Morgunblaðið - 29.04.1986, Síða 26

Morgunblaðið - 29.04.1986, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL1986 Marcos ræðir við Reagan ísíma Ferdinand Marcos, fyrrum forseti Filippseyja, ræddi við Ronald Reagan, forseta Bandaríkjanna, í síma er sá síðamefndi kom til Fawai-eyja á sunnudag. Þá ræddi eiginkona Marcosar, Imelda, við Nancy Reagan, bandarísku forsetafrúna, einnig í síma. Reagan kom við á Hawaii-eyjum á leið sinni til fundar leiðtoga iðnríkjanna, sem hefst í Tókýó í upphafi næsta mánaðar. Ekki er greint frá innihaldi samtalanna nema hvað sagt er að Imelda hafi verið mjög tilfinningasöm í samtali sínu við Nancy Reagan. Veður víða um heim Lcagst Hœst Akureyri 7 skýjaö Amsterdam 6 13 skýjaö Aþena 14 27 heiöskfrt Barcelona 18 léttskýjað Berlín 10 17 skýjað Brussel 3 13 skýjað Chicago 18 31 skýjað Dublin 5 12 skýjað Feneyjar 17 skýjað Frankfurt 6 16 skýjað Genf 5 12 skýjað Helsinkl 8 21 heiðskírt HongKong 23 30 heiðskfrt Jerúsalem 17 26 heiðskfrt Kaupmannah. 6 11 heiðskfrt Las Palmas 19 skýjað Lissabon 7 18 skýjað London 7 16 heiðskfrt LosAngeles 17 31 skýjað Lúxemborg 12 skýjað Malaga 19 skýjað Mallorca 16 skýjað Mlami 20 25 heiðskfrt Montreal 12 23 skýjað Moskva 8 17 heiðskfrt NewYork 16 22 skýjað Osló 9 16 skýjað Parls 7 16 skýjað Peking 9 24 hefðskfrt Reykjavlk 7 skýjað RlódeJaneiro 21 33 skýjað Rómaborg 8 21 skýjað Stokkhólmur 8 17 skýjað Sydney 12 18 rigning Tókýó 19 21 rfgning Vfnarborg 14 23 helðskfrt Þórshöfn 6 rlgning Israel: Telja Kohl kansl- ara hafa brugðist embættisskyldunni með því að draga taum Waldheims Svíþjóð: Tók gnllfyllingar úr tönnum látinna en áfrýjaði kröfum yfirvalda um skattlagningu ísraelska dagblaðið Haaretz hafði eftir ótilgreindum embættismönnum í ísraelska utanríkisráðuneytinu, að samkvæmt upplýsingum sem fram hefðu komið um Waldheim í skjölum úr skjalasafni SÞ, benti allt til þess, að hann hefði vitað um flutninga 43.000 gyðinga frá Balkanskaga í útrýmingarbúðir nasista í síðari heimsstytjöldinni. ísraelska stjómin fékk þessi skjöl til athugunar í aprílbyijun. Waldheim neitar staðfastlega, að hann hafi nokkuð vitað um þessa flutninga. Stokkhólmi. AP. STARFSMAÐUR í líkbrennslu í Norður-Svíþjóð hefur áfrýjað kröfum, sem skattyfirvöld hafa gert á hendur honum vegna sölu á gullfyllingum, sem hann tók í óleyfi úr tönnum látins fólks. Fyrir flmm árum var maðurinn, sem nýtur nafnleyndar á grundvelli siðareglna blaðamanna í Svíþjóð, dæmdur skilorðsbundið fyrir „auðg- unarbrot". Þá hafi hann, að því er sagt er, tekið ófijálsri hendi — á einu ári — þijú kfló af gulli úr tönnum líka, sem átti að brenna. En réttur í Sundsvall úrskurðaði, að maðurinn skyldi halda §ármun- um þeim, sem hann hafði aflað með þessum hætti, þar sem enginn eftir- lifandi aðstandenda hafði gert kröfu til eignarhalds á gullinu. Vísaði dómurinn í þessu sambandi til gata í sænskum lögum. TT-fréttastofan greindi frá, að samviskusamur starfsmaður skatt- yfirvalda í Sundsvall hefði veitt