Morgunblaðið - 18.03.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. MARZ1986
Fargjöldin til
Evrópu lægri en
gengur og gerist
— segir Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða
„FARGJÖLD Flugleiða í Evrópufluginu eru lægri en gengur og
gerist og þetta á þvi alls ekki við rök að styðjast,“ sagði Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða er hann var spurður að því hvort lesa
mætti út úr hækkunum á fargjöldum að farþegar til Evrópu greiddu
niður fargjöldin á Norður-Atlantshafsleiðinni.
„Það er staðreynd að fargjöld á
Norður-Atlantshafsleiðinni eru
lægri en fargjöld til Evrópu," sagði
Sigurður. Norður-Atlantshafsleiðin
er stór markaður og og við njótum
þess hagræðis sem fylgir því. Far-
gjöld til Evrópu þyrftu að vera mun
hærri ef ekki væri um Atlantshafs-
flug að ræða“.
Sigurður sagði að Atlantshafs-
flugið væri stór hluti af rekstri
Flugleiða og rekstur þess tæki við
stórum hluta kostnaðar fyrirtækis-
ins. Ef Atlantshafsflugið yrði lagt
niður myndi þessi kostnaður lenda
á annarri starfsemi fyrirtækisins.
Bíll eyði-
leggst í eldi
BIFREIÐ af gerðinni Opel Ascona,
árgerð ’78, eyðilagðist í eldi í
gærkvöldi. Tveir menn unnu að
viðgerð bflsins í bflskúr við Langa-
gerði og þurftu þeir að nota log-
suðutæki til verksins. Loginn frá
tækinu komst í plastsiöngu, sem
liggur frá bensíntanknum, og
bráðnaði hún í sundur. Mikill eldur
gaus upp, en mönnunum tókst að
ýta bflnum út úr skúmum áður en
tjón hlaust af innandyra. Slökkvilið-
ið kom á vettvang klukkan 22.26
og tókst að ráða niðurlögum eldsins
á skömmum tíma.
Hann sagði að Atlantshafsflugið
gerði Flugleiðum kleift að halda
starfseminni gangandi í • Evrópu-
fluginu á þessum fargjöldum.
„Það er ekki rétt að tengja þessa
hækkun á flugfargjöldum nýgerð-
um kjarasamningum, því Flugleiðir
sendu bréf til samgönguráðuneytis-
ins 10. febrúar síðastliðinn þar sem
skýrt var frá fyrirhugaðri hækkun
á fargjöldum," sagði Sæmundur
Guðvinsson blaðafulltrúi Flugleiða
í samtali við Morgunblaðið. Haft
var eftir Matthíasi Bjamasyni
samgönguráðherra í Morgunblað-
inu á sunnudaginn að hann hafi
ekki heyrt um þessa hækkun fyrr
en hann las um hana f blöðunum á
laugardaginn.
Sæmundur sagði að ákvörðun um
hækkun á fargjöldum hafi verið
tekin í kjölfar IATA-fundar þar sem
fargjöld þeirra 145 félaga sem em
aðilar að samtökunum eru ákveðin.
„Flugleiðir hafa ekki hækkað far-
gjöld síðan í júní 1985 og em með
lægri meðalfargjöld í Evrópu en
gengur og gerist. Hækkanir á lend-
ingargjöldum, yfirflugsgjöldum og
gjöldum fyrir veðurþjónustu erlend-
is em teknar inn í þessa 3% meðal-
hækkun.
Bjöm Bjömsson hagfræðingur
Alþýðusambands íslands sagði að
þessi hækkun á fargjöldum Flug-
leiða hefði enn ekki verið tekin fyrir
hjá ASÍ. Hann bjóst við að það
yrði gert fljótlega hjá verðlagsnefnd
ASÍ.
Nýtt hús reist á gömlum grunni
Hlaðið steinhús að Ingólfs-
stræti 3 var rifið um síðustu helgi
og er ætlunin að þar rísi fjögurra
hæða hús þar sem verslunin
Málningarvörur verður meðal
annars til húsa.
Kristinn Eggertsson, verslunar-
maður, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að vel færi á því að reka
málningarvömverslun á þessum
stað þar sem í gamla húsinu,
sem reist var 1852, hafi fyrsta
málningarvömverslun í landinu
verið til húsa. Kristinn kvaðst von-
ast til að geta hafið framkvæmdir
við byggingu nýja hússins innan
tíðar. Meðfylgjandi mynd tók ljós-
myndari Morgunblaðsins, Ólafur
K. Magnússon, þegar verið var að
rífa gamla húsið. Kristinn Eggerts-
son er í forgmnni.
