Morgunblaðið - 25.06.1986, Síða 3
3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDÁGUR 25i JÚNÍ 1986
Útboð Vegagerðarínnar:
Lægstu tílboð allt nið
ur í 54% af áætlun
830 þúsund krónur, sem er 81,6%
af kostnaðaráætlun. Kostnaðará-
ætlun var rúmlega ein milljón og
voru 3 tilboð yfír áætlun en 5
undir. Æki sf. á Blönduósi átti
lægsta tilboð í mölburð á Skagavegi
í Skagafírði, 373 þúsund krónur,
sem er 69,6% af kostnaðaráætlun.
Sex tilboð bárust í verkið, öll nema
tvö undir áætlun.
LÆGSTU tilboð í vegalagningar
í nýlegum útboðum hjá Vegagerð
rikisins voru á bilinu 54 til 82%
af kostnaðaráætlun. Tilboð í
klæðingar voru töluvert yfir
áætlun.
Gunnar og Kjartan áttu lang
lægsta tilboðið í nýbyggingu vega
við Egilsstaði og Fellabæ. Tilboð
þeirra var tæpar 5 milljónir sem
er 54% af kostnaðaráætlun er hljóð-
aði upp á 9,2 milljónir kr. Næst
lægsta tilboð var 8,7 milljónir og
síðan voru þijú til viðbótar öll tals-
vert yfír kostnaðaráætlun. Verki
þessu á að vera lokið fyrir 1. októ-
ber.
Átta tilboð bárust í styrkingu 5
km af Siglufjarðarvegi í Skagafírði
í sumar. Vísir á Akranesi átti
lægsta tilboð 3,4 milljónir kr.
(56,8% af kostnaðaráætlun). Hin
tilboðin voru á bilinu 4,6 til 6,8
milljónir kr. Stefán Guðjónsson á
Sauðárkróki átti lægsta tilboðið í
Héraðsdalsveg um Stapasneiðing,
Þrír verktakar buðu í klæðingar
vega á Suðurlandi í sumar. Kostn-
aðaráætiun var 5.660 þúsund krón-
ur. Lægsta tilboðið var frá Gunnari
og Guðmundi, 6,3 milljónir kr.
(11,4% yfír kostnaðaráætlun). Hin
tilboðin voru hærri.
Franska listflugsveitin í einu sýn-
ingaratriða hennar.
Frönsk listflug-
sveit í Keflavík
LISTFLUGSVEIT franska flug-
hersins, Patrouille de France,
kemur í dag til Keflavíkurflug-
vallar á Ieið sinni í sýningaför
um Bandaríkin. Flugmennirnir á
hér á landi og halda ferðinni
áfram í fyrramálið.
í frönsku sveitinni verða 10 þotur
af gerðinni Alpha-jet, en að jafnaði
mynda átta þotur sýningarsveitina.
Einnig er í förinni Mystere-20 þota,
sem flytur fylgdarlið flugsveitarinn-
ar.
Patrouille de France-sveitin mun
sýna listflug víða um Bandaríkin
og Kanada, m.a. yfír frelsisstytt-
unni í New York á þjóðhátíðardag
Bandaríkjamanna, 4. júlí nk. Sveitin
kemur hér einnig við á bakaleiðinni,
um miðjan ágúst.
Þá kemur listflugsveit ítalska
flughersins, Frecce Tricolori, við á
Keflavíkurflugvelli 12. júlí á leið
sinni til Bandaríkjanna. Flugmenn-
imir munu eiga næturdvöl á ísiandi
og halda ferðinni áfram næsta dag.
Sveitin, sem telur 12 sýningarvélar
og 2 fylgdarvélar, kemur einnig við
hér á heimleiðinni, 14.-15. septem-
ber.
Skúli Guðjónsson
Skúli Guðjóns-
son á Ljótunnar-
stöðum látinn
SKÚLI Guðjónsson á Ljótunnar-
stöðum andaðist sl. laugardag.
Skúli var fæddur að Ljótunnar-
stöðum í Hrútafírði 30. janúar
1903. Foreldrar hans voru hjónin
Guðjón Guðmundsson bóndi á Ljót-
unnarstöðum og Björg Andrésdótt-
ir.
Skúli var við nám í Samvinnu-
skólanum veturinn 1927 til 28 en
hóf búskap á Ljótunnarstöðum árið
1936 og bjó þar síðan.
Skúli missti sjónina 1946 en lét
það ekki aftra sér frá ritstörfum,
lærði á blindraritvél og sendi frá
sér fjölda bóka. Hann samdi mörg
útvarpserindi og ritaði bæði í blöð
ogtímarit.
Hann var um skeið vegaverk-
stjóri í Bæjarhreppi, formaður
ungmennafélags sveitarinnar og
Verkalýðsfélags Hrútfirðinga. Skúli
sat í Búnaðarráði og var í flokks-
stjóm Sósíalistaflokksins f nokkur
ár.
Skúli Guðjónsson verður jarð-
sunginn frá Prestbakkakirkju á
laugardaginn kemur.
vera^bffl
FIAT UNO hefur ekki að ástæðulausu hlotið fjölda alþjóða viðurkenninga og verðlauna,
þ.á m. verið kosinn bíll ársins 1984 af kröfuhörðustu bíladómurum Evrópu.
Vinsældir FIAT UNO undanfarin ár eru einkum að þakka frábærri hönnun yfirbyggingar,
miklum aksturseiginleikum og sparneytni, eins og FIAT er einum lagið.
.
Verð frá kr. 257.800
(Uno 45 3 d) (gengi 18/6 '86)
<*«£*.*.
v^89''3
Bnnn UMBOÐIÐ
SKFIFIJNNI 8 - SÍMI 688850