Morgunblaðið - 25.02.1986, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR1986
Uppreisnin á Filippseyjum:
„Marcos mis-
reiknaði sig“
Enrile yfirgefur forsetann eftir 20 ára samstarf
Manila, 24. febrúar. AP.
AUGU Juans Ponce Enrile, vamarmálaráðherra, fylltust tárum
þar sem hann sat í herbergi sínu snemma á sunnudag, hálfum
sólarhring eftir að hann bauð Marcosi, forseta Filippseyja, birg-
inn, manninum, sem hann hafði fylgt að málum í tuttugu ár.
„Marcos misreiknaði sig. Hann
hélt að ég myndi bregðast við eins
og allir hans viðhlæjendur og
fylgja honum," sagði Enrile við
gest sinn.
Ráðherrann var að tala um
Ferdinand Marcos, forseta
Filippseyja. Og Enrile talar enn
um hann sem „forsetann okkar".
Eftir smá hlé bætti hann við:
„Ég er sveitamaður og öndvert
við Marcos þá fæddist ég ekki til
auðlegðar. Eg hef horfst í augu
við fleiri hættur en hann á ævi
sinni."
Enrile flúði heimili sitt og leit-
aði skjóls á skrifstofu sinni, sem
vel var gætt, á laugardag, eftir
að honum hafði verið sagt að
Marcos ætlaði að handtaka sig.
Aðeins útvaldir fengu að hitta
Enrile að máli. Þungvopnaðir
verðir leituðu á hveijum gesti,
sem vildi fínna hann.
Enrile er 62 ára og hefur setið
í stjóm Marcosar frá því að hann
komst til valda. Hann var einn
valdamestu manna á Filippseyjum
og einn ráðgjafa forsetans. Hann
hefur gegnt ýmsum ráðherraemb-
ættum, embætti vamarmálaráð-
herra síðan 1978.
Marcos vann sinn stærsta sigur
í kosningunum 7. febrúar í fylki
Enriles. Enrile hafði ekki sýnt
nein óánægjumerki þar til á laug-
ardag þegar dagblöð stjómarand-
stöðunnar birtu forsíðufréttir þess
efnis að hann ætlaði að segja af
sér.
AP/Símamynd
Fidel Ramos, aðstoðaryf irmaður herafla Filippseyja og Juan Ponce Enrile, vamarmálaráðherra, á
fundi með fréttamönnum þar sem þeir skýrðu frá því að þeir hefðu sagt skilið við Marcos. Þeir
hvöttu aðra ráðherra og foringja í hemum til að fylgja fordæmi þeirra.
Varaforingi herráðsins snýr baki við Marcosi:
Bandaríkj araenn
styðja Ramos
þeirrar spillingar og þess getu-
leysis, sem einkenna herinn.
Marcos sagði í desember að ríg-
ur væri milli stuðningsmanna
Vers og Ramosar.
Hópur ungra herforingja, sem
vinnur saman og vill endurbætur
innan hersins, hefur krafíst þess
að allir herforingjar komnir á
eftirlaunaaldur segi af sér.
Ramos, sem er frændi Marcos-
ar og sonur Narciso Ramosar,
fyrrum utanríkisráðherra, ræddi
við nokkra þessara herforingja á
síðasta ári og sagði þá að breyt-
inga væri þörf innan hersins.
Viðbrögð við ástandinu á Filippseyjum.
AP/Símamynd
Þessir hermenn sem vom hollir Marcosi forseta sitja í anddyri
sjónvarpsstöðvar ríkisins eftir að hún var hertekin af hermönnum
skæmliða á mánudag. Þeim er haldið í varðhaldi en fimm aðrir
særðust er sjónvarpsstöðin var hertekin.
Manila, 24. febrúar. AP.
FIDEL V. Ramos, tilvonandi yfirmaður hersins á Filippseyjum,
sem gekk í lið með Enrile, varaarmálaráðherra, á laugardag og
skoraði á Ferdinand Marcos, forseta, að segja af sér, nýtur virð-
ingar meðal ýmissa háttsettra embættismanna í hernum.
Bandaríkjamenn, sem oftsinnis
hafa krafíst þess að Fabian C.
Ver segði af sér sem yfirmaður
hersins, styðja Ramos.
