Morgunblaðið - 13.02.1986, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. FEBRÚAR1986
Viljum skoða
alla möguleika
— „Smásöluálagning á búvörum
hefur hækkað gífurlega“
Steingrímur Hermannsson um búvöruverðið:
„VIÐ erum tilbúnir til að standa
að öllum þeim aðgerðum sem
rikisstjórnin getur notað til að
lækka búvöruverðið eða til að
stuðla að því að það hækki sem
allra minnst. Ég hef ekki orðið
var við ágreining um þetta á
milli stjómarfiokkanna," sagði
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra um afstöðu Fram-
sóknarflokksins til lækkunar á
verði landbúnaðarvara í tengsl-
um við lausn kjaradeilunnar.
Steingrímur sagði að búvöru-
verðið væri ákvarðað samkvæmt
búvörulögunum frá því í vor, þannig
að sexmannanefnd fjallaði um verð-
ið til bænda og fímmmannanefnd
um heildsöluverðið. „Við erum til-
búnir til að hlusta á allar tillögur
sem gætu stuðlað að sem minnstum
hækkunum," sagði Steingrímur.
Sagðist hann hafa farið fram á það
við fulltrúa bænda að stilla kröftim
sfnum í hóf og lagði á það áherslu
að það sem lækkaði í verði í tengsl-
um við kjarasamningana hefði strax
áhrif í búvöruverðinu. Þá væri verið
að athuga með möguleika á áfram-
haldandi niðurgreiðslu áburðar-
verðsins og fleira. Loks væri í at-
hugun að nota útflutningsbætur til
að hafa tímabundnar útsölur á bú-
vörum, ef það kæmi betur út fyrir
ríkissjóð.
Steingrímur sagði að landbúnað-
arráðherra hefði vakið athygli sína
á því að smásöluálagning á búvör-
um hefði hækkað gífurlega. Á súpu-
kjöti hefði smásöluálagningin til
dæmis hækkað um 589% frá sept-
ember 1982 til september 1985,
Uppsegjanlegur samningnr fari
hækkanir yfir umsamin mörk
SAMNINGAVIÐRÆÐIJR fóru fram í allan gærdag milli samninga-
nefnda BSRB og rikisins. Samninganefnd ríkisins lagði fram tílboð
í gærmorgun, sem hljóðaði upp á 7% launahækkun í þremur áföngum
á samningstímabilinu, það er að segja til næstu áramóta. Var tilboðið
byggt á þeim grunni að ríkisstjóminni tækist að standa við yfirlýs-
ingu sína frá 11. þessa mánaðar að halda almennum verðhækkunum
á árinu innan við 9%. Samninganefnd BSRB lýsti sig reiðubúna til
að ræða samningsgerð á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjómarinnar,
en gerði kröfu um fulla tryggingu fyrir verðbótum ef verðhækkanir
færa fram úr umsömdum áætlunum. Á síðdegisfundi aðila kom
samninganefnd rikisins nokkuð til móts við þessa kröfu BSRB með
þvi að bæta inn uppsagnarákvæði, færa almennar verðhækkanir
fram yfir áætlanir. Fundi lauk um klnkkan 18.00 og hefur annar
fundur verið boðaður klukkan 14.00 i dag.
í fyrra samningstilboði samn- um 2,5% 1. júní og loks um 1,5%
inganefndar ríkisins er gert ráð
fyrir því að gildandi aðalkjarasamn-
ingar ármálaráðherra og BSRB
framlengist til 31. desember 1986
með þeirri breytingu að launaliðir
hækki alls um 7% á gildistímanum,
fyrst um 3% við undirritun, síðan
1. október. Yrði samningurínn gerð-
ur á þeim grundvelli að ríkisstjómin
stæði við aðgerðir sfnar um lækkun
á opinberum gjöldum, sköttum,
vöxtum o.s.frv., og ennfremur að
fyrirliggjandi áætlanir í efanhags-
málum standist. En verði fram-
færslukostnaður á framangreindum
tímapunktum meira en einu pró-
senti hærri en áætlað er, samkvæmt
samkomulagi, skuli aðilar samn-
ingsins hafa með sér samráð um
viðbrögð við því. Náist hins vegar
ekki samkomulag fyrir 20. viðkom-
andi mánaðar skulu aðilar tilnefna
tvo menn hvor í úrskurðamefnd og
sameiginlega oddamann, sem skal
þó tilnefndur af Hæstarétti nái þeir
ekki samkomulagi um hann. Úr-
skurðamefndin ákveði breytingar á
launalið samningsins fyrir 25. við-
komandi mánaðar.
