Morgunblaðið - 30.08.1986, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1986
*-
jry
I raðauglýsingar — raðauglýsingar — radauglýsingar
30 tonna próf
Vikunámskeið fyrir 30 tonna skipstjórnarpróf
hefst 8. september.
Upplýsingar og innritun í síma 31092.
Bátur
Öflugt sjávarútvegsfyrirtæki óskar eftir að
kaupa bát með humarkvóta. Tilboð merkt:
„Bátur — 517“ sendist augldeild Mbl. fyrir
10. sept.
siQLinoASKóLinn
Benedikt H. Alfonsson
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Lyngási 7-9 — 210 Garðabæ — S 52193 og 52194
Frá Fjölbrautaskólanum
í Garðabæ
Skólinn verður settur mánudaginn 1. sept-
ember kl. 9.00.
Nemendur fá þá afhentar stundaskrár og
bókalista gegn greiðslu nemendafélags-
gjalds kr. 1200.
Kennarafundur verður haldinn kl. 11.00 í
skólanum sama dag.
Skólameistari.
Frá Stýrimanna-
skólanum í
Reykjavík
Stýrimannaskólinn í Reykjavík mánudaginn
1. september kl. 14.00.
Nemendur verða lesnir í bekki og fá afhenta
stundatöflu og bókalista eftir skólasetningu.
Nemendur í 80 rúmlesta réttindanámi mæti
einnig við skólasetningu.
30 rúmlesta réttindanám:
Kvöldnámskeið fyrir 30 rúmlesta réttindi
verða haldin með sama sniði og s.l. skólaár
á haustönn, þrjú kvöld í viku, samtals 90
kennslustundir í siglingafræði, siglingaregl-
um, tækjum, stöðugleika, slysa- og eldvörn-
um og meðferð talstöðva og er prófað skv.
lögum nr. 112/1984.
Námskeiðið hefst 15. september.
Innritun og greiðsla þátttökugjafda frá og
með 8. september nk. frá kl. 9.00-14.00 í
síma 13194.
Skólastjóri.
Frá skóla
ísaks Jónssonar
Sjálfseignastofnun
Kennsla sjö og átta ára barna hefst föstudag-
inn 5. sept. Sex ára börn byrja 9. sept. Nánar |
tilkynnt með bréfi. Fimm ára börn verða
boðuð símleiðis 4.-10. sept.
Skólastjóori.
Útgerð
Traust fiskvinnslufyrirtæki vill kaupa sig inn
í útgerð. Tilboð merkt: „Útgerð — 518"
sendist augldeild Mbl. fyrir 12. sept.
Vöruskemma eða
lagerhúsnæði
Óskum eftir að taka á leigu 800-2000 fm
lagerhúsnæði í Reykjavík eða nágrenni.
(Mosfellssveit, Hafnarfirði, Keflavík). Þeir
sem hugsanlega hafa þannig húsnæði sendi
upplýsingar til Morgunblaðsins merktar:
„Vöruskemma — 1919“. Haft verður sam-
band við alla aðila.
<1 15 80
Sendibflar
Aðalfundur
Sendibíla hf. verður haldinn sunnudaginn 14.
september á Hótel Loftleiðum kl. 15.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
annað og siðasta sem auglýst var i 135., 141. og 147. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Fálkakletti 11, Borgarnesi,
þinglesinni eign Þorvaldar Þorvaldssonar, fer fram að kröfu Baldurs
Guðlaugssonar hrl. og innheimtumanns rikissjóðs á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 4. september nk. kl. 10.00.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta sem auglýst var i 149., 153. og 157. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Kveldúlfsgötu 15, Borgar-
nesi, þinglesinni eign Ágústs Guðmundssonar fer fram að kröfu
innheimtumanns rikissjóðs á eigninni sjálfri fimmtudaginn 4. sept-
ember nk. kl. 11.00.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta sem auglýst var i 149., 153. og 157. tölublaöi
Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Kveldúlfsgötu 26, Borgar-
nesi, þinglesinni eign Magnúsar Þórðarsonar fer fram að kröfu
innheimtumanns ríkissjóös og Baldvins Jónssonar hrl. á eigninni
sjálfri fimmtudaginn 4. september nk. kl. 14.00.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 135., 141. og 147. tölublaöi Lögbirtingablaðsins
1985 á fasteigninni Borgarvík 1, Borgarnesi, þinglesinni eign Ár-
manns Jónassonar, fer fram að kröfu Búnaöarbanka islands á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 4. september nk. kl. 09.00.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Breiðholtsprestakall
Prestskosning fer fram í Breiðholts-
prestakalli sunnudaginn 28. september nk.
