Morgunblaðið - 30.08.1986, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1986
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1986
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baidvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 40 kr. eintakið.
Vandi framsókn-
armanna
Töluverðar umræður eru nú
um stöðu Framsóknar-
flokksins í íslenskum stjórn-
málum. Flokksforystan stendur
frammi fyrir þeirri staðreynd,
að fylgi flokksins hefur dvínað.
í tilefni af þingi Sambands
ungra framsóknarmanna
(SUF) hafa forvígismenn þess
haft í frammi gagnrýni á for-
ystu flokksins og þá sérstak-
lega þingflokkinn. Margvísleg
ganrýnisatriði eru tíunduð.
Helgi Pétursson, fyrrum rit-
stjóri Tímans og núverandi
blaðafulltrúi SÍS, kemst meðal
annars svo að orði í nýlegu
blaði SUF: „Andstæðingum
okkar hefur tekist að snúa því
tímabili sem flokkurinn hefur
átt aðild að ríkisstjómum, —
einu mesta framfaratímabili í
sögu þjóðarinnar, upp í and-
hverfu sína og kalla það
Framsóknaráratuginn með nei-
kvæðum formerkjum."
Hér skal þessi ályktun Helga
Péturssonar ekki dregin í efa.
í stjómmálaumræðum er allt
annar blær yfir orðinu „fram-
sóknaráratugurinn" en orðinu
„viðreisnaráratugurinn" og
vísan til „nýsköpunaráranna"
er einnig jákvæð. Framsóknar-
menn sátu hvorki í nýsköpunar-
stjóminni né viðreisnarstjóm-
inni. Þeir höfðu hins vegar setið
lengi í ríkisstjóm, áður en ný-
sköpunarstjómin var mynduð
1944 og voru einnig í þeim
ríkisstjómum, sem sátu frá
1947 til 1959, þegar viðreisnar-
stjómin komst á legg. Frá því
að sú stjóm fór frá 1971 hafa
framsóknarmenn keppst við að
sitja í öllum ríkisstjómum. Þeir
hafa skipt um stefnu hvað eftir
annað í flestum málaflokkum
til þess eins að halda í völdin.
Á sama tíma hefur fylgi flokks
þeirra minnkað jafnt og þétt,
ekki síst í þéttbýli.
Fyrrgreind orð Helga Pét-
urssonar em ekki ein til marks
um það, að framsóknarmenn
kveinka sér undan hinni löngu
stjómarsetu en vilja samt ekki
horfast í augu við þann kost
að vera utan ríkisstjómar. í
forystugrein Tímans á fimmtu-
dag er kvartað undan umræð-
um um myndun ríkisstjómar
að loknum næstu kosningum
og sagt, að „ein lína“ ráði í
þeim, síðan segir orðrétt:
„Þessi lína er sú að Framsókn-
arflokkurinn sé hentistefnu-
flokkur, sé í stjóm með hveijum
sem er til þess að gæta hags-
muna Sambandsins, og verð-
bólga liðinna ára sé honum að
kenna. Framsókn eigi að fá frí
eftir langa stjórnarsetu og aðr-
ir að taka við.“
Ástæðulaust er að draga í
efa, að málgagn Framsóknar-
flokksins hafí rétt fyrir sér,
þegar það metur stöðu flokks-
ins í almennum stjómmálaum-
ræðum með þessum hætti.
Tíminn kemst að þeirri nið-
urstöðu, að Framsóknarflokk-
urinn sé „í pólitík" eins og það
er orðað og hann muni láta
málefni ráða afstöðu til stjóm-
arsamstarfs að kosningum
loknum; það sé alveg óþarfí að
„afskrifa Framsóknarflokkinn
í frí eftir kosningar". Að sjálf-
sögðu ætti það að fara eftir
fylgi framsóknarmanna í næstu
kosningum, hvort þeir setjast í
ríkisstjóm eða ekki. Reynslan
frá framsóknaráratugnum sýn-
ir hins vegar, að kjörfylgi eða
yfírlýsingar fyrir kosningar
skipta framsóknarmenn litlu ef
nokkru þegar kemur að hrossa-
kaupum við stjómarmyndun.
Undan þeim dómi sögunnar
geta framsóknarmenn ekki vik-
ið sér, að þeir hafí oftar en
aðrir haft í fyrirrúmi að kom-
ast í ríkisstjóm hvað sem það
kostaði. Einmitt þess vegna
kenna menn þá við hentistefnu.