því athygli, að líkbrennslumaður- inn, sem vitað var að hafði þénað 87.000 s. kr. (um 430,000 ísl. kr.) AP/Símamynd Vínarborg og Tel Aviv. AP. KURT Waldheim hefur boðið aðalritara Heimssambands gyð- inga til viðrænða við sig í Vínar- borg. Aðstoðarutanríkisráðherra ísraels sagði á sunnudag, að Helm- ut Kohl, kanslari Vestur-Þýska- lands, hefði brugðist embættis- skyldu sinni með þvi að hrósa Kurt Waldheim og kalla hann „föðurlandsvin". Samkvæmt upp- lýsingum um Waldheim í skjala- safni Sameinuðu þjóðanna bendir allt til þess, að hann hafi vitað um brottflutning gyðinga frá Balkan- skaga, að því er ísraelskt dagblað sagði í gær. í viðtali við austurríska vikuritið Basta segist Waldheim gjaman vilja bjóða Israel Singer, aðalritara Heims- sambands gyðinga, til viðræðna við sig í Vínarborg. „Ég mundi ekkert draga undan í þeim viðræðum," sagði Waldheim, „og mundi þykja vænt um að mega ræða þessa hluti við Singer. Ég hef ekkert að fela.“ Singer hefur verið einn af hörðustu gagnrýnendum Waldheims innan Heimssambands gyðinga og sagt hann ljúga til um gerðir sínar í síðari heimsstyijöldinni. Ronnie Millo, aðstoðarutanríkis- ráðherra ísraels, sagði í viðtali við ísraelska útvarpið, að Helmut Kohl kanslari hefði brugðist embættis- skyldu sinni með því að draga taum Waldheims. „Kanslarinn hefði ekki átt að blanda sér með þessum hætti í kosningar í landi með nasíska for- tíð,“ sagði Millo. Kohl hrósaði Waldheim í ræðu, sem hann flutti í Salzburg á laugardag, og kvað hann „mikinn föðurlands- vin“, auk þess sem hann sagðist vita „hvem ég mundi kjósa“, ef hann hefði atkvæðisrétt í forsetakosning- unum í Austurríki. Millo vitnaði til ummæla Kohls og sagði: „Það gætu ennfremur verið fleiri ástæður fyrir Kohl að tala var- lega, en ég hef enga löngun til að tala um þær.“ Frakkar studdu víðtækari aðgerð- ir gegn Líbýu FRANSKA ríkisstjórnin studdi harðari aðgerðir gegn Líbýu heldur en loftárás Bandarikjamanna á landið gaf tilefni til, að sögn hátt- settra franskra embættismanna, sem ekki vilja láta nafna sinna getið. Þessar upplýsingar koma fram í blaðinu International Herald Tribune í siðustu viku. Segir þar að Frakkar hefðu stutt aðgerðir, sem miðuðu að því að velta Khad- afy, leiðtoga Líbýu, úr sessi. Hins vegar var franska ríkisstjómin andvíg takmörkuðum aðgerðum eins og hún áleit loftárásina vera. Taldi hún að slíkar aðgerðir myndu efla öfgastefnur innan arabaríkjanna, jafn- framt því sem þær myndu veikja stöðu hófsamra arabaríkja. Frönsk yflrvöld hefðu því látið þá skoðun í ljósi við bandarísk yfirvöld að sennilega væri ávinningurinn af takmörkuðum að- gerðum ekki í samræmi við áhættuna. AP/Símamynd Afganska stjórnin á ræðupallinum í Kabúl á sunnudag þegar haldið var upp á það að átta ár væru frá valdatöku kommúnista í landinu. Babrak Karmal leiðtogi Afganistans, var ekki viðstaddur. Afganistan: Karmal fjarstaddur á afmæli valdatöku á gullsölunni, hefði ekki gefíð tekj- umar upp til skatts. Skattyflrvöldin