Morgunblaðið - 08.04.1986, Síða 53
MOpqUNBLAÐIÐ, pRIÐJUDAGUR8, APRÍLI986.
53
r
Flugslysið í Ljósufjöllum
Morgunblaðið/Júlíus
Unnið að rannsókn flugslyssins í LjósufjöUum. Myndin er tekin ofan við flakið og sést niður Sóldýjadal og niður i Álftafjörð. Hinum megin við fjörðinn er Eyrarfjall og
norðan þess (efst til vinstri á myndinni) er Narfeyri.
þeir tóku með til að vísa veginn upp
hlíðina. Hann hefur farið til ijúpna
á þessu svæði og þekkir það vel.
Friðrik sagðist hafa gripið læknis-
töskuna með til öryggis. Eina leiðin
til að komast þama upp er eftir
rana á milli gilja og sóttist ferðin
seint enda færðin slæm. Veðrið
varð skaplegra eftir því sem leið á
kvöldið. Þegar þeir voru komnir upp
í snjóinn óku þeir eftir Lóran C—
leiðsögutækinu beint í átt til slys-
staðarins. í snjóbílnum var einnig
miðunartæki fyrir útsendingar
neyðarsendis.
Flakið fundið — 3 á lífi
Páll Gíslason ökumaður snjóbíls-
ins og Guðmundur Oddgeirsson
siglingafræðingur sögðu að þeir
hefðu ekið upp skarð og þegar upp
á það var komið hefði heyrst mjög
hátt í neyðarsendinum. Þeir sögðu
að þama hefði verið bratt og menn
oft þurft að ganga á undan bflnum.
Síðasta spölin gengu allir nema
ökumaðurinn á undan snjóbflnum
og leituðu í ljósgeislanum. Reyndust
Séð framan á vélina. Blaðið á hægri mótor er kengfoogið en blaðið á vinstri mótor beint, sem bendir
til að vinstri mótorinn hafi verið stöðvaður þegar vélin skall á jörðina. Morgunbiaðið/Júiíiu
þeir vera fyrir ofan flakið og gengu
fram á það. Klukkan 23.57 til-
kynntu þeir til stjómstöðvarinnar
að flakið væri fundið í skarði vestan
við Botna-Skyrtunnu, í botni
Sóldýjadals.
Flugbjörgunarsveitarmennimir
lýstu svæðið upp. Læknirinn úr-
skurðaði að þrír farþeganna væra
á lífi, Pálmar, Auður Erla og Krist-
ján Guðmundsson, en mikið slasað-
ir. Vora þeir fastir í flakinu og var
gengið í það að ná þeim út og hlúa
að þeim. Sjúklingamir vora síðan
fluttir niður eftir fjallinu og að
lendingarstað fyrir þyrlu sem var á
leiðinni. Páll og Guðmundur sögðu
að aðkoman hefði verið hörmuleg,
eins og alltaf í slíkum tilvikum, en
þeir hafa áður komið að slysum sem
þessum. Þeir sögðu þó að það hefði
verið mikil heppni að hafa Friðrik
í bflnum, hann hefði gert það sem
hægt var að gera hratt og fum-
laust.
Pálmar og Auður sátu aftast í
vélinni og Kristján sat í miðröð.
Auður var langt leidd er björgunar-
menn komu að, meðvitundarlaus