Morgunblaðið - 24.05.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986
7
Fossvogsdalurinn
og framtíð hans
— eftir Geir G.
Gunnlaugsson
Fossvogsdalur kallast landið sem
liggur frá sjó til Elliðaárósa. Hann
er skjólsæll og sólríkur enda hafa
þúsundir aðkomumanna lagt leið
sína þangað til þess að setjast þar
að. Þeir hafa byggt þar framtíðar-
heimili fyrir sig og sína og nú er
svo komið að hlíðar dalsins beggja
megin eru þéttbyggðar fallegum
húsum með vel hirtum lóðum prýdd-
um blómum og tijágróðri. Neðst í
hlíðinni Reykjavíkurmegin þekur
kirkjugarðurinn stórt svæði og við
hann er útfararkirkja og líkhús. Þar
hafa hundruð íbúa dalsins kvatt
ástvini sína hinstu kveðju og staðið
þögulir andspænis óráðinni gátu um
framhald lífsins. Neðar í dalnum
tekur við skógræktarsvæðið með
fallegum tijám og stiklabeðum. Þar
eru þúsundir tijáa í uppeldi, sem
munu prýða hýbýli manna víðs
vegar um landið. I skógræktar-
stöðvunum er búið að vinna mikil
afrek og vert væri að halda áfram
og láta tijágróðurinn ná alla leið
eftir dalnum inn að Elliðaám. Þetta
yrði yndislegt útivistarsvæði fyrir
íbúa beggja megin dalsins og alla
aðra er þangað koma til þess að
ieita hvfldar, friðar og fegurðar í
gróðurríki náttúrunnar. í dalnum
blandast saman sjávar- og fjallaloft
og dalurinn verður bæði hægra og
vinstra lunga byggðarlagsins. Þeir
sem búa í dalnum njóta þess að
sjá sólarupprásina í austri lýsa með
glampandi morgunroða yfir dalinn
og horft á sólarlagið þegar loftið
verður allt glitrandi ljóshaf.
Þið landnemar Fossvogsdalsins
megið aldrei láta leggja hraðbraut
eftir dalnum. Hún mundi leggja
alla gróðurrækt í eyði og spilla ró
og friði íbúanna.
Ef um er að ræða einhver um-
ferðarvandamál á þessu svæði er
það í verkahring sérfræðinga að
leysa það. Siíkt ætti að vera auð-
leyst ef vilji er fyrir því: Umferðar-
vandann má aldrei leysa á kostnað
tilfinninga þeirra sem dalinn byggja
og þykir vænt um hann.
Höfundur er bóndi í Lundi íFoss-
vogi.
Stofnun Jóns Þorlákssonar:
Tveir nýir fram-
kvæmdaráðsmenn
SIGURÐUR Helgason stjórnar-
formaður Flugleiða og Hörður
Siugrgestsson forstjóri Eim-
skipafélags íslands hafa tekið
sæti í framkvæmdaráði Stofnun-
ar Jóns Þorlákssonar.
í framkvæmdaráðinu áttu sæti
fyrir þeir Pétur Bjömsson forstjóri
Vífílfells hf., Ragnar Halldórsson
forstjóri íslenska álfélagsins, Ingi-
mundur Sigfússon forstjóri Heklu
hf., Árdís Þórðardóttir rekstrarhag-
fræðingur, Sigurður Gísli Pálmason
forstjóri Hagkaups hf., Hjörtur
Hjartarson forstjóri J. Þorláksson
og Norðmann, Friðrik Kristjánsson
forstjóri Dimon sf., Brynjólfur
Bjamason forstjóri Granda hf. og
Oddur Thorarensen apótekari í
Laugavegs apóteki.
Á vegum stofnunarinnar hafa
komið út ritsafn Jóns Þorlákssonar
forsætisráðherra, sem stofnunin er
kennd við, og „í sjálfheldu sér-
hagsmunanna" eftir Milton Fried-
man nóbelsverðlaunahafa í hag-
fræði. Þá hefur stofnunin hlutast
til um að fá útlenda fræðimenn til
landsins og þar á meðal er Milton
Friedman.