á staðnum héldu því fram, að athæfl mannsins hefði fært honum „skattskyldar auka- tekjur“, og kröfðu hann um greiðslu 58.000 s. króna aukaskatts. Maðurinn áfrýjaði kröfu skatt- heimtunnar þegar í stað, að sögn fréttastofunnar. Tim Greve ritstjóri látinn Osló.AP. TIM GREVE, ritstjóri Verdens Gang, útbreiddasta blaðs Noregs, lézt á sunnudag. Banamein hans var krabbamein. Hann hafði verið alvarlega sjúkur frá þvi á páskun- um í fyrra. Greve stóð á sextugu og hafði verið ritstjóri VG frá því árið 1978. Áður en hann tók við því starfí var hann framkvæmdastjóri norsku Nóbels- stofnunarinnar um þriggja ára skeið. Hann var um tima ritari nefndarinnar, sem úthlutar Nóbelsverðlaunin. Greve hóf störf í norsku utanríkis- þjónustunni árið 1951 og starfaði þar um 22 ára skeið. í öndverðu starfaði hann fyrir norsku NATO-sendinefnd- ina í París, en árið 1953 var hann kvaddur heim og gerður að nánasta aðstoðarmannaio Halvard Lange, þá- verandi utanríkisráðherra. Árið 1960 var Greve gerður að sendiherra Nor- egs í Bonn. Hann var sendiherra í eitt ár og gerðist að því loknu ritari utanríkisnefndar Stórþingsins. Á ár- unum 1967 til 1974 var hann blaða- fulltrúi utanríkisráðuneytisins. Eftirli ?andi eiginkona Greve er Marit. 'ann lætur eftir sig tvær uppkom ardætur. Er í læknismeðferð í Sovétríkjunum, segja sovéskir sendiráðsmenn Islamabad. AP. ÞAÐ vakti mikla athygli að Babrak Karmal, leiðtogi Afgan- istans, skyldi ekki vera viðstadd- ur hátíðarhöldin á sunnudag. Þá voru miklar skrúðgöngur og ræðuhöld i Kabúl, höfuðborg landsins, vegna þess að átta ár eru liðin siðan kommúnistar tóku völdin í landinu. Fjarvera Kar- mals hleypti af stað fiskisögum og vangaveltum um það hvort Karmal væri veikur eða kominn i vandræði. Afganskir sendiráðsstarfsmenn í Islamabad í Pakistan hafa staðfest að Karmal hafl verið í Sovétríkjun- um. Þeir neituðu að láta hafa fleira eftir sér um málið. Karmal fór til Sovétríkjanna snemma í apríl og var þá sagt að hann væri í óopin- berri heimsókn. Upp frá því hefur hann ekki sést á almannafæri. Haft er eftir sovéskum heimildar- mönnum í Islamabad að Karmal hafí verið heilsuveill og hefur hann farið áður til Sovétríkjanna til að leita sér lækninga. Stjómvöld leggja mikla áherslu á hátíðahöldin. Háttsettir embættis- menn og leiðtogar ávarpa þjóðina og haldin er hersýning. Karmal hefur ætíð flutt helstu ræðuna og fjarvera hans á sunnu- dag vakti spumingar um það hvers vegna hann hefði látið sig vanta. Ymsir vestrænir fréttaskýrendur leiddu að því getum að Karmal ætti í pólitískum örðugleikum annað hvort heima fyrir eða gagnvart Sovétmönnum. Stjómarútvarpið minntist aðeins örfáum sinnum á Karmal meðan á útsendingu frá hátíðahöldunum stóð. Nazar Mohammad, vamar- málaráðherra, hélt helstu ræðu há- tíðahaldanna. Þar fordæmdi hann afganska skæmliða og sagði að Babrak Karmal, leiðtogi þeir væru verkfæri „bandarískra Afganistans. heimsvaldasinna".

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.