Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 50
✓ 50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. MARZ1986
AVOCADO-
ÁBURÐUR FYRIR
SPRUNGNAR
HENDUR
Góð reynsla
„Ég vil endilega koma á fram-
færi reynslu minni af EVORA-
handáburöinum.
Dóttir mín, 16 ára gömul, hefur
verið með exem frá barnæsku
og hefur það versnaö með ár-
unum. Avocadoáburðinn fór
hún að nota fyrir mánuði og
exemið er næstum horfið.
EVORA-handáburðurinn er bú-
inn til úr avocadoávöxtum og
er alveg laus við að vera feitur
og eða smitandi og lyktin er
góð."
Sigrún Runólfsdóttir
Útsölustaðir fyrir handáburðinn:
Árbæjarapótek — Kaupfélagið
Sauðárkróki — Kjalfell, Gnoðar-
vogi — Mosfellsapótek — Rang-
árapótek.
INGRID, Hafnarstræti 6.
Póstsendum, sími 62-15-30 og
24311
Heildsölubirgöir:
Hallgrímur Jónsson,
simi 24311.
unic
TÍMALIÐAR
SPENNULIÐAR
SNÚNINGS-
HRAÐALIÐAR
Hagstætt verð
vönduð vara
= HEÐINN =
VELAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
FISKIDÆLUR
SLÓGDÆLUR
• FLYGT dælir auð-
veldlega vökva
blönduðum fiskúr-
gangi og slógi.
• FLYGT hefur inn-
byggðan hníf sem
sker í sundur fiskúr-
ganginn.
= HÉÐINN =
VELAVERSLUN. SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Útúrsnúningur
í undirheimum
Kvikmyndir
Ámi Þórarinsson
Stjömubíó: Neðanjarðarstöðin
— Subway ★ ★ 'fa.
Frönsk. Argerð 1985. Handrit
og leikstjóra: Luc Besson.
Aðalhlutverk: Christopher
Lambert, Isabelle Adjani.
„To do is to be.
— Sartre.
To be is to do.
— Sókrates
Do be do be do.
— Frank Sinatra."
Þessi kunna veggáletrun af
almenningssalemum og neðan-
jarðarlestum heimsins er viðeig-
andi einkunnarorð þessa franska
nýbylgjuþrillers sem töluverða
viðurkenningu og hylli hefur feng-
ið }rtra. Hann daðrar létt við ein-
hvers konar tilvistarspeki í lýsingu
sinni á undirheimalífí en dregur í
land jafnharðan, fylgir engum
alvörumálum á áfangastað, held-
ur snýr út úr í anda heimspekings-
ins Franks Sinatra.
í upphafi, eftir að ofanrituð
einkunnarorð fylla tjaldið, er
Christopher Lambert í hlutverki
utangarðshetjunnar Freds á
harðaspani á bíl undan einhveij-
um náungum; Fred sem sérhæfír
sig í að sprengja peningaskápa
hefur stolið ótilgreindum plöggum
af auðugum krimma. Fred stingur
útsendara hans af eftir mikinn
eltingaleik og kemst undan inn í
neðanjarðarbrautir Parísarborg-
ar. Þar kynnist Fred nýlendu
utangarðsmanna, lífí þjófa og
iðjuleysingja og lögganna sem
eltast við bófana. Og þangað
kemur eiginkona auðmannsins,
Isabelle Adjani, í leit að plöggun-
um en finnur í staðinn ást á Fred
og andúð á fyrra lífemi sínu.
Chnstopher Lambert flýr samkvæmisklæddur á vit neðanjarð-
arlýðsins í Subway.
Subway er á margan hátt inn-
antóm mynd. Undir snörpum
myndstfl og snöggklipptri hljóðrás
er svosem ekki neitt. Myndin er
umfram allt stflæfíng. Og hún er
mestan part skemmtileg stflæfíng
með óvæntum uppákomum og
absúrd gamansemi í samtölum,
ekki síst þar sem lýst er samskipt-
um neðanjarðarlýðsir.s við marg-
hijáð lögregluliðið. Besson leik-
stjóri spennir hasaratriðin hátt og
tengir oft glæsilega við bassa-
ganginn og trommutaktinn í rokk-
músíkinni sem stundum yfírtekur
atburðarásina og breytir Subway
í tónleikamynd.
Þrátt fyrir kímileg smáatriði í
teikningu aukapersóna vantar
Subway fólk af holdi og blóði í
þungamiðjuna. Ef persónusköpun
hefði verið fyrir hendi í handrítinu
væri Subway endingarbetri af-
þreying.
Björn S. Lárusson ráðinn
hótelstjóri á Selfossi
BJÖRN S. Lárusson hefur verið
ráðínn hótelstjóri að hinu nýja
hóteli á Selfossi, sem ferðaskrif-
stofan Samvinnuferðir Landsýn
mun reka eftir að það verður
opnað i vor.
Bjöm S. Lárusson fæddist á
Akranesi 7. maí 1955. Hann varð
stúdent frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1976 og starfaði eftir
það í þijú ár á Hótel Sögu. Hann
stundaði nám erlendis og lauk prófí
frá ferðamáladeild Héraðsháskól-
ans í Lillehammer í Noregi 1983.
Síðustu tvö ár hefur Bjöm starfað
sem deildarstjóri innkaupadeildar
Skrifstofuvélar hf.
Hann er kvæntur Önnu Kjartans-
dóttur og eiga þau þrjú böm.
(Fréttatilkynning)
Björa S. Lárasson
Frá stofnfundi félagsins Macrolif.
Félagið Macro-
líf stofnað
MIÐVIKUDAGINN 26. febrúar var
stofnað félag áhugafólks um
Macrobiotik. Komu um 80 manns
á stofnfundinn og hlaut félagið
nafnið Macrolíf. í Macrobiotiskum
lífsmáta felst að lifa á einfaldri líf-
rænni fæðu og í tengslum við nátt-
úmna og á þann hátt viðhalda
heilsunni, segir frétt frá félaginu.
í stjóm voru kosin ísleifur Á.
Jakobsson formaður, Sigrún Olsen
gjaldkeri og Hildur Einarsdóttir
ritari. Upplysingar um félagið em
gefnar á kvöldin 'í síma 44226.
Næsti félagsfundur verður haldinn
í Múlabæ, Armúla 34, miðvikudag-
inn 19. marz kl. 20.30.
Krabbameinsfélagið
NÁMSKEIÐ í
REYKBINDINDI
Calor-þeytivinda
Létt, hljóðlát og meðfærileg. Er tvær mín-
útur með 1 Vz kg af þvotti, 2200 snúningar
á mínútu.
Verð aðeins kr. 6.800
með söluskatti.
f
Hverfisgötu 37 Víkurbraut 13
Reykjavík Keflavík
Símar: 21490, Sími2121
21846
Hafin er innritun í apríl-maí námskeið Krabba-
meinsfélagsins. Námskeiðið hefst 7. apríl með
undirbúningsfundi, en H-dagur er 4. maí, þ.e.
þann dag hættir hópurinn að reykja. Tíu mætingar
eru á tímabilinu, 60—90 mín. í senn. Námskeiðið
er byggt upp á eftirfarandi hátt:
☆ Persónuleikagreining og atferliskönnun.
☆ Ráð til að draga úr löngunum, kvíða, streitu
og fráhvarfseinkennum.
☆ Gestafyrirlestrar.
☆ Fræðslumyndir og grínmyndir um reykinga-
vanann.
☆ Megrun og matarvenjur.
☆ Hópefli.
Verð kr. 1.200 fyrir einstakling en 1.800 fyrir
hjón. Innritun í síma 621414.