Morgunblaðið - 29.04.1986, Síða 18

Morgunblaðið - 29.04.1986, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL1986 Brennivínsberserkir? eftirÁrna Einarsson í umræðum um áfengismál hér á landi er oft vitnað til þess hve mikils íslendingar neyta af sterku áfengi (í formi drykkja sem inni- halda = 40% af áfengi mælt í magni) og hve mikill hluti af áfeng- isneyslu hér sé í því formi. Jafn- framt er stundum látið að því liggja að þar sé komin skýring á áfengis- vanda þjóðarinnar og að hann sé meiri en annars staðar þekkist og lýsi sér m.a. í tíðri ofurölvun og drykkjusýki. Áfengismál íslendinga eru ærin og skiptir þá engu hvort þau eru meiri eða minni en gerist annars staðar. Þrátt fyrir ágreining um leiðir vakir ugglaust fyrir flestum að færa ástandið til betri vegar. Einfaldanir og „patentskýringar", sem eru áberandi í máli þeirra sem lítt þekkja til, færa okkur ekki nær því marki, nema síður sé. ísland verst Heildarúttekt á áfengisvandan- um liggur hvorki fýrir hér á landi né í öðrum löndum svo vitað sé. Einungis hafa verið rannsakaðir afmarkaðir þættir sem hver fyrir sig gefa takmarkaða mynd af mál- inu. Ýmsar niðurstöður úr slíkum rannsóknum eru okkur síður en svo í óhag. T.d. er talið að skorpulifur sé fátíðari hér en í öðrum löndum sem skýrslur ná til. (1) Tíðni drykkjusturlunar (delerium trem- ens), sem er alvarlegasta bráða sjúkdómsmyndin sem kemur í kjöl- far langvarandi ofdrykkju áfengis, virðist vera svipuð því sem rann- sóknir frá Danmörku og Noregi gefa til kynna, en nokkru minni samanborið við Finnland og Svíþjóð. (2) Þó að fram hafi komið fullyrð- ingar leikmanna um að drykkjusýki sé hér tíðari en í öðrum löndum er fáu til að dreifa því til sönnunar. Hvort tveggja er að skilgreiningar á drykkjusýki eru nokkuð mismun- andi eftir löndum og víðtækur samanburður hefur ekki fariið fram. Slíkar fullyrðingar helgast hugsanlega af eigin reynslu og vandamálum fólks í nánasta um- hverfí. En áfengismál eru veigamik- ill málaflokkur hér sem annars staðar og því mikilvægt að gægjast upp fyrir askbrúnina í stað þess að fullyrða að þannig hljóti hluturinn að vera þar sem menn þekkja ekkert annað. Reyndar er það álit þeirra sem gerst þekkja og fylgjast með að eftir því sem best sé vitað séu færri íslendingar haldnir alvar- legum áfengissjúkdómum en gerist meðal næstu nágrannþjóða okkar, þó sé hér langmestur viðbúnaður til að annast áfengissjúka, bæði hvað varðar fjölda vistrýma og tíðni innlagua.(l). Heildarneysla - ofur ölvun og drykkjusýki Ýmsar rannsóknir hafa verið gerðar til að kanna samband á milli heildaráfengisneyslu fólks (og þjóða) og tíðni ofurölvunar. Engin bein tengsl hafa fundist en ef eitt- hvað er virðist tíðni ofurölvunar aukast við aukna heildameyslu. (3). Tengsl á milli tíðni ofurölvunar og heildameyslu áfengis em ekki venjuleg orsaka- og afleiðinga- tengsl. Þessar tvær mælieiningar mæla mismunandi þætti sama fyrir- bæris (drykkjuvenja/siða) — á líkan hátt og lfkamsþyngd og hæð em tvenns konar mæling á sama líf- fræðifyrirbæri. Þegar bam vex hækkar mælitala beggja þessara þátta (hvort tveggja) venjulega meira og minna samtímis. Samt sem áður væri fáránlegt að halda því fram að bamið þyngdist vegna § þess að það hækki eða öfugt. Báðar C þessar breytingar em þættir í sömu s þróun og verða að skoðast í því ljósi. £ Tengsl áfengisneyslu og tíðni ofur- ölvunar verða að skoðast á sama hátt (3). Fullyrðingar um að skýra megi tíðni ofurölvunar hér á landi með magni sterkra drykkja eða