Morgunblaðið - 29.04.1986, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRIL 1986
41
Tjarnarskóli
— íhugunarefni
eftir Elínu K. Thorarensen
Er Tjamarskóli var stofnaður sl.
haust, var ég meðal þeirra, sem
fögnuðu stofnun hans, þar sem ég
taldi, að hann gæti veitt öðrum
skólum í þessum aldursflokki
nokkra samkeppni og frumkvæði,
fyrir utan að geta verið fámennur
og heimilislegur skóli, þar sem
nemendum gæti liðið vel við nám
sitt undir handarjaðri úrvalskenn-
ara.
Sótti ég um starf við skólann um
það bil er umsóknarfrestur var að
verða útrunninn og var ráðin við
skólann í 8 stundir alls á viku í fjór-
um fögum, enda var ósk mín að
kenna aðeins 2 daga í viku. Jafn-
framt tók ég fram við skólastýrur
skólans, að engin þörf væri að ráða
mig við skólann, nema að ég gæti
orðið að liði. Ég hef 11 ára kennslu-
reynslu hjá ríkinu en 9 ára kennslu-
reynslu við sjálfstæð kennslustörf
og full réttindi á grunnskólastigi.
Er ég hafði kennt við skólann í
rúman mánuð, þ. 16. október sl.,
var ég kölluð í viðtal til skólastýr-
anna tveggja, Maríu Sólveigar Héð-
insdóttur og Margrétar Theodórs-
dóttur, eftir kennslu þennan dag,
og sagði María Sólveig mér fyrir-
varalaust upp starfi mínu, munn-
lega, með því að biðja mig um að
hætta kennslu við skólann. Margrét
hlýddi á framsögn Maríu Sólveigar,
án þess að leggja orð í belg. Ekki
voru aðrir viðstaddir þessa uppsögn
en við þijár. Er ég spurði, hvað ég
hefði brotið af mér svo alvarlega,
svaraði María Sólveig, „að menntun
mín og reynsla hentaði ekki Tjam-
arskóla. Þetta væri ekkert persónu-
legt af þeirra hálfu, og að engir
foreldrar hefðu kvartað yfír mér“.
Þar sem það er skoðun mín, að
enginn ætti að þrengja sér, þar sem
hann er óvelkominn, sagði ég þeim,
að ég skildi, að af einhveijum
ástæðum vildu þær ekki hafa mig
lengur við skólann, og að ég skyldi
hætta kennslu á stundinni, en hins
vegar vildi ég vita ástæðuna fyrir
því, að svona mikið lægi við, að ég
færi. Ekki fengust þær til að svara
því.
Er ég samþykkti að hætta strax
kennslu samdægurs, létti þeim
stöllum báðum mjög, og fram kom,
að þær hefðu kviðið því mjög að
þurfa að segja mér upp. Buðu þær
nú þriggja mánaða laun og María
Sólveig Héðinsdóttir sagði: „Við
„Égf tel að þessi litla
f rásögn sé íhugnnar-
efni fyrir alla, sem láta
sig menntun o g upp-
fræðslu í þessu iandi
skipta...“
högum nú okkur ekki alveg eins
og...“ Fyrst vildi ég ekki fallast
á að taka við þriggja mánaða laun-
um, þar sem ég sótti fast að vita
ástæðu uppsagnarinnar, en við
þeirri málaleitun fengust engin
svör. Ákvað ég þá að móttaka
þriggja mánaða laun, skilaði af mér
leiðréttum ritgerðum 7. bekkjar í
félagsfræði, svo og öðrum gögnum,
sem skólinn átti og yfirgaf hann.
Þann 23. október si. skrifaði ég
Tjamarskóla ábyrgðarbréf, þess
efnis að knýja fram ástæðu þessar-
ar undarlegu brottvikningar. Um
mánaðamótin október/nóvember
barst greiðsla til mín á þriggja
mánaða laununum, framreiknuðum
og án orlofs kr. 31.863 — í gegnum
Utvegsbanka íslands.
