Morgunblaðið - 29.04.1986, Page 60

Morgunblaðið - 29.04.1986, Page 60
ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986 VERÐ1LAUSASÖLU 40 KR. Verkföll á farskipunum: Fyrsta skipið stöðvast í dag Á HÁDEGI í dag hefst tveggja sólarhringa verkfall skipstjóra og áður en því lýkur hefst ótima- bundið verkfall undirmanna á farskipum. Farskipin byija að stöðvast í dag. Þórður Sverrisson framkvæmda- stjóri hjá Eimskipafélagi íslands sagði í gær að verkföllin færu strax að valda töfum í áætlun skipanna og verulegu tjóni, ef ekki semdist áður en til þeirra kæmi. í dag stöðv- ast fyrsta skip Eimskips, Skeiðs- foss, en það er að lesta saltfisk á ströndinni. Önnur skip félagsins sem voru hér á landi fóru út í gær eða fara fyrir hádegið í dag, en þau eru Goðafoss, Ljósafoss, Eyrarfoss og Laxfoss. Ifyrsta áætlunarskipið, Reykjafoss, kemur síðan á morgun Akureyri: Eldur í togar- anum Júpíter Akureyri. ELDUR kom upp í togaranum Júpíter þar sem hann Iá við bryggju í Slippstöðinni hf. á Akureyri á iaugardaginn. Verið var að vinna í skipinu er kviknaði í færibandi. Skemmdir urðu ekki verulegar — færibandið skemmdist reyndar mjög mikið og ljós og rafmagns- búnaður sem var nálægt, mun eitt- hvað hafa skemmst. Talið er að kviknað hafl í út frá rafmagni. Fljótlega tókst að slökkva eldinn. og stöðvast strax. Lagarfoss er væntanlegur og svo stöðvast þau eitt af öðru. Fjárfest í húsnæði í höfuðborginni fyrir 350 milljónir 1984 Akureyri. 20% AF seldum eignum i Reykjavík fyrir tveimur árum, 1984, voru keypt af fólki bú- settu utan höfuðborgarsvæðis- ins. Af þeim voru 5% sem ekki flutt til Reykjavíkur, þannig að þann hluta má túlka sem hreina fjárfestingu. Þessar upplýsingar komu fram í máli Stefáns Ingólfssonar, verk- fræðings hjá Fasteignamati ríkis- ins, á ráðstefnu um byggingamál sem haldin var á Akureyri um helgina. Stefán sagði að á verðlagi dags- ins í dag væri kaupverð þessara íbúða um 1,5 milljarðar og 5% af því, fjárfestingarhlutinn, væri því um 350 milljónir króna. Sjá bls. 34 og 35. Morgunblaðið/Ævar Þríburarnir á Eskifirði eru að verða eins árs. Frá vinstri eru: Jóhanna Björk, Guðni Þór og Ragnheiður Björg. Eskfirsku þríburarnir dafna vel Eskifírði. 1. maí er liðið ár frá því þríburarnir eskfirsku litu dagsins ljós í fyrsta sinn. Á því ári sem liðið er hafa þeir dafnað vel og eru nú orðnir hinir pattaralegustu. Fréttaritari Morgunblaðsins brá sér í heimsókn til þríburanna og foreldra þeirra á sumardaginn fyrsta. Foreldramir eru Magnús Guðnason og Jóna M. Jónsdóttir. Það sátu allir úti í góða veðrinu og nutu sólarinnar og voru þríburamir hinir ánægðustu og léku sér í sólinni, en sumardagurinn fyrsti hefur verið besti dagur ársins fram til þessa á Eskifirði og komst hitinn upp í 13 stig. Ævar Lítil hætta á að geislavirkni berist hingað SAMKVÆMT upplýsingum frá Veðurstofunni rflcir stíf sunnan átt í háloftunum yfír Skandinav- íu. Því var ekkert sem benti til þess í gær að geislavirkni sem vart varð í Svíþjóð og talin er koma frá kjamorkuveri norðan Kiev í Úkraínu, berist hingað til lands. Fyrirtæki í Bandaríkjunum mótmælir hvalveiðum íslendinga: Scandinavian Design neit- ar að selja íslenzkar vörur BANDARÍSKA fyrirtækið Scandinavian Design hefur neit- að að flytja inn og selja íslenskar vörur í Bandaríkjunum, svo lengi sem Islendingar stunda „sam- viskulausa slátrun hvala“, eins og segir í bréfi sem forstjóri fyrirtækisins, Celia Lindblom, ritaði Úlfi Sigurmundssyni, við- skiptafulltrúa aðalræðismanns- skrifstofunnar í New York. Scandinavian Design er stórt fyrirtæki, sem selur fyrir um 45 milljónir Bandaríkjadala á ári, aðallega húsgögn. Úlfur Sigurmundsson hafði áður leitað til Scandinavian Design að beiðni Eyjólfs Axelssonar forstjóra húsgagnaverslunar Axels Eyjólfs- sonar hf., eða AXIS, en Eyjólfur