Morgunblaðið - 25.06.1986, Síða 43

Morgunblaðið - 25.06.1986, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ1986 43 „Verið miskunn- samir, fúsir að fyrirgefa“ Til Velvakanda. Orð Guðs segir: „Verið mis- kunnsamir, fúsir að fyrirgefa hver öðrum ... dæmið ekki." Þessi boðskapur á brýnt erindi til okkar íslendinga í dag, þegar mörg og erfið mál, sem Qalla um gjaldþrot, Qárdrátt og alls konar fjármálaóreiðu, hafa komist upp og eru í rannsókn. Við skulum varast að áfellast og dæma þá menn, sem í þessu lenda. Þeir munu fá sinn dóm, ef sekt þeirra sannast að rannsókninni lokinni. Við skulum þvert á móti biðja fyrir þeim og sýna fýrirgefandi elsku. Við skulum líka biðja fyrir ástvinum þeirra, eiginkonum, böm- um, foreldrum og vinum. Og við skulum biðja fyrir dómendum og réttvísi landsins. Og við skulum biðja fyrir fjölmiðlafólkinu, að það öðlist visku og vísdóm í fréttaflutn- ingi og kunni sér hóf. Þessi mál eru mikil ógæfa og harmleikur fyrir okkur öll sem þjóð. Hin illu öfl hafa unnið mikið tjón, en takmark þeirra er að koma hér á allsherjar upplausn og óhamingju. Við höfum farið frá Guði, van- rækt boðorð hans og vilja. Þess vegna höfum við kallað yfír okkur þessa ógæfu. Nú þurfum við öll að taka okkur á og gjöra iðmn og viðurkenna fyrir Guði, að við höfum syndgað og biðja hann um fyrir- gefningu. Og það mun ekki standa á Guði föður að fyrirgefa og græða sárin. Látum því sættast við Guð og alla menn. Biðjum án afláts. Guð blessi ykkur öll. Sr. Halldór S. Gröndal *eggja UPP laupana. Ég vona að íslenska þjóðin láti það ekki til sín spyijast að hrekja ágætan mann úr starfi þó svo að hann hafi þegið vinargreiða. Við hljótum öll að eiga okkar vini hvar í pólitík sem þeir standa en þá kemur það ekki málinu við ef þeir þurfa á okkar stuðningi eða vináttu að halda." I 17. júní í Kópavogi — lítið gert fyrir yngstu kynslóðina Móðir í Kópavogi hringdi: „Mikið langar mig að spyrja þá sem sáu um skemmtiatriðin í Kópavogi á 17. júní hvort ekki hefði verið hægt að gera betur fyrir yngstu kynslóðina. Brúðu- bíllinn var með ágæta sýningu en aðeins lítill hópur gat séð hana vegna skipulagsleysis. í stað þess að láta bömin setjast þá tróðst hver sem betur gat með bömin á háhest, þannig að aðeins örfáir komust að. Á meðan á sýningu brúðubílsins stóð var verið að teyma undir bömunum á hestum og þeir sem vildu lofa bömum sfnum að fylgjast með sýningu brúðubílsins misstu alveg af því. Icy flokkurinn kom fram eftir að sýningu brúðubflsins lauk og fannst mér þau standa sig mjög vel þrátt fyrir hörmuleg skilyrði sem boðið var uppá varðandi hljómflutningstæki á staðnum. Þó finnst mér verst hve lítið var gert fyrir yngstu kynslóðina. Þvf miður virðist ekki um annað að ræða fyrir fólk í Kópavogi en fara til Reykjavíkur með bömin sín á 17. júní.“ Þessir hringdu . . Afturtil Edens — hefur lengi verið til á mynd- bandaleigunum GPÞ hringdi: „Er þeim hjá sjónvarpinu ekki kunnugt um að framhaldsþættimir „Aftur til Ekiens“, sem nú er verið að sýna á sunnudögum, hafa verið til leigu á myndbandaleigum borgarinnar undanfamar vikur? Væri ekki rétt hjá þeim sem sjá um sjónvarps- dagskrána að kynna sér-hvað er á myndbandaleigunum áður en þeir velja efni í dagskrána? Það fínnst mér ekki nema sjálfsagt aðþeirgeri." Alltof mikil knatt- spyrnudýrkun ÞJ hringdi: „Alveg er það yfir- gengilegt hversu mikill tími af dagskrá sjónvarpsins er tekinn undir þessar eilffu knattspymuút- sendingar. Sjálf hef ég ekkert gaman af knattspymu og hef aldrei haft. Svo skilst manni að stórfé fari í að kaupa þessa bolta- leiki sem aðeins brot af sjón- varpsáhorfendum hefur gaman af. Væri ekki nær að nota þessa peninga til að fá betri kvikmyndir f sjónvarpið og fjölga þeim kannski líka. Þannig væri áreið- anlega komið til móts við vilja fleiri sjónvarpsáhorfenda. Og umfram allt — hættið, eða að minnsta. kosti dragið vemlega úr þessum beinu knattspymuútsend- ingum.