Morgunblaðið - 29.04.1986, Side 54

Morgunblaðið - 29.04.1986, Side 54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL1986 54 AEg poirf- undirskriftir ti'eggja áster... .. . að trúa honum fyrír leyndarmáli. TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reserved e1985 Los Angeles Times Syndicate — að nota símaklefana er búið að skemma þá! víni! HÖGNI HREKKVlSI Meira en að segja það að taka börn í sveit Ágæti Velvakandi. Föstudaginn þann 11. apríl síð- astliðinn kom frétt frá Sigurði Jóns- syni á Selfossi í Morgunblaðinu, um fósturmæður á Suðurlandi. Ut á fréttina sjálfa er ekkert að setja en fyrirsögnin er gersamlega óskiljan- leg: „Fjórfalt faðemismeðlag 56.720 fyrir bam til sumardvalar." Ég vil fá skýringu á hvað átt er við. Böm í þéttbýli em í skólum þar til seinast í maí og byija aftur fyrst í september. Við sveitakonur, Velvakanda hafa borist mörg svör við fyrirspum er birtist nýlega í dálkunum um nafnaþulu. Hér birtist svar frá Mörtu Tómasdóttur. Svörin við gátunni em í sviga á eftir hverri línu. Einn kann vel á ísinn heija (Bjöm) Annar byijar viku hveija (Helgi) Með þriðja er venja að húsum hlúa (Torfi) Hét hinn fjórði á guð að trúa (Krist- inn) Ei má skam á sjötta líta (Hreinn) Sjöundi við það sýnist drottinn (Hallur) Sá áttundi er meiri spottinn (Eilífur) Dauðan níunda ei nálgast hót (Ófeigur) Nauða tíundi þyrfti um snót (Mey- vant) Hjá ellefta stendur heimskan hátt (Alfur) Heim í þeim tólfta, sá hefur átt (Steini) Þrettánda fysir fjöri að granda (Hjörleifur) sem höfum tekið böm til dvalar um lengri eða skemmri tíma, höfum til þessa ekki verið of sælar með það sem við höfum haft í aðra hönd. Það var fyrst síðastliðið sumar sem greiðslan varð 3 meðlög með bami, 10.128 krónur á mánuði eða um 330 krónur á dag. Nú hafa konum- ar á Suðurlandi komið sér saman um 4 meðlög, 14,180 krónur eða um 457 á dag (sem mun vera eitt- hvað lægra en til dagmæðra og vistforeldra í Reykjavík). Þetta eru Fjórtándi sýnir mér skipan landa (Kort) Fimmtándi á himnum fæðist og deyr (Dagur) Fleygir sextándi hvössum geir (Oddgeir) Sautjándi er afleiðing unaðs tíða (Ástvaldur) Sá átjándi má í saurinn skríða (Ormur) Ég þeim nítjánda á eldinn kasta (Kolur) Með andanum finn ég þann tuttug- asta(Loftur) Marta lætur einnig aðra nafna- þulu fylgja Karlinn heitir ofan af fyalli (Hallur) Kerlingin með ströndum fram (Bára) Sonurinn á hveiju þaki (Torfí) Dóttirin hæsta tré í húsi (Ása) Vinnumaðurinn úti og inni (Loftur) Vinnukonan í hverri stétt (Stein- unn) Eldabuskan í hvers manns yndi (Una) engin oflaun, það er nefnilega oftast meira en að segja það, að taka að sér böm í sólarhringsgæslu vikum saman, með allri þjónustu, umönn- un og ábyrgð. Sólarhringsgæsla á upptöku- heimilinu á Dalbraut kostar (í jan- úar síðastliðnum) 107.910 krónur á mánuði eða 3.597 krónur á dag. (Þetta á ekki við um geðdeildina þar er um miklu hærri upphæðir að ræða). Og hvað skyldi það svo kosta fyrir sveitakrakkana sem fara suður til náms? Bara fæði og her- bergi, að allri þjónustu, umönnum og ábyrgð slepptri. Já, þessi fyrir- sögn er eiganda sínum ekki til sóma, tilgangurinn er augljós. Sveitafólk er orðið langþreytt á þessum eilífu hnútuköstum í tíma og ótíma og mál er að linni. Svava Guðmundsdóttir Görðum, Staðarsveit Nafnaþulan Víkverji skrifar Langt er síðan fólk hefur fylgzt jafn vel með verðlagi og nú á undanfömum mánuðum. Ástæðan er að sjálfsögðu sú mikla áherzla, sem ríkisstjóm, verkalýðshreyfmg og Verðlagsstofnun