Grátmúrinn, mesta helgistað gyðinga.
Shcharansky hringdi í dag til bróður síns
og móður í Moskvu og ísraelska útvarpið
sagði, að hann ætlaði að fara þess á leit við
sovésk stjómvöld, að þau fengju að fara til
hans. Vestur-þýska dagblaðið „Bild“ skýrði
frá því á sunnudag, að sovéska stjómin hefði
ákveðið að leyfa Idu Milgrom, móður Shchar-
anskys, að fara úr landi en ekki væri þó enn
afráðið hvenær það yrði.
Shcharansky og Avital, kona hans, ætla
fyrst um sinn að hafa hægt um sig meðan
hann er að hvílast og safna kröftum eftir níu
ára fangelsi og vinnubúðavist i Sovétríkjunum.
Þau hjónin höfðu ekki sést frá því á árinu
1974, daginn eftir að þau vom gefin saman
var Ávital skipað að fara úr landi og koma
ekki aftur. Síðan em liðin 12 ár og allan þann
tíma hefur hún barist fyrir frelsi manns síns.
„Hún hefur barist eins og ljónynja,“ sagði
Shimon Peres, forsætisráðherra ísraels. „Eng-
inn staður var of ijarlægur, ekkert tækifæri
svo lítið, að hún notaði það ekki.“
SHCHARANSKY
biðst fyrir við Grátmúrinn i Jerúsalem,
einn mesta helgistað gyðinga.