Morgunblaðið - 27.03.1986, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1986
35
Ton Wig-gers meðstjórnandi og Ed Wubbe höfundur og stjórnandi
„Stöðugra ferðalanga".
Islenski dansflokkurinn:
„Stöðugir ferðalang-
ar“ í Þjóðleikhúsinu
SUNNUDAGINN 6. apríl kl.
20.00 frumsýna Þjóðleikhúsið og
íslenski dansflokkurinn ballett-
sýninguna Stöðugir ferðalangar,
sem byggð er upp á þremur
ballettum eftir hollenska dans-
höfundinn Ed Wubbe. Tónlist er
eftir John McDowelI, Arvo P&rt
og þjóðlagatónlist frá Marokkó
sem er flutt af Samira Ben Said
og hljómsveit. Leikmyndir eru
eftir Hep von Delft og bræðurna
Armenio og Alberts Marcell, en
búningar eftir Heidi de Raad og
Sigurjón Jóhannsson. Arni Bald-
vinsson hannar lýsinguna, en
stjórnendur uppfærslunnar eru
Ton Wiggers og Ed Wubbe.
Dansaramir í sýningunni eru
Ásdís Magnúsdóttir, Asta Henriks-
dóttir, Birgitte Heide, Guðmunda
Jóhannesdóttir, Guðrún Pálsdóttir,
Helena Jóhannsdóttir, Helga Bem-
hard, Ingibjörg Pálsdóttir, Katrín
Hall, Lára Stefánsdóttir, Ólafía
Bjamleifsdóttir, Sigrún Guðmunds-
dóttir, Öm Guðmundsson og er-
Iendu gestimir Patrick Dadey og
Norio Mamiya, Bandaríkjamaður
og Japani sem báðir hafa starfað í
Hollandi um árabil.
Ed Wubbe hefur á undanfömum
árum hlotið mikinn frama í heima-
landi sínu, Hollandi, en síðastliðin
fimm ár hefur hann eingöngu samið
ballett. Hann var áður dansari auk
þess að semja ballettverk. Fyrir
skömmu voru honum veitt æðstu
verðlaun sem hollenska ríkið veitir
einum skapandi listamanni ár hvert.
Ballettamir þrír í sýningu ís-
lenska dansflokksins heita Fjar-
lægðir (Afstand), Tvístígandi
sinnaskipti, sem er saminn sér-
staklega fyrir íslenska dansflokk-
inn, og síðast á efnisskránni er svo
Annað ferðalag (Another Jour-
ney), en ballettinn sem fyrst var
nefndur og sá síðasttaldi hafa áður
verið sýndir í Hollandi, þar sem
þeir vöktu óskipta athygli og em,
eins og áður er nefnt, meðal þekkt-
ustu verka Wubbes.
Með þessari sýningu íslenska
dansflokksins og Þjóðleikhússins
gefst einstakt tækifæri til að kynn-
ast verkum eins af fremstu ballett-
höfundum nútímans. Frumsýning
verður sem fyrr segir þann 6. apríl,
en önnur sýning fimmtudaginn 10.
apríl. Vakin er athygli á að þessi
sýning er meðal áskriftarverkefna
Þjóðleikhússins í vetur.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Minningarskák-
mót á Blönduósi
Minningarskákmót um Jónas
Halldórsson og Ara Hermanns-
son lauk um helgina á Blönduósi
en Ungmennasamband Austur-
Húnvetninga gekkst fyrir mót-
inu.
í frétt um þetta skákmót í Morg-
unblaðinu voru villur í fyrirsögn og
í fréttinni var ein villa, Jón Amljóts-
son var ranglega nefndur Jón
Ambjömsson. Morgunblaðið biðst
velvirðingar á þessum mistökum.
Meðfylgjandi mynd var tekin á
skákmótinu.
íslandsdeild Alþjóða þingmannasambandsins:
Þing haldin í Togo
Mexíkó og Kanada
deildar Alþjóða þingmannasam-
bandsins er Friðrik Sophusson, en
auk hans áttu þar sætr á sl. ári
Ragnar Arnaids, Þórarinn Sigur-
jónsson og Jóhanna Sigurðardóttir.
Á árinu 1985 áttu þeir Friðrik
Sophusson annarsvegar og Ragnar
Arnalds og Svavar Gestsson hins-
vegar sæti í fulltrúaráði samtak-
anna en ritari íslandsdeildar var
Ólafur Ólafsson, deildarstjóri.
fltPinGi
Stofnanir Alþjóða þingmannasambandsins eru: 1) Þing samtak-
anna, sem tekur afstöðu til mála sem fulltrúaráðið hefur ákveðið
að rædd skuli; 2) Fulltrúaráð skipað tveimur fulltrúum frá hverri
þjóð; 3) Framkvæmdanefnd sem er ráðgefandi fyrir fulltrúaráðið
og fylgist grannt með starfsemi sambandsins; 4) Aðalskrifstofa, sem
starfar allt árið, og sér um framkvæmdir ályktana samtakanna.