hafa lagt á að vekja fólk til vitundar um að það skipti máli, að neytandinn fylgist vel með verðlagi. Þær ráðstafanir sem ríkisstjómin gerði í kjölfar kjarasamninganna til þess að koma í veg fyrir, að einstakir bílainnflytj- endur hagnýttu sér verðlækkun á bílum með því að hækka álagningu, svo og þegar hún kúgaði bankana til þess að hverfa frá hækkun á þjónustugjöldum og þegar hún kom í veg fyrir fargjaldahækkun hjá Flugleiðum á utanlandsleiðum, hafa átt verulegan þátt í að beina athygli fólks að verðlagi. Sjálfsagt er þetta allt einhver ástæða fyrir því, að Víkveiji veitti sérstaklega eftirtekt mismunandi verði á Kóka-Kóla og Tab í tveimur stórum matvöruverzlunum í borg- inni um daginn. í Víði í Mjóddinni kostar einn og hálfur lítri af þessum drykkjum í plastflöskum 79 krónur en í verzlun Sláturfélags Suður- lands í Glæsibæ kostar sama flaska 83 krónur. Verðmunur er sem sagt 4 krónur. Þetta er býsna mikill verðmunur. Af hveiju stafar hann? Er hugsanlegt að Víðir í Mjóddinni fái þessar vömr á lægra verði frá Vífilfelli hf. en Sláturfélagið? Það er nánast útilokað. Eina skýringin er sú, að Sláturfélagið leggi mun meira á þessa vöm en Víðir. Það hefur vakið athygli í fréttum frá aðalfundum Sláturfélagsins síðustu ár, að matvömverzlanir félagsins hafa verið reknar með tapi. Það skyldi þó aldrei vera skýringin á þeim taprekstri að álagning félags- ins sé svo há, að hún flæmi við- skiptavini á brott. Það er a.m.k. víst, að það verður langt þangað til Víkveiji sér ástæðu til að kaupa þessa vöm í verzlunum Sláturfé- lagsins. XXX Veitingahús, sem sérhæfa sig í kínverskum mat em vinsæl viða um Vesturlönd. Nokkmm sinn- um hafa verið gerðar tilraunir til þess að setja upp slíka veitingastaði hér en þær hafa of oft verið meiri í orði en á borði. En nú hefur þetta breytzt. Höfuðborgin hefur eignast kínverskan veitingastað, sem stend- ur undir nafni og meira en það. Þetta er veitingahúsið Shanghai, sem stendur við Laugaveg. Þetta er lítill veitingastaður, smekklega innréttaður og það sem mestu máli skiptir: kínverski maturinn, sem þar er fram borinn er afbragðs góður og stendur vel undir þeim kröfum, sem gerðar em til þess matar. Shanghai hefur aukið fjölbreytnina í veitingahúsum borgarinnar mjög. Stundum hefur það borið við, að fólki þyki matur á veitingahúsum hér ótrúlega líkur. Sjálfsagt er það vegna þess, að matreiðslumennimir em væntanlega flestir frá sama skóla. En þeir, sem koma í Shang- hai þurfa ekki að kvarta undan þessu. XXX Hvað er að gerast á skemmti- stöðum Reykjavíkurborgar? Helztu skemmtiatriðin virðast vera „blautbolskeppnir", „leðjuglíma" og „fatafellur". Allt er þetta með ein- um eða öðmm hætti tilraun til þess að standa fyrir nektarsýningum án þess að nefna það því nafni. Ung stúlka hafði orð á þessu við Vík- veija fyrir skömmu og sagði að þvl færi fjarri, að þetta væm ein- faldlega „skemmtiatriði" eins og þau sem tíðkuðust í útlöndum. Þar færu nektarsýningar fram I lokuð- um klúbbum, en hér væri verið að efna til þeirra á almennum skepmtistöðum. Ábyrgð þeirra veitingamanna, sem fyrir þessu standa er mikii. Yfirvöld hljóta að íhuga, hvort ástæða sé til að láta þetta afskipta- laust. En aðaláhyggjuefnið er þó kannski þetta: hvemig í ósköpunum stendur á því að ungt fólk lætur hafa sig í þátttöku í „sýningum" af þessu tagi. Er svo komið, að allt sé hægt að kaupa fyrir peninga á íslandi? Og ef svo er — hvað er þá næst?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.