Stofnun Jóns Þorlákssonar tók
til starfa í ársbyijun 1983. í frétta-
tilkynningu frá stofnuninni segir
m.a. að hún sinni rannsóknum á
sviði stjórnmála og efnahagsmála
með almenningsheill að leiðarljósi
og að hún sé óháð hagsmunahópum
og stjómmálaflokkum. Þá segir að
á næstunni séu væntanleg rann-
sóknarrit um einkaskóla eftir Þor-
varð Elíasson og Guðmund Heiðar
Frímannsson, um velferðarríkið
eftir dr. Vilhjálm Egilsson hag-
fræðing og um stjómarskrármálið
eftir dr. Hannes H. Gissurarson
stjórmálaheimspeking og fram-
kvæmdastjóra stofnunarinnar frá
upphafí.
I rannsóknarráði stofnunarinnar
em m.a. Ámi Vilhjálmsson prófess-
or, dr. Guðmundur Magnússon pró-
fessor, Jónas H. Haralz bankastjóri
og dr. Þór Whitehead prófessor.
Morgunblaðið/Júlíus
Rangá verður írafoss
Flutningaskipið Rangá, sem áður var í eigu Hafskips, hefur nú
fengið nýtt nafn með nýjum eigendum. Skipið nefnist nú írafoss
og siglir undir merkjum Eimskipafélags Islands. Meðfylgjandi
mynd var tekin í Reykjavíkurhöfn nýverið, eftir að nafni skips-
ins hafði verið breytt, en þá var verið að búa það undir fyrstu
siglinguna með hinu nýja nafni.
ísaksskóli:
Afmælis-
sýning
ÍSAKSSKÓLI er 60 ára um þess-
ar mundir og í tilefni þessa
áfanga í sögu skólans og tvö
hundruð ára afmælis Reykjavík-
urborgar, verður nú um helgina
haldin þar sýning.
Opið verður laugardag og sunnu-
dag milli kl. 14.00 og 18.00 báða
dagana.
„Á þessari sýningu ber að líta
margt fróðlegra og skemmtilegra
muna úr skólastarfínu í 60 ár, sem
vekur væntanlega athygli jafnt eldri
nemenda sem og annarra," segir í
frétt frá skólanum.
Tónleikar
í Hlégarði
Sunnudaginn 25. mai kl. 17.00
halda Sigrún Hjálmtýsdóttir,
sópran, Anna Guðný Guðmunds-
dóttir, undirleikari og Jónas
Ingimundarson, píanóleikari,
tónleika í Hlégarði.
Tóníeikamir eru á vegum menn-
ingarmálanefndar Mosfellshrepps
og eru lokaatriði á Qölbreyttri
dagskrá „Vordaga í Mosfellssveit",
sem hófst 19. apríl sl.
VEL KLÆDD
SÍMASKRÁ
SIMASKRA
alltaf sem ný í kápunni
frá Mulalundi
Engrí bók er flett jafnmikið og símaskránni.
Hún þarf því að eiga góða yfirhöfn svo hún
losni ekki úr böndunum og verði illa til reika.
í hlífðarkápunni frá Múlalundi, vinnustofu
SÍBS, er símaskráin vel varin!
Fæst í öllum helstu bóka- og ritfangaverslunum Iandsíns
Múlalundur, Hátúni 10 C, Símar: 38450 38401
§
&
cr
3
p
UJ
ÞYSKALAND
t' sBSnw
# WBf *•§. i
Mosel — Bayern
Eins og ævfntýrabók
— Kues
Mosel Hotelpark
Frábær gististaður í fögru umhverfi með öllum
þægindum, kjörinn staður fyrir alla íjölskylduna
að njóta lífsins og hinna óteljandi ferðamöguleika
um fögur þorp og borgir.
Austur-
il |HÉ
.
*
Wmm
og náttúrnfegurð.
..
BROTTFÖR VIKULEGA Á LAUGARDÖGUM.
VERÐ FRÁ KR. 23.400 í 2 VIKUR.
í Ratzenriedhöll við rætur þýzku Alpanna
Boðið er upp á námskeið á fimm mismunandi ,, ,, , >,
stigum, frá byijendum, frá 3 vikum. Val um heima- <
vist eða dvöl á einkaheimilum.
Austurstræti 17, sími 26611.
Feröaskrífstofan
ÚTSÝIM
FEGURÐ, LETTLEIKJ OG LJUFAR VEGIAR, SKOGAR, VOTN OG SVEITASÆLA