Morgunblaðið - 25.06.1986, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 25.06.1986, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1986 7 MorgunblaOið/Þorkell Frá opnunarhátíðinni. Mórasveitin sá um tónlist. Hana skipuðu f.v., Jóhann Morávék, Birgir Bald- ursson, Þröstur Þorbjörnsson, Pálmi Einarsson, Þröstur Harðarson og Björn Davíð Kristjánsson. í rólunum eru þau Felix Bergsson og Ingibjörg Sveinsdóttir, en þau sáu um kynningu á opnunar- hátiðinni. Norræn leiklistarhátíð í Þjóðleikhúsinu: Reykjavík miðpunktur norrænnar áhuga- mannaleiklistar í GÆR, þriðjudag, var sett í Þjóðleikhúsinu Norræn leiklistarhátíð áhugamanna sem haldin er í Reykjavík. Stendur hún til 24. júlí. Viðstödd opnunina voru m.a. þau Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, sem er verndari hátíðarinnar, Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra, og Davíð Oddsson, borgarstjóri. Opnunarhátíðin hófst á leik Mórasveitarinnar á tónlist frá Grænlandi, Samabyggðum, Álandseyjum og Færeyjum. Þessar þjóðir eru allar með fulltrúa á há- tíðinni og er þetta í fyrsta sinn sem allar Norðurlandaþjóðimar koma saman til að leika. í ávarpi sem Einar Njálsson, formaður Bandalags íslenskra leik- félaga, flutti á opnunarhátfðinni kom fram að hugmyndin að þessari hátíð hefði kviknað á ráðstefnu sem norræna áhugaleikararáðið NAR (Nordisk amatörteaterrád) hélt á Húsavík 1983. Á ráðstefnum NAR hefur síðan verið flallað um menningu Norðurlanda frá ýmsum sjónarhomum, námskeið verið haldin fyrir höfunda til að hvetja þá til þess að skrifa út frá norr- ænni menningu og fyrir leikstjóra til þess að setja slík leikrit upp. „Þessi leiklistarhátíð sem Bandaiag íslenskra leikfélaga hef- ur skipulagt í samvinnu við NAR er þannig frumsýning á þriggja ára verkefni undir heitinu Norræn menningararfleifð f víðasta skiln- ingi,“ sagði Einar í ávarpi sínu. Ella Royseng, formaður NAR, sagði Reykjavík nú vera orðna miðpunkt norrænnar áhuga- mannaleiklistar. Leiklistin væri táknræn fyrir norrænt bræðralag og skilning. „Við munum skemmta okkur næstu daga á götum Reykjavíkur," sagði Ella. Davíð Oddsson, borgarstjóri, ávarpaði samkomuna næstur og bauð hann, á vegum borgarinnar, gestina velkomna. Leiklist hefur alltaf verið mikilvægur þáttur í fslensku menningarlífi, sagði Dav- MorgimblaðkJ/Porkell Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, á opnunarhátíðinni, hún er vemdari þessarar leiklistarhátíðar. Hún ræðir hér við Svein Einarsson, formann Leiklistarsambands íslands, og Karinn Virolainen, fyrrverandi ráðherrafrú. Morgunblaðið/Þorkell Haldið niður á Lækjartorg, þar sem dagskrá hátíðarinnar hófst. Leikhópurinn Veit mamma hvað ég vil? stjómar ferðinni. íð, þó að áhugaleiklist hefði Ifklega verið ríkari þáttur úti á landi. Sagði Davíð borgina nú vera að reisa borgarleikhús í samvinnu við Leik- félag Reykjavíkur og vonaðist hann til að þátttakendur í hátfðinni hefðu tíma til þess að skoða það meðan á dvöl þeirra hér stæði. Næstur lék Söngkór leikfélag- anna nokkur íslensk lög undir stjóm Helgu