Morgunblaðið - 18.03.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1986
37
Laumufarþegi frá Marokkó til Akraness:
Utgerðin gæti set-
ið uppi með hann
„ÉG GÆTI best trúað því að út-
gerðin sæti uppi með strákinn.
Hann er án vegabréfs og verður
þvi hvergi hleypt í land. Eina
leiðin er að reyna að koma hon-
um aftur til Marokkó eftir dipló-
matískum leiðum," sagði Viðar
Stefánsson rannsóknalögreglu-
maður á Akranesi.
Sextán ára laumufarþegi frá
Marokkó kom með danska flutn-
ingaskipinu Jenlil til Akraness sl.
laugardagsmorgun. Hafði pilturinn
læðst um borð í Marokkó, komið
sér í land í Englandi, en líkaði ekki
dvölin þar og laumaðist því aftur
um borð. Sólarhring eftir að skipið
lét úr höfn í Englandi fundu skip-
veijar piltinn, matarlausan og sjó-
veikan í lestinni, þar sem hann
hafði falið sig.
„Þetta er óttaleg kvöl. Pilturinn
er munaðarlaus og atvinnulaus og
veit ekkert hvað hann vill. Hann
virðist þó vera ágætlega greindur.
Það er ómögulegt að segja hvað
um hann verður. Skipstjórinn ber
ábyrgð á honum og það verður
höfuðverkur útgerðarinnar að finna
honum stað. Þess eru dæmi að
úgerðir hafi setið uppi með vega-
bréfslausa laumufarþega árum
saman," sagði Viðar Stefánsson.
Viðar sagði að danska flutninga-
skipið hefði siglt til Vestmannaeyja
til að lesta mjöl, en færi síðan til
Evrópu.
Akranes:
Bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins
fór í þriðja sæti í prófkjöri
Akranesi, 17. marz.
GÍSLl Einarsson, vélvirki, varð
efstur í prófkjöri Alþýðuflokks-
ins á Akranesi um h< lgina. Hann
fékk 167 atkvæði í fyrsta sæti
og Ingvar Ingvarsson yfirkenn-
ari fékk 174 atkvæði í tvö fyrstu
sætin. Bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins, Guðmundur Vésteins-
son, sem setið hefur í bæjarstjórn
í 16 ár, fékk 183 atkvæði í fyrstu
þrjú sætin. í prófkjörinu greiddu
atkvæði 338 manns.
Sigríður Óladóttir húsmóðir varð
í ij'órða sæti í prófkjörinu með 113
atkvæði. Kjartan Guðmundsson
yfírtrúnaðarmaður fékk 103 at-
kvæði í fyrstu fimm sætin.
Nú að loknum prófkjörum flokk-
anna bendir allt til þess, að sex af
níu núverandi bæjarfulltrúum sitji
ekki í bæjarstjóm næsta kjörtíma-
bilið. Alþýðuflokkurinn hefur nú
aðeins einn bæjarfulltrúa, sem er
Guðmundur Vésteinsson. Og fimm
aðrir bæjarfulltrúar tóku ekki þátt
í prófkjörum flokka sinna. Þar af
voru þrír sjálfstæðismenn; Ragn-
heiður Ólafsdóttir, Hörður Pálsson
og Valdimar Indriðason. Hjá Fram-
sóknarflokknum tók Jón Sveinsson
ekki þátt í prófkjörinu og hjá Al-
þýðubandalaginu ekki Engilbert
Guðmundsson.
JG
Alþýðuflokkurinn 70 ára
Morgunblaðið/01.K.M.
Fjölmenni var á hátíðarsamkomu á Hótel Sögu á sunnudag þegar Alþýðuflokkurinn minntist 70
ára afmælis. Jóhanna Sigurðardóttir varaformaður flokksins setti hátíðina, Jón Baldvin Hannibals-
son formaður flokksins flutti ávarp og Kristinn Sigmundsson óperusöngvari söng við undirleik
Jónasar Ingimundarsonar. Meðal gesta voru Hannibal Valdimarsson formaður Alþýðuflokksins á
árunum 1952 til 1954, Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins og Ásmundur Stefánsson
forseti ASÍ.
Kosningarnar í Háskólanum:
Höldum okkar hlut þrátt
fyrir atkvæðamissinn
— segir Benedikt Bogason efsti maður á lista Vöku
Prófkjör Alþýðuflokks á Akureyri:
Freyr o g Gísli Brag'i efstir
FREYR Ófeigsson, bæjarfulltrúi,
hlaut flest atkvæði í prófkjöri
Alþýðuflokksins á Akureyri fyrir
bæjarstjómarkosningarnar í vor
sem fram fór um helgina. Freyr
Iðnaðarbank-
inn lækkar
gjaldskrá
IÐN AÐ ARB ANKINN hefur
ákveðið að lækka gjaldskrá sina
þannig að hún verði aftur sú
sama og hún var ákveðin 15.
október siðastliðinn.