Gagnrýnendur heima og heim-
an vonuðust til þess að heijast
mundi herferð gegn rótskotinni
spillingu í her landsins er Ramos
var útnefndur arftaki Vers. Og
hemum veitir ekki af þar sem
vinstri sinnaðir skæruliðar láta
stöðugt meira að sér kveða á
eyjunum.
Ver er dyggur stuðningsmaður
Marcosar og stjómarandstaðan
lítur á hann sem holdgerving
Reagan hvetur Marcos
til að afsala sér völdum
Washington, Moskvu, Vín og víðar, 24.
febrúar. AP.
Pravda segir Bandaríkjamenn taka
þátt í samsæri gegn Marcosi
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, hvatti í dag Ferdinand
Marcos, Filippseyjaforseta, til
að láta af völdum og bauðst til
að skjóta yfir hann skjólshúsi
í Bandaríkjunum. Ríkisstjórnir
á Vesturlöndum hafa tekið
undir þessa áskoran en við-
brögð Sovétmanna og sumra
bandamanna þeirra eru að saka
Bandaríkjamenn um að ætla að
bola burt Marcosi. Margir
sendimenn Filippseyjasijómar
erlendis hafa sagt upp hollustu
sinni við forsetann og stjórn
hans.
í yfírlýsingu frá Reagan og
stjóm hans sagði, að „tilraunir til
að framlengja líf núverandi stjóm-
ar með ofbeldi eru dauðadæmdar.
Eina lausnin er, að ný stjóm taki
við með friðsamlegum hætti“.
Larry Speakes, talsmaður Hvíta
hússins, sagði, að Bandaríkja-
stjóm vildi greiða fyrir þessari
lausn með því að veita Marcosi
hæli í Bandaríkjunum en fram á
það hefði hann þó ekki farið enn.
Sovétmenn, sem einir þjóða
sendu Marcosi hamingjuóskir með
opinber úrslit í forsetakosningun-
um, sökuðu í dag Bandaríkjamenn
um að standa að baki atlögunni
að Marcosi. í Pravda, málgagni
sovéska kommúnistaflokksins,
sagði, að um væri að ræða sam-
særi gegn Marcosi og að CLA,
bandaríska leyniþjónustan, hefði
tekið þátt í því. Fréttaflutningur
sumra blaða í Austur-Evrópuríkj-
unum er með líkum hætti en
önnur hafa birt fréttir af ástand-
inu án athugasemda. Fjölmiðlar í
Rúmeníu hafa nokkra sérstöðu í
þessu efni því að í þeim hafa engar
fréttir birst um ástandið á Filipps-
eyjum síðustu daga.
í tilkynningu frá breska utan-
ríkisráðuneytinu í dag sagði, að
höfuðnauðsyn væri, að lýðræðis-
legir stjómarhættir jtöu teknir
upp á Filippseyjum og í Tókýó
hvatti Nakasone, forsætisráð-
herra, til, að Japanir og Banda-
ríkjamenn legðust á eitt um að
fínna lausn á vandanum, sem
blasti við Filippseyingum.
Roilo Golez, póstmálaráðherra
í stjóm Marcosar, sagði af sér
embætti í dag og gekk til liðs við
þá Juan Ponce Enrile, vamar-
málaráðherra, og Fidel Ramos,
aðstoðarherráðsforingja, en eins
og kunnugt er hafa þeir sagt sig
úr lögum við Marcos. Filippískir
sendimenn, t.d. í London, Honol-
ulu og Los Angeles, hafa einnig
snúist gegn Marcosi og skorað á
hann að láta völdin í hendur
Corazon Aquino. Jóhannes Páll
páfí II bað í gær, sunnudag, fyrir
Filippseyingum og farsælli lausn
á vanda þeirra.
Ramos er 57 ára og hann er
varaforingi herráðsins jafnframt
því sem hann stjómar hemum
gegn skæruliðum.
Hann tók við af Ver á meðan
réttað var í máli á hendur honum.
Ver var sakaður um samsæri og
aðild að tilræðinu við Benigno
Aquino 1983. Ver tók aftur við
embætti sínu í desember er hann
var náðaður.
Ramos hefur verið ásakaður
um mannréttindabrot þótt honum
hafí formlega ekki verið bornar
sakir á hendur.
AP/Símamynd
Reykur stígur upp frá flugvelli filippíska flughersins f grennd
við Manila, eftir að ein af þyrlum uppreisnarmanna skaut fimm
flugskeytum á flugvöllinn í gær.