heildar- neyslunni sjálfri em úr lausu lofti gripnar. Ennfremur sú fullyrðing að tíð ofurölvun og drykkjusýki séu tengd orsakasambandi. Islendingar ero almennt jákvæðir gagnvart ofurölvun og ýkt hegðun og „mannalæti" þykja sjálfsögð og jafnvel skemmtileg. Víðast í S-Ev- rópu er þessu ekki til að dreifa en þó neytt svipaðs magns af sterku áfengi og hér enda er vel þekktur menningarmunur í afstöðu tii áfengis sem virðist ekki síður hafa áhrif á drykkjuhegðun en mælanleg lífeðlisfræðileg áhrif efnisins (3). Hátt hlutfall sterkra drykkja Erfitt er að sjá hvemig hátt hlutfall sterkra drykkja i heildar- áfengisneyslu íslendinga skýri eitt sér, ef svo er, að áfengisvandamál séu hér meiri en annars staðar. Getur verið að áhrif brennivínsins séu minni eða vægari ef því er skolað niður með rauðvíni eða bjór í stað blávatns? Brennivínsberserkir Munur á áfengisvandamálum Ís- lendinga og annarra þjóða verður ekki heldur skýrður með neyslu sterkra drykkja einna. Myndin hér sýnir stöðu íslands meðal nokkurra þjóða með tilliti til neyslu sterkra drykkja. Eins og sést á myndinni er neysla sterkra drykkja ekki bundin við ís- land (5). T.d. em „menningarlönd" í áfengisneyslu og bjórþambarar, s.s. Spánveijar og V-Þjóðveijar, iðnari en íslendingar við sterku drykkina og fleiri þjóðir úr sama flokki fylgja okkur fast á eftir. Tilraunir til að draga úr neyslu sterkra drykkja hafa gengiið misjafnlega. En ljóst er að það eitt að hafa á boðstolum eða bæta við öðmm tegundum áfengis hefur ekki endilega i for með sér að fólk hætti neyslu sterku drykkjanna. Þá væri neysla sterkra drykkja vemlega minni í bjórlöndum en hér er. En svo er ekki eins og myndin sýnir. Verðlagning og dreifingar- og af- greiðsluhættir skipta þar einnig miklu. íslenskir áfengisneytendur hafa jafnan haft aðgang að léttum vínum og sterkum drykkjum frá 1935. Þrátt fyrir það hefur neysla sterku drykkjanna stöðugt vaxið. Neysla léttu vínanna hefur bæst við sterku drykkina eins og_ vænta mátti. Árið 1974 þrýsti Áfengis- vamaráð á að sterku drykkimir yrðu verðlagðir hærra en léttu vín- in. Þetta hefur að líkindum átt sinn þátt í því að þá fór að draga úr neyslu sterku drykkjanna. Þessu breytti fjármálaráðuneytið aftur 1983 og jókst þá neysla sterku drykkjanna á ný (um 8%, 1983-1985). * Af engisneysla og- heil brigöi árið 2000 Erfiðlega hefur gengið að finna óhrekjanlega mælikvarða eða vís- bendi um áfengisvandamál þjóða. Að undangenginni rannsókn í Ijölda landa komst sérfræðinganefnd á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofnun- arinnar (WHO) að þeirri niðurstððu að helst mætti styðjast við heildar- áfengisneyslu þjóðanna til þess og lagði reyndar fram útreikninga um tengsl heildarneyslu og tjóns niður- stöðu sinni til stuðnings (4). í fram- haldi af þessu lagði stofnunin síðan til að þjóðir heims drægju úr heild- ameyslu áfengis eða létu hana a.m.k. ekki aukast. 7. maí 1981 samþykkti Alþingi þingsályktun um mörkun opinberr- ar stefnu í áfengismálum. Þar er ályktað að skora á ríkisstjómina að láta þegar undirbúa tillögur að stefnu hins opinbera í áfengismál- um, sem m.a. byggist á því að draga úr heildarneyslu vínanda. í þessum tilgagi var skipuð til 3 ára nefnd ýmissa aðila í árslok 1982. í skipunarbréfi (5. jan 1982) er henni sérstaklega bent á að fylgj- ast með starfi Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar (WHO). Líta verður svo á með tilliti til samþykktar greyndrar þingsályktunar, að þing- menn séu samþykkir stefnu WHO í áfengismálum