Morgunblaðið - 18.03.1986, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 18.03.1986, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. MARZ 1986 31 „Er fús að hitta höfuðpaur skæru- liða í Nicaragua“ — sagði Daniel Ortega í viðtali við sænska útvarpið o g átti þar við Ronald Reagan Bandaríkjaforseta Stokkhólmi, 17. mars. AP. MARGIR þeirra stjómmála- og þjóðarleiðtoga, sem komu til Stokkhólms til að vera við útför Olofs Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, áttu með sér fundi fyrir og eftir minningarathöfnina í Ráðhúsi Stokkhólmsborgar. Þar á meðal hittust þeir George P Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Nikolai I. Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, og ræddust við í 45 mínútur, og var haft eftir Shultz, að litill sem enginn árangur hefði orðið af viðræðum þeirra. Þetta var fyrsti fundur þeirra Shultz og Ryzhkovs, og sagði Shultz við fréttamenn: „Við rtönd- um í nákvæmlega sömu sporum og fyrir fundinn." Talið var, að Helmut Kohl, kansl- ari Vestur-Þýskalands, og Erich Honecker, forseti Austur-Þýska- lands, mundu eiga með sér fund, en þeir hittust aðeins stuttlega og ræddust óformlega við. Leiðtogar Afríkuríkja, sem iiggja að Suður-Afríku, hittust á fundi á laugardagsmorgun og ræddu sam- eiginlegar aðgerðir í baráttunni gegn kynþáttaaðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku. Einnig sátu þennan fund Oliver Tambo, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, Desmond Tutu bisk- up og séra Allan Boesak. Þá héldu leiðtogar sósíalista- flokka í Alþjóðasambandi sósíalista fund ásamt þjóðarleiðtogum úr „Þriðja heiminum". Daniel Ortega, forseti Nicaragua, kvað sér þykja leitt að fá ekki tækifæri til að ræða við Shultz. f viðtali við sænska útvarpið kvaðst Ortega vera fús að hitta höfuðpaur skæruliða í Nicaragua, og átti þar við Ronald Reagan Bandaríkjafor- seta. „En Reagan-stjómin vill víst aðeins ræða við þá sem einhver veigur er í,“ sagði Ortega. Fulltrúar sex ríkja hópsins svo- nefnda komu saman í Stokkhólmi á laugardag til að ræða tilmæli, sem þeir sendu stórveldunum, um að þau hættu tilraunum með kjamorku- vopn, en undirritun þessara tilmæla var ein af síðustu stjómarathöfnum Olofs Palme. „Við hefðum óskað eftir að fá Sovétríkin: Bandaríkja- maður rek- inn úr landi Moskvu, 17. mars. AP. SOVÉTMENN skipuðu bandaríska stjómarerindrek- anum Michael Sellers úr landi á föstudag, og sökuðu hann um njósnir. Fyrir viku hrelldu bandarisk stjómvöld Kreml- veija með því að skipa Sovét- mönnum að fækka í starfsliði sínu við Sameinuðu þjóðimar. Að sögn sovésku fréttastof- unnar Tass hafði leyniþjónustan KGB hendur í hári Sellers á leynifundi með sovéskum borg- ara, sem bandaríska leyniþjón- ustan CIA hefði haft á sínum snærum. Fréttastofan greindi ftá því að rannsókn málsins hefði leitt í ljós sannanir á því að Sellers hefði gert sig sekan um athæfí, sem samræmdist ekki stöðu hans og starfi. Jaroslav Vemer, talsmaður bandaríska sendiráðsins í Moskvu, hefur staðfest að Sov- étmenn ætli að reka Sellers úr landi og talið er að hann muni yfírgefa Sovétríkin bráðlega. Sellers er sérfræðingur í samskiptum Sovétmanna við Vestur-Evrópuríki og hefur áður starfað í Póllandi og Eþíópíu. betri undirtektir hjá Bandaríkja- mönnum en raun hefur orðið á,“ sagði Rajiv Gandhi, forsætisráð- herra