Þessu tilboði svöruðu
BSRB-menn með að segjast reiðu-
búnir til að ræða samningsgerð á
grundvelli yfírlýsingar ríkisstjóm-
arinnar, en töldu jafnframt að frum-
skilyrði áframhaldandi viðræðna á
þeim grunni væri: (1) að til komi
trygging fyrir verðbótum ef um-
samdar áætlunartölur standast
ekki, (2) að hækki framfærsluvísi-
tala umfram tiltekna prósentu í
samningi séu samningar lausir án
uppsagnar.
Samninganefnd ríkisins lagði þá
fram nýtt tilboð, sem var samhljóða
því fyrra að öllu leyti nema því, að
í stað ákvæðisins um fímm manna
úrskurðamefnd komi annað sem
segi að aðilar skuli leita eftir sam-
komulagi fari verðhækkanir upp
fyrir umsamin mörk, en náist ekki
samkomulag fyrir 15. viðkomandi
mánaðar geti hvor aðilinn um sig
sagt upp samningnum með einnar
viku fyrirvara.
Samninganefnd BSRB bað um
að hlé yrði gert á viðræðum á meðan
hún íhugaði þetta tilboð.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Boð samninganefndar ríkisins til BSRB:
reiknað á föstu verðlagi. „Þetta eru
mér vonbrigði því samkeppnin í
þessari grein er nokkuð mikil og ég
held að það sé full ástæða til að
Verðlagsstofnun athugi hvort þetta
sé eðlileg álagning," sagði Stein-
grímur einnig.
Forystumenn BSRB lesa yfir tilboð samninganef ndar ríkisins.
Tilboði VSÍ og VMS hafnað:
ASÍ skorar á aðildarfélögin
að afla sér verkfallsheimilda
— erum að ræða tilfærslu á milljörðum króna frá
atvinnulífi til launþega, segir framkvæmdastjóri VSÍ
SAMNINGANEFND Alþýðusambands íslands hefur skorað á aðildar-
félög sambandsins að afla sér verkfallsheimilda hið fyrsta „svo
atvinnurekendur átti sig á því að einhugur er um kröfu samtakanna
um aukinn kaupmátt“, eins og það var orðað I yfirlýsingu samninga-
nefndarinnar að loknum samningafundi i gærkvöld. Þar hafnaði
samninganefnd ASÍ tilboði því er samningamenn Vmnuveitendasam-
bands íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna Iögðu fram
siðdegis í gær og sagði það ekki vera umræðugrundvöll. Nýr samn-
ingafundur hefur verið boðaður kl. 16 í dag.
Tilboð samtaka atvinnurekenda
gerir ráð fyrir að allir kauptaxtar,
grunntölur og viðmiðunartölur
hækki um 3,5% frá undirskrift
samningsins og aftur um 3% frá
1. júlí næstkomandi. Þá er boðið
að eftir- og næturvinnugreiðsla
miðist við 1% af mánaðarkaupi og
gerð tillaga um umfangsmiklar
breytingar á greiðslum til launþega
í slysa- og veikindaforföllum. Einn-
ig er gert ráð fyrir að greitt verði
í lífeyrissjóði af öllum launum, í
stað greiðslu af taxtakaupi í dag,
og að sú breyting verði í íjórum
áföngum á jafn mörgum árum, hinn
fyrsti í nóvember á þessu ári. Til-
boðið er gert á grundvelli yfírlýs-
inga ríkisstjómarinnar um aðgerðir
í efnahagsmálum, fyrirliggjandi
áætlana um horfur í efnahagsmál-
um og ógerðum spám um hækkun
vísitölu framfærslukostnaðar. Um
„rauð strik", þ.e. kaupmáttartrygg-
ingarákvæði, segir í tilboðinu:
„Fari vísitala framfærslukostn-
aðar meira en 1% fram úr því, sem
spáð er miðað við 1. júní 1986 og
1. október 1986, skulu samningsað-
ilar þegar taka upp viðræður og
meta, hvort ástæða sé til sérstakra
viðbragða. Til grundvallar því mati
skal leggja þróun kaupmáttar og
breytingar á efnahagslegum for-
sendum.