Kjörskrá liggur frammi í skrifstofu Breiðholts-
skóla dagana 1.-7. september. Kærur skulu
berast undirrituðum fyrir 15. september.
Sigurður Albert Jónsson,
formaður sóknarnefndar,
Fremristekk 8, 109 Reykjavik.
Auglýsing frá skilanefnd
Söfnunarsjóðs íslands
Með lögum nr. 31 frá 2. maí 1986 var ákveð-
ið, að Söfnunarsjóði íslands skyldi slitið 1.
september 1986 og starfsemi hans hætt.
Ákveðið hefur verið, að Landsbanki íslands
yfirtaki eignir, skuldir og eigið fé sjóðsins.
Þar til uppgjör Söfnunarsjóðs íslands miðað
við 1 .september 1986 liggur fyrir og sjóður-
inn hefur verið afhentur Landsbanka íslands,
verður öll almenn afgreiðsla vegna starfsemi
sjóðsins með óbreyttum hætti í húsakynnum
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis að
Skólavörðustíg 11, Reykjavík. Opið er mánu-
daga og fimmtudaga kl. 17.00-18.00 eftir
hádegi. Þessi tilhögun gildir, þar til annað
verður sérstaklega tilkynnt.
Skilanefnd Söfnunarsjóðs íslands vill vekja
athygli á auglýsingum og innköllunum skila-
nefndarinnar vegna slitanna, er birtust í 77.,
81. og 84. tbl. Lögbirtingablaðs 1986.
Reykjavík, 27. ágúst 1986.
I skilanefnd Söfnunarsjóðs Islands,
Þorgeir Örlygsson,
Sigurbjörn Sigtryggsson.
Fatasöfnun fyrir bág-
stadda í Af ríku
Reykjavíkurdeild Rauða Kross íslands annast
móttöku á fatnaði vegna bágstaddra í Afríku
alla næstu viku. Móttökustaðir: skrifstofa
deildarinnar að Öldugötu 4, Tónabær
Skaftahlíð 24, og Þróttheimar við Holtaveg.
Móttökutími mánudagur til föstudags frá kl.
16.00-19.00 og laugardaginn 6. sept. frá kl.
13.00-16.00.
Reykja víkurdeild
Rauða Kross íslands,
Öldugötu 4, simi 28222.
Kartöflugeymslur
Kartöflugeymslur í jarðhúsunum í Ártúns-
brekku verða tilbúnar til notkunar 15.
september nk. Þeir sem hafa haft geymslu-
hólf á leigu sitja fyrir fram til 10. september.
Greiðslu á leigugjaldi er veitt móttaka á skrif-
stofu Ágætis frá kl. 12-17 frá 1. september.
Leigugjald er kr. 850.-
Ágæti, dreifingarmiðstöð
matjurta, Síðumúla 34.
Vestfjarðakjördæmi
Kjördæmisráð Sjálfstæöisflokksins hefur ákveðið að fram fari próf-
kjör fyrir næstu alþingiskosningar dagana 11. og 12. okt. nk.
Frambjóðendur til prófkjörsins þurfa að skila inn framboðum sam-
kvæmt prófkjörsreglum Sjálfstæðisflokksins í siðasta lagi laugardag-
inn 13. september nk. kl. 12. á hádegi.
Formaöur kjörnefndar Engilbert Ingvarsson tekur við framboðum.
Einnig verður skrifstofan i SJálfstæðishúsinu á Isafirði opin 10.-13.
sept. nk. og tekið á móti framboðum til prófkjörsins þar.
F. h. kjörnefndar, Engilbert Ingvarsson.
Aðalfundur
Aöalfundur kjör-
dæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins i
Norðurlandskjör-
dæmi eystra verður
haldinn laugardag-
inn 6. september
1986 i húsakynnum
flokksins við Mýrar-
veg, Akureyri, og
hefst fundurinn kl.
9.30 f.h. Dagskrá
fundarins: venjuleg
aöalfundarstörf og
hvemig staðið skuli að framboðslista flokksins fyrir næstu alþingiskosn-
ingar. Á fundinn mæta alþingismennirnir Halldór Blöndal og Björn
Dagbjartsson.
Mætið öll.
Sjórn kjördæmisráðs.