Er ekkert svar barst við ábyrgð-
arbréfi mínu, dagsett 23. október
sl., ritaði ég Tjamarskóla annað
ábyrgðarbréf, dagsett 22. nóvem-
ber sl. Var nú skólanum hótað
málssókn, nema einhver fullgild
skýring fengist á þessu háttalagi.
Ekki bárust nein viðbrögð við þessu
af hálfu Tjamarskóla.
Um miðjan febrúar sl. hafði ég
samband við lögfræðing, þar sem
ég vildi stefna Tjamarskóla, til að
komast að raun um ástæðu þess,
að mér var vikið fyrirvaralaust úr
starfi. Hann tjáði mér, að ef ég
hefði móttekið þriggja mánaða laun
af hálfu skólans, gæti ég ekki stefnt
honum, ef krafan væri ekki fjár-
hagslegs eðlis. Slíkt hefði margoft
verið reynt að taka upp í samninga
launþega, en atvinnurekendur
hefðu aldrei ljáð máls á slíku.
Er hér var komið sögu, sá ég,
að annað hvort yrði ég að þegja
um þetta mál eða skrifa blaðagrein.
Og þar sem ég vildi ekki þegja um
það, þar sem ég tel, að ég hafi
ekkert brotið af mér, kemur þessi
grein fyrir sjónir almennings, þar
sem ýmsar sögusagnir hafa komizt
á kreik í sambandi við þetta mál.
Ég vil taka fram, að enga viðvörun
fékk ég af hálfu skólastýranna,
hvorki annarrar né beggja, aður en
til uppsagnarinnar kom. Ég kom
aldrei of seint og mig vantaði aldrei
til kennslu þennan stutta tíma, sem
ég vann þar. Ég kveð nemendur
Tjarnarskóla og þakka þeim sam-
veruna og bið þá að vera duglega
við nám.
Þann 4. apríl sl. barst mér loks
bréf, dagsett 3. apríl, frá skólastýr-
um Tjamarskóla, undirritað af þeim
báðum, þar sem þær tilkynna mér,
að þær hafi móttekið bréf mín, „og
að þeirra mati, komi allar skýringar
málsins fram, þegar við ræddum
saman þann 16. október 1985“. Þar
sem þær hafa ekkert við lýsingu
mína á viðtali okkar þriggja, þann
16. október sl. að athuga, staðfesta
þær, að rétt sé frá greint hjá mér.
Síðan kemur: „Hörmum við fram-
komu þína við nemendur og heimili
þeirra að undanfömu. Þessi fram-
koma þín er til þess eins fallin að
kasta rýrð á sjálfa þig.“
Þessu bréfi er svarað samdægurs
með ábyrgðarbréfi frá mér dagsettu
4. aprfl, þar sem ég bið þær að
segja frá svömm sínum þann 16.
október sl. og jafnframt spyr ég
þær að því, hvaða framkoma mín
við nemendur og heimili þeirra að
undanfömu sé til þess eins fallin
að kasta rýrð á sjálfa mig. Við
þessu bréfi hafa enn engin svör
borizt, þegar þetta er ritað.
Fullyrða má, að slík framkoma
sem þessi sé óþekkt hjá stjómend-
um ríkisskólanna og uppsögn án
ástæðu og án fyrirvara þekkist
ekki. En gleymum því ekki, að
Tjamarskóli er ríkisskóli enn sem
komið er. Hvort hann á framtíð,
veltur á stjómendum hans, hvort
vilji og geta er til að vanda sig,
hvort kennslan sé raunhæf og þar
með árangur fenginn.
Ekki get ég sagt, að það sé
gleðilegt að skrifa slíka grein, en
nauðsynlegt engu að síður. Ekki
er deilt um það, að vinnuveitandi
má ráða sér starfsfólk að sinni vild,
enda fór ég strax frá skólanum og
hef enga löngun að starfa þar aftur.
Hins vegar verður að teljast sann-
gjamt, að uppsögn byggist á ein-
hveiju tilteknu atriði eða atvikum,
sem stjómendum líkar ekki eða líða
ekki, og hafa þeir þá fullt vald til
að ákveða uppsögn eða breytta
framkomu starfsmanns ella.