Annað einkenni á Framsókn-
arflokknum er, að hann leitar
til vinstri, þegar hann starfar
með Sjálfstæðisflokknum í
ríkisstjóm, en til hægri, þegar
hann situr við stjómvölinn með
vinstri flokkunum. Skýr merki
um þetta sjást nú, þegar yfír-
lýsingar Páls Péturssonar,
formanns þingflokks fram-
sóknarmanna, eru metnar. Þær
hníga flestar, ef ekki allar, að
því að sverta Sjálfstæðisflokk-
inn en koma sér í mjúkinn hjá
vinstrisinnum.
Helgi Pétursson taldi það
bestu leið framsóknarmanna
út úr þeim vanda, sem að þeim
steðjar, að forystumenn flokks-
ins yrðu „sýnilegri" eins og
hann orðaði það; þeir létu meira
til sín taka í fjölmiðlum en nú
er. Fyrir aðra en framsóknar-
menn er næsta erfítt að átta
sig á því, hvemig Steingrímur
Hermannsson, flokksformaður
þeirra, getur verið oftar í fjöl-
miðlaljósinu. Framsóknarmenn
mega ekki gleyma því í umræð-
um um eigin vanda, að það er
traust manna á stefnu stjóm-
málaflokka og starfsháttum,
sem ræður mestu um gengi
flokkanna. Fjölmiðlaæfíngar
breyta engu um það.
H&obDsS DŒáö
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
352. þáttur
í góðri sögu, sem heyra mátti
í sónvarpinu, kom fyrir setning
sem umsjónarmanni þótti álappa-
leg: „Hann bað hana að kvænast
sér“. Konur kvænast ekki, ef allt
er eðlilegt, aðeins karlar. Sögnin
að kvænast merkir nefnilega að
eignast konu. Aftur á móti fær
umsjónarmaður ekki séð neitt at-
hugavert við að bæði karlar og
konur giftist. Sögnin að giftast
er náskyld að gefa. Þegar karl
og kona gefast hvort öðru, gift-
ast þau.
Hyggjum svo betur að sögninni
að kvænast. Hún er dregin með
i-hljóðvarpi af kván = kona. Af
kván myndast einnig sögnin að
kvánga(st), síðar kvonga(st).
Það kallar próf. Halldór Halldórs-
son framvirkt hljóðvarp, þegar vá
> vó > vo. Á sama hátt breytt-
ist kván í kvon með millistiginu
kvón. Það orð kemur iðulega fyr-
ir í fomum kveðskap og lengi fram
eftir öldum. Dæmi úr Sólarljóðum:
Óðins kvón
rær á jarðar skipi
móðug á munað.
Seglum hennar
verður síðhlaðið,
þeim er á þráreipum þruma.
Kván átti sér hliðstæðu í gotn-
esku qéns, ógiftur maður var
unqeniþs á þá tungu, og auðvitað
er þetta sama og queen á ensku,
þó að þar hafi orðið hafist upp
til meiri tignar. Gömul, en ekki
fom, eru í máli okkar orðin
kvendi og kvinna. Ekki þykja
þau nú eftirsóknarverð, en kvendi
hafði skáldið um ástmey sína í
vfsu í Víglundarsögu. En það var
fyrir löngu.
Allt er þetta svo auðvitað ná-
skylt orðinu kona(<*kuna), sbr.
kyn. Hið merkilegasta við orðið
kona er óreglulegt eignarfall
fleirtölu, til kvenna, en það er
myndarleg og þakkarverð orð-
mynd. Heldur þætti okkur snaut-
legt, ef eignarfall þetta væri til
*kona, eða *konna! Við því mætti
búast, ef allt væri það sem kallað
er reglulegt.
Hér að framan var minnst á
framvirkt hljóðvarp. Það gat haft
annars konar breytingu í för með
sér en vá > vó > vo. Það breytti
einnig ve í vö og síðar stundum
í vo eða jafnvel vu. Nokkur dæmi:
Hvolpur hét fyrr meir hvölpur
og enn áður hvelpur. Snorri
Sturluson segir frá dvergum sem
hvelfdu skipi. Sr. Stefán Ólafsson
í Vallanesi (17. öld) yrkir um
kumpána sem voru að „hvölfa/
elfum ölva/ í iðra sjá“. Það er svo
að skilja að þeir hafi verið að
hvolfa í sig kynstrum af öli, eftir
okkar tali.