“ Sýnir innræti alþýðu- bandalagsmaiuia þegar áreynir Valborg Böðvarsdóttir hringdi: „Eg get nú ekki orða bundist í sambandi við mál Guðmundar J. Guðmundssonar. Mest er ég hissa á Albert að þurfa að leita á náðir annarra fyrirtækja þó svo að hann vilji styrkja vin sinn til þess að ná heilsu eftir alvarleg veikindi. Ég hélt að hann og hans fyrirtæki hefðu bolmagn til þess að sýna þennan vinargreiða. Hitt er svo annað mál að enda þótt Eimskip og Hafskip hefðu aðstoð- að í þessu máli þá held ég nú að annað eins hafi skeð án þess að stórmál sé gert úr því. Én við- brögð flokksfélaganna komu mér ekki sérlega á óvart. Þetta sýnir innræti alþýðubandalagsmanna þegar á reynir. Hvemig væri þjóð- in stödd ef við ættum að hafa svona lið yfir okkur. Þau virðast ekki einu sinni hafa mannlegar tilfinningar, hvorki Ólafur R. Grímsson né Guðrún Helgadóttir. Mér fannst forstjóri Eimskip mjög mannlegur og afbragðsgóður þegar hann svaraði fyrir sig f sjón- varpinu. Ef að við eigum að hætta að hjálpa þeim sem hjálpar er þörf er eins gott fyrir okkur að Burt með gróðurböðulinn af suðvesturhorninu Til Velvakanda. Við sem höfum horft uppá það hvemig gróðureyðing á sér stað eftir yfírferðir rollunnar viljum burt með rolluna af suðvestur-hominu svo gróður megi dafna á ný því lítið þýðir að bera áburð á landið meðan kindin étur gróðurinn upp jafn harðan. Til vara mætti hafa hagagirðing- ar fjárheldar og láta rollukarlana kosta það sjálfa og bera allan kostn- að ef rollur sleppa út. Það er þungur baggi á skattborgumm þessi of- framleiðsla á landbúnaðarvörum, 9 þúsund kr. á hvert mannsbam í landinu á ári — 36 milljarðar síðast- liðin 12 ár. Það væri annað og betra ísland nú ef við hefðum ekki tekið peninga frá launafólkinu f rollubú- skapinn heldur í arðvænlegan bú- skap. Því finnst mér rétt að banna hobbýrollueign hér við suð-vestur homið, svo að þeir sem lifa alfarið á rollum til sveita þurfí eigi að minnka jafnmikið við sig og annars þyrfti. Þeir sem græða upp landið — þeir gefa, þeir fegra, þeir auðga. En þeir sem reka hobbýféð á land okkar þeir taka, þeir skemma, þeir tortíma. Pétur Sigurðsson íslenski hárgreiðsluhópurinn. Islenskt hárgreiðslu- fólk til Wella 28 MANNA hópur íslensks hár- greiðslufólks dvaldist í höfuð- stöðvum Wella-snyrtivörufyrir- tækisins í Darmstadt í Vestur- Þýskalrudi dagana 20.-24. apríl sl. Haldnir vora fyrirlestrar og einn- ig fékk hópurinn sýnikennslu um ýmsar nýjungar á sviði hársnyrting- ar. í hópnum vora 24 þátttakendur frá- ýmsum hárgreiðslustöðum á landinu auk fjögurra aðila frá Wella-umboðinu á Islandi. Kennslan og fyrirlestramir fóra fram í Wella Studio Zentram sem er eitt fullkomnasta hárstúdíó í heimi og tekur á hveiju ári á móti um 22.000 gestum sem njóta þar tilsagnar og leiðbeiningar sérftæð- inga á sviði hármeðferðar. KARf&MDR. Bakpokinn sem hentar þér. Ak. SKÁTABÚÐIN Snorrabraut 58 Sími 12045

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.