Morgunblaðið - 24.05.1986, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1986
41
Minning:
Böðvar Bjamason
byggingameistari
Fæddur 30. mars 1911
Dáinn 15. maí 1986
Nú þegar vegir skiljast hér í
jarðlífi verður efst í huga mínum
þakklæti sem mig langar að koma
á framfæri. Böðvarsholt í Staðar-
sveit fékk fljótt eftir komu mína
hingað þann sess í huga sem ekki
hefir fölva slegið á. Þar réði ríkjum
grandvarleiki, trú á góðan guð og
síðast en ekki síst að þar sást trúin
í verki. Þau hjón áttu þetta sam-
merkt og sveitungar og vinir mátu
þessa kosti. Þeim var alltaf hægt
að treysta. Úr þessum jarðvegi var
Böðvar sprottinn. Bjarnveig og
Bjarni í Böðvarsholti voru einstakir
vinir.
Böðvar sonur þeirra var búsettur
í Ólafsvík þegar ég kynntist fyrst
Snæfellingum. Þar stóð hann ásamt
öðrum í uppbyggingu kauptúnsins.
Til hans var jafnan litið sem trausts
manns, alvörumanns sem hafði
stundum nokkuð fyrir því að taka
ákvarðanir því meðvitund hans
sagði honum að það væri rétt að
vanda það sem vel á að standa.
Ég átti því þess kost að eignast
fljótt vináttu Böðvars og héldum
við tryggðum alla tíð síðan. Við
fylgdumst hvor með öðrum, mætt-
um saman á fundum og í mann-
fagnaði því í málum lands og þjóðar
áttum við samleið. Við áttum einna
mest skipti saman meðan ég var á
sýsluskrifstofunni og er mér gleði
að líta nú til þeirra stunda þakklát-
um huga. Böðvar reyndist mér vel
og þá sögu segja fleiri.
Starfsmaður var hann þeirrar
gerðar að verka hans mætti njóta
sem best og sá sem þeirra nyti
mætti ánægður verða.
Seinasta kafla ævinnar dvaldi
hann hér í Sjúkrahúsinu. Þangað
Iágu oft mín spor. Þar var vináttan
treyst enn betur. Velgengni lands
og þjóðar var honum efst í huga.
Gat ekki hugsað sér dvínandi
manndóm og mannkosti. Því var
mér gróði að eiga hann að vin og
geta rætt hispurslaust við hann mál
sem þá og þá voru á döfinni.
Þakklátum huga kveð ég því
traustan og góðan vin minn. Bið
honum allrar blessunar og bið guð
að blessa hans minningu og um
leið sendi ég hans nánustu innilegar
samúðarkveðjur.
Arni Helgason
Innilegar þakkir vil ég færa
frænda mínum fyrir alla hans hlýju
til mín og minna. Frá honum fékk
ég barn fyrstu „mubluna“ mína.
Þriggja skúffu kommóðu, sem ekki
aðeins entist mér, heldur gekk í arf
til dætra minna á þeirra bernsku-
árum. Smíðisgripirnir hans Böðvars
voru eins og hann sjálfur vandaðir
ogtraustir.
Ég minnist þess er hann kom í
heimsókn að Böðvarsholti eitt sinn
sem oftar og hafði með sér forláta
svuntu til mín frá Auði dóttur sinni
minni fyrstu varanlegu vinkonu.
í svuntusmekkinn hafði hún
saumað upphafsstafi mína með
krosssaum og var mér þar með
slyngari í handavinnu þó hún væri
yngri.
Heimafólkið dáðist réttilega
mikið að þessari gjöf, en frændi tók
skrifbókina mína sem lá á eldhús-
borðinu og fór að hrósa mér fyrir
hvað ég væri farin að skrifa vel.
Slík var nærgætni hans við barns-
sálina.
