Morgunblaðið - 30.08.1986, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.08.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1986 29 AKUREYRI Nýtt iðnráðgjafafyrirtæki á Akureyri: Ari hf. tekur til starfa á mánudag ARI HF. nefnist nýtt iðnráðgjafarfyrirtæki sem stofnað hefur verið á Akureyri. Það eru Iðnaðardeild Sambandsins, Kaup- félag Eyfirðinga, Iðnráðgjöf í Reykjavík og nokkrir einstakl- ingar sem standa að stofnun hlutafélagsins. Fyrirtækið tekur til starfa 1. september — næstkomandi mánu- dag og verður til húsa í Glérárgötu 36. Starfsmenn Ara hf. verða þrír, Smári Sigurðsson, sem verður framkvæmdastjóri, Þorleifur Finnsson og Ævar Ragnarsson. Þeir Smári og Þorleifur eiga fyrir- tækið Iðnráðgjöf í Reykjavík, sem er einn af stofnaðilum Ara, en Ævar Ragnarsson hefur verið deildarstjóri tæknideildar Iðnaðar- deildar Sambandsins undanfarið. Smári sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að þeir Þorleifur ættuðu að „geyma" fyrirtæki sitt í Reykjavík á meðan þeir áttuðu sig á hlutum hér fyrir norðan; fyr- irtækið Iðnráðgjöf verður með öðrum orðum ekki starfrækt í ein- hvem tíma. Að sögn Smára er talsverður tími síðan hugmyndin að stofnun Ara kom upp. „Ég hef sjálfur haft í huga í nokkum tíma að athuga með stofnun fyrirtækis á Akur- eyri. Ég er frá Akureyri og er því í tengslum við bæinn.“ Smári sagð- ist telja skilyrði mjög góð á Akureyri fyrir fyrirtæki sem þetta, í bænum væri sterkur iðnaður, „til dæmis fyrirtæki eins og Slippstöð- in, Iðnaðardeild Sambandsins í heild sinni og fleiri og fleiri," eins og hann orðaði það. „Ég hef þá trú að Eyjafjarðar- svæðið sé að koma upp á ný eftir lægð og ég vil gjama bætast í hóp þeirra sem vinna að því,“ sagði Smári. Tölvurnar bíða i röð eftir nemendunum. Þriðji áfangi íiýbyggingar VM A tekinn í notkun ÞRIÐJI áfangi nýbygginga Verk- menntaskólans á Eyrarlandsholti.- verður tekinn í notkun á mánu- daginn. Skólinn verður settur í Akureyrarkirkju á morgun, sunnudag, kl. 17 en skólastarfið hefst síðan með kennarafundi í nýja húsnæðinu á mánudags- morgun. Nemendur mæta síðan á mánudag og þriðjudag en kennsla hefst á miðvikudag. Að sögn Bemharðs Haraldssonar, skólameistara, eru um 900 nemendur skráðir í dag- skóla í vetur og um 70 í öldunga- deild. Áfanginn sem VMA tekur nú í notkun er 1.250 fermetrar að flatar- máii, ætlaður viðskiptanámi. Skólinn hefur hingað til haft aðstöðu í hús- næði Gagnfræðaskólans en flytur nú þaðan og verður í vetur kennt á Eyrarlandsholtinu auk þess sem kennsla verður áfram í gamla Iðn- skólahúsinu við Þórunnarstræti. Geta ekkihaldið blaðamanna- fundi um innri málefni ráðu- neytisins án míns leyfis — segir Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra INNLENT Menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, hefur sent Sturlu Kristjánssyni, fræðslustjóra Norðurlandsumdæmis eystra, bréf, scm í fólst „alvarleg áminn- ing“, eins og heimildarmaður Morgunblaðsins orðaði það. Bréfið er til komið vegna blaða- mannafundar, sem haldinn var á Akureyri fyrir nokkrum dögum um málefni sérkennslu i Norður- landsumdæmi eystra og vestra og voru á fundinum, auk blaða- manna, fulltrúar frá báðum fræðsluskrifstofunum auk full- trúa frá skólum. Á fundinum kom fram að áætlan- ir fræðsluráðs hljóðuðu upp á að 100 nemendur ættu rétt á 850 viku- stunda sérkennslu. Ráðuneytið, hinsvegar, hafði gert tillögu til hag- sýslu um 44 nemendur og 200 vikustunda sérkennslu. Ráðherra vildi ekki skýra frá efni bréfsins opinberlega í samtali við Morgunblaðið í gær, en sagði að þar sem Sturla væri fræðslustjóri og heyrði þar af leiðandi undir menntamálaráðherra, kynni hann ekki við að boðað væri til blaða- mannafunda, sér óafvitandi. „Það sem fer á milli mín og fræðslustjóra hlýtur að vera bundið trúnaði nema að leitað sé til mín um að létta þeim trúnaði af. Starfsmenn mínir geta ekki haldið blaðamannafundi um innri málefni ráðuneytisins án þess að fá til þess leyfi.