Á fundum samtakanna hittast þingmenn hvaðanæva að og skiptast
á skoðunum um ýmis vandamál á sviði efnahagsmála, félagsmála.
menntamála o.sv.fv.
Á seinni árum hafa samtökin
venjulega haldið a.m .k. tvö þing
árlega, auk ýmissa smærri funda
um skýrt afmörkuð efni. Af hálfu
Alþingis hafa oftast fjórir fulltrúar
Fyrirspurnir
Eignatap
íbúðarkaupenda
Guðrún Agnarsdóttir (Kl.-Rvk.)
spyr félagsmálaráðherra: Hve
margir festu kaup á íbúð eða hófu
byggingu húsnæðis 1981, 1982 og
1983; hve margir þeirra, sem hér
um ræðir, hafa leitað aðstoðar
ráðgj afarþjónustu
Húsnæðisstofnunar 1985 og 1986;
hve mikið hefur eignatap þeirra
einstaklinga orðið, sem keyptu eða
byggðu húsnæði á árunum 1981,
1982 og 1983.
sótt þingin, auk ritara en aðrir
fundir eru sjaldnast sóttir.
Á síðastliðnu ári voru haldin tvö
þing. Hið fyrra í Lomé í Toga í
marz, er Friðrik Sophusson og
Svavar Gestsson sóttu. Það síðara
í Mexíkó er Haialdur Ólafsson og
Sigríður Dúna Kristmundsdóttur
sóttu. Sérstakt haustþing var haldið
í Ottawa í Kanada. Það sóttu Frið-
rik Sophusson, Þórarinn Siguijóns-
son, Ragnar Amalds og Jóhanna
Sigurðardóttir.
Núverandi formaður íslands-
Skyldusparnaður
ungs fólks
Karl Steinar Guðnason (A.-Rn.)
spyr félagsmálaráðherra hvemig
háttað hafi verið innheimtu
skylduspamaðar ungs fólks til
íbúðabygginga; hvemig er háttað
framkvæmd viðkomandi
lagagreinar ef launagreiðandi
vanrækir að taka skylduspamað af
starfsmanni, lögum samkvæmt;
hvemig miðar setningu reglugerðar
um skylduspamað; hvemig er
réttur starfsmanna tryggður við
gjaldþrot ef atvinnurekandi hefur
tekið skyldusparnað af launum
þeirra en ekki gert skil til
innheimtuaðila.
Alþjóðaflugvöllur
á Sauðárkróki
Karl Steinar spyr og
utanríkisráðherra hvort kunngt sé
um áhuga Atlantshafsbandalagsins
á alþjóðaflugvelli á Sauðárkróki;
hvort viðræður við NATO um
fjárframlag bandalagsins til slíks
flugvallar hafi farið fram; hvort
vamarsveit frá NATO verði við
þann flugvöll eða þar reistir
eldneytisgeymar, ef til kemur.
Uppi ituð f lugbraut
á Sauðárkróki
Karl Steinar spyr loks
samgöng iráðherra hvort gerðar
hafí veri< áætlanir um að nota heitt
vatn frá Hitaveitu Sauðárkróks til
að hita upp flugbraut hugsanlegs
varafluj vallar fyrir millilandaflug
við Sai ðárkrók; hafa rannsóknir
verið gerðar á hitaveitusvæðinu;
liggur lýrir hvað vatnsnotkun við
upphitu i vallar yrði mikil; hefur
verið gerð kostnaðaráætlun um
upphitui. flugbrautar á
Sauðárkróki.
Ferðamálaráð:
10% af veltu Fríhafnar
10% af söluverðmæti Fríhafnar-
innar á Keflavíkurflugvelli hefur
verið sem hér segir, samkvæmt
svari samgönguráðherra við fyrir-
spum frá Steingrími J. Sigfússyni:
11,2 m.kr. 1982, 19,1 m.kr. 1983,
24,7 m.kr. 1984. 38.2 m.kr. 1985
og áætlun stendur til 32,4 m.kr.
tekna í ár. Hinsvegar hafa heildar-
framlög ríkissjóðs til ráðsins verið
á sama tímabili: 1982 5,9 m.kr,
1983 9,5 m.kr., 1984 19,9 m.kr.,
1985 21,1 m.kr. og 1986 19,0 m.kr.
(skv. fjárlöerumL
| BðKAMARKAÐURINN
OPINN í DAG 10—18 [&] Vörumarkaðurinn hf.