Allsherj aratkvæðagreiðsla BSRB:
Morgunblaðið/Ól.K.Magn.
Ráðstefnu um fátækt lokið
Er fátækt á Islandi? Þeirri spumingu var leitast við að svara á málþingi sem ísienskir félagsmála-
sfjórar stóðu að. Þingið hófst á fimmtudaginn og lauk á laugardag, en þá var þessi mynd tekin.
Nánar verður greint frá málþinginu í blaðinu síðar.
Uppsagnir rafeindavirkja:
Ekkert sjónvarp í dag
og tafir á símalögnum
Ríkið og sveinafélagið deila um lögmæti uppsagnanna
ÁHRIFA uppsagna um 120 rafeindavirkja er þegar farið að
gæta. Dagskrár sjónvarps og útvarps hafa riðlast og þættir fallið
niður. Ekkert sjónvarp verður í dag og á sunnudag, að öllu
óbreyttu, og innlend dagskrárgerð liggur að mestu niðri. Útilokað
verður til dæmis að senda út þáttinn Á liðandi stundu annað
kvöld ef tæknimenn koma ekki til starfa. Hjá Pósti og sima bitna
uppsagnimar fyrst á fremst á nýlögnum og viðgerðaþjónustu,
þegar fram í sækir.
„Félagsdómur hefur úrskurðað að
verkfall það sem Sveinafélag raf-
eindavirkja boðaði 2. janúar sl. sé
ólögmætt. Það er ennfremur rangt
að rafeindavirkjar hafi sagt upp
störfum og séu nú að láta uppsagn-
ir sínar koma til framkvæmda.
Fyrirvaralaust brotthvarf þeirra
frá störfum sínum flokkast því
augljóslega undir ólögmætar verk-
fallsaðgerðir. Við gerðum þeim
grein fyrir þvi á fundinum, að á
meðan á þessum ólögmætu að-
gerðum stæði væri enginn grund-
völlur til að taka upp viðræður um
kjaramál þeirra," sagði Indriði H.
Þorláksson formaður samninga-
nefndar ríkisins í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi eftir árang-
urslausan fund samninganefnda
Sveinafélags rafeindavirkja og rík-
isins.
Forsaga málsins er sú að raf-
eindavirkjar þessara stofnana vilja
láta Sveinafélag rafeindavirkja
fara með kjaramál sín i stað BSRB.
Þeir skrifuðu yfirmönnum sínum
samhljóða bréf 30. september sl.,
þar sem þeir sögðust myndu hætta
störfum um áramótin ef ekki
næðist samkomulag fyrir þann
tíma um að Sveinafélag rafeinda-
virkja færi með samningamál
þeirra. Ríkisvaldið svaraði þeim í
desember á þá leið að ekki væri
hægt að líta á bréfín sem uppsagn-
arbréf, þar eð þau væru skilyrt
kjaramálum, sem væri stéttarfé-
laganna að fjalla um en ekki ein-
stakra starfsmanna. Ákvað
Sveinafélagið þá að boða til verk-
falls frá og með 2. janúar. Ríkis-
valdið taldi verkfallið ólöglegt, og
varð að samkomulagi að verkallinu
yrði frestað og lögmæti þess borið
undir Félagsdóm. Niðurstaða hans
var kynnt sl. föstudag og ákváðu
rafeindavirkjar þá að leggja niður
störf, „og láta fyrri uppsagnir sínar
koma til framkvæmda", eins og
þeir líta á málin.
„Við hlítum auðvitað úrskurði
Félagsdóms varðandi verkfallið.
Það var dæmt ólögmætt og við
verðum að sætta okkur við það.
Hins vegar líta félagsmenn svo á
að uppsagnir þeirra séu fullkom-
lega löglegar og hafa tekið ákvarð-
anir, hver fyrir sig, um að láta þær
koma til framkvæmda. Félagið
sem slíkt hefur engin áhrif á þær
ákvarðanir," sagði Þórir Her-
mannsson formaður Sveinafélags
rafeindavirkja í gærkvöldi.
Tveir bátar bætast
í flota Ólafsfirðinga
Akureyri, 17. marz.
TVEIR BÁTAR bætast i flota
Ólafsfirðinga þessa vikuna. Síð-
astliðna nótt kom i fyrsta skipti
til sinnar nýju heimahafnar Byr
ÓF 58 og síðar í vikunni er von
á Magnúsi Gamalielssyni ÓF til
Ólafsfjarðar.
