Morgunblaðið - 24.05.1986, Side 53
)iBAGí!^<mxs sbrvice.wwb
v -v*í. ***&■■*■-« • y-M,
Í-íJfe-tf .
' V ;**• .. v • v'r^**-'
Morgunblaöiö/Gunnlaugur Rögnvaldsson
• Sigurður Jónsson kom til landslns fyrir nokkru og mun vera með
í leikjunum gegn írum og Tékkum. Hann lelkur sem kunnugt er með
Sheffield Wednesday é Englandi. Hér er hann á aðalleikvangi félags-
ins, Hillsborough.
íþróttir helgarinnar
MIKIÐ verður sparkað á fslandsmótinu f knattspymu um þessa helgi.
Fyrstu leikirnir f 3. og 4. deild verða um helgina. Stœrsti viðburðurinn
á knattspvmusviðinu er landsleikurinn á sunnudaginn. Þé leika íslend-
ingar og írar fyrsta leikinn á Reykjavfkurleikunum. Leikurinn fer fram
á Laugardalsvelli og hefst kl. 17.00.
Tveir leikir áttu að fara fram í
dag, laugardag, í 1. deiid, en þeim
hefur verið frestað til 10. júní.
Þetta eru leikir Þórs og ÍBV og
Breiðabliks og Fram.
f dag laugardag fara fram eftir-
taldir leikir:
2. DEILD: Kl.
Gorvlgr.völlur Vlklngur, R.— IBf 14
Vallbj.völlur Þróttur, R.—Elnhorjl 17
Húsav.völlur Völs.—Skallagr.fmur 14
3. DEILD:
A Stjömuvöllur Stjaman — HV 14
A Arbæjarvöllur Fyfklr-lK 14
B Fáakr.fj.völlur Lalknlr F.—Þróttur N. 14
B Ólafafj.völlur Lalftur—Roynlr A. 14
B Royöarfl.völlur Valur Rf,—Auatrl E. 14
4. DEILD:
A Stykklah.völlur SruafaN—Haukar 14
A Grund.fl.völlur Grundarfl.—Þór Þ. 14
B Stokks.völlur Stokkaayrl—Láttlr 14
B Hvorag.völlur Hverag,—Vlklngur Ól. 14
E Hofsósvöllur Höföatr.—UMFS 14
F Lundarvöllur Núpar—HSÞ-b 14
SUNNUDAGUR:
3. DEILD:
A Gorvigr.völlur |R—Grindavfk 20
4. DEILD: Augnabllk—Skotf.R. 14
A Kópav.völlur
C Gervigr.völlur Árvakur—Hafnlr 14
C Selfosavöllur Eyfall.—Grótta 14
E KA-völlur Vaakur—Hvöt 14
F Húsav.völlur TJÖmes—Austrl R. 14
Austurlandsmótið í golfi fer
fram á Hornafiröi og verða leiknar
36 holur og hefst mótið í dag,
laugardag.
í dag, laugardag, fer fram ungl-
ingamót 21 árs og yngri í Grafar-
holti. Leikin verður punktakeppni
og hefst keppnin kl. 13.00.
Fimleikar:
Hópakeppni í fimleikum verður
í dag, 24. maí, í fþróttahúsi Sel-
tjarnarness og hefst kl. 14.00.
Þarna koma fram 14 glæsileg sýn-
ingaratriði. Tíu manna dómnefnd
velur besta hópinn en áhorfendur
velja vinsælasta hópinn. Þessi
keppni er ný hór á landi en mót
með svipuðu sniöi hafa verið hald-
in hjá nokkrum Evrópuþjóðum
undanfarin 3 ár. Þessi mót hafa
vakið verðskuldaða athygli og þá
sérstaklega fyrir sýningargleöi
keppenda og hvað áhorfendur
hafa skemmt sér konunglega.
Attundi leikur
íslands og írlands
— íslendingar hafa aldrei sigrað
en tvívegis gert jaf ntefli
JSLENDINGAR og írar lelða sam-
an hesta sfna f 8. slnn f landsleik
f knattspyrnu á sunnudaginn kl.
