Morgunblaðið - 13.02.1986, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR1986
13
Póst- og símamálastofnunin:
Glataður póstur?
Oftar en einu sinni hefur verið gefið
í skyn eða beinlínis fuilyrt að bréf og
ýmisleg mikilvæg gögn hafi týnst í
pósti. Að þessu sinni er um að ræða
sendingu frá Borgarspítalanum í
Reykjavík til spítala í London varðandi
veikindi Karvels Pálmasonar, alþingis-
manns. Sjúkdómssaga þessi hefur
verið efni blaða og einnig verið rifjuð
upg í sjónvarpi.
Ólafur Þ. Jónsson, læknir og for-
maður Læknaráðs Borgarspítalans,
skrifar grein í Morgunblaðið (9.2. si.)
sem nefnist Karvel Pálmason og lækn-
amir. í greininni er ítarlega fjallað
um veikindi Karvels og umfjöllun fjöl-
miðla um þau. Verður ekki hér farið
út á þann hála ís að ræða sjúkrasög-
una margfrægu, en ekki verður hjá
því komist að gera athugasemd við
þátt póstþjónustunnar í henni.
f grein læknisins er kafli sem nauð-
synlegt er að vitna til hér. f framhaldi
af því að í ljós kom við hjartaþræðingu
á Borgarspítalanum að Karvel var
með veruleg þrengsli í kransæðum,
skrifar læknirinn: „Síðan voru gögnin
send til London þar sem sérfræðingar
áttu að ákveða framhaldið, væntan-
lega þá hvort nauðsynlegt væri að
gera skurðaðgerð vegna kransæða-
þrengslanna. Þessi gögn týndust hins
vegar í pógti og munu aldrei hafa
komið fram. Slík gögn eru alltaf send
í ábyrgðarpósti en f þetta sinn munu
gögnin hafa verið send með venjuleg-
um pósti. Þetta óhapp var auðvitað
afar bagalegt bæði fýrir sjúklinginn
og læknana. Aldrei er hægt að útiloka
að óhapp af þessu tagi geti hent en
reynt verður af hálfu spítalans að
koma í veg fyrir slíkt eftir því sem
tök eru á í framtíðinni."
Að sögn Bjöms Bjömssonar, póst-
meistara, hefiir aldrei verið gerð nein
fyrirspum vegna þessarar sendingar.
Það er því mjög hæpið að fullyrða að
gögnin hafi týnst í piósti. Hafi umbún-
aður og utanáskrift gagnanna verið
samkvæmt póstreglum hefðu þau átt
að komast til skila með eðlilegum
Stjórnmálaskóli Sjálf-
stæðisflokksins
kvöld- og helgarskóli 24.febrúar -
8. mars 1986.
Skólahald fer fram i Valhöll, Háaleítisbraut 1. Innrítun er hafin en
takmarka verður þáttöku við 30 manns. Upplýsingar eru veittar I
sfma 82963 og 82900 á venjulegum skrifstofutima.
Dagskrá:
Mánudagur 24. febrúar:
Kl. 18.30. - skólasetning.
Kl. 18.45-20.15 - stjórn efnahagsmála.
Kl. 20.30-23.00 - ræðumennska.
Þriðjudagur 25. februar:
Kl. 18.30-21.00 - almenn fólagsstörf.
Kl. 21.15-23.00 - ræðumennska.
Miðvikudagur 26. febrúar:
Kl. 18.30-20.00 - utanrikis- og öryggismál.
Kl. 20.15-21.15 - Jón Þorláksson.
Kl. 21.20-23.00 - Einstaklingurinn og frelsið.
Fimmtudagur 27. febrúar:
Kl. 18.30-21.00 - almenn félagsstörf.
Kl. 21.15-23.00 - ræðumennska.
Föstudagur 28. febrúar:
Kl. 18.30-20.00 - þáttur fjölmiðla í stjórnmálum og uppbygging
greinaskrifa.
Kl. 20.15-23.00 - frjálst útvarp.
Laugardagur 1. mars
kl. 09.30-12.00 - starfshættir og saga ísl. stjórnmálaflokka.
