Morgunblaðið - 25.06.1986, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1986
47
Keflvíkingar hafa
tak á Skagamönnum
á Skipaskaga
Eitt fjölmargra marktækifæra í leiknum: Jósteinn Einarsson þrumar að Valsmarkinu, en Guðmundur
markvörður var eldsnöggur niður og náði að komast fyrir skotið.
Jafntefli KR og Vals:
Fjörlegur leikur
þrátt fyrir markaleysi
KR-VÖLLUR 1. deild:
KR-Valur 0:0
Gul spjöld: Ágúst Már Jónsson KR
Dómari: Sveinn Sveinsson og dæmdi mjög
vel.
Áhorfendur: Um 800
EINKUNNAGJÖFIN:
KR: Stefán Jóhannsson 3, Jósteinn Einars-
son 2, Loftur Ólafsson 2, Hálfdán Örlygsson
3, Gunnar Gíslason 3, Ágúst Már Jónsson 3,
Willum Þórsson 3, Sæbjörn Guðmundsson 3,
Björn Rafnsson 2, Júlíus Þorfinnsson 3, Ás-
björn Björnsson 2.
Samtals: 29
Valur: Guðmundur Hreiöarsson 4, Guðni
Bergsson 3, Ársœll Kristjánsson 3, Þorgrímur
Þráinsson 1, Guömundur Kjartansson 2, Ingv-
ar Guömundsson 2, Valur Valsson 3, Sigurjón
Kristjánsson 2, Hilmar Sighvatsson 3, Magni
Pétursson 2, Ámundi Sigmundsson 2.
Samtals: 27
Þetta var fjörugur leikur þrátt
fyrir markaleysið, einkum framan
af. KR-ingar byrjuðu mun betur og
aðeins framúrskarandi markvarsla
Guðmundar Hreiðarsonar í Vals-
markinu kom í veg fyrir að þeir
næðu að skora eitt eða fleiri mörk
í fyrri hluta fyrri hálfleiks. í síðari
hálfleik komust Valsmenn betur
inn í leikinn, og þá þurfti Stefán í
KR-markinu stundum að taka á
honum stóra sínum.
Gífurlegur hraði og barátta var
í leiknum nánast allan tímann,
stundum ef til vill um of. Þó brá
fyrir snotrum samleik. í fyrri hálf-
leik höfðu KR-ingar völdin á miðj-
unni, aðallega vegna framtaks
Gunnars Gíslasonar, Sæbjörns
Guðmundssonar og Willums Þórs-
sonar, sem allir léku þá mjög vel.
Sæbjörn átti tvö föst og góð skot
á Valsmarkið á fyrstu mínútunum
sem Guðmundur varði, Björn
Rafnsson komst innfyrrir en lét
Guðmund komast fyrir skotið, og
enn varði Guðmundur frá Gunnari
Gíslasyni í dauðafæri þegar um
20 mínútur voru liðnar af leiknum
— og svo enn einu sinni frá Ásbirni
tveimur mínútum síðar.
í leikhlé hefur lan Ross örugg-
lega skipað miðjumönnum Vals að
dekka sína menn betur, því smám
saman fór að bera minna á lykil-
mönnum KR og Valsmenn náðu
að vera eins mikið eða meira en
KR með boltann og skapa sér
hættu. Þannig varði Stefán að
minnsta kosti þrisvar frá Vals-
mönnum í hættulegum færum, en
allt kom fyrir ekki. Leiknum iauk án
þess að mark væri skorað. Líklega
eru KR-ingar óánægðari með þau
úrslit enValsmenn.
AKRANESVÖLLUR 1. deild:
ÍA-ÍBK: 1:2 (1:2)
Mark ÍA: Guðbjörn Tryggvason á 21. mín.
Mörk ÍBK: Ingvar Guömundsson á 7. mtnútu
og Gísli Grétarsson á 24. mínútu.
Gul spjöld: Sveinbjörn Hákonarson, ÍA og
Gisli Grótarsson og Óli Þór Magnússon, ÍBK.
Dómari: Magnús Theódórsson og dæmdi
þokkalega.
Áhorfendur:712.
EINKUNNAGJÖFIN:
ÍA: Birkir Kristinsson 2, Hafliöi Guðjónsson
2, Einar E. Jóhannesson vm 1, Heimir Guð-
mundsson 1, Sigurður Lárusson 2, Sigurður
B. Jónsson 2, Sveinbjörn Hákonarson 1,'Stef-
án Viöarsson vm (lék of stutt), Júlíus P. Ing-
ólfsson 3, Ólafur Þóröarson 2, Hörður Jóhann-
esson 1, Valgeir Barðason 2 og Guðbjörn
Tryggvason 3.