Gunnarsdóttur, kenn- ara við Leiklistarskóla íslands. Opnunarhátíðinni lauk svo með því að Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra, opnaði há- tíðina og bauð síðan upp á veiting- ar 5 Kristalsal Þjóðleikhússins. í setningarræðu sinni ítrekaði Sverrir gildi norræns samstarfs. Sagði hann það gleðja sig að Samar, Færeyingar, Álandseying- ar og Grænlendingar tæku nú þátt í samkomu af þessu tagi og að okkur gæfíst nú tækifæri á að kynnast menningararfí þeirra. Síðan var haldið fylktu liði niður á Lækjartorg og lék leikhópurinn Veit mamma hvað ég vil? á leið- inni. Þar hófst síðan dagskrá hátíð- arinnar með sýningu danska Kast- rup-hópsins. Norðurlandamótið í brids: Norðmenn efstir eftir fimm umferðir NORÐMENN em efstir bæði í opnum flokki og flokki kvenna á Norðurlí .ndamótinu í brids í Noregi þegar mótið er hálfnað. Lið íslnnds í opnum flokki byijaði vel, sigraíi Færeyinga 23-7 í fyrstu umferð cg Noreg 19-11 í annarri umferð og voru íslendingar þá efstir. í þriðju umferð töpuðum við hins vegar fyrir Dönum 5-25 en sigruðum Svía síðan 18-12. í fímmtu og sfðustu umferð í fyrri hluta mótsins skildu sveitir íslands og Finnlands jafnar, 15—15. Önnur úrslit voru: Danmörk-Finnland 18—12, Svíþjóð-Noregur 17—13, Finnland-Færeyjar 24—6, Svíþjóð- Danmörk 17—13, Færeyjar-Noreg- ur 9—19, Svíþjóð-Finnland 17—13, Danmörk-Færeyjar 25—2, Noreg- ur-Finnland 22—8, Noregur-Dan- mörk 22—8, Svíþjóð-Færeyjar 25—5. í leik Færeyinga og Norð- manna fengu Norðmenn tvö refsi- stig fyrir að rugla spili. Hótel Garður tekið til starfa Hótel Garður hefur verið opnað í sumar og verður opið til 31. ágúst. Það er rekið af Félags- stofnun stúdenta á Gamla Garði við Hringbraut. Rúm er fyrir 90 gesti í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum. Auk þess em nokkur svefnpokapláss. Eins manns herbergi kostar 1.250 krónur yfir nóttina, tveggja manna herbergi 1.750 krónur og svefn- pokapláss eða aukarúm 420 krónur. Hægt er að fá morgunmat en annan mat vérða menn að sækja út í bæ. Eftir fímm umferðir er staðan í opna flokknum því þessi: Noregur 90 Danmörk 89 Svíþjóð 88 ísland 80 Finnland 67 Færeyjar 29 Sveit Islands skipa þeir Jón Bald- ursson, Sigurður Sverrisson, Þórar- inn Sigþórsson og Þorlákur Jóns- son. Til vara er Sævar Þorbjöms- son. Bjöm Theodórsson er fyrirliði beggja fslensku liðanna. I kvennaflokki sigruðum við Dani í fyrstu umferð 18—12 sem er góður árangur því Danir þykja hafa mjög sterku liði á að skipa. í annarri umferð töpuðum við hins vegar fyrir Svíþjóð 5-25. í þriðju umferð sat sveit Islands hjá og fékk 17 stig fyrir. í fjórðu umferð í kvennaflokki tapaði sveitin fyrir sveit Norðmanna 10-20. í fimmtu umferð sigraði fs- lenska sveitin síðan sveit Finna 16-14. Staðan í kvennaflokki er þvf þessi þegar mótið er hálftiað: Noregur 88 Svíþjóð 86 Finnland 73.5 Danmörk 70.5 ísland 66 Sveit íslands í kvennaflokki skipa þær Esther Jakobsdóttir, Valgerður Kristjónsdóttir, Dísa Pétursdóttir og Soffía Guðmundsdóttir en Dröfn Guðmundsdóttir til vara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.