hafði áhuga á að fá Scandinavian Design til að selja fyrir AXIS svefn- herbergishúsgögn í Bandaríkjun- um. I svarbréfi forstjóra Scandina- vian Design segir: „Scandinavian Design Inc. mun ekki verða við því boði yðar að flytja inn AXIS klæðaskápa í svefnherbergi, né mun fyrirtækið flytja inn nokkra íslenska framleiðslu fyrr en íslendingar hætta þeirri samviskulausu iðju sirmi að slátra hvölum." Celia Lindblom sagði í samtali Verðbólgan getur allt eins farið yfir „rauða strikið“ ALLT bendir til þess að framfærsluvísitalan sem reiknuð er eftir verðlagi í maíbyrjun verði alveg við „rauða strikið“ sem aðilar vinnumarkaðarins miðuðu við við gerð kjarasamninganna á dögun- um. Enn er töluverð óvissa með vísitöluna en hún getur alveg eins orðið lítið eitt fyrir ofan viðmiðunarmörkin eins og fyrir neðan þau. En máhn skýrast fyrir miðjan maí þegar vísitalan verður gefin út. Við gerð kjarasamninganna var gengið út frá því að framfærslu- visitalan hækki ekki meira en um 2,5% frá áramótum til maíbyijun- ar. Vísitalan má hækka um allt að 1,16% í maí til að viðmiðunar- mörkin haldi, en hins vegar er vitað um hækkanir sem nú koma inn í vísitöluna og nema tæpu einu pró- senti. Inn í framfærsluvísitöluna kemur nú hækkun á byggingavísi- tölu, bifreiðatryggingum, áfengi og tóbaki, eggjum, auk ýmissa árstíðabundinna hækkana svo sem á ferðalögum innanlands, að- göngumiðum að knattspymuleikj- um, miðum í Happdrætti DAS og tjaldvögnum svo dæmi séu tekin. Síðasttöldu hækkanimar koma aðeins einu sinni á ári og bera þær því með sér verðbólguna í fyrra. Til frádráttar kemur svo að sjálf- sögðu bensínlækkunin. Ekki hafa verið kannaðar hækkanir á mat- vælum og fatnaði og er það óvissan í málinu. Vitað er um ákveðnar hækkanir á innflutningsverði vegna gengisþróunar, en á móti kemur að hinar hefðbundnu land- búnaðarvörur hækka ekki, og lækkanir eru á einstaka vöruflokk- um. Þá hafa iðnfyrirtækin í sumum tilvikum tekið gengisþróunina á sig án þess að hækka vöruverðið. og Víst er að svigrúmið er lítið og „í besta falli verður hækkunin undir strikinu", eins og einn við- mælandi Morgunblaðsins orðaði það. Ef hækkanimar fara yfir viðmiðunarmörkin kemur til kasta sérstakrar launanefndar ASÍ VSÍ. Hún getur ákveðið launabæt ur vegna breytinga á verðbólgufor- sendum. Verði ekki samkomulag f nefndinni skiptast ASÍ og VSI á um að ráða oddaatkvæðinu. Ef svo fer nú að vísitalan fari yfir viðmið- unarmörkin og samkomulag næst ekki um launabætur ræður ASÍ afgreiðslu málsins. við blaðamann Morgunblaðsins í gær, að með þessu móti hefði hún viljað leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir útrýmingu hvala- stofnsins. Hún sagði að það væri hreint yfirskyn hjá íslenskum stjómvöldum að hvalveiðamar væm stundaðar í vísindaskyni. „Eini vísindalegi tilgangurinn sem ég sé með þeim er að telja fjölda hvala í sjónum með því að drepa þá,“ sagði Lindblom. Sem svar við því hvers vegna hún léti óánægju sína með hvalveiðar íslendinga bitna á aðila í gjörólíkri atvinnugrein sagði Lindblom: „Ég gæti skrifað þúsund bréf til ís- lenskra stjómvalda og viðkomandi hvalveiðifyrirtækja, án þess að það hefði nokkur áhrif. Mín reynsla er einfaldlega sú að stjómvöld og hagsmunaaðilar taka ekki við sér fyrr en komið er við pyngjuna á einhvem hátt. „Þetta er dæmi um öfgafull við- brögð, sem maður stendur agndofa frammi fyrir. Og ekki nóg með það að ég fái þetta svarbréf, heldur hefur forstjóri Scandinavian Design að eigin frumkvæði tekið að sér að rita íslenska sendiráðinu í Washing- ton DC sams konar bréf. Sem betur fer er þessi harða afstaða einsdæmi, en það þýðir ekki að okkur stafí engin hætta af viðbrögðum Banda- ríkjamanna við hvalveiðum okkar. Hættan er raunveruleg," sagði Úlf- ur Sigurmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.