Samtals: 21.
ÍBK: Þorsteinn Bjarnason 2, Rúnar Georgsson
2, Valþór Sigþórsson 3, Einar Ásbjörn ólafs-
son 2, Gisli Grétarsson 2, Gunnar Oddsson
3, Sigurjón Sveinsson 3, Skúli Rósantsson 2,
Freyr Sverrisson 3, Ingvar Guðmundson 2,
Óli Þór Magnússon 4.
Samtals: 28.
Baráttuglaðir Keflvíkingar unnu
sanngjarnan sigur á ÍA og virðast
þeir hafa tak á Skagamönnum á
Skipaskaga, þar sem þeir hafa
unnið í síöustu þremur leikjum
þessara liða. Skagamenn byrjuðu
þó leikinn fjörlega og á 5. mínútu
átti Ólafur Þórðarson hörkuskot
framhjá úr aukaspyrnu. Keflvíking-
ar ná síða forystunni tveimur mín-
útum síðan í sinni fyrstu sókn og
var það hálffurðulegt mark. Ingvar
Guðmundsson fékk knöttinn fyrir
utan vítateig Skagamanna og lék
með hann alveg upp að endamörk-
um og hefur eflaust hugsað sér
að senda hann fyrir markið, en
hann skaut að því er virtist úr
vonlausri stöðu yfir Birki og í netið.
Eftir markiö sóttu Skagamenn
mjög að marki Keflvíkinga og
uppskáru jöfnunarmarkið á 21.
mínútu og átti Ólafur Þórðarson
allan heiðurinn af því. Hann vann
boltann á eigin vallarhelming og
lék með hann upp allan völlinn og
skaut síðan þrumuskoti utan víta-
teigs, sem Þorsteinn reyndi að
verja, en missti hann í gegnum
klofið á sér og þar kom Guðbjörn
Tryggvason og potaði boltanum
yfirmarklínuna.
Skagamenn voru varla búnir að
fagna jöfnunarmarkinu þegar Kefl-
víkingar náðu aftur forystunni
þremur mínútum síðar og var mjög
vel að því marki staðið. Óli Þór fékk
knöttinn utan vítateigs Skaga-^
manna, renndi knettinum út á
Gisla Grétarsson og sem skaut
þrumuskoti í stöng og inn. Fallegt
mark. Keflvíkingar voru náiægt
þvi skömmu fyrir leikhié að bæta
við þriðja markinu en þá bjargaði
Heimirá marklínu skoti frá Óla Þór.
Seinni hálfleikur leystist upp í
einskonar miðjuþóf, Keflvíkingar
drógu sig meira til baka og vörðust
vel þannig að Skagamenn fengu
ekkert marktækifæri í síðari hálf-
leik til að jafna. Ef eitthvað var
voru Keflvíkingar nær því að bæta
við með hættulegum skyndisókn-
um. Sérstaklega á síðustu mínút-
um leiksins er einn varnarmaður
Skagamanna ætlaði að senda^*
knöttinn til Birkis en Óli Þór, besti
maður vallarins, komst inní send-
inguna en Birkir varði á síðustu
stundu.
Staðan í
1. deild
Staðan í 1. deild karla eftir 8
umferðir er þessi: ^
Fram 8 5 2 1 17: 4 17
ÍBK 8 5 0 3 8: 7 15
ÍA 8 4 2 2 15: 5 14
Valur 8 4 2 2 9: 4 14
KR 8 3 4 1 11: 5 13
Þór Ak. 8 3 2 3 11:14 11
FH 8 3 1 4 12:13 10
UBK 8 2 2 4 4: 6 8
Víðir 8 2 2 4 3: 9 8
ÍBV 8 0 1 7 5:21 1
„Boltinn fór ekki í
hendina á mér“
— sagði Kristján Kristjánsson, Þórsari.
AKUREYRARVÖLLUR1. DEILD:
Þór-Breiöablik 1:1 (0:0)
Mark Þóra: Hlynur Birgisson á 46. mín.
Mark Breiðabliks: Jón Þórir Jónsson á 84. mín.
Guh spjald: Gunnar Gylfason, Breiðabliki.
Dómari: Guðmundur Haraldsson og dæmdi
auödæmdan leik ógætlega. Þó var undarlegt
hve gula spjaldiö var lengi upp úr vasan-
um . . .