Kvöld var áður kveld og lifir
reyndar eldri orðmyndin enn í
sumum samböndum. Spumarfor-
nafnið hver átti til að breytast í
hvör og jafnvel í hvur. Nú hefur
bóklestur og skólaganga fært
okkur aftur til upprunans í þessu
efni. En Bólu-Hjálmar lét hvur
(þar óákveðið fom.) ríma á móti
-ur.
Enn er þess að geta að kvöm
var áður kvem, sbr, kvemgrjót
og kvemsteinn, ogtvöfaldur var
fyrr meir tvefaldur.
Bragarháttur vikunnar er að
þessu sinni breiðhenda (fer-
skeytluætt X):
Það er vist ég þér skal unna,
þú hefur göfgað mína ævi.
Þó ég hefði þúsund munna,
þér ég alla kossa gæfi.
(Bjami úrsmiður)
Mikið er hve margir lof'ann,
menn sem aldrei hafa séð’ann,
skrýddan kápu Krists að ofan,
klæddan skollabuxum neðan.
(Jóhannes G. Jónasson)
Því má kannski bæta við, að
maður nokkur tomæmur hreifst
mjög af efni síðari vísunnar, en
mátti lengi vel ekki nema hana.
Eftir um það bil tvö ár kom hann
til kunningja síns sigri hrósandi
og sagðist nú loksins hafa lært
vísuskömmina. Lát heyra, sagði
kunninginn, og vísan varð þá
svona:
Mikið er hve margir lof’ann
að ofan,
menn sem aldrei hafa séð’ann
að neðan.
Úr orðabókunum:
Að slá vatni upp á gásina,
sletta vatni á gásir eða stökkva
vatni á gæs em allt orðtök í sömu
merkingu = „segja eitthvað sem
ekki hrín á þeim sem áminntur
er“.
Að taka eða grípa gæs, með-
an hún gefst er „að nota tæki-
færið, meðan þess er kostur", og
að gegna gæsunum sem í gær
flugu merkir að svara út í hött.
I sömu merkingu er sagt að svara
tryppunum fram á dal.
Að skera hrúta er að hijóta
hátt og mikið, að mjólka hafur-
inn (erlent að uppruna) = að
reyna eitthvað ógerlegt, vinna
fyrir gýg, að hefta hunda merk-
ir að staldra við í heyrakstri eða
tafsa f lestri og að bjóða hundi
heila köku er „að bjóða einhverj-
um eitthvað sem hann kann ekki
að meta og er honum í raun of
gott“.
Beint flug til Orlando í Flórída:
„I Flórída er allt sem
hugfurínn girnist“
— Peter Robertson ferðaskrifstofu-
eigandi í St. Petersburg tekinn tali
BEINT áætlunarflug mun hefjast til Orlando í Fiórída í byrjun nóv-
ember. Er þetta í fyrsta sinn sem flogið verður þangað beint, en
til þessa hafa Flórídafarar þurft að skipta um vél í New York, eða
Lúxemborg. Hér á landi er nú staddur Bretinn Peter Robertson, en
undanfarin átta ár hefur hann verið umboðsmaður ferðaskrifstof-
unnar Útsýnar í Flórída. Peter hefur búið þar siðastliðin tíu ár og
er því öllum hnútum kunnugur. í tilefni hins fyrirhugaða Flórída-
flugs tók Morgunblaðið hann tali.
Til þessa hefur aðalferðamanna
straumurinn frá íslandi legið til
Evrópu og þá sérstaklega til suð-
rænna sólarlanda. Útsýn hefur selt
ferðir til Flórída undanfarin ár, en
þrátt fyrir vinsældir þeirra hafa þær
aldrei orðið almennar. Veldur þar
tvennt: hátt verð Bandaríkjadals og
flóknar samgöngur. „Það er bara
ekki á alla leggjandi að fljúga fyrst
frá Keflavíkurflugvelli til
Kennedy-flugvallar í New York,
skipta þar um flugvél, fljúga suður
til Flórída og þurfa síðan að endur-
taka leikinn á heimleiðinni. Fríið
er orðið stutt þegar sitt hvor sólar-
hringurinn fer í ferðalög. Hvort
tveggja hefur breyst: dollarinn
stendur höllum fæti og ykkar eigin
flugfélag byrjar að fljúga þangað í
nóvember. Flugið tekur um sex og
hálfa klukkustund, sem er svipað
og til Kanaríeyja, en mér skilst að
þær séu mjög vinsælar á íslandi."