“ Sverrir sagðist bíða skýringa frá Sturlu varðandi blaðamannafund- inn og ágætt væri ef fræðsluráðin vildu gangast í ábyrgð fyrir hann varðandi fundinn — þá hefði hann skýringar á reiðum höndum og gæti gefið sér svar. Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra. Sturla Kristjánsson, fræðslustjóri í * Norðurlandskjördæmi eystra. Samþykktir í tugatali, en það gerist aldrei neitt — segir Sturla Kristjánsson fræðslustjóri „ÉG HÉLT engann blaðamanna- fund — fræðsluráðin héldu blaðamannafund og fræðslu- stjórarnir eru embættismenn rikisins, einskonar umdæmisfull- trúar, en lögum samkvæmt eru þeir auk þess framkvæmdastjór- ar fræðsluráða og forstöðumenn fræðsluskrifstofa," sagði Sturla Kristjánsson, fræðslustjóri norð- urlandsumdæmis eystra, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Lögum samkvæmt hafa fræðsluráðin yfirstjóm skólamála í sínum umdæmum og ef þau ákveða eitthvað, geta þau að sjálfsögðu falið framkvæmdastjóra sínum að vinna í málinu — það getur ekki verið neitt lagabrot að fræðslustjóri hlýði fræðsluráði um úrvinnslu ein- hverra hluta. Því taldi ég mig ekki þurfa leyfi menntamálaráðherra til að boða til blaðamannafundar um málefni sérkennslunnar hér. Ef fræðsluráðin vilja halda blaða- mannafundi til að koma á framfæri ákveðnum upplýsingum, hlýtur það að teljast eðlilegt að þau fari fram á það við framkvæmdastjóra sína að þeir geri grein fyrir málum á fundunum." Sturla sagði að oft hefði komið fram í máli menntamálaráðherra sjálfs að leiðirnar inn í ráðuneytið væru bæði langar og erfiðar yfir- ferðar og þar margar höktandi hurðirnar. Því virtist sem æði oft þyrfti að fara í gegnum fjölmiðla til að ná til ráðherra. „Ef farið er í gegnum gögn fræðsluráðanna frá upphafi, koma í ljós samþykktir, ályktanir og áskoranir í tugatali um hin bestu málefni, sem verið hafa til umfjöllunar í gegnum árin, en það gerist aldrei neitt. Við sem störfum að þessu verðum vitanlega langþreytt, sérlega nú þegar kemur landsbyggðarráðherra, sem er hressilegur og frískur, og segist’ vera maður valddreifingar. Ein- hvers staðar virðist gæta misskiln- ings. Hvort sem ég fer í taugamar á einhveijum mönnum í Reykjavík, breytir engu um stöðu skólamála í landinu, en hér í eina tíð voru sendi- boðamir ávallt skotnir niður til að þagga niður fréttirnar.“ Blaðberar óskast Blaðbera vantar í innbæ, miðbæ og Oddeyri. Við- komandi þarf að geta borið út fyrir hádegi. JNfógtsaiiiliifetfe Akureyri, Hafnarstræti 85. Sími23905. Bíllinn, sem er af Lada-gerð, er ónýtur. Morgunbiaðið/Skapti Haiigrimsson Eldur í bíl og bílskúr á sama tíma í FYRRINÓTT kom upp eldur í bílskúr við Eyrarveg á Akureyri. Tilkynnt var um það til slökkviliðs kl. 3:45. Fáeinum mínútum sfðar, kl. 3:56, var tilkynnt um eld í bif- reið í Fjólugötu, skammt frá. Töluvert tjón varð í bílskúmum — þar var geymdur ýmiskonar við- leguútbúnaður og hjólbarðar og var það allt ónýtt. Bifreiðin var mjög bmnnin að innan og greinilegt er, að sögn slökkviliðsmanna, að kveikt hefur verið í farþegasæti hennar. Þá leik- ur einnig gmnur á að um íkveikju hafi verið að ræða í bílskúrnum. Unnið að slökkvistörfum í bílskúrnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.