Indlands, einn af fulltrúum ríkjanna sex, en þá hafði borist skriflegt svar frá Bandaríkjastjóm við tilmælum hópsins. Frá minningarathöfninni um Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, í Ráðhúsi Stokkhólmsborgar á laugardag. Um 1.700 manns, þar af um 600 erlendir gestir, voru viðstaddir athöfnina, sem var á vegum Jafnaðarmannaflokksins. „Munum halda áfram baráttu Olofs Palme“ — sagði s-afríski presturinn Allan Boesak við minningarguðsþj ónustu í Storkyrkan Stokkhólmi, 16. mars. Frá Bergljót Fríðriksdóttur, fréttarítara Morgunblaðsins. MILLI hundrað og hundrað og fimmtiu þúsund manns fylgdu Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, til grafar hér i Stokk- hólmi í gær. Líkfylgdin fór frá ráðhúsi borgarinnar í gegnum miðbæinn að Adolf Frederiks-kirkjugarðinum, þar sem Palrne var lagður til hinstu hvílu. Minnst þrír slösuðust lítils háttar í troðningnum, sem myndaðist við Iíkfylgdina. Mikil ró var þó yfir fólki og grafarþögn rikti i borginni. Aðrar götur en þær, sem líkfyldin fór um, voru svo að segja auðar. Aðeins ættingjar og nánustu klukkan átta um kvöldið var hlið og vinir Palme voru viðstaddir, er for- sætisráðherrann var borinn til graf- ar. Áður en athöfninni í kirkjugarð- inum var lokið, tók fólk að safnast saman fyrir utan garðinn til að kveðja Olof Palme hinsta sinni. Um kirkjugarðsins opnað, og mann- fjöldinn, sem beðið hafði í rúmar tvær klukkustundir, tók að streyma inn í garðinn. Margir höfðu blóm meðferðis til að leggja á leiðið, aðrir héldu á kertum. Alla nóttina og allan daginn í dag beið fólk í röðum til að komast inn i kirkjugarðinn, og í kvöld höfðu rúmlega 15 þúsund manns vottað hinum látna forsætis- ráðherra virðingu sína. Margir hinna erlendu gesta, sem komu til borgarinnar til að vera við útför Olofs Palme, fóru um helgina að staðnum, þar sem forsætisráð- herrann féli fyrir hendi morðingj- ans, og lögðu blóm á blómabinginn, sem þar var fyrir. Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands, sagði á blaðamannafundi á laugardag, að indverska ríkis- stjómin hefði ákveðið að heiðra minningu Olofs Palme og nefna götu eða torg í höfuðborg landsins, Nýju Delhí, eftir honum. Sagði Gandhi, að Lisbeth Palme og nán- ustu ættingjum yrði boðið til Ind- lands, þegar athöfnin færi fram. Desmond Tutu biskup og Allan Boesak prestur tóku öllum að óvör- um til máls við minningarguðs- þjónustu um Olof Palme í Storkyrk- an í dag. Kirkjan var þéttsetin og meðal gesta var ekkja Palme, Lis- beth, og synir þeirra þrír, svo og forseti Nicaragua, Daniel Ortega, ásamt eiginkonu sinni. Boesak komst m.a. svo að orði: „A morgun byrjar sænska þjóðin nýtt líf, þ.e. líf án Olofs Palme. Við verðum að trúa á orð Guðs, þegar hann segir, að réttlætið muni sigra og mannúð- in yfirvinna allt hatur. Við munum halda áfram baráttu Olofs Palme fyrir friði og réttlæti í heiminum." Frá minningarathöfninni í Ráðhúsi Stokkhólmsborgar: Hinn nýkjörni forsætisráðherra Sviþjóðar, Ingvar Carlsson, staðnæmist við kistu liins látna forsætisráðherra eftir að hafa flutt ávarp sitt. Frá útför Olofs Palme forsætisráðherra Svíþjóðar. Milli 100 og 150 þúsund manns fylgdu hinum látna forsætisráðherra síðasta spölinn. Hér er likfylgdin i miðborg Stokkhólms á leið til Adolf Fredriks- kirkjugarðsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.