Morgunblaðið - 29.04.1986, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL1986
21
fjölda.
Nettó má áætla, að sparaður
akstur, sem af þessu mundi leiða,
yrði ábilinu 11—15 millj. kílómetra.
Sparað eldsneyti yrði þá sem svarar
1.100—1.500 tonnum af bensíni
árlega. Spamaður á hjólbarðasliti
ætti að svara til 2—3.000 hjólbarða
á ári og sparað slit á bílum sem
svarar keyrslu á 75—100 nýjum
bflum í msi á ári hverju. Meðaltíma-
spamaður ætti að geta svarað til
1.000—1.250 vinnuvikna á ári, þótt
einungis sé reiknað með einum
manni á bíleiningu. Þessi atriði sem
snúa að almenningi em sum vand-
reiknuð til verðmæta, en þau tala
skýrt sínu máli.
Miðað við núverandi aðstæður
mundi slíkur ferjurekstur breyta
talsvert aðstæðum Akumesinga.
Þeir mundu missa niðurgreiddan
flutning farþega og bfla beint milli
Akraness og Reykjavíkur 4—5 sinn-
um á dag. Þess í stað ættu þeir
væntanlega kost á tíðari ferðum
með almenningsbifreiðum eða eigin
bifreiðum hvenær sem er dagsins.
Mörgum Akumesingum vex í aug-
um það, sem þeir mundu missa, en
kunna eðlilega ekki að meta það,
sem þeir fengju í staðinn og þekkja
ekki af eigin raun. Sá lúxus, sem
ríkissjóður hefur lagt Akumesing-
um til með Akraborgarrekstrinum,
svo langt eða öllu heldur skammt
sem hann nær, er mörgum kærari
en svo, að þeir vilji sjá á bak honum.
Hér er ekki síst um að ræða dijúg-
stóran hóp manna, sem eiga tíðar
ferðir til Reykjavíkur í viðskiptaer-
indum. Hins vegar er það svo, að
þegar margir fara saman milli
Akraness og Reykjavíkur, t.d. bam-
margar Qölskyldur, fara þær akandi
fyrir fjörðinn, því að lúxusinn er
þrátt fýrir allt of dýr. Þá er algengt
að brottfarartímar Akraborgar
henti fólki ekki.
Þeir Akumesingar, sem snúist
hafa gegn feijuhugmyndinni, ættu
að hugleiða þann ávinning fyrir alla
þróun á Akranesi, sem af því mundi
leiða, að kaupstaðurinn færðist nær
Reykjavíkursvæðinu, ekki aðeins
4—5 sinnum á dag heldur hvenær
markaðs- og þjónustutengsl mundu
sjálfkrafa aukast, aðstaða öll á
Akranesi yrði verðmætari, nýting
flutningatækja ætti að geta orðið
betri og flutningar þar með hag-
kvæmari o.s.frv.
Fyrir alla landsmenn, sem ferðast
fyrir Hvalfjörð, aðra en Akumes-
inga, væri þessi feijurekstur ein-
göngu ávinningur. Þetta á a.m.k.
við um allar byggðir frá sveitunum
sunnan Skarðsheiðar, vestur, norð-
ur og austur um land, allar götur
til norðanverðra Austfjarða og svo
allt höfuðborgarsvæðið vegna ferða
þaðan vestur, norður og austur á
land.
Skoðun á hagsmunum ríkissjóðs
í þessu sambandi leiðir í ljós brosleg
sannindi. Skattar ríkissjóðs af bens-
íni, þungasköttum, gúmmígjöldum
og innflutningsgjöldum af bifreið-
um, sem ríkissjóður mundi missa
af við slíkan feijurekstur, eru trú-
lega nokkru meiri en meðlagið með
Akraborginni, sem mundi sparast.