í fréttatilkynningu frá Iðnaðar-
bankanum segir:
„í lok febrúar voru gerðir kjara-
samningar, sem miða að verulegri
lækkun verðbólgunnar. Af þeim
sökum hafa bankamir þegar lækk-
að nafnvexti verulega.
Til að stuðla enn frekar að því
að lækka verðbólgu hefur Iðnaðar-
bankinn nú, eftir viðræður við við-
skiptaráðherra, ákveðið að frá og
með þriðjudeginum 18. mars lækki
gjaldskrá hans þannig, að hún verði
sú sama og hún var ákveðin 15.
október síðastliðinn."
Samvinnubank-
inn lækkar inn-
lenda gjaldskrá
SAMVINNUBANKINN hefur
ákveðið að lækka innlenda gjald-
skrá sína í það sama og var fyrir
1. mars síðastliðinn, þegar bankam-
ir hækkuðu þjónustugjöld sín.
Þannig fer útsöluverð á tékkheftum
úr 140 krónum í 110 krónur, eins
og var fyrir 1. mars og kostnaður
vegna innistæðulausra tékka lækk-
ar aftur niður í 220 krónur í stað
280 króna, svo nokkuð sé nefnt.
Breytingin tekur gildi frá og með
21. mars.
hlaut 251 atkvæði í 1. sæti og 73
atkvæði i 2. sæti - samtals 324
atkvæði.
Gísli Bragi Hjartarson fékk 158
atkvæði í 1. sætið og 106 atkvæði
í 2. sætið. Samtals 264 atkvæði.
Freyr og Gísli Bragi hlutu báðir
bindandi kosningu og munu því
skipa fyrsta og annað sæti á lista
Alþýðuflokks í kosningunum í vor.
Hulda Eggertsdóttir varð í þriðja
sæti með 108 atkvæði, Áslaug Ein-
arsdóttir varð flórða með 95, Helga
Ámadóttir fímmta með 57 atkvæði,
Herdís Ingvadóttir sjötta með 33
atkvæði og Jóhann Möller sjöundi
með 32 atkvæði.
479 manns tóku þátt í prófkjörinu.
457 atkvæði vom gild, einn seðill
auður og 21 ógildur. Alþýðuflokkur-
inn á einn fulltrúa í bæjarstjóm nú,
Frey Ófeigsson.
„VIÐ HÖLDUM okkar hlut, þó
við missum nokkur atkvæði.
Skýringanna að þessum at-
kvæðamissi er að mínu viti að
leita í því er umbótasinnar rufu
samstarf við okkur án þess að
færa nokkur rök fyrir því og
eflaust hefur það blásið ein-
hverjum krafti í andstæðinga
okkar, að komast í meirihluta.
Það er athyglisvert í sambandi
við úrslit þessara kosninga að
umbótasinnar, sem ganga úr
samstarfi við okkur tapa manni
til vinstrimanna, en það sýnir
afstöðu kjósenda til þeirra."
Þetta sagði Benedikt Bogason
um úrslit kosninga til Stúdentaráðs
en Vökumenn fengu 127 atkvæðum
færra nú en í fyrra.
Kosningaþátttaka nú var minni
en í fyrra, á kjörskrá voru 4.475
en 1.694 kusu, eða 37,85%. í fyrra
vom 4.369 á kjörskrá, þá kusu
1.793 eða 41,04%. Árið 84 vom
4.138 á kjörskrá, þá kusu 2.028
eða 49,1%. I kosningum til Stúd-
entaráðs 1984 fékk Vaka 716 at-
kvæði eða 35,31%, vinstrimenn 786
eða 38,76% og umbótasinnar 462
atkvæði, 22,78%. f kosningum til
Háskólaráðs fékk Vaka 709 at-
kvæði, 34,96%, vinstri menn 782
eða 38,56% og umbótasinnar 492
eða 24,26%. í kosningunum í fyrra
fengu Vökumenn 657 atkvæði eða
36,64%, vinstrimenn 563 eða 31,4%
og umbótasinnar 382 eða 21,3% og
Manngildissinnar 45 atkvæði eða
2,5%. í kosningum til Háskólaráðs
fengu Vökumenn 687 eða 38,32%,
vinstrimenn fengu 548 atkvæði eða
30,56%, og umbótasinnar 437 at-
kvæði eða 24,37%. í kosningunum
nú fyrir skömmu fengu Vökumenn
530 atkvæði eða 31,28%, vinstri-
menn 695, 41,02% og umbótasinnar
316 atkvæði eða 18,65% Manngild-
issinnar fengu 47 atkvæði eða
2,77%. í kosningum til Háskólaráðs
fengu Vökumenn 553 atkvæði eða
32,64%, vinstrimenn 700 eða
41,32% og Félag umbótasinna 330
atkvæði eða 19,48%.