Kl. 13.00-14.00 sveitarstjórnarmál.
Mánudagur 3. mars:
Kl. 18.30-20.00 - fundarsköp.
Kl. 20.15-23.00 - ræöumennka.
Þriðjudagur 4. mars:
Kl. 18.30-19.30 - heimsókn á alþingi.
Kl. 20.00-21.30 - sjálfstæðisstefnan.
kl. 21.35-23.00 - stjórnskipan, stjórnsýsla, kjördæmamál.
Seinni hluti
Ath. þátttakendur velja sér annað sviðið.
Svið I efnahags- og atvinnumál Svið II utanríkismái
Miðvikudagur 5. mars.
Kl. 18.30-20.30.
Uppbygging atvinnulifs og þróun. Útflutnings- og markaösmál.
Kl. 20.45-23.00
Panel - Hlutverk launþega og Aukin þáttaka í vörnum landsins.
atvinnurekendasambandsins.
Fimmtudagurinn 6. mars.
Kl. 20.00.
Vandamál velferöaríkisins (sland í alþjóðasamstarfi.
- verðbólga og verðbólguhvatar.
Kl. 21.30
Norrænt samstarf.
Laugardagur 8. mars.
Kl. 10.00-12.00 Sjálfstæðisflokkurinn - Panel
Kl. 18.00 skólaslit.
hætti. Ekki er nauðsynlegt að senda
slík gögn í ábyrgðarpósti þótt allur
sé varinn góður. Að könnuðu máli
hjá Póststofunni í Reykjavík bendir
ekkert til þess að póstur til. London
hafi glatast á umræddu tímabili.
(Póst- og símamálastof nunin)
Afmæli
NÆSTKOMANDI mánudag, 17.
febrúar, verður sjötugur sr. Kristinn
Hóseasson prófastur í Heydölum.
Hann og kona hans, Anna Þor-
steinsdóttir, ætla að taka á móti
gestum á heimili sínu í Heydölum
næstkomandi sunnudag, 16. þ.m.
eftir kl. 17.
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu í upptalningu á
þeim, er taka þátt í próflqöri Sjálf-
stæðisflokksins á Akureyri fyrir
bæjarstjómarkosningamar í vor, að
einu nafni var ofaukið. Sverrir
Leósson gefur ekki kost á sér f
prófkjörinu og leiðréttist það hér
með.
Markaðsstjórar - sölustjórar
Námskeið í markaðssókn
Miklar breytingar eiga sér nú staö á íslenska markaönum. Aukið frelsi
í verslunar- og verðlagsmálum og aukin samkeppni milli fyrirtækja og
stofnana hafa oröið til þess aö þekking á markaösmálum er ómiss-
andi ef fyrirtæki vilja standa skipulega að markaössókn sinni.
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að þátttakendur nái valdi á
markaðsmálum, þannig að þeir geti notað þau hugtök og aðferðir
sem felast í skipulegri markaðssókn.
Efni námskeiðsins er m.a.:
• Helstu hugtök markaösfræðinnar
• Vöruhugtakið
• Stefnumótun markaðssóknar
• Markaðshlutun
• Verðlags- og þjónustumál
• Samkeppnisgreining
• Auglýsingar og almenningstengsl
Þetta riámskeið er einkum ætlað markaðsstjórum, sölustjórum,
almenningstengslafulltrúum og öðrum starfsmönnum sem hafa með
markaðs- og sölumál að gera.
Leiðbeinandi:
Bjarni Snæbjörn Jónsson,
rekstrarhagfræðingur.
Stjórnunarfélag
islands
Ánanaustum 15
Simi: 6210 66
F rumsýning á stórmynd með
RICHARD CHAMBERLAIN
Námur
Salómons konungs
Mjög spennandi, ný, bandarísk stórmynd í litum, byggð á samnefndri
skáldsögu, sem komið hefur út í ísl. þýðingu.
Aðalhlutverkið leikur hinn vinsæli
RICHARD CHAMBERLAIN
(Shogun og Þyrnifuglarnir).
Bönnuð innan 12 ára.
Sýndkl. 5, 7,9ogll.
nn rbðLBv stereoi