17.00. l8lendlngum hefur aldrei
tekist að bera sigurorð af frum f
landsleik til þessa, en tvfvegis
gert jafntefli. Fyreti landsieikur
þessara þjóða fór fram f Reykja-
vfk 1958 og unnu frar þá með
þremur mörkum gegn tveimur.
Sfðasti leikur þjóðanna fór fram
f Reykjavfk 1983 og sigruðu írar
þá 3—0. íslendingar reyna þvf að
sigra íra á sunnudaginn f fyrsta
sinn.
Það má telja líklegt að SigT Held,
landsliðsþjálfari, noti leikaöferöina
4—4—2 gegn írum á sunnudaginn.
Ef við spáum aðeins í byrjunarliðið
má telja öruggt, að Bjarni Sigurðs-
son, sem leikur með Brann í Nor-
egi, verði í markinu, en hann mun
síðan fara utan aftur. Bakverðir
verða að öllum líkindum Viðar
Þorkelsson og Gunnar Gfslason.
Miöverðir Guðni Bergsson og
Ágúst Már Jónsson. Þó gæti hann
notað Loft fyrir Ágúst Má. Þetta
er tiltölulega óreynd vöm í íslenska
landsliðinu og eru greinileg kyn-
slóðaskipti í vörninni. Á miðjunni
verða að öllum líkindum Guðmund-
ur Þorbjörnsson, Sigurður Jóns-
son, Arnór Guöjohnsen og Pótur
Ormslev. Framherjar verða senni-
lega Pétur Pétursson og Ragnar
Margeirsson. Varamenn: Friðrik
Friðriksson, markvörður, Ólafur
Þórðarson og Ágúst Már eða Loft-
ur, Guðmundur Steinsson og
HalldórÁskelsson.
f leikinn gegn Tékkum á fimmtu-
daginn bætast svo Ómar Torfason
og Sigurður Grétarsson íhópinn.
Jack Carlton, framkvæmdastjóri
írska liðsins, hefur valið byrjunar-
liðið á sunnudaginn. Hann setur
upp leikaðferðina 4—4—2. Mark-
vörður: Pat Bonner, Glasgow
Celtic. Varnarmenn: Chris Hugh-
ton, Tottenham, John Anderson,
Newcastle, Mick McCarthy,
Manchester City og Kevin Moran,
Manchester United. Miðvallarleik-
menn: Paul McGrath, Manchester
United, Ray Houghton, Oxford,
Mick Kennedy, Portsmoth og Tony
Galvin, Tottenham. Framherjar:
Frank Stapleton, Manchester Un-
ited og John Aldridge, Oxford.
y/aramenn: Gerry Peyton, Fulham,
markvörður, Pat Byrne, Shamrock
Rovers, Lian O’Brian, Samrock
Rovers, Michael Robinsson, QPR,
Morgunblafilð/Gunnlaugur Rögnvaldaaon
• Amór Guðjohnsen verður f eldlfnunni með fslenska landslMMnu á
sunnudaginn. Amór hefur náð sár að fullu af þeim meiðslum sem
hrjáð hafa hann um nokurt skeið. Hann hefur staðið sig vel með liði
sfnu Anderlecht f Belgfu og skorað mikið af mörkum. Hann varð
belgískur meistari með fálaginu og er hár f búningi liðsins.
Garry Daly, Shrewsbury Town og
Neall Quinn, Arsenal.
Dómari leiksins á sunnudaginn
kemur frá Englandi, Joe Worrall.
Línuverðir verða þeir Guðmundur
Haraldsson og Friðgeir Hallgrfms-
son. Lúðrasveit Árbæjar og Breið-
holts mun leika fyrir leik og í leik-
hléi. Sala aðgöngumiða verður á
morgun, sunnudag, viö Laugardal-
svöll. Stúkumiði kostar kr. 550.-
og stæði kr. 350.- og barnamiðinn
er á kr. 100.-. Þá er einnig hægt
að fá kort sem gilda á alla þrjá
leikina og er verð þeirra sama og
á tvo leiki. Þess skal getið að
hægt er að nota greiðslukort við
kaup á aðgöngumiðum.