Peter sagði að hann hefði kynnst
íslendingum nokkuð undanfarin ár,
og sagði hann að greinilegt væri
að þeim líkaði vel við Flórída. Það
væri ekki einungis veðráttan, þó svo
að hún skipti miklu máli, heldur
væri það fjölbreytnin, sem fólki
líkaði best. „Það eru engar ýkjur
að segja að allt fáist í Ameríku og
Flórída er þar engin undantekning.
Það er hægt að fíatmaga á strönd-
inni, fara í leikhús, versla, fara á
rokktónleika, í stuttu máli sagt allt
sem hugurinn gimist. Vilji maður
gera þetta allt saman og miklu
meira, án þess að hreyfa sig of
mikið úr stað, er hægt að dveljast
allan tímann í DisneyWorld, sem er
í næsta nágrenni Orlando.“
DisneyWorld
„Það er ekki hægt að koma til
Flórída án þess að koma við í Dis-
neyWorld. Hins vegar hefur
mörgum reynst erfitt að komast
þaðan og yfir í hinn raunverulega
„Ég á ekki von á breyting-
um þegar Shamir og Peres
skipta um ráðherrastóla“
Rabbað við Jehudith Huebner, sendiherra
ísraels, sem var hér í kveðjuheimsókn
„Það hefur veríð ákaflega ánægjulegt að koma hingað einmitt þeg-
ar Reykvíkingar voru að halda upp á tvö hundruð ára afmæli
höfuðborgar sinnar. Ég hef skemmt mér konunglega og veðrið hef-
ur leikið við mig eins og aðra þessa daga. Ég ákvað að koma einmitt
núna vegna afmælisins, þótt ég farí ekki frá Osló og heim til Jerú-
salem fyir en með haustinu, sagði Jehudith Huebner sendiherra
ísraels á íslandi með aðsetrí f Osló. Hún hefur gegnt starfinu í um
það bil tvö ár og er nú i kveðjuheimsókn hér.
Ég hef aldrei komið að sumarlagi raun. Heldur einnig vegna þess að
fyrr og verð að segja, að það er mér fellur í geð viðmót og almenn
skemmtilegt að hafa fengið nasa-
sjón af öllum árstíðunum. Mér hefur
satt að segja fundist Reylqavík
dálítið þunglamalega borg, en hún
tók hreinlega hamskiptum á af-
mælinu. Allir virtust í svo góðu
skapi og voru einhuga um að eiga
ánægjulegan dag“.
Jehudith Huebner sagði, að það
hefði verið sér sönn gleði að fá að
vera sendiherra Noregs og íslands.
Hún hafi starfað lengi í utanríkis-
þjónustu ísraels, „en þetta er fyrsta
og eina sendiherraembættið mitt“.
Hún sagði að sér geðjaðist vel að
þeim íslendingum sem hún hefði
kynnzt. „Ekki aðeins vegna þess
að íslendingar eru vinir ísraela í
afstaða íslendinga. Þeir eru fjarri
neitt sykursætir í viðmóti, en þeir
eru hlýir og vingjarnlegir og maður
veit hvar maður hefur þá. Fólk sem
maður getur treyst að segir hug
sinn.“
Um ástand mála í Miðaustur-
löndum nú eftir fund Shimons Peres
forsætisráðherra ísraels og Hass-
ans Marokkókonungs sagði
Huebner: „Fundurinn í Marokkó var
þýðingarmikill, fyrst og fremst af
því, að hann var haldinn fyrir opn-
um tjöldum. Eins og þið vitið er það
nú svo f mörgum arabalöndum, að
þar taka menn ekki orðið „ísrael"
sér í munn. Á landakortum í þessum
ríkjum er ísrael ekki til. Þar er aiið
M^rgunblaðið/Einar Falur
Jehudith Huehner, sendiherra.
á hatri og þar ríkir fáfræði um ísra-
ela. En Sadat braut ísinn og Hassan
konungur hefur sýnt ótvírætt og
aðdáunarvert sjálfstæði með því að
ræða við Peres. Þetta gæti orðið
upphaf að öðru meira og að fleiri
arabaleiðtogar sæju, að það er alveg
hægt að tala við okkur. Innan ísra-
els er óhætt að segja að menn séu
mjög ánægðir með fundinn, jafnvel
hinir róttækustu. Og innan ara--
baríkjanna er athyglisvert hversu
rólega menn tóku fréttum um fund-
inn. Það bendir til ákveðinna
breytinga sem áreiðanlega eru að
verða. Þetta hefði allt verið óhugs-
andi fyrir tíu árum. Ástæður þess
eru ótalmargar, þar á meðal er
auðvitað að tilvist ísraels er stað-
reynd og það þýðir ekki Iengur að
hafa á stefnuskrá að henda okkur
í sjóinn, eins og var yfirlýst mark-
mið PLO og fleiri á sínum tíma.
