Morgunblaðið - 25.02.1986, Síða 15
_____________________MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR1986 _
Nokkur áhersluatriði um hús-
næðismál og annað þeim tengt
eftir Guðlaug
Ellertsson
1. Framfærsluvísitala hefur hækk-
að um rúmlega 50% Umfram vísitölu
kauptaxta frá meðaltali 1978 frám
í febrúar 1986. Þetta jafngildir
skerðingu um þriðjung (úr 100 í
66,67 og-100 - = 1,50).
66^67
Þetta gildir um alla launþega, sem
eru á sömu kauptöxtum og vinna
jafnlangan vinnudag.
2. Húsnæðiskaupendur hafa orðið
fyrir meiri skerðingu eða sem
nemur hækkun raunvaxta eftir
skatta. Þetta þýðir það, að fólk, sem
áður gat lagt ’/saf tekjum í húsnæði
(afborganir og vexti eða leigu)
getur ekkert greitt í húsnæðis-
kostnaði í dag, ef miðað er við sömu
kauptaxta; jafnlangan vinnudag og
sama aðhald í öðrum kostnaðarlið-
um. Svokallað misgengi á milli vísi-
talna og hækkun raunvaxta er
einungis mælikvarði á hina miklu
kjaraskerðingu þessa fólks.
3. Það er mælikvarði á helsjúkt
peninga- og skattakerfí, að ríkis-
sjóður skuli þurfa að bjóða 9%
raunvexti til þess að halda inni
Guðlaugur Ellertsson
peningum og dugir vart til. Stjórn-
völd hafa hvorki kjark til þess að
spara né skattleggja til þess að ná
endum saman.
4. Fjárfestingarafglöp halda
áfram. Áður byggðust þau á niður-
„Það má kalla það póli-
tískt arðrán, þegar
stjórnvöld soga fjár-
magn frá launþegxim
og atvinnulíf i og sóa
því.“
greiddum vöxtum, en nú á niður-
greiddum láunum. Meðferð opin-
bers fjár er jafn ábyrgðarlaus og
áður. Það má kalla það pólitískt
arðrán, þegar stjómvöld soga íjár-
magn frá launþegum og atvinnulífí
og sóa því. Þetta hefur gerst undan-
fama áratugi hér á landi.
Þetta hefur haft áhrif á vilja til
þess að sýna aðhald og spamað úti
í þjóðfélaginu, að ekki sé talað um
skattsvik. (Sama hvar fjármagni er
sóað, ef því er sóað hvort sem er.)
5. Það er ekki víst, að fjöldi fbúða
sé nægur, þótt meðalstærð íbúða
sé rífleg hér. Með hrikalegri kjara-
skerðingu er búið að draga svo úr
kaupgetu á fasteignamarkaði, að
margt fólk getur ekki keypt eða
haldið húsnæði, þótt þörfín sé fyrir
hendi. Þetta þýðir verðfall á notuð-
um íbúðum og hraðminnkandi eftir-
spum eftir lóðum. Ýmsir vilja túlka
þetta þannig, að búið sé að byggja
alltof mikið, en ég tel, að það eigi
einungis við húsnæði í stærra lagi
og viss svæði á landsbyggðinni.
Fjárfesting í mjög stóm íbúðar-
húsnæði byggðist á óheilbrigðum
forsendum, þ.e. neikvæðum raun-
vöxtum og óheftum og ótímabundn-
um vaxtafrádrætti. Skattftjáls eig-
in vinna, full húsnæðislán oftar en
einu sinni og skipulag áttu líka sinn
þátt.
6. Nú er að verða munaður að
eignast og ala upp böm, enda
stefnir í fólksfækkun að öllu
óbreyttu. Það má kannski segja,
að stjómvöld séu og hafí lengi verið
þjónar þeirra hagsmunaafla, sem
„stálu frá foreldrum sínum og veð-
settu bömin sín“.
Höfundur er viðskiptafræðmgur.
Hann starfaði í milliþinganefnd
um húsnæðismál fyrir hönd
Bandalags jafnaðarmanna en
sagði sig úr henni i okt. sl.
í Kaupmannahöfn
F/EST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA- -
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
.Ayglýsinga-
síminn er 2 24 80
3
£
í TOYOTA CAMRY sameinast mikil þœgindi og góðir aksturseiginleikar.
• Með þverstœðri vél og framhjóladrifi
myndast geysimikið innanrými og sœtin eru fyrsta fiokks.
Vélin hefur mikinn kraft og góða snerpu, en er auk þess
hljóðlót og eyðslugrönn.
Ýmis annar tœknilegur búnaður hefur líka sitt að
segja um þœgindi og góða aksturs-
eiginleika.
TOYOTA CAMRY GL SPECIAL
SERIES er sérbúinn bíll, þar sem
saman fara aukin þœgindi
og útlit sem vekur
athygli.
Renndu við í reynsluakstur
og þú sannfœrist um að CAMRY GL SPECIAL SERIES er hverrar krónu virði.
OYOTA
v/I