Morgunblaðið - 11.04.1986, Page 37
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
Rísandi merki
„Ágæti umsjónarmaður. Gætir
þú sagt mér hvaða merki er
Rísandi hjá mér og hvaða
merki á best við mig? Fæðing-
ardagur minn er 02.10. 1959
kl. 17 í Reykjavík. Með fyrir-
fram þökk. Vog.“
Svar
Þú ert Rísandi á fyrstu gráðu
í Steingeit. Ef þú ert hins
vegar fædd fimm mínútum
fyrr fer Rísandinn yfir í Bog-
mann. En Steingeit er sem
sagt þitt merki ef kl. 17 er
réttur fæðingartími.
Réttur fœÖingartimi
Þegar það vandamál kemur
upp hvort fæðingartími er rétt-
ur eða ekki, er hægt að nota
útilokunaraðferðina. Það er
einfaldlega hægt að segja frá
þeim möguleikum sem koma
til greina og reyna að fikra sig
áfram. Rísandi merki hefur
aðallega með fas og framkomu
að gera og er því oft áberandi
í útliti manna. Ef þú ert Rís-
andi Bogmaður þá ert þú
hress, opin, einlæg og frjálsleg
í framkomu. Framkoman ein-
kennist af vissu eirðarleysi og
mikilli hreyfingarþörf. Stein-
geit Rísandi er hins vegar
„frosin" í framkomu, er form-
föst og varkár í fasi og hreyf-
ingum.
Umgjörð
Að sjálfsögðu er ekki hægt að
segja að Rísandi merki hafi
eitt með fas og framkomu að
gera. Framganga hvers manns
mótast af öllum persónuleik-
anum, en Rísandanum er hægt
að líkja við hjúp eða umbúðir
utan um pakka. Umbúðimar
ákvarða lit og útlit en innihald
pakkans (plánetur í merlq'um)
ákvarðar lögun hans og eðli
vörunnar. Þar sem þú hefur
Sól, Tungl, Merkúr og Mars í
Vog, ert margföld Vog, má
segja að I eðli sínu sért þú Ijúf,
félagslynd og jákvæð mann-
eskja. Þú vilt hafa mikið af
fólki í kringum þig, vilt vera
opin og hress. Það að Stein-
geitin er Rísandi gerir síðan
að ákveðin varkámi, formfesta
og ábyrgðarkennd heldur aftur
af þér. Þú getur því átt það
til að vera feimin og loka á
það sem inni býr. Fólk sem
hefur Steingeit Rísandi á oft
erfitt með að sleppa sér, er
mjög meðvitað um hegðun sína
og gerir þær kröfur að hegðun-
in sé formföst og öguð. Stein-
geitin virkar þvf í þtnu tilviki
sem einhvers konar bremsa á
Vogina.
Það er ekki hægt að koma
með fullyrðingu þess eðlis að
eitt ákveðið merki eigi vel við.
Það er einungis hægt að bera
tvö ákveðin stjömukort sam-
an. Þó er hægt að gefa nokkra
punkta. Þú hefur Venus í
Meyju og Krabbi er í hjóna-
bandshúsi þínu. Það táknar að
þú laðast að jarðbundnu fólki
sem veitir þér öryggi (t.d.
Steingeit, Meyju). Vogin í þér
laðast aftur á móti að léttari
merkjum og fólki sem er fé-
lagslynt og gaman er að ræða
við. utkmoan úr þeirri spum-
ingu hvað eigi vel við þig, er
því traustur en léttur, félags:
lyndur og ræðinn maður. í
hvaða merki slíkur maður er
er erfitt að segja til um, en
líkast til er hann blanda af
Lofti og Jörð (Vog, Tvíbura
og Vatnsbera og Nauti, Meyju
og Steingeit). Þar sem Júpíter
er einnig sterkur í korti þínu
kemur Bogmaður einnig til
greina.
Þeir sem skrifa þættinum bréf
em vinsamlegast beðnir um
að senda inn fæðingartíma, ár
og stað. Það hefur sérstaklega
viljað brenna við að gleymst
hafi að nefna fæðingarstaðinn.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRÍL19B6
37
X-9
fapTéWvx.: 'hWíA*MV*e/fitto/u/#!
©1985 Kioq Features Syrtdicale. Inc World rlght» reierved 1
DYRAGLENS
* «A\l//v—
4. 1985 Tnbune Media Servlcee. Inc.