Arabaríkin eru farin að skilja að
við komum ekki til þeirra á hnján-
um. Við gætum auðvitað vel hugsað
okkur að tala við PLO. En þeir
verða að uppfylla eitt skilyrði og
það virðist vefjast fyrir þeim. Þeir
verða að gefa yfirlýsingar um að
stöðva alla hryðjuverkastarfsemi á
yfirráðasvæði Israels. Þó að við vit-
um að Sýrlendingar og fleiri ýti
undir hryðjuverkastarfsemi og geri
jafnvel hófsömum Palestínumönn-
um, sem vilja frið, erfitt fyrir að
því leyti, er ekki hægt að ímynda
sér að við getum nokkuð aðhafst í
málinu fyrr en við höfum tryggingu
fyrir því að fólk þurfi ekki að búa
við stöðugan ótta um ógnir.
Eg á ekki von á breytingum þeg-
ar þeir Shimon Peres og Yitzak
Shamir skipta um embætti. Innan
stjómarinnar á að ríkja jafnvægi,
en það er auðvitað sérstætt við
þessa ríkisstjóm að í henni á stjóm-
arandstaðan sína fulltrúa og svo
verður áfram eftir forystumanna-
skiptin. í lýðræðisríki er eðlilegt að
menn greini á og ísrael er svo
óvenjulega mikið í fréttum út um
allt, að við getum varla hreyft okk-
ur án þess ekki sé gert veður út
af því í heimspressunni.
Á síðustu ámm hefur okkur orð-
ið ákaflega mikið ágengt í efna-
hagsmálum, enda var það
tvímælalaust ástæðan fyrir því að
flokkamir stóm gengu til sam-
starfs. Þetta var allt komið á
heljarþröm. En það hefur sýnt sig
að stjómin hefur í samvinnu ráðið
við vandann og vonandi verður
áframhaldandi bati á því sviði sem
og fleirum," sagði sendiherrann.
Jehudith Huebner hefur þessa
síðustu daga rætt við forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra og ýmsa
aðra embættismenn.
Texti: Jóhanna
Kristjónsdóttir
könsku næturstemmningu svo
raunverulega, að hann hefði
„kvöld" eitt setið þar að snæðingi
í mestu makindum, en krossbrugðið
þegar út kom. Þar var allt í fuilum
gangi, enda hábjartur dagur og
ktukkan að verða þijú. „Þetta var
svipað og að koma út af íslensku
diskóteki að sumarlagi og uppgötva
að úti er bjartur dagur um hánótt!"
DisneyWorld er í sérstökum
hreppi og er skipt í tvær borgir, sem
hafa eigin borgarstjóra, slökkvilið,
lögreglu og hvaðeina sem venjuleg-
ar borgir prýða. Má enda minna á
að í DisneyWorld em tíu hótel,
mörg hundmð veitingastaðir og
verslanir og starfa þar nú rúmlega
20.000 manns. Byggingu Disney-
World verður seint lokið og er um
þessar mundir verið að byggja eyju
í skemmtigarðinum miðjum, þar
sem einungis fullorðnir fá aðgang.
hann héldi mikið upp á, „The Brown
Derby", kostaði þríréttuð máltíð
fyrir tvo 28 Bandaríkjadali, en það
samsvarar rúmlega 1.100 krónum
og þá er vín innifalið. Blaðamaður
spurði hvort ekki væri talsvert um
glæpi í Flórída og minntist kvik-
mynda sem „Scarface". Hann
svaraði að því væri ekki að leyna,
en menn yrðu að gera sér grein
fyrir að Flórída væri stórt ríki.
„Flestir glæpir í Flórída eiga sér
stað í Miami og það í nokkmm af-
mörkuðum hverfum. Ég hef búið í
St. Petersburg í tíu ár og leyfí mér
að fullyrða að allan þann tíma hafi
aldrei verið framinn alvarlegur
glæpur gegn ferðamönnum, þó svo
að vissulega séu þama vasaþjófar
og annað slíkt hyski, en þrátt fyrir
það er minna um þessa „hefð-
bundnu" glæpi í St. Petersburg en
annars staðar."