og vilji að hún nái til íslands. Þrátt fyrir það hefur ríkisstjómin lítið sem ekkert gert með áfengistil- lögur nefndarinnar, sem þegar liggja fyrir. Sælir eru einfaldir ... Undanfarið hefur borið á stað- lausum fulfyrðingum, skítkasti og sleggjudómum í umfjöllun um áfengismál hér á landi. Er miður ef málefnaskortur, vanmetakennd og þekkingarleysi, sem þannig brýst fram, verður ofan á í þeirri umræðu. Óvíst er hvort okkur íslendingum tekst að leysa áfengisvandamal okkar en vonandi höldum við reisn okkar í þeirri gímu og sýnum við- fangsefninu tilhlýðilegan sóma með þekkingu, ábyrgð og heiðarleika að leiðarljósi. Ef til væm einfaldar skýringar og lausnir á þessum vanda væri hann væntanlega leyst- ur fyrir löngu. Heimildir: 1. Neysla áfengis, tóbaks, fíkni- efna og ávanalyfja á íslandi. Landlæknisembættið. Heil- brigðisskýrslur — Fylgirit 1982 nr. 3. 2. Ólfur Grímsson Deleríum tremens á íslandi Læknablaðið, 7.-8. árg. 1977, bls. 135-144. 3. Ole—Jergen Skog The distribution og alcohol consumption: Evidence of a collective drink- ing culture, SIFA no. 8/1985. 4. Problems related to alkohol consumption Report of a WHO expert committee WHO, Geneva 1980 5. Rusmidler í Norge Statens Edruskapsdirektorat Oslo 1983. Höfundur er starfsmaður Áfeng- isvarnaráðs. Áfengisneysla á íbúa í nokkrum löndum mæld í lítrum af 100% áfengi □ Sterk vín □ öl og létt vln 1 1 1 óo 1 2 J 1 1 o 1 1 5 ;2, I I 1' s 1 1 o z « •o l/í 1 I 1 •E O l w 1 I I •o •>. < 1 ■ rr ■ -4- ■ -- | - : — r _ •- — - 1 -- Egilsstaðir: Ferðamannaiðnaður- inn býr við bágan kost - á ferðamálaráð- stefnu í Valaskjálf Egilsstöðum. FERÐAMÁLARÁÐ og Ferða- málasamtök Austurlands gengust fyrir ferðamálaráð- stefnu í Vaiaskjálf á Egils- stöðum um síðastliðna helgi. Ráðstefnuna sóttu á annað hundrað manns hvaðanæva af Austurlandi sem á einn eða annan hátt tengjast ferðamál- um í fjórðungnum. í upphafi ráðstefnunnar héldu Kjartan Lámsson, formaður Ferðamálaráðs, og Birgir Þor- gilsson, ferðamálastjóri, erindi um starfsháttu Ferðamálaráðs, núgildandi lög um ferðamál og sátu síðan fyrir svömm ásamt öðrum fulltrúum Ferðamálaráðs sem ráðstefnuna sóttu. Það virtist nokkuð ríkjandi skoðun meðal ráðstefnugesta að ferðamannaiðnaðurinn svo- nefndi byggi við heldur bágan kost í dag — þótt þar mætti helst vænta nýrra atvinnutæki- færa í náinni framtíð — og urðu margir til að gagnrýna stjóm- völd fýrir að veita ekki nægilegu fjármagni til uppbyggingar ferðamála. „Það er litið á ferðamannaiðn- aðinn sem annars flokks at- vinnugrein" — sagði einn ráð- stefnugesta. „Er það af því að við höfum svona lélega tals- menn; emm svona slakur þrýsti- hópur?" Þá kom það afdráttarlaust fram á ráðstefnunni að þörf væri á áætlun fyrir landið í heild og eins fyrir einstök landsvæði hvað varðaði uppbyggingu al- mennrar ferðamannaþjónustu — en raunar væri forsenda upp- byggingar slíkrar þjónustu boð- legt vegakerfi og flugvellir er risu undir nafni. Þá urðu sveitarstjómarmenn fyrir nokkurri gagnrýni á ráð- stefnunni fyrir sofandahátt f þessum máium þótt víða væm menn prýðilega vakandi hvað ferðamálin varðaði. í lok ráðstefnunnar vom ýms- ar ályktanir smþykktar._ — Ólafur Kjartan Lárusson, formaður Ferðamálaráðs, hélt fram- söguerindi á ráðstefnunni ásamt Birgi Þorgilssyni, ferðamálastjóra. Morgunblaðið/Ólafur Sumir ráðstefnugesta voru langt að komnir. Hér eru Horn- firðingarnir Tryggvi Áraason, sveitarstjóri, og Árai Stefáns- son, hótelstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.