Á hinn bóginn mundi mega fresta
framkvæmdum og almennt kosta
minna til vegarins fyrir Hvalfjörð,
sem nú er gert ráð fyrir að kosti
600 mill. króna á næstu 10 árum
auk viðhalds og snjóruðningskostn-
aðar. Þetta mundi væntanlega ekki
minnka fjármuni til vegagerðar, en
geta flýtt lagningu bundins slitlags
á vegi, væntanlega sem nemur
einhveijum hundruðum kílómetra á
þessu árabili.
Þróun, sem leiðir af samgöngu-
bót af því tagi, sem feijumar yrðu,
er erfítt að sjá fyrir. Vel má hugsa
sér að þessi samgöngubót auki lík-
indi á frekari uppbyggingu iðju-
rekstrar af einhveiju tagi við
Grundartanga. Þjóðhagslegur
ávinningur af því að nýta betur þá
grunnaðstöðu, sem þar er komin,
væri bersýnilega mikill.
Era þá enn ónefndir hagsmunir
skipasmíðaiðnaðarins í þessu verk-
efni. Nú er reynt að fleyta þeim
iðnaði yfír mögru árin, meðan ekki
er ráð að smíða fiskiskip. Þá hlýtur
að skipta máli fyrir iðnaðinn, ef
hann fengi að smíða tvær feijur,
sem búast má við að samtals kosti
Niðurstöður
Af því, sem hér hefur verið rakið,
getur ekki verið nema ein niður-
staða. Það virðist hagkvæm og
skynsamleg ráðstöfun að taka upp
feijurekstur á Hvalfírði. Það þarf
hvorki mikinn undirbúning né
margra ára nefndarstörf til að
komast að þeirri niðurstöðu. Slíkur
feijurekstur væri nokkurra áratuga
undanfari þess, að fjörðurinn verði
brúaður, þegar umferðin réttlætir
svo mikla fjárfestingu og kostnaður
við stórbrýr lækkar vegna aukinnar
tækni.
Greiðar feijusamgöngur yfír
Hvalfjörð væra mikil samgöngubót
fyrir þá sem ferðast milli Vestur-
og Norðurlands og höfuðborgar-
svæðisins. Þær mundu minnka
landið og þannig bæta stöðu mikils
fjölda fólks, bæði á Reykjavíkur-
svæðinu og í byggðunum vestan-
og norðanlands.
Hinir einu, sem hugsanlega
misstu einhvers í við slíka ráðstöfun
væra ríkissjóður og einhveijir
Akumesingar. Jafnvel það reikn-
ingsdæmi er flóknara en svo, að út
úr því komi einhlít niðurstaða. Að
því er varðar hugsanlegt tjón ríkis-
sjóðs væra tæpast margir til að
syrgja það. Merkur þingmaður
austan af landi sagði einu sinni, að
ríkissjóðurinn ætti sér öngvan vin
nema e.t.v. einn fjármálaráðherra
og nokkra kontórista í kringum
hann. Sem gamall kontóristi af
því taginu telur jafnvel skrifari
þessarar greinar sig ekki geta varið
hagsmuni ríkissjóðs f þessu sam-
bandi.
Þar eð hér er um að ræða við-
fangsefni á sviði vegagerðar og
feijusamgangna, sem ríkissjóður
hefur helgað sér, stendur upp á
stjórnmálaforystuna að taka við
þessu máli. Reynist framkvæði ekki
að fmna þar í garði, hlýtur að þurfa
að skoða hvort aðrar leiðir séu
færar. Má raunar velta því fyrir sér
í samanburði við ýmsa aðra fjár-
mögnun, hvort ekki séu til menn
sem vildu ná saman þeim fjármun-
um, sem þarf til að koma þessari
Frá kóramótinu i Stykkishólmi.
Kórar á norðanverðu
Snæfellsnesi með söng-
skemmtun í Stvkkishólmi
Stykkishólmi. **
KIRKJUKÓRARNIR á norðanverðu Snæfellsnesi hafa í vetur æft
bæði sér og sameiginlega undir hljómleika og hafa lagt að sér og
fórnað mörgum stundum til æfinga. Um þessa helgi kom svo árangur-
inn í Ijós þegar efnt var til tónleikahalds. í Ólafsvík voru tónleikarn-
ir á laugardagskvöldið, í Grundarfirði í kirkjunni kl. 5 síðdegis og
hinir seinustu í félagsheimilinu í Stykkishólmi nú í kvöld kl. 9.
