Morgunblaðið - 18.02.1986, Qupperneq 1
5&SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
40. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR18. FEBRÚAR 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Persaflóastríðið:
Undirbúa íranir aðra
meiriháttar atlögu?
Nicósíu, Moskvu og Vín, 17. febrúar. AP.
BARDAGAR færast stöðugt í
aukana í stríðinu fyrir botni
Persaflóans milli íran og írak.
Barist er á landi, i sjó og í lofti.
íranir segja að þeir hafi skotið
niður átta íraskar flugvélar og
Irakar segjast hafa skotið niður
tvær vélar fyrir írönum. íranir
hafa borgina Faw nú á valdi sinu
og flugu með fréttamenn þangað
á Iaugardag til að sanna svo
væri, en írakar segjast hafa
umkringt herdeildir Irana þar
og sé það einungis spurning um
tíma hvenær þær verði yfir-
bugaðar. Flogið var með 38 ir-
anska hermenn til Vínar i dag
til læknismeðferðar. Þeir þjást
af alvarlegri gaseitrun. Sannar
það fregnir þess efnis að írakar
beiti efnavopnum í stríðinu.
íraski utanríkisráðherrann,
Tareq Aziz, lagði lykkju á leið sína
á allsheijarþingið í New York, þar
sem ræða á átökin við Persaflóann
og hitti sovéska utanríkisráðher-
rann, Eduard Shevardnadze að máli
í Moskvu. Varaði Shevardnadze
stríðsaðila við því að leyfa vestur-
veldunum að notfæra sér stríðs-
átökin sér til framdráttar. Lagði
hann áherslu á það sjónarmið Sov-
étmanna, að bardögum skyldi hætt
Soares sigraði íforseta-
kosningunum íPortúgal
Lissabon, 17. febrúar. AP.
HAMINGJUÓSKIR bárust Mario Soares, sigurvegara portúgölsku
forsetakosninganna hvaðanæva úr heiminum í dag, en hann sigraði
frambjóðanda hægri manna, Freitas Do Amaral, naumlega í síðari
umferð forsetakosninganna sem fram fór á sunnudag. Hlaut hann
51,28% greiddra atkvæða, en mótframbjóðandi hans 48,72%. Soares
'verður fyrsti forseti Portúgal úr röðum óbreyttra borgara í sex ára-
tugi. Ekki er gert ráð fyrir að hann taki formlega við embætti fyrr
en í næsta mánuði. Myndin sýnir sigurvegarann í hópi fagnandi
stuðningsmanna sinna eftir að úrslit voru ljós.
Sjá ennfremur: „Forsetatíð Mario Soares mun án efa einkennast
af reisn og virðuleika“ á bls. 21 og forystugrein.
og ágreiningsmál leyst við samn-
ingaborðið.
Utanríkisráðherrar Kuwait,
Saudi-Arabíu og Sýrlands funduðu
í Damascus um átökin í dag. Var
þar rætt um hvort Arababandalagið
ætti að koma írökum til hjálpar í
átökunum við íran, en ríki Araba-
bandalagsins hafa með sér sam-
komulag um vamir.
íranir segjast halda áfram fram-
sókn sinni í vesturátt frá Faw og
fregnir frá Tel Aviv herma að þeir
undirbúi nú aðra meiriháttar atlögu
yfír Shatt-Al-Arab árósanna. Mark-
miðið sé að ná á sitt vald veginum
milli höfuðborgarinnar Bagdað og
borgarinnar Basra. í því skyni hafi
íranir safnað saman 10 herdeildum
í nágrenni borganna Khoramsharr
og Abadan.
Filippseyjar:
AP/Símamynd
Corazon Aquino tekur á móti sérlegum sendimanni Bandaríkjastjórn-
ar, Philip Habib, í höfuðstöðvum flokks sins.
Cory Aquino harðorð í
garð Bandaríkjamanna
Manila og Wanhingfton, 17. febrúar. AP.
CORAZON Aquino var harðorð í garð Bandaríkjamanna, er hún
hitti Philip Habib sérlegan sendimann ríkisstjórnar Bandaríkjanna
að máli í Manila í dag, fyrir að hafa ekki fordæmt forsetakosningam-
ar á Filippseyjum harðlega vegna kosningasvika. Ronald Reagan,
forseti Bandaríkjanna, sagði á laugardag að full ástæða væri til að
efast um að kosningamar hefðu farið heiðarlega fram, vegna kosn-
ingasvindls og ofbeldis, sem stuðningsmenn Marcosar forseta hefðu
einkum haft i frammi. Aquino hefur skorað á fólk að hafa i frammi
friðsamlegar mótmælaaðgerðir gegn rikisstjóminni.
flokkurinn hefði einkum beitt sér
fyrir“. Sagði hann að um þetta
hefði verið að ræða í slíkum mæli
að úrslitin hefðu verið rengd bæði
á Filippseyjum og í Bandaríkjunum.
Sjá ennfremur: „Ég er forset-
inn. Þeir geta ekki hrakið mig
úr embætti“ á bls. 20 og for-
ystugrein.