Borgarst|órnar-
kosningar:
Flokkur
mannsins
ákveður
skipan lista
FLOKKUR mannsins hefur ákveðið
skipan lista yfir frambjóðendur
sína fyrir borgarstjórnarkosning-
amar í vor.
Uppstillingamefnd FM i Reykja-
vik stillti upp listannm nm miðjan
febrúar sl. Nefndin beitti sér siðan
fyrir skoðanakönnun meðal 2.700
félaga flokksins i Reykjavík. Röðin
á listanum er i samræmi við niður-
stöður þeirrar könnunar, segir i
frétt frá FM.
Aðalmenn: 1. Áshildur Jónsdóttir, 23
ára, skrifstofumadur. 2. Júlíus K. Valdi-
marsson, 42 ára, markaðsstjóri. 3. Þór
Vflringsson, 19. ára, afgreiðslumaður. 4.
Helga R. Oskarsdóttir, 34 ára, húsmóðir.
5. Friðrik V. Guðmundsson, 28 ára, málm-
iðnaðarmaður. 6. Sigrún Baldvinsdóttir,
20 ára, verkamaður. 7. Inga Þ. Kristins-
dóttir, 20 ára, iðnnemi. 8. Kjartan Jónsson,
25 ára, háskólanemi. 9. Helga Gísladóttir,
28 ára, kennari. 10. Sigurður Sveinsson,
49 ára, bifreiðastjóri. 11. Tryggvi Kristins-
son, 20 ára, nemi í fjölbraut. 12. Anna
5. Sverrisdóttir, 42 ára, sjúkraliði. 13.
Sigurður Bragason, 22 ára, háskólanemi.
14. Anna B. OÍafsdóttir, 21 árs, skrifstofu-
maður. 15. Jón Kjartansson, 56 ára, rit-
höfundur.
Varamenn: 1. Svanhildur Óskarsdóttir,
29 ára, bankastarfsmaður. 2. Geir Guð-
jónsson, 18 ára, vélskólanemi. 3. Skúli
Pálsson, 33 ára, mælingamaður. 4. Björg
Bjamadóttir, 30 ára, fóstra. 5. Guðmundur
Þórarinsson, 27 ára, prentiðnaðarmaður.
6. Steinunn Pétursdóttír, 22 ára, húsmóð-
ir. 7. Sveinn Baldursson, 23 ára, háskóla-
nemi. 8. Hafrún L Ágústsdóttír, 22 ára,
verkmaður. 9. Sólveig Helgadóttir, 45 ára,
iðnverkamaður. 10. Halldóra Jónsdóttir,
39 ára, verslunarmaður. 11. Sigurbergur
Ólafsson, 19 ára, bókagerðarmaður. 12.
Sonja Sigurðardóttir, 42 ára, bókagerðar-
maður. 13. Unnar M. Andrésson, 36 ára,
bifreiðastjóri. 14. Katrín S. Baldursdóttir,
22 ára, verslunarmaður. 15. Sigurður A.
Magnússon, rithöfundur.
Karlakórinn Þrestir ásamt undirleikaranum Jónínu Gisladóttur, stjórnandanum Kjartani Sigurjóns-
syni og einsöngvaranum Kristni Sigmundssyni.
Hafnarfjörður:
Karlakórinn Þrestir heldur vortónleika
Kórinn syngur nú undir stjóm
Kjartans Sigurjónssonar í fyrsta
sinn, en hann var áður stjómandi
Karlakórs ísafjarðar og Ægis í
Bolungarvík. Einsöngvari með
Þröstum er hinn þekkti söngvari
Kristinn Sigmundsson og undir-
leikari Jónína Gísladóttir.
KAKL AKÓRINN Þrestir í
Hafnarfirði heldur sína árlegu
vortónleika í Hafnarfjarðarbíói
fyrir styrktarfélaga sína og
aðra söngunnendur, sem hér
■egir:
Miðvikudag 19. mars kl. 20.00
Föstudag 21. mars kl. 20.00
Laugardag 22. mars kl. 16.00
Efnisskrá kórsins er fjölbreytt
að vanda og má nefna verk eftir,
Áma Thorsteinsson, Jónas Tóm-
asson, Jón Ásgeirsson, G. Verdi,
J. Síbelíus og G. Winkler, svo
eitthvað sé nefnt.