Hafí aðilar ekki náð samkomu-
lagp um viðbrögð fyrir 20. júní eða
20. október skal skjóta ágreiningi
til sérstaks hagráðs sem skipað sé
einum fulltrúa ASÍ, einum fulltrúa
VSÍ/VMS og oddamanni, sem heild-
arsamtökin koma sér saman um,
og skal það kveða upp úrskurð fyrir
25. dag hvors mánaðar. Náist ekki
samkomulag um skipun oddamanns
skal leita til Hæstaréttar um skipun
hans.“
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, sagði eftir samningafundinn í
gær að tilboð VSÍ og VMS fæli í
sér að kaupmáttur héldi áfram að
falla á þessu ári. Hann kvað launa-
hækkanimar vera 6,66% en miðað
við 9% verðbólgu á árinu. Það þýddi,
að kaupmáttur á þessu ári yrði um
4% lægri en hann var 1985. „Það
eru óneitanlega mikil vonbrigði, að
eftir margra vikna þóf, sem snúist
hefur um hvemig megi ná upp
kaupmætti samhliða aðhaldi í verð-
lagsmálum og lækkun verðbólgu,
þá sé niðurstaðan þessi," sagði
hann. „Þetta er nánast ekki tilboð
um annað en að launþegar fái að
halda áfram að greiða niður verð-
bólguna. Stóra málið í þessum
samningaviðræðum er kaupmáttar-
aukningin og kröfur okkar um það
efni eru enn óbreyttar. Við gerum
því kröfu um að viðræðunum verði
haldið áfram á þeim grundvelli og
ég hlýt að vona að atvinnurekendur
verði búnir að ná áttum þegar við
hittumst aftur. Ég vil minna á, að
það er ekki aðeins um að tefla staka
niðurstöðu í samningum, heldur
jafnvel búsetu í þessu landi. Á árun-
um 1981-’83 fluttust fleiri til lands-
ins en frá því. Netto brottflutningur
1984 var um 300 manns og á síð-
asta ári var sú tala 500 manns.
Þetta sýnir að þrátt fyrir geigvæn-
legt atvinnuleysi í nágrannalöndun-
um leysa fleiri og fleiri sín mál með
því að flýja land. Það er því afar
brýnt að verkalýðsfélögin bregðist
fljótt við og árétti það við atvinnu-
rekendur, að það er full alvara á
bak við okkar kröfur um aukinn
kaupmátt og kauptryggingar."
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, kvað tilboð VSÍ og VMS
um Iaunahækkanir vera hærra í
reynd en 6,66% - það væri rúm sjö
prósent - raunveruleg prósent, gull-
krónur, eins og hann orðaði það,
ekki launahækkun sem engin alvara
er á bak við. „Við metum auknar
eftir- og næturvinnugreiðslur sem
um hálft prósent, og auk þess munu
tillögur okkar um aukin réttindi í
slysa- og veikindaforföllum hafa í
för með sér aukinn kostnað. Það
sem hér er í raun og veru verið að
tala um er tilfærsla á rúmlega
þremur milljörðum króna frá at-
vinnulífinu til launafólks í landinu
miðað við að þessar tillögur gengju
yfír allan vinnumarkaðinn," sagði
Magnús.
Hann kvað það rétt vera, að
miðað við þetta tilboð atvinnurek-
enda yrði kaupmáttur þessa árs
lakari en hann var á síðasta ári en
útreikninga um hversu miklu lakari
sagði hann ekki liggja fyrir fyrr en
í dag. „Það er þó örugglega ekki
fjögur prósent, eins og samninga-
menn ASI halda fram,“ sagði hann.
Um hvatningu samninganefndar
ASÍ til aðildarfélaganna um að þau
öfluðu sér verkfallsheimilda sagði
framkvæmdastjóri VSÍ: „Ég er
vantrúaður á að verkfóll” breyti
nokkru um þær efnahagsstærðir,,
sem tekist er á um í þessum samn-
ingum."
Af hálfu vinnuveitenda hefur
verið bent á, að samkvæmt nýlegum
útreikningum Þjóðhagsstofnunar sé
von á að bætt viðskiptalq'ör færi
um tvo milljarða króna inn í þjóðar-
búið umfram það, sem áður hafði