Morgunblaðið - 11.04.1986, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.04.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRÍL1986 31 Unnsteinn Kristinsson og Signrbjörg Ragnarsdóttir í hlutverkum sinum. Garður: Sólarlandaferð fyrir 400 kr. Garði. LITLA leikfélagið frumsýndi sl. laugardag leikritið Sólarlanda- ferð eftir Guðmund Steinsson. Aðalhlutverk leika Unnsteinn Kristinsson og Sigurbjörg Ragn- arsdóttir en alls taka 9 leikarar þátt í sýningunni. Fjölmennt var á frumsýningunni og skemmtu áhorfendur sér kon- unglega. Næsta sýning verður á fostudagskvöld í Samkomuhúsinu kl. 21. Leikstjóri er Jón Júlíusson. Verð aðgöngumiða er 400 krónur. Litla leikfélaginu hefír verið boðið á leiklistarhátíð í Rybe í Danmörku þar sem Sólarlandaferð verður sýnd 6. maí nk. Mestu átök á norskum vinnumarkaði í 35 ár NORDENS Fackliga Samorgan- isation (Samband norrænna Iaun- þegasamtaka), með yfir 6,5 millj- ónir félagsmanna, lýsir stuðningi sínum við baráttu norskra launa- manna fyrir betri launum og bættum vinnuskilyrðum, segir í frétt frá ASÍ og BSRB. Þrátt fyrir það að ekki var búið að nýta möguleika til samninga og sátta til þrautar, ákváðu atvinnu- rekendur að setja á verkbann. Þar með hafa yfír 100 þúsund norskir launþegar verið útilokaðir frá vinnu sinni og hraktir út í stærstu átök, sem orðið hafa á norskum vinnu- markaði í 35 ár. NFS lítur svo á að aðgerðir þess- ar endurspegli stórsókn atvinnurek- enda og vaxandi pólitískar áherslur. Viljaleysi atvinnurekenda til að ná samningum, meðan samningavið- ræður og sáttatilraunir áttu sér stað, benda einnig til kaldrifjaðs trausts þeirra á því að yfírvöld muni leysa deiluna með lögum. Hugmyndafræðilegar og pólitískar áherslur vega þyngra, en hjá fjöl- mörgum öðrum þjóðum undanfarin ár. Þá tók hin íhaldssama ríkisstjóm í Noregi, með forsætisráðherrann í fararbroddi, afstöðu með atvinnu- rekendum meðan á samningavið- ræðum og sáttatilraunum stóð, sem er athyglisvert og nánast einsdæmi á norræna vinnumarkaðnum. Með þessu tekur ríkisstjómin á sig þunga ábyrgð á því að samningar náðust ekki á milli aðila. Leiðrétting í GREIN um sveitarstjómarkosn- ingar í Bessastaðahreppi á Álfta- nesi eftir Andreas Bergmann sem birtist í Morgunblaðinu í gær féll niður orð í málsgrein og breytti þar með merkingu hennar. Nálægt niðurlagi greinarinnar átti að standa „þó það sé ekki í verkahring núverandi meirihluta í hreppsnefnd að ákveða byggingarhraða þykir það ekki óeðlilegt að ætla að bygg- ingu íþróttasalar, búningsaðstöðu og sundlaugar verði lokið á næstu þremur áram.“ Hlutaðeigandi er beðinn afsökunar á þessum mistök- um. Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! Musica Nova lýsir eft- ir pöntun tónverka MUSICA NOVA er að hefja undir- búning vetrarstarfsins 1986—87. Ráðgert er að gangast fyrir pöntun nýrra tónverká til flutnings á komandi starfsári. Hljóðfæraleikar- ar og söngvarar, jafnt einstaklingar sem hópar, eiga þess kost að panta verk hjá ákveðnu tónskáldi og mun dómnefnd velja úr þeim pöntunum sem berast. Mjög æskilegt er að haft sé samráð við viðkomandi tón- skáld áður en umsókn er send inn. Gert er ráð fyrir að fyrsta verkið verði framflutt á tónleikum í októ- ber í tengslum við Norræna músík- daga í Reykjavík. Umsóknareyðublöð liggja frammi í ístóni, Freyjugötu 1, Reykjavík, og skal umsóknum skil- að þangað fyrir 10. maí 1986. (Fréttatilkynning.) „Musteri óttans“ sýnd í Háskólabíói HÁSKÓLABlÓ hefur hafið sýn- ingar á kvikmyndinni „Musteri óttans“ eftir Steven Spielberg, en eins og kunnugt er hefur þessi leikstjóri sent frá sér hveija ævintýramyndina á fæt- ur annarri og má þar m.a. nefna Indiana Jones o.fl. myndir. Þessi mynd fjallar um ævintýra- persónuna Sherlock Holmes, vin hans Watson, sem í myndinni er ekki orðinn doktor þar sem þeir félagar era enn í skóla þegar myndin gerist. Þar eiga þeir í höggi við ofstækisfuilan sértrúarflokk, ráða fram úr dularfullum dauðs- föllum o.s.ftv. _ Besjtu kaupin OI s\ög“°°m Lambakjöt í 1/1 skrokkum með bjúgum úr slögunum. Stórar Olapizzur .00 pr.stk. Súpuhænur AÐEINS 226 .00 pr.kg. Pörulausa VÍÐIS beikonið er komið aftur! AÐEINS kynnun, lllíUj; .jæssœ*. 'v,s B.C epli 377 .00 98pr? kg. pr.kg. Cosas appelsínur 69-00 pr.kg. Opið á morgun frá kl. 10—16 í Mjóddinni en til kl. 14 í Austurstræti. Opið til kl. 20 í Mióddinni en til kl.19 í Austurstræti. VIÐIR ! AUSTURSTRÆT1 17 - MJÓDDINNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.