Hófust tónleikamir á að kór Tón- en verkinu stjórnaði David Wood-
listarskóla Eyrarsveitar, sem skip- house, sem einnig lék á fiðlu, en
aður er ungmennum, söng og vakti
söngurinn og meðferðin verðskuld-
aða aðdáun áheyrenda. Þá tók kór
Grandarfjarðarkirkju við og söng
þijú lög. Stjómandi og kennari
Ronald Tumer.
Næsta atriði var að þeir félagar
Bjami Lárentinusson og Njáll Þor-
geirsson sungu tvísöng við undirleik
Jóhönnu Guðmundsdóttur, en þeir
félagar hafa um árabil skemmt
Snæfellingum með sínum ágæta
söng. Þá tók við kór Stykkishólms-
kirkju og söng þijú lög undir stjórn
Jóhönnu Guðmundsdóttur og þar á
eftir söng kór Ólafsvíkurkirkju 4 lög
og sungu þá tvísöng í einu laginu
þær Steinunn Tryggvadóttir og
Fjola Jónsdóttir. Þá var gert hlé
en að því loknu fluttu kórar Stykkis-
hólmskirkju og Ólafsvíkurkirkju
Gloria eftir Vivaldi í 12 þáttum og
þar sungu einsöng og. tvísöng
Wendy Watkins, Hrefna Bjama-
n.^UníAm. HplcraHÓttÍr.
undirleik sáu um Ingibjörg Þor-
steinsdóttir er lék á orgel, Jóhanna
Guðmundsdóttir og Helgi Pálsson,
sem lék á trompet.
Söngskráin var bæði fjölbreytt
og viðamikil og var kóranum og
stjómendum og þeim sem að þessari
dagskrá stóð feikilega vel fagnað
og í lokin þakkaði Ellert Kristins-
son, oddviti Stykkishólms, ágæta
dagskrá og undraverðan árangur
af óeigingjömu og fómfúsu starfi.
Kirkjukór Stykkishólms bauð síðan
íkaffi.
í byijun sagði Gísli Kolbeins
sóknarprestur nokkur orð, setti
samkomuna og bauð alla velkomna.
Hann lauk einnig tónleikunum með
þökk til allra viðstaddra.
Það fer ekki á milli mála að þetta
er stærsti tónlistarviðburður hér í
Hólminum á þessu ári. Hafi allir
aðilar hjartans þökk fyrir.
Svona kvöld gleymast ekki.
Árni.
„Ég fékk mér
GoldStcir
myndbandstmki til ðð missð ekki ðf
EIRIKUR HAUKSS0N
SÖN6VARI
Eurovision. Þetta eru frábaer tæki og é fínu
Aðeins kr. 35.980,- stgr.
GoldStar hefur alla möguleikana:
* 83 rásir.
* 12 forvalsstiilingar.
* 14 daga upptökuminni með 4
mismunandi timum.
* Föst dagleg upptaka.
* Allt að 4 tíma samfelld upptaka.
* Létt rofar.
* Þráðlaus fjarstýring með 13
stjórnaðgerðum.
* Truflanalaus samsetning á mynd í
upptöku.
* 5-föId hraðleitun fram og til baka.
* Kyrrmynd.
* Sjálfvirk spólun til baka.
* Rafeindateljari.
* Teljaraminni.
* Skýrt ljósaborð sem sýnir allar
aðgerðir tækisins.
* Þú getur horft á eina rás, meðan þú
ert að taka upp af annari.
* Með E.T.R. rofanum geturðu tekið
upp i ákveðinn tima, Vi—4 klst., að
þvi loknu slekkur tækið sjálft á
upptökunni.
Vlf> 1ÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800
• II
verði.