Það er fyrirtækið Byr hf. sem
keypti samnefndan bát. Nafn hans
var hið sama áður, en þá var hann
gerður út frá Bakkafirði. Byr er
30 tonn að stærð og að sögn Jóns
Óskarssonar, eiganda bátsins í dag,
mun hann gera út á dragnót fyrst
um sinn að minnsta kosti.
Magnús Gamalíelsson ÓF er 40
tonna stálbátur. Hann er tíu ára
og hefur hingað til verið gerður út
frá Hólmavík - hét áður Jón Pétur.
Magnús Gamalíelsson verður gerð-
ur út á rækju. Það er Hraðfrystihús
Magnúsar Gamalíelssonar hf. sem
kaupir bátinn.
Þess má geta að fyrr í vetur var
keyptur 80 tonna bátur til Ólafs-
fiarðar, Marz ÓF. Eigandi hans er
Jón Sæmundsson, útgerðarmaður.
Mikið atvinnuleysi var á Ólafs-
fírði í haust - og var aðalástæða
þess kvótaleysi. Ástandið er gott
núna, að sögn Ólafsfírðinga.
Atkvæði talin í kvöld ss
BSRB setur á laggirnar eigin verðlagsnefnd
ÁÆTLAÐ er að telja atkvæði úr
allsheijaratkvæðagreiðslu BSRB
um nýja kjarasamninga í kvöld.
Atkvæðagreiðslan fór fram í sið-
ustu viku um allt land og mun
kjörsókn hafa verið góð.
Félagar í Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar staðfestu ný-
gerða kjarasamninga í allsherjarat-
kvæðagreiðslu fyrir helgina. Á kjör-
skrá voru 2529. Atkvæði greiddu
769 eða 30,41%. Já sögðu 477 eða
62%, nei sögðu 256 eða 33% og
auðir seðlarvoru 35, eða 5%.
Á stjómarfundi í BSRB í gær
var ákveðið að tilnefna Örlyg Geirs-
son, 2. varaformann samtakanna,
til að taka sæti í stjómskipaðri
nefnd, er hefur það hlutverk að
semja frumvarp til nýrra húsnæðis-
laga. Sú löggjöf verður í meginat-
riðum byggð á samkomulagi ASÍ,
VSÍ og VMS frá 26. febrúar sl.
í ályktun stjómar BSRB um
þetta efni er jafnframt ítrekað efni
yfirlýsingar samninganefndar
BSRB frá 28. febrúar sl., þar sem
lögð var áhersla á að samkomulagið
um húsnæðismál komi til fram-
kvæmda fyrir 1. september 1986.
„Alþingi verði ekki slitið fyrr en
ný húsnæðislöggjöf hefur verið
samþykkt," segir í ályktuninni.
Þá var og samþykkt svohljóðandi
ályktun um verðlagsmál:
„Stjóm BSRB samþykkir að
kjósa fimm manna nefnd til að
hafa forystu um aðhald í verðlags-
málum í framhaldi af kjarasamn-
ingum samtakanna, sem byggjast
meðal annars á því, að viðhalda
umsömdum kaupmætti launa með
verðhjöðnun.
Nefndinni er ætlað að skipu-
leggja starf félagsmanna til þess
að fylgjast með verðlagi vöm og
þjónustu. Þvf er beint til aðildarfé-
laga BSRB að þau feli trúnaðar-
mönnum á vinnustöðum að starfa
með nefndinni. Leitað verður sam:
starfs við nefnd, sem stjóm ASÍ
hefur kosið í sama skyni, svo og
verðlagsyfirvöld. í nefndina vom
kosin: Haraldur Hannesson formað-
ur, Jóhannes Gunnarsson, Lea Þór-
arinsdóttir, Ragnhildur Guðmunds-
dóttir og Þórdís Sigurðardóttir."
smíðaða byssu
ÓLVAÐUR maður var handtek-
inn í biðskýlinu á Hlemmi síð-
degis í gær, en hann hafði í fór-
um sínum hlauplausa byssu, sem
ástæða þótti til að athuga nánar.
Maðurinn kvaðst hafa smíðað
byssuna sjálfur og að sögn lögreglu
var ekki annað að sjá en að hann
hefði unnið verkið eftir réttum for-
skriftum. Vegna ölvunar mannsins
reyndist ekki unnt að yfírheyra
hann nánar og var hann látinn sofa
úr sér vímuna áður en frekari rann-
sókn málsins gæti hafist.