Ég minnist með þökk hve hann
var fljótur að bæta við naum fjár-
ráð okkar Auðar, þegar við sáum
í Lárubúð dáindis fallegar teskeiðar,
sem okkur langaði til að gefa ömmu
okkar í Böðvarsholti. Ég þakka fyrir
stundirnar í Urðarmúla þegar ég
og mitt fólk sat með honum hangi-
kjötsveislu á sólbjörtum sumardegi
og ég minnist hans með orf og Ijá
að slá lóðina kringum bústaðinn,
því allt varð að vera snyrtilegt.
Það fylgdi honum frænda mínum
hressandi blær, hvort heldur var í
síma eða hann kom í heimsókn.
Jafnvel þegar hann var búinn að
vega sig á handaflinu einu saman
upp stigana til okkar, gaf málróm-
urinn til kynna að þar heilsaði
maður með óbugaðan viljastyrk.
— Jæja, komið þið blessuð —
sagði hann ætíð og hló við.
Ég trúi því að hans hafi beðið
vinir í varpa og vistaskiptin hafi
ekki reynst honum þung.
Því er mér sem ég heyri þrótt-
mikla rödd hans er hann sté inn
fyrir þröskuld hins óþekkta:
— Jæja, komið þið blessuð. —
Guð gefi Böðvari Bjarnasyni góða
heimkomu.
Til ástvina hans allra senda ég
og fjölskylda mín samúðarkveðjur.
Alfheiður Bjarnadóttir
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgvnblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins
á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í
Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
I minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð um
hinn látna. Leyfilegt er að birta
ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi
og skal þá höfundar getið. Sama
gildir ef sálmur er birtur. Megin-
regla er sú, að minningargreinar
birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára
eða eldra. Hins vegar eru birtar
afmælisfréttir með mynd í dagbók
um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að
handrit séu vel frá gengin, vélrit-
uð og með góðu línubili.
Alúðarþakkir fyrir auösýnda vináttu og samúö við andlát
LOGA ELDON SVEINSSONAR,
Álfaskeiði 40, Hafnarfirði.
Jónína H. Jónsdóttir og börn.
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför
bróöur og fósturbróöur,
RAGNARS GUÐMUNDSSONAR,
frá Skoravfk,
Fellsströnd.
Áslaug Guðmundsdóttir,
Svava Tryggvadóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir faerum viö öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug
og vinsemd viö andlát og útför eiginmanns, fööur, tengdafööur
og afa,
KARLS MAGNÚSSONAR,
Þórsgötu 13.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks deildar 3B, Landakotsspítala,
fyrir frábaera umönnun.
Þóra Björnsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug viö andlát og útför
mannsins míns, föður, tengdafööur, afa og langafa,
PÉTURS LÁRUSSONAR,
Suðurgötu 17, Keflavik.
Sérstakar þakkir faerum viö læknum og starfsfólki Sjúkrahúss
Keflavikurfyrirfrábæra umönnun og alúð í sjúkralegu hans.
Kristi'n Danivalsdóttir,
Hilmar Pétursson, Ásdís Jónsdóttir,
Jóhann Pétursson, Ingibjörg Elíasdóttir,
Kristján Pétursson, Ríkey Lúðvíksdóttir,
Páll Pétursson, Hallveig Njarðvik Gunnarsdóttir,
Unnur Pétursdóttir, Snorri S. Þorgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kær móðurbróðir minn, Böðvar
Bjamason, byggingameistari, verð-
ur í dag, laugardaginn 24. maí
1986, lagður til hinstu hvílu í Búða-
kirkjugarði í Staðarsveit.
í vissum skilningi á það að vera
gleðiefni er þrautum hlaðinn líkami
fær hvíld eftir langt sjúkdómsstríð.
En ætíð er kveðjustund blandin
söknuðiogtrega.
Böndin milli Böðvarsholts-systk-
inanna hafa alltaf verið sérlega
sterk og kærleiksrík. í mínum huga,
sem ólst upp í faðmi móðursystkina
minna, var þessi keðja ætíð ung og
eilíf. En nú verður að hlíta því óum-
flýjanlega lögmáli að fyrsti hlekkur-
inn er brostinn.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
pessahelgiOtóknfaststMentar
fráM.S.,Bensborg,M.K.ogM;H.
frá M S., Flensborg, M-*- °9' •