Morgunblaðið - 29.04.1986, Side 50

Morgunblaðið - 29.04.1986, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL1986 ý stjarna? Lítil stúlka, Radost Bokel, er fékk aðalhlutverkið í kvikmynd- inni „Momo“, er taka á nú á næstunni, þykir efni í nýja stjömu. Hún var valin úr hópi 2.000 umsækjenda, sagan segir reyndar að hún hafi átt að koma síðust í prufutökuna, en fengið að vera fyrst, þar sem móðir hennar átti afmæli og hún var að flýta sér. Hún þótti þegar eins og fædd í hlutverkið, sem 10 ára munaðarleysingi sem hvergi á höfði sínu að halla, en þvemeitar að fara á barnaheimili og býr í litlum helli fyrir utan smábæ nokkum. Myndin er byggð á skáldsögu eftir Michael Ende, leikstjóri verður Johannes Schaaf og annað aðalhlutverkið verður í höndum gömlu kempunnar John Huston er hér sést á myndinni með Radost litlu. Höfundurinn og aðalleikarinn skála við byrjun myndatökunnar. Mynd byggð á metsölubókinni „The Fourth Protocol“ Metsölubókahöfundurinn Frederick Forsyth heldur áfram að gera það gott. Nýjasta jiþók hans „The Foruth Protocol" hefur nú þegar selst í rúmlega 7 milljón eintökum og hefur verið ákveðið að gera kvikmynd er fylgi söguþræðinum. Breski leikarinn Michael Cain mun leika aðalhlut- verkið og John Maekenzie leikstýra. Reiknað er með að myndin verði frumsýnd um áramótin næstu. 'Margir muna eflaust eftir myndinni „Dagur sjakalans" er sýnd var hér á landi fyrir nokkmm ámm við mjög góða aðsókn, en hún var gerð eftir einni af sögum Forsyth. Tónlistin er alþjóðamál sem þekkir engin landamæri Rætt við Bergþóru Árnadóttur vísnasöngvara Bergþóra Ámadóttir hélt tón- leika í Norræna húsinu á sumardaginn fyrsta, en hún er nýkomin heim úr hljómleikaferða- lagi um Norðurlönd. Auk Berg- þóm komu fram á tónleikunum foreldrar hennar, þau Aðalbjörg Jóhannsdóttir og Ámi Jónsson. Lék Aðalbjörg á munnhörpu og Ami á gítar. „Eg hef verið erlendis í þrjá mánuði í vetur á ferðalagi um Norðurlönd og hef spilað í skólum í Noregi, Svíþjóð og Finn- landi og reyndar Danmörku líka," sagði Bergþóra í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins. „Ég stansa ekki lengi héma núna því ég er að fara aftur út núna til að halda tónleika á Norðurlöndunum í vor og sumar. — Hveniig skipuleggur þú þessi tónleikaferðalög? „Ég hef fengið fyrirgreiðslu hjá samtökum vísnasöngvara á Norð- urlöndum, sem heita Nordvisen — þau greiða fyrir vísnasöngvörum sem koma hingað til að halda tón- leika og eins hafa þau greitt fyrir Islendingum sem fara til að spila á Norðurlöndum. Það er líka ákveðinn gæðastimpill að vera í Nordvisen en það eru ekki nema þrír vísnasöngvarar hér á landi sem eiga aðild að Nordvisen. — Hvað er langt síðan þú byij- aðir að syngja opinberlega? „Eg hef verið að spila og syngja síðan ég var krakki en mín fyrstu spor á höfuðborgarsvæðinu eru eiginlega Áma Johnsen að kenna — mig minnir að það hafí verið 1973 að hann dreif mig í að koma fram á tónleikum í Kópavogi." — Hvar hefur þú stundað tón- listamám? „Mitt nám er ekkert, ekki form- legt, meina ég. Pabbi spilar á gítar og hefur gert það síðan ég man eftir mér og gítarinn var eina hljóðfærið á heimilinu. Hins vegar bý ég að því að hafa verið í Pólý- fónkómum í nokkur ár hvað söng- inn varðar. Núna er ég að læra á harmóníku en ætli ég fari í tónlist- arskóla fyrr en ég verð orðin stór.