I St. Petersburg er heiðarlegt
fólk og kurteist, eins og íslendingar
eiga að venjast, og síðan má
kannski benda á þann kost, sem
ég held persónulega að íslendingar
kunni best að meta, og það er sú
staðreynd að allir tala ensku, en
ég hef ekki enn hitt þann íslending
sem ekki er altalandi á ensku. Ann-
ars get ég nefnt sem dæmi um
Mikki Mús í glöðum hópi. í baksýn er foldgnár Töfrakastalinn.
heim að nýju. Ætli maður sér að
skoða DisneyWorld allan þarf að
minnsta kosti þijá daga til þess og
er þá ekki gert ráð fyrir að neins
staðar sé stansað. Er ekki að furða,
þegar til þess er litið að Disney-
World er jafnstórt að flatarmáli og
San Francisco". Peter sagði að í
raun væri DisneyWorld safn
margra skemmtigarða og eru þeir
helstu EPCOT og The Magic King-
dom (Töfrakonungdæmið). EPCOT
er bland tveggja heima, annars
vegar er þar framtíðarborg og allt
samkvæmt nýjustu tækni, en hins
vegar er þar sýnishom hinna ýmsu
landa heims. Má nefna að þar verð-
ur á næsta ári opnað norskt svæði
og munu einungis þvottekta Norð-
menn starfa við það, enda svæðið
skipulagt í samráði við norsk stjóm-
völd. Fyrir eru svæði fjölmargra
þjóðlanda, má nefna Bretland,
Frakkland, Ítalíu, Kína, Mexíkó og
Þýskaland. Keppist hvert land við
að gera sinn hlut sem frumlegast-
an, en um leið dæmigerðan um
menningu þess. Sem dæmi nefndi
Peter að sýningarsvæði Mexíkó
væri inni í húsi, og væri þar allt
eins og á mexíkönsku markaðstorgi
að næturlagi. Sagði hann hina mexí-
Þar verður boðið upp á fjörugt og
vandað næturlíf, en ekki þykir við
hæfi að böm séu þar innan um.
Hafí einhveijir íslendingar áhuga
á að dveljast í DisneyWorld geta
þeir að sögn Kristínar Aðalsteins-
dóttur hjá Útsýn pantað hótelher-
bergi í hveiju þeirra tíu gistihúsa,
sem þar eru.
í Flórída er fjöldi annarra at-
hyglisverðra staða og má þar nefna
sædýraskemmtigarðinn Seaworld,
sem margir íslendingar kannast
við. Eins má geta þess að mörgum
íslendingum kynni að þykja fróð-
legt að koma í Kennedy-geimflug-
stöðina á Canaveral-höfða, en hægt
er að fara þangað í kynnisferðir,
bæði á eigin vegum og í fylgd
starfsmanna NASA.
St. Petersburg
Blaðamaður forvitnaðist um St.
Petersburg, en þar hafa flestir far-
þegar á vegum Útsýnar dvalist.
Peter sagði ströndina þar vinsæla
vegna mildrar veðráttu, en bætti
við að það ætti nú við um mestan
hluta Flórída. Hann sagði að hún
væri tiltölulega ódýr og nefndi hann
sem dæmi að á veitingastað, sem
þann anda, sem í borginni ríkir, að
síðdegisblaðið The Evening Inde-
pendent er ókeypis, ef ekki sést til
sólar þann daginn! En það gerist
nú heldur ekki nema fimm til sex
sinnum á ári,“ sagði Peter og brosti.
Peter sagðist vita að eitt helsta
áhugamál Islendinga í útlöndum
væri að versla og sagði að Flórída
væri kjörin til þess að sinna því.
„Að vísu veit ég ekki hvað það er
sem íslendingar sækjast helst eftir,
en ég veit að Bretamir kaupa helst
rafeindavörur og tölvur ýmiss kon-
ar. Hins vegar hugsa ég að þið
íslendingar hafíð lítinn áhuga á
tískufatnaði þar vestra, þar sem
Bandaríkjamnenn eru nokkuð á eft-
ir Evrópuþjóðum í tísku."
Að lokum sagði Peter Robertson
að Islendingar væru aufúsugestir í
Flórída. Fyrir nokkrum árum hefðu
sumir hóteleigendur heyrt að ís-
lendingar væru brennivínsberserkir
miklir, en reynslan hefði leitt í ljós
að sá ótti var ástæðulaus. Vita-
skuld væru svartir sauðir innan um,
en það væri ekkert einsdæmi með
íslendinga. Sagðist hann því vonast
til þess að sem allra flestir íslend-
ingar uppgötvuðu Flórída nú þegar
kostur gæfist.