■— w A •W JJr' Wjm. • •'wff... OG pö SBGlk\ [\ MW: Öll HATie mmC «!.• ■ ‘MfM m'anuoaos- WSMMTMllimwlí/lL AlORöNA! J
w^ \
9//£~
LJOSKA
-nrnnni
55
TOMMI OG JENNI
púmÁTreuo KIÓ& WP£f>s/J£%K\ \'&=> ELSKA \
i þSSSA PEÆS//e&tul$ v MOTTA?
I MOTTU, TOMMI.I
^PERSNESkAP MOTWPJ
' 0*00 BAZA!\1 CBÆTíASrVLADáú'
Tommi ap ) kióp/ i ÞErr/r?J
HRJFJS/fiAF . ) -- *----
'Msygsz-y (LékXJÞt
iiHiii{{!?!{!{!??!!{i??i!{ilii!!!i!iiliiiiiiii!ii:iiiii!i!iii!iiiiiitiiii}it|jiSi!jiiji;uji::ii;:in
FERDINAND
SMAFOLK
Hvað er hann með með Ég trúi þessu ekki.
sér?
Hundabrest!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Amarson
Jón Baldursson í sveit íslands-
meistaranna, Samvinnuferða,
vann sex tígla snyrtilega í eftir-
farandi spili, sem em úr leiknum
við Stefán Pálsson félaga á ís-
landsmótinu:
Norður
♦ KG42
♦ 765
♦ 5
♦ ÁK1084
Austur
Vestur
♦ ÁD
♦ 10984
♦ 876
♦ G963
♦ 1098652
♦ KDG3
♦ 9
♦ D2
Suður
♦ 7
♦ Á2
♦ ÁKDG10432
♦ 75
Sigurður Sverrisson í norður,
félagi Jóns, vakti á einu eðlilegu
laufi í norður. Jón stökk beint í
ásaspumingu, fjögur grönd, og
Sigurður sýndi tvo með fimm
hjörtum. Þeir svara tromp-
kóngnum sem ás og Sigurður
vissi ekki betur en lauf væri
samþykkt tromp.
í Á/V vom Ragnar Magnús-
son og Valgarð Blöndal. Ragnar
hitti á hjarta út og eftir það
virtist spilið vonlítið. En það var
smuga að vinna spilið ef vestur
ætti spaðaásinn og fjögur eða
fleiri lauf. Jón drap strax á
hjartaásinn og renndi niður
trompunum. Þegar eitt var eftir
var staðan þessi:
Norður
♦ KG
♦ -
♦ -
♦ ÁklO
Vestur
♦ Á
♦ 9
♦ -
♦ G96
Austur
♦ 109
♦ K
♦ -
♦ D2
Suður
♦ 7
♦ 2
♦ 2
♦ 75
Jón spilaði síðasta trompinu
og Ragnar í vestur mátti ekkert
spil missa. Hann kaus að henda
hjarta, en þá fleygði Jón laufi úr
blindum og spilaði spaða. Ragn-
ar fékk á ásinn, en átti nú ekki
hjarta til að spila á kóng makk-
ers.
Jón átti svo sem annan mögu-
leika til að spila upp á: að svlna
tfunni í laufi fyrir DG. En honum
hefur litist betur á kastþröngina
við borðið. f lokaða salnum varð
misskilningur f sögnum og N/S
enduðu í flómm hjörtum, sem
meint vom sem fyrirstöðusögn.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Bent Larsen átti ekki sjö dag-
ana sæla á stóra opna mótinu f
New Vork. Eftir slæma byijun
komst hann aldrei í neina snert-
ingu við toppinn. Skákin sem gerði
útslagið byijaði þannig:
Hvítt: Larsen.
Svart: Shirazi (nú f Bandarfkjun-
um, áður fran).
1. c4 - e5, 2. g3 - h5?l, 3. h4 -
d5, 4. cxd5 - Rf6, 5. Rf3 -
Rg4. Larsen var kominn vel á veg
með að refsa Shirazi fyrir þessa
léttúð, en þegar hér er komið sögu
f skákinni hafði hann rétt lokið
við að leika herfilega af sér með
19. Hdhl??
...—..- x
I JL X B
iil Ái
UIIr
» im
m&m i
a A4 n
tp..'f
h
19. — Rxf2! (Nú hrynur hvíta
staðan þvf riddarinn er friðhelg-
ur.) 20. Bxe5?! - Rxlil, 21. Bc7
- Rxg3, 22. Kc2 - Rxe4!, 23.
Rxe4 — Bf5 og Shirazi vann án
teljandi erfiðleika.