Ég tel, að þessi litla frásögn sé
íhugunarefni fyrir alla, sem láta sér
menntun og uppfræðslu f þessu
landi skipta, ekki sízt fyrir skóla-
stýmr Tjamarskóla. Hvað skyldi
það vera, sem fékk þær til að koma
svona fram?
Höfundur er kennari og vinnur
sjálfstætt að kennslu.
„Slökun vöðvaspennu
verður að koma innan frá“
— segir Richard Gaines nuddsérfræðingur
RICHARD Gaines, bandarískur
nuddsérfræðingur sem rekur
tvær nuddstofur í Boulder í
Colorado, hélt hér á landi nám-
skeið fyrir stuttu í boði Félags
íslenskra nuddara þar sem
hann lagði áherslu á svokallað
innra nudd, sem gengur út á
að slaka á vöðvaspennu innan
frá. Þetta krefst, að sögn, þess
að nuddarinn þarf að vera mjög
næmur, hann þarf að sjá hvern-
ig hinn nuddaði getur náð að
slaka á eigin spennu.
„Við emm flest sífellt að leita
að einhveiju sem við í raun gemm
okkur enga grein fyrir sjálf. Við
búum í streituþjóðfélagi og eigum
flest í einhvers konar lífsgæða-
stríði við sjálfa okkur, en við
eyðum afar litlu til að þroska hinn
innri mann í okkur. Sá persónu-
leiki vill komast í snertingu við
raunvemleikann, en í daglega líf-
inu höfum við yfirleitt brynjað
okkur gagnvart umhverfinu og
Richard Gaines
látum einungis hinn ytri persónu-
leika okkar tala,“ sagði Richard
í samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins.
Byltingarkenndir tískufaraldr-
ar ýmiss konar hafa komið til
sögunnar í gegnum árin t.d.
hippatímabilið fræga upp úr 1960
þegar fólk vegsamaði ást og frið
og vildi lifa í samræmi við nátt-
úmlögmálin. Út frá því þróuðust
grænmetisætumar, jógatímabilið
og friðarhópamir. Nú hafa í raun
tvær fylkingar orðið til, þeir sem
leggja áherslu á heildrænan lffs-
stfl, sem er samþætting líkama,
sálar og hugsunar, og svo hin, sem
hefur að geyma alla heilsuklúb-
bana. Það er ekkert nema gott
eitt að segja um sumt af þessu,
en það er eins og fólk sé árangurs-
laust að leita að markmiði með
lífí sínu.“
Richard sagði að sálfræði og
vísindi næðu takmörkuðum
árangri hvort um sig. Það þyrfti
að samræma þarfír mannsins.
„Ég sem nuddari legg áherslu á
að nudda þýðlega frekar en kröft-
uglega í byijun til að gefa fólki
færi á að gefa eftir auk þess sem
það verður meðvitaðra um sjálft
sig í stað þess að fara í vamar-
stöðu,“ sagði hann.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Aðalfundur FVH verður haldinn að
Þingholti, Hótel Holti, þriðjudaginn
29. apríl nk. kl. 15.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Fjármagnsmarkaður, okur og réttar-
þróun. Bjarni Bragi Jónsson, aðstoðar-
bankastjóri Seðlabanka íslands, flytur
erindið.
Mætið stundvísiega!
Stjornin.
MÖTUNEYTI - SÖLUSKÁLAR
VEITINCASTAÐIR!
Ódýrar servíettur í boxin
8 M. matar- og
Cltborgun kr. 4.0(
og eftirstöðvar á
til þriggja mánaí
CiLIT5*685411
Höfðabakki 9
Reykjavík
S/á/ð á þráðinn!
- Við sendum servíetturnar um hæl.
Box og servíettur — alltaf til á lager.
Ath! Tvær stærðir af boxum
- sama stærð af servíettum!
STANDBERG HF.
Sogavegi 108
símar 35240 og 35242