“ — Hvað um tungumálaerfíð- leika — valda þeir ekki erfiðleikum í vísnasöng erlendis? „Ég syng alltaf á íslensku, þannig að þetta er ekkert mál. Fyrst útskýri ég efni textans á viðkomandi máli fyrir áheyrendum mínum. Síðan legg ég mig fram við að túlka vísuna þannig að efnið nái til áheyrenda. Þetta hefur gengið mjög vel, enda er tónlistin alþjóðamál sem þekkir engin landamæri." — Nú er væntanleg snælda með skólaljóðunum sem þú syngur „Já, þetta getur verið mjög erfítt. að halda áætlun og eins að rogast um með hljóðfærin og plöt- urnar (en ég verð að selja plöturn- ar mínar að loknum hljómleikum til að eiga fyrir uppihaldinu því greiðslurnar fyrir hljómleikana koma venjulega eftir dúk og disk). Það getur verið strembið að rogast með þetta svo nú ætla ég að hafa með mér 14 ára son minn, sem burðarkarl, og þannig verður þetta léttara." — Hvað um tónleikana í Nor- ræna húsinu á sumardaginn fyrsta — hvemig fannst þér að troða upp á íslandi? „Þeirgengu alveg ljómandi vel. Þetta voru ljómandi skemmti- legir tónleikar og góð stemmning. Það var fullt hús og þar sem aðsóknin var svona góð var ákveð- ið að tónleikamir verði endurteknir núna 1. maí á sama tíma, kl. 20.45. Ég vona bara að það komi jafn margir þá.“ Dómnefndin í söngvakeppni Reykjavíkurborgar, f.v.: Birgir ísleifur Gunnarsson, Friðrik Þ. Friðriksson, Knstín A. Olafsdóttir, Gunnlaugur Helgason og Svavar Gests sem er formaður dómnefndar og framkvæmda- stjóri keppninnar. SÖNGVAKEPPNIREYKJAVÍKURBORGAR Fimm lög valin í úrslitakeppni Dómnefndin í söngva- keppni Reykjavíkur- borgar hefur nú valið fímm lög til úrslitakeppninnar úr hópi þeirra 120 Iaga sem tónskáld og textahöfundar sendu inn. Urslitalögin fímm verða flutt opinberlega í síð- ari hluta maímánaðar en síð- an verða úrslit gerð kunn viku af júní. Upphaflega stóð til að kynna niðurstöður fyrr en ákveðið var að fresta því vegna þátttöku íslands í söngvakeppni sjónvarps- stöðva Evrópu sem ber upp á sama tíma. Höfundar lags og texta lagsins sem fyrstu verðlaun hlýtur fá 100 þús- und krónur í verðlaun. Önnur verðlaun eru fímmtíu þúsund krónur og þriðju verðlaun tuttugu og fimm þúsund krónur. í ráði er að öll fímm úrslitalögin verði gefin út sameiginlega á hljómplötu. Bergþora Arnadóttir á tónleikunum í Nor ræna húsinu á sumardaginn fyrsta. inná, hvenær kemur hún á mark- að? „Þessi snælda átti að vera til- búin í janúar sl. en nú er loksins að komast hreyfíng á þetta. Það er Námsgagnastofnun sem sér um útgáfuna og snældan verður lík- lega komin í skólana í haust. Á henni verða 16 lög við Ijóð úr skólaljóðunum. Ljóðin voru valin í samráði við kennara og lögin eru öll gamalkunn utan eitt sem ég samdi sjálf. Þessi snælda verður þannig að öll lögin eru leikin án söngs í öfugri röð hinu megin, þannig að eftir að krakkamir hafa hlustað á einhvert lagið geta þau snúið snældunni við og sungið með undirleiknum hins vegar.“ — Nú ert þú að fara út aftur í maí — eru það svipuð verkefni sem bíða þín í sumar? „Nei, þetta verður ekki eins erfítt núna. í vetur var ég að syngja í skólum og var oft með svona tveggja klst. dagskrá. Núna í sumar mun ég verða á vísnamót- um og kem fram svona í hálfa klukkustund í hvert skipti." — Erþettaerfíttstarf?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.