Morgunblaðið - 24.05.1986, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.05.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986 3 Listahátíð: Miðasala hefst í dag MIÐASALA Listahátfðar opnar í dag. Þegar Morgunblaðið leit inn í miðasöluna í gær voru miðasölu- konur í óða önn við að koma sér fyrir í Gimli og gera allt klárt fyrir opnunina kl. 14.00 í dag. Að sögn framkvæmdastjóra Listahátíðar hefur mikið verið spurt um einstök atriði og því búist við mikilii ös. Mest hefur verið spurt um Claudio Arrau, Dave Brubeck og leiksýningu Ingmar Bergman frá Svíþjóð. Þá i mun unga kynslóðin ætla sér stór- an hlut í popptónleikunum í lok hátíðarinnar. Tvær nýjar verzlan- ir ÁTVR næsta ár Verzluninni í Laugarásnum verður lokað UM MITT næsta ár verður opnað nýtt útibú Áfengis og tóbaksversl- unar ríkisins og verður það f Kringlunni, nýja Hagkaupshúsinu. Þá tekur einnig til starfa nýtt útibú í Mjóddinni í Breiðholtinu, en um leið og það tekur til starfa verður útibúinu í Laugarásnum lokað. „Við höfum fengið mikið af kvörtunum frá íbúum í Laugarás- hverfi, vegna mikillar umferðar í kring um útibúið þar. Verslunin er einnig of lítil til með sinna þeim verkefnum sem hún á að sjá um og verður henni þvf lokað og annað útibú opnað í nýju húsnæði ÁTVR í Mjóddinni" sagði Höskuldur Jóns- son forstjóri ÁTVR. Áfengis og tób- aksverslunin á einnig húsnæði í Glæsibæ, það er í leigu næstu 5-6 árin, en að þeim tíma liðnum er fyrirhugað að flyfja verslunina á Snorrabraut í Glæsibæ. „Ekkert hefur verið rætt um það af okkar hálfu að flytja útibúið á Lindargötunni, en við höfum fengið fyrirspurnir þar að lútandi vegna breytinga á skipulagi." JNNLEN'T Samband hljómplötuframleiðenda: Oskar eftir opin- berum afskiptum af innflutningi á tónböndum SAMBAND hljómplötuframleiðenda hefur farið fram á afskipti fjár- málaráðuneytisins vegna innflutnings á tónböndum og álits á því, hvort hugsanlega sé urn lögbrot að ræða í ákveðnum tílgreindum tilvikum. I bréfi sambandsins til ráðuneytisins er meðal annars látin í Ijós sú skoðun, að ákveðin fyrirtæki skjóti sér undan greiðslu höfundaréttargjalds og tolls með þvi að flytja inn átekin tón- og myndbönd, sem síðan séu seld sem óátekin. í bréfínu er vitnað til breytinga á höfundalögum frá 1984 þar sem meðal annars var lögfest tiltekið gjald á innflutt auð tón- og mynd- bönd. Segir þar ennfremur að fjöl- földunarfyrirtækjum hafi þá verið falið að sjá um innflutning og tolla- meðferð auðu tónbandanna. Að því búnu hafí viðkomandi fjölfóld- unarfyrirtæki tekið upp fremst á tónböndin eitt lag, lagstúf eða fuglasöng og síðan endurselt fyrr- greindum innflutningsfyrirtækjum alla sendinguna gegn lágri þóknun. Á tónbandið hafí verið límdur miði sem á stóð: „Átekin kasetta, upp- tökubónus, hreinsiband fremst og aftast". Samband hljómplötuframleið- enda bendir á, að í auglýsingum innflutningsfyrirtækjanna hafí komið fram að tónböndin séu aug- lýst og síðan seld sem auð tónbönd með framangreindum upptökubón- us og seld á 135 krónur í stað 175 króna, sem venjuleg auð tónbönd kosti hjá flestum öðrum innflytjend- um á auðum tónböndum. „Með því að skjóta sér undan greiðslu svo- nefnds höfundarréttargjalds og með því að greiða 20% tolla af auðu tónböndunum í stað 75% fæst svo lágt verð sem raun ber vitni hjá umræddum innflutningsfyrirtækj- um,“ segir í bréfí SHF til fjármála- ráðuneytisins, þar sem óskað er eftir afskiptum ráðuneytisins að þessu máli. Listahátíð mun reka næturklúbb á Hótel Borg NÆTURKLÚBBUR mun starfa á Hótel Borg á meðan á Listahá- tíð stendur. Þeir einir hafa að- gang sem kaupa meðlimakort í miðasölu Listahátíðar og einnig allir þeir listamenn sem koma fram á hátiðinni. í frétt frá Listahátíð segir að tilgangurinn sé að gefa gestum hátíðarinnar tækifæri til að hitta hina einstöku listamenn persónu- lega en þeir munu jafnframt flestir búa á Hótel Borg. Fjöldi meðlima í listahátíðarklúbbnum er takmark- að við 400. Inntökugjald er 1200 kr. og fá félagar kort sem gildir sem aðgangskort að klúbbnum á meðan á Listahátíð stendur. Klúbb- urinn verður opinn öll kvöld til þijú eftir miðnætti og verða ýmiskonar uppákomur á dagskrá með þeim listamönnum sem koma annars fram á hátíðinni. Klúbbkort eru númeruð og fær Ingmar Bergmann kortnúmer 1. Utvarpsráð: Innlend tónlist leikin fyrir sjónvarpsfréttir Á FUNDI útvarpsráðs þann 9. mai síðastliðinn flutti Haraldur Blöndal tillögu um að hætt verði að flytja dægurtónlist með er- lendum texta fyrir sjónvarps- fréttir og jafnframt kappkostað að flytja innlenda tónlist og/eða tónlist flutta af innlendum tón- listarmönnum. Tillaga þessi var studd af þeim Áma Bjömssyni, Magnúsi firlends- syni, Ingu Jónu Þórðardóttur og Ingibjörgu Hafstað og var hún samþykkt í útvarpsráði. Eiður Guðnason var á móti tillög- unni. Hann kvaðst andvígur því að útiloka ákveðna flokka tónlistar úr sjónvarpi og lagði áherslu á að leik- in verði fjölbreytt tonlist, innlend og erlend, fyrir fréttir í sjónvarpi. DAIHATSU sýning Frá kl. 1-5 Allir gæðabílarnir frá Daihatsu. Daihatsuumboðið s. 685870-681733
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.