Þetta er fyrsti iandsleikurinn í
knattspyrnu hér á landi á þessu
keppnistímabili og verður fróðlegt
að sjá hvar íslenska liöið stendur
gagnvart þeim írsku.
- Val.
Atli með tilboð frá 3 liðum
— og Alfreð áfram hjá Essen
Á mánudaginn hefjast svo leikir
í 3. flokki karla og eru þeir þessir:
A Arbn)arvöllur Fylklr—1Vlklng. R 20
A HelAarvöllur (K-ÍBK 20
A Valavöllur Valur-fR 20
A Vaatm.ay.völlurTýr—StJaman 20
A Kaplakr.völlur FH-lA 20
A Kópav.völlur UBK—Fram 20
B Keflav.völlur ÍBK-fK 20
B KR-völlur KR—Valur 20
Frjálsar fþróttir:
EÓP-mótið verður haldið á
Laugardalsvelli f dag, laugardag.
Búist er viö miklum fjölda kepp-
enda og skemmtilegri keppni.
Golf:
Flugleiðamótiö í golfi fer fram
hjá Keili í Hafnarfirði f dag og á
morgun. Keppt verður um vegleg
verölaun sem Flugleiðir hafa gefið.
ATLI Hilmarsson, landsliðsmað-
ur f handknattlelk, sem laikiö
hefur með GQnsburg f Vestur-
Þýskalandi f vetur, er á förum frá
fálaginu. Atli heúr átt viö meiösli
aö strfða en er á góöum batavegi
og hefur fenglö tllboö frá 3 llöum.
í samtali við Morgunblaðið f
gærkvöldi sagöi Atli aö sín mál
hefðu gengið illa eftir að hann
meiddist og forráöamenn félags-
ins komið illa fram við sig. „Ég hef
aðeins fengið ein mánaðarlaun
greidd á þessu ári, en fæ frjálsa
sölu í sárabætur. Ég á reyndar
eftir að fá það skrifiegt, en þegar
það veröur, þá er ég laus allra
mála,“ sagði Atli.
Að sögn Atla hefur hann fengið
3 tilboð, eitt frá 2. deildarliði í
Þýskalandi, svissnesku liði og Gaja
Madrid sem leikur í 1. deild næsta
keppnistímabil. „Helst vildi ég vera
í þýskumælandi landi, því það er
erfitt að læra nýtt tungumál. Á
Spáni gerir maður ekkert annað
en aö spiia handbolta, en hérna
getur maður verið f námi samfara
handboltanum og ég verð að
hugsa um atvinnumöguleika á (s-
landi, því óg á ekki eftir nema 3—4
ár í atvinnumennskunni," sagði
Atli.
Þrjú lið hafa einnig haft sam-
band við Alfreð Gíslason. Að sögn
Aifreðs eru það tvö þýsk lið og
meistarar Atletico Madrid. „Ég er
með samning hjá Essen til næsta
vors, er mjög ánægður hórna og
hugsa ekki um önnur lið, hef ekki
áhuga á að leika annars staðar,"
sagöi Alfreð.
Essen á 3 leiki eftir í deildinni
og á góða möguieika á að leika til
úrslita í bikarkeppninni. Alfreð og
félagar leika gegn Dusseldorf
heima og sigurvegarar í þeim leik
ieika gegn sigurvegurum í leik
Gummersbach gegn Dortmund.
„Dusseldorf á ekki að vera nein
hindrun og við höfum ekki tapað
fyrir Gummersbach í 3 ár.“ Síðasti
deildarleikurinn verður 7. júní og
bikarúrslitin viku seinna. Alfreð
sagðist hafa heyrt að stefnt væri
að því að fara til Islands í október
eða nóvember og leika nokkra
æfingaleiki en það væri ekki alveg
komið á hreint.