Morgunblaðið - 27.03.1986, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 27.03.1986, Qupperneq 64
JMEÐA NrmiNriM. Qlðnaöarbankinn frnmm FIMMTUDAGUR 27. MARZ1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Veitingastaður á hitaveitugeymum FRAMKVÆMDIR eru nú hafnar við nýja hitaveitugeyma í Öskjuhlíð en ofaná þeim er gert ráð fyrir veitingastað. Að sögn Davíðs Oddsson- ar, borgarstjóra, er stefnt að því að lokið verði við að reisa geymana um mitt sumar 1987, og munu þá framkvæmdir við veitingasalinn heQast. Glerhjálmur verður yfir veitingasalnum og er gert ráð fyrir að salurinn muni snúast ofan á geymunum. Þá verða svokallaðir „vetrargarðar" undir glerhjálmum á milli geymanna. Að sögn borgar- stjóra er búist við að rekstur veitingasalarins verði boðinn út þegar þar að kemur. Ingimundur Sveinsson arkitekt teiknaði hina nýju geyma ogveitingasalinn. Vextir almennra spari- sjóðsbóka verði 8—9% Frekari vaxtalækkanir ólíklegar enjafnvægi verður á milli verðtryggðra og óverðtryggðra reikninga þegar líður á árið VEXTIR inn- og útlána lækka 1. aprfl næstkomandi. Samkvæmt ákvörðun Seðlabanka lækka útlánavextir nm 4,25-4,5% en lækkun ÍHulánsvaxta er nokkuð mismunandi. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins beindi Seðlabankinn þeim eindregnu tilmælum til innláns- stofnana að vextir á almennum sparisjóðsbókum lækki ekki eins mikið og vextir á öðrum reikningum, og að sparisjóðsbækumar yrðu ekki iátnar gjalda fyrir sérkjaraboðin. Vextir á sparisjóðsbókum verða 8-9% í stað 12-13%. Hjá nokkrum innlánsstofnunum lækka innlánsvextir nokkru minna en útlánvextir, og verður munur inn- og útlánsvaxta því minni. Þetta kemur beint niður á afkomu banka og sparisjóða, þar sem langstærsti hluti tekna þeirra, um 80% og meira, eru af vaxtamuninum. Þegar vextir lækkuðu 1. mars sl. minnkaði vaxtamunurinn nokkuð. Þeir bankamenn sem rætt var við voru sammála um að ef spá Seðlabanka um þróun lánslg'aravísi- tölunnar stenst, þá muni jafnvægi skapast á milli óverðtryggðra og verðtryggðra kjara, þegar líða tekur á árið. En um skeið hafa óverð- tryggð kjör gefið mun meira af sér en verðtryggð. Þá voru menn sam- mála um að frekari vaxtalækkanir á þessu ári kæmu ekki til greina, miðað við spá um lánskjaravísi- töluna. Vextir af afurðalánum lækka úr 19,25% í 15%, forvextir af almenn- um víxlum lækka úr 19,5% í 15,25 og vextir almennra skuldabréfa úr 20% í 15,5%. Það vekur nokkra athygli að vextir á skuldabréfum og forvextir víxla hjá Samvinnu- bankanum verða lægri en hjá öðr- um, eða 15%. Akvörðun Seðlabanka um útlánsvexti eru hámarksvextir. Vanskilavextir verða 2,25 á mánuði í stað 2,75, eða 27% á ári í stað 33%. Afúrðalán f erlendum gjald- miðlum eru óbreyttir. Og vextir verðtryggðra útlána breytast ekki. Hæstu vextir á almennum spari- sjóðsbókum verða í Landsbankan- um 9% og vextir hjá Verzlunar- bankanum og Búnaðarbankanum 8,5%. Aðrir bankar og sparisjóðir bjóða 8% vexti. Vextir á tékkareikningum verða 2,5%-6%, hæstir í Alþýðubankan- um. Þeireru 5-11%. Óverðtryggðir reikningar til þriggja mánaða bera 8,5% til 10% vexti frá og með 1. apríl. Sex mán- aða reikningar 9,5%-12,5%. Fyrr- nefndu reikningamir bera 13-14% ogþeirsíðamefndu 14-17%. Blönduós: Geysiöflug' sprenging skaut mönn- um skelk í bringu Blönduósi. MIKIL sprenging eða eitthvað i Ilkingu við það varð á Blönduósi á þriðjudagskvöldið kl. 23 en engin skýring finnst á þessum atburði. Lögreglan segist ekki hafa nein- ar skýringar á þessu fyrirbæri en atburður lfkur þessum hafi orðið síðastliðið vor og engin skýring fengist þá. Fjöldi manns staðfestir, að mikill dynkur hafi heyrst á þriðjudags- kvöldið um kl. 23. Valdimar Guð- mannsson vaktmaður á Hótel Blönduósi sagði að þetta hefði verið líkt því að bíl hefði verið ekið á hótelið. Biyndís Pálmadóttir íbúi á brekkunni segist hafa heyrt dynk líkt og hann hefði komið frá bfl- skúmum hjá sér, og konum, sem voru á vefnaðamámskeiði í Kvenna- skólanum, fannst sem sprenging hefði orðið á þaki skólans. Það merkilega við þetta allt saman er, að Jóhann E. Jónsson á Beinakeldu í Torfalækjarhreppi segist hafa heyrt töluverðan dynk um svipað leyti og þetta gerðist á Blönduósi en Beinakelda er í u.þ.b. 12 kíló- metra loftlínu frá Blönduósi. Eins og fyrr er getið, hafa engar skýringar fengist á þessu fyrirbæri ennþá, en sprengingin var töluvert öflug og því full þörf á að upplýsa málið. JónSig. MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út miðvikudaginn 2. aprfl. Flest frystihús rekin með tapi ^FKOMA frystihúsanna á síð- asta ári liggur enn ekki fyrir í heild, en einstök hús hafa lokið uppgjöri. Flest þeirra hafa verið rekin með tapi á árinu. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins telja fiilltrúar frysting- arinnar stöðuna um þessar mundir rrffóg erfiða, sérstaklega með tilliti til fastgengisstefnu stjómvalda, sem kemur að miklu leyti í veg fyrir mögulega tekjuaukningu á þessu ári í formi lækkunar gengis. Bág staða á síðasta ári stafar að miklu leyti af því, að gengi dalsins stóð nær í stað en verðbólga var innanlands, vextir vom háir og tap talsvert vegna misgengis dals og SDR á afurðalánum. Tap af þeim sökum er talið vera 8 til 12 milljónir króna hjá meðalhúsi. Jón Páll í vaxtarræktina Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldason JÓN Páll Sigmarsson hefur í hyggju að keppa á íslandsmeistaramótinu í vaxtarrækt í aprfl. „Ég ætlaði að keppa í kraftlyftingamóti í byijun apríl, en meiddist. Þess vegna er ég að íhuga að klæða mig úr spikinu og keppa frekar á vaxtarræktarmótinu. Þó ekki fyrr en ég er búinn með páskaeggið! Það verður þó að vera heldur stærra en upphandleggsvöðvinn," sagði Jón Páll. Hann er kunnur vaxtarræktarmaður ogvarð íslandsmeistari 19s4, ogsýndi þámiklayfirburði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.