Áhorfendur: 770.
EINKUNNAGJÖFIN:
Þór: Baldvin Guömundsson 3, Sigurbjörn
Viöarsson 3, Einar Arason 2 (Baldur Guðnason
vm. ó 65. mín. 2) Nói Björnsson 3, Árni Stef-
ánsson 3, Júlíus Tryggvason 3, Jónas Róberts-
son 3, Halldór Áskelsson 3, Siguróli Kristjóns-
son 3, Hlynur Birgisson 3, Kristjón Kristjáns-
son 2.
Samtals: 31.
Breiðablik: örn Bjarnason 3, Benedikt Guð-
mundsson 3, Ingvaldur Gústafsson 2, Magnús
Magnússon 2, Ólafur Björnsson 2, Jón Þórir
Jónsson 3, Hákon Gunnarsson 2, Jóhann Grót-
arsson 2 (Steindór Elíasson á 78. min., lók
of stutt), Helgi Ingason 2 (Gunnar Gylfason
vm. á 60. mín. 2), Guömundur Valur Sigurös-
son 2, GuömundurGuðmundsson 2.
Samtals: 25.
^BOLTINN FÓR sko ekkl í hönd-
ina á mér. Það er alveg á hreinu.
Við hlupum saman, ég og Örn
markvörður og boltinn fór í
magann á mér og hrökk f Bene-
dikt og af honum í netiö. Enda
sóst þaö best á því aö Blikarnir
mótmæltu ekki. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem Bragi Bergmann
gerir út um leik hórna,“ sagði
Kristján Kristjánsson, leikmaður
Þórs, og var mjög svekktur eftir
leikinn í gærkvöldi.
Atvikið sem hann talar um átti
sér stað í síðari hálfleik. Kristján
barðist um boltann við Örn mark-
vörð og Benedikt Guðmundsson
og mark virtist skorað. En Bragi
Bergmann línuvörður veifaði — og
eftir að hafa rætt við hann dæmdi
Guðmundur dómari aukaspyrnu á
Kristján. „Kristján sló boltann með
höndinni áður en hann skoraði
markið," sagði Bragi Bergmann í
samtali við Morgunblaðið eftir leik-
inn.
Hlynur Birgisson skoraði mark
Þórs eftir aðeins 25 sekúndur í
seinni hálfieik. Hann fékk boltann
inn fyrir vörn UBK frá Júlíusi og
skoaði örugglega undir Örn sem
kom á móti honum rétt innan teigs.
Eftir þetta héldu Þórsarar áfram
að sækja. Sigurbjörn átti fallegt
skot í stöng beint úr aukaspyrnu,
Halldór lét verja frá sér í dauðafæri
tfaiii iiihiiiiiiiii n ——^
eftir að hann og Hlynur höfðu leikið
Blikavörnina grátt. Á 68. mín.
geröist atvikið umdeilda sem
greint var frá í upphafi — er hönd
var dæmd á Kristján. Kristján var
aftur á ferðinni stuttu síðar, skaut
þá yfir af stuttu færi.
Blikarnir áttu eitt almennilegt
marktækifæri allan leikinn og nýttu
það. Jón Þórir Jónsson þrumaði
rétt innan vítateigs í nærhorn
marksins eftir að hafa platað tvo
varnarmenn Þórs. Mjög fallega
gert hjá Jóni.
Þórsarar sóttu „að vanda" það
sem eftir var leiksins en fengu
ekkert færi. Þeir urðu því að sætta
sig við jafntefli í leik sem átti ekki
að geta tapast — en mörkin telja,
ekki hvort liðið leikur betur. Sókn-
armenn liðsins eru allt of ragir við
að skjóta — til dæmis mætti benda
landsliðsmanninum Halldóri
Áskelssyni á að eftir að hafa platað
mótherja sína upp úr skónum er
ekki bannað að skjóta á markið!
Mönnum er í fersku minni er hann
skoraði fimm mörk i einum og
sama leiknum í fyrra — en hann
hefur enn ekki skorað í sumar.
Blikaliðið iék þokkalega saman
úti á vellinum en eins og fram
hefur komið fékk liðið aðeins eitt
almennilegt marktækifæri.
Simamynd/Skapti Haligrímsson
Benedikt Guðmundsson, Bliki, horfir vonsvikinn á eftir knettinum i
mark sitt í seinni hálfleiknum. Kristján Kristjánsson fagnar í fjarska.
En sorg breyttist fljótt í gleði, og öfugt — markið var dæmt af.