Morgunblaðið - 29.04.1986, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 29.04.1986, Qupperneq 5
V estmannaeyj ar MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986 5 Samkomulag náðist um landanir í gáma Vestmannaeyjum. SAMKOMULAG náðist um helg- ina í vinnudeilu hafnarverka- manna í Vestmannaeyjum, sem sjá um togaralandanir og togara- útgerðarmanna. Verkfalli lönd- unarmanna, sem hófst á miðviku- dag í siðustu viku, var aflétt á laugardag og var löndun með eðlilegum hætti á mánudags- morgun. Vegna verkfallsins varð togarinn Bergey að landa afla sínum í Þorlákshöfn fyrir helg- ina. Deilan stóð um vinnutilhögun og tafir við landanir þegar afli fór í gáma. Samkomulag varð um ýmis skipulagsatriði og nánari verklýs- ingar varðandi landanir. Um beinar kauphækkanir var ekki að ræða nema hvað breyting varð á greiðsl- um fyrir ísun í kössum. í yfirlýsingu sem aðilar undirrituðu ábyrgjast útgerðarmenn að ekki komi til óþarfa tafa vegna löndunar í gáma. — hkj. Varp að Stvkkishólmi. STORU bátarnir liggja nú hér í höfn, bundnir við bryggjur, en trillubátarnir eru á veiðum og hafa fiskað vel undanfarið, enda virðist nægur fiskur á miðunum. Hafa sumir litlu bátarnir komið með allt að 4 tonnum í róðri og þykir það gott hér um slóðir. Hraðbátarnir eru komnir í gag- nið. Hvað stóru bátamir gera er óljóst enn, en milli vertíða er hugað að öllu og gert klárt á næstu vertíð, því það er mest um vert að halda öllu í sem bestu lagi. En vorið er komið. Ég hitti kunningja minn á föstudaginn. Hann hafði þá farið út í eyjar og sagði hann mér að þar hefði hann fundið tvö egg og er þetta það fyrsta sem ég minnist því yfirleitt er ekki gert ráð fyrir að varp hefjist hefjast fyrr en í byrjun maí, en sem sagt, svartbakurinn er byijaður. Mörgum þykja eggin sælgæti og er góður markaður fyrir þau og hafa eyja- bændur sem sinna því að verulegu marki, talsverða búbót af sölu eggjanna. Nú þegar ég er að ganga frá þessari frétt á laugardag er kominn snjór yfir allt því í nótt var frost og snjókoma, en í gærkvöldi var rigning. Svona er tíðin oft óstillt. Við vitum að þessi snjór verður ekki lengi en það er ekki gott að fá hann nú þegar varptíminn er að byija, en það fer ekki á milli mála að vor er í lofti, tíðin var góð í vetur þótt óstillingarkaflar hafi látið á sér kræla. Við bara vonum að við fáum gott vor, það er svo mikils virði. Arni Stjórn og varastjórn Skógræktarfélagsins, frá vinstri: Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt, Kjartan Sveinsson raffræðingur, Þórður Þorbjarnarson borgarverkfræðingur, Þorvaldur S. Þor- valdsson forstöðumaður Borgarskipulags, Jón Birgir Jónsson yfirverkfræðingur, Lárus Blöndal Guðmundsson bóksali, Björn Ofeigsson stórkaupmaður og Bjarni K. Bjarnason hæstaréttardómari. Skógræktarfélag Reykjavíkur: Níu fengu silfurmerki Aðalfundur Skógræktarfé- lags Reykjavíkur var haldinn 17. apríl sl. Úthlutað var silfur- merkjum félagsins, en þau eru sérstök viðurkenning fyrir störf að skógrækt. Reikningar voru Iagðir fram, flutt skýrsla um starf liðins árs og kjörin stjórn. Helstu verkefni félagsins á liðnu ári voru rekstur tijáræktar- stöðvar í Fossvogi, plöntun og umsjón í Heiðmörk og leiðsögn unglingahópa sem starfa að tijá- rækt í borgarlandinu. Silfurmerki hlutu Reynir A. Sveinsson starfsmaður Skógrækt- arfélagsins, Einar Valur Hansson fv. ráðunautur, Bjöm Steffensen endurskoðandi, Magnús Finn- bogason fv. kennari, Þórður Finn- bogason rafvirki, Sigurbjöm Bjömsson garðyrkjumaður, Christian Zimsen lyfsali, Bjami Helgason jarðvegsfræðingur og Ferðafélag íslands, en fyrir hönd þess tóku þau Sveinn Ólafsson myndskeri og Þómnn Lámsdóttir framkvæmdastjóri við merkinu. Formaður félagsins er nú Jón Birgir Jónsson, en aðrir í stjóm em Láms Blöndal Guðmundsson varaformaður, Björn Ófeigsson gjaldkeri, Þorvaldur S. Þorvalds- son ritari og Bjami K. Bjamason meðstjómandi. Fanginn etur á ný — telur sig að hluta til ranglega dæmdan Hungurverkfalli fangans í Hegningarhúsinu við Skóla- vörðustíg er nú lokið. Hann byijaði að néyta matar um helg- ina, eftir nær þriggja vikna svelti. Maðurinn var fyrir nær réttu ári dæmdur til átta mánaða fangelsis- vistar vegna líkamsárásar og fleiri brota og hóf afþlánun dómsins um 11 mánuðum síðar. Samkvæmt upplýsingum dómsmálaráðuneytis- ins, em ástæður hungurvekfallsins þær, að fanginn telur sig ranglega dæmdan að hluta til og vildi með þessu vekja athygli á því. ITT Itaekni um allan heim » * ■ — ITT ldeal Color 3304, -fjárfesting í gæöum á stórlækkuöu veröi. ITT Vegna sórsamninga viö ITT verksmiðjurnar I Vestur Þýskalandi, hefur okkur tekist aö fá takmarkaö magn af 20" litasjónvörpum á stórlækkuðu veröi. VERÐ A 20" ITT LITASJÓNVARPI 29.890 j A Sambærileg tæki fást ekki ódýraftf ITT er fjárfesting I gaeðum SKIPHOLTI 7 SIMAR 20080 & 26809 Alfa Romeo 33 4x4. Sannkallaður draumabíll. Draumur Okkar Attéa Fíórhióiadrlfinn alfa Pomeo NÝ SENDING Alfa Romeo 33 4 x 4 er hlaöinn öllum hugsanlegum aukabúnaöi. Veröiö er hreint ótrúlegt: Kr. 496.000.- □ JÖFUR HF NÝBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SÍMI 42600 Þóra Dal, auglýaingastofa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.