Habib hitti einnig Marcos að máli
og eftir fund þeirra sagði Marcos,
að Habib hefði ekki komið til
Filippseyja til þess að segja lands-
mönnum hvemig þeir ættu að haga
málum sínum, heldur til þess að
athuga hvort svindl og ofbeldi hefði
átt sér stað í kosningunum. Marcos
sagði ennfremur að Reagan hefði
V estur-Þýskaland:
Saksóknari rannsakar
vitnisburð kanslarans
Hamborjf, 17. febrúar. AP.
RÍKISSAKSÓKNARI í Koblenz
mun rannsaka hvort nokkuð sé
hæft í ásökunum Græningja um
að Helmut Kohl, kanslari, hafi
logið að tveimur opinbemm
nefndum í yfirheyrslum varð-
andi Flick-mútumálið. Þetta er
fyrsta sinni í 36 ára sögu sam-
bandslýðveldisins, sem kanslari í
embætti sætir rannsókn af hálfu
hins opinbera.
Ríkissaksóknarinn í Koblenz ák-
vað í dag að he§a rannsókn málsins
eftir að Otto Schily, þingmaður
Græningja, bar fram ákæru á hend-
ur kanslaranum. Schily sakar Kohl
um að hafa logið um fjárframlög
til flokks síns, kristilegra demó-
krata (CDU), þegar hann bar vitni
fyrir nefndum, sem unnu að rann-
sókn Flick-hneyksiisins, á árunum
1984 og 1985.
Schily heldur því fram að Kohl
hafi vitað af ólöglegum greiðslum
til CDU, en í framburði sínum hafi
hann staðhæft að hann vissi ekki
til þess að slíkar greiðslur hefðu
verið inntar af hendi.
Friedhelm Ost, talsmaður stjóm-
arinnar í Bonn, vill ekkert um málið
segja. Hann sagði fýrir tveimur
vikum að ásakanir Schilys væru
liður í langærri rógsherferð hans á
hendur kanslaranum. Ost hélt því
fram að báðar þær nefndir, sem
Schily kvæði kanslarann hafa
greint ósatt frá, hefðu verið hættar
störfum á umræddum tíma og þær
hafi ekki fundið neitt, sem bendlaði
Kohl við Flick-málið.
Áður en rannsókn getur hafíst
þarf að tilkynna það Philipp Jennin-
ger, forseta sambandsþingsins í
Bonn.
fengið rangar upplýsingar um
framkvæmd kosninganna.
Hópur umbótasinnaðra herfor-
ingja skoraði í dag á hermenn að
beita friðelskandi Filippseyinga
ekki ofbeldi. Sögðu þeir að margt
benti til þess að vilji fólksins hefði
ekki fengið að koma fram í kosning-
unum og hlutverk hersins væri
mikilvægt í baráttunni fyrir frelsi
og lýðræði. Þeir sögðu ennfremur
að fáir menn bæru ábyrgð á því
slæma orði sem færi af hemum.
Marcos hefur samþykkt afsögn
Fabians Ver, yfirmanns heraflans,
og tilnefnt annan í hans stað.
Þrír bandarískir öldungadeildar-
þingmenn segjast hafa í höndunum
óyggjandi sannanir fyrir kosninga-
svikum stuðningsmanna Marcosar.
Segja þeir að Reagan eigi að láta
þá afdráttarlausu skoðun í ljósi við
Marcos, að hann eigi að víkja úr
embætti.
Reagan hefur skorað á Filippsey-
inga að forðast ofbeldi og leita frið-
samlegra leiða til þess að koma á
jafnvægi í landinu. Báðir aðilar yrðu
að vinna saman til þess að svo
mætti vera. Reagan sagði að banda-
ríska eftirlitsnefndin, sem fylgdist
með kosningunum hefði ekki lokið
störfum að fullu, „en þegar væri
ljóst, því miður, að kosningamar
hefðu verið eyðilagðar með víðtæku
svindli og ofbeldi, sem stjómar-
Fær Bonner
dvalarleyfið
framlengft
Hamborg og Newton, Massachusetts,
17. febrúar AP
YFIRVÖLD í Sovétríkjunum
hafa veitt Yelenu Bonner,
eiginkonu sovéska andófs-
mannsins Andrei Sakharov,
leyfi til að dveljast á vestur-
löndum í þijá mánuði í viðbót,
að sögn vestur-þýska dag-
blaðsins Bild á sunnudag.
Bild vitnar í upplýsingar sem
blaðinu hafa borist frá Moskvu
og segir að dvalarlejrfí frú
Bonner erlendis hafi verið fram-
lengt um þrjá mánuði. Þriggja
mánaða dvalarleyfi hennar, sem
hún fékk eftir að Sakharov hafði
nokkrum sinnum farið í hungur-
verkfall til að knýja á um að
hún fengi að fara til vesturlanda
að leita sér lækninga, átti að
renna út í lok þessa mánuðar.
Fjölskylda Bonner sagði i
dag, að hún tryði ekki þessum
fregnum fyrr en hún hefði í
höndunum vegabréf hennar með
dvalarleyfínu í.