Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
7
Hef opnað kosningaskrifstofu í Sigtúni 7, þar
sem ég og samstarfsmenn mínir vinna að kjöri
mínu í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík
þann 18. október nk.
Kosningastjóri er Sigurjón Ásbjörnsson og
verður skrifstofan opin frá kl. 9—22 alla daga
til kjördags. Verið velkomin.
Símar: 687665 og 687390.
Eyjólfur Konráð Jónsson
Verðjöfnunarsjsóður:
Inneign rækjuverkenda
um 200 milljónir í árslok
Hækka mætti hráefnisverð um 30 til 35%, væri greiðslan felld niður
ALLT bendir nú til, að inneign
rækjuverkenda í verðjöfnunar-
sjóði verði allt að 200 mOljónir
króna í árslok. Stafar þetta af
því, að verð á mörkuðum erlend-
is hefur verið nokkru hærra en
viðmiðunarverð sjóðsins og eru
nú 15% af cif-verði rækjunnar
greidd í sjóðinn. Hér er um að
ræða nokkuð snögg umskipti þvi
á árinu 1985 bar sjóðnum að
greiða 16% ofan á markaðsverð,
en hann hafði ekki bolmagn til
að greiða nema 6% af því og
urðu seljendur að taka á sig mis-
muninn. Skiptar skoðanir eru þvi
um þessa greiðslu í sjóðinn nú,
en verkendur gætu greitt 30 til
35% hærra hráefnisverð, yrði
hún felld niður.
Óttar Ingvason, framkvæmda-
stjóri íslenzku útflutningsmiðstöðv-
arinnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að greiðsla í verð-
jöfnunarsjóð kæmi ekki vegna
útflutnings á rækju frystri í skel á
Japansmarkað og heldur ekki á þá
rækju, sem væri fryst og flutt utan
til vinnslu í nágrannalöndunum,
sem væru í samkeppni við okkur
um markaðina. Mörgum þætti það
skjóta skökku við, að slíkur útflutn-
ingur væri undanþeginn greiðslu í
verðjöfnunarsjóð og skapaði það
talsvert misvægi í afkomu útflytj-
enda.
Óttar sagði, að kaupendur á
rækju væru nú hikandi vegna hins
háa verðs, sem væri á rækjunni,
meðal annars í kjölfar aflabrests
Norðmanna. Heldur hefði því dreg-
ið úr sölu og verð lítiliega lækkað,
meðal annars vegna lækkunar
pundsins, en mest af rækjunni væri
selt fyrir þann gjaldmiðil. Rækjan
hefði til þessa verið seld nánast
jafnóðum og hún hefði verið tilbúin
til útflutnings og birgðir væru því
ekki teljandi hér á landi. Þar sem
rækjuvertíð færi nú að ljúka vegna
veðráttu, væru ekki horfur á birgða-
söfnun hér, þrátt fyrir að rækjan
seldist eitthvað hægar en áður.
Verðmunur á rækju væri nú vax-
Sjónvarp næsta
fimmtudagskvöld:
Bein útsend-
ing frá komu
Reagans
SJÓNVARPIÐ hefur ákveðið að
sjónvarpa beint næsta fimmtu-
dagskvöld frá komu Reagans
Bandaríkjaforseta hingað til
lands. Markús Orn Antonsson
útvarpsstjóri upplýsti blaðamann
Morgunblaðsins um þetta í gær.
„Það hefur verið talað um það,
að það yrðu gerðar breytingar
eftir þörfum á dagskráð Sjón-
varpsins,“ sagði útvarpsstjóri,
„og beinar útsendingar eftir
þörfum.“
„Ég stefni að því að fréttastofa
Sjónvarps hefji útsendingar frá
Keflavík upp úr kl. sex í eftirmið-
dag fimmtudag," sagði Ingvi Hrafn
Jónsson, fréttastjóri Sjónvarps i
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann sagði að þess væri vænst að
vél forsetans kæmi hingað á milli
kl. 19 og 20. Ingvi Hrafn sagði að
jafnframt væri stefnt að beinni út-
sendingu frá komyu Reagans til
Reykjavíkur, og því þegar hann
kæmi til síns bústaðar.
Gorbachev kemur til íslands á
föstudagskvöld, og er einnig ráð-
gerð bein útsending frá komu hans.
Ingvi Hrafn sagðist vonast til þess
að þessi fimmtudagsútsending yrði
upphafið að því að útsendingar á
fímmtudagskvöldum yrðu fastur
liður.
andi eftir stærð, en skilaverð gæti
nú farið upp í 350 til 370 krónur.
An greiðslunnar í verðjöfnunarsjóð
gæti þessi upphæð hins vegar verið
420 til 470 krónur. „Þetta háa verð
undanfama mánuði hefur tvímæja-
laust bjargað nokkrum fyrirtækjum
frá gjaldþroti, enda staða margra
þeirra erfíð eftir mögru árin 1984
og 1985,“ sagði Óttar Yngvason.
Toppfiindurinn
á íslandi
skapar ódýrar ferðir til Orlando eða Amsterdam
Við nýtum tómu sætin til Hollands og Ameríku og bjóðum nú
íslendingum eftirtaldarferðir:
ORLANDO - FLORIDA
3ja vikna sólarferð 8. október.
Flug og gisting í 3 vikur frá aðeins kr.
26.800.-
Flug og bíll í 3 vikur (4 í bíl)
frá aðeins kr.
m/sölusk.
15.600.-
AMSTERDAM
5 eða 6 daga ferð 9. október
Flug, gisting m/morgunverði í glæsilegu 1. flokks nýju
hóteli í miðborginni, akstur til og frá flugvelli.
Tryggið ykkur
sæt/ strax
ídag
Verð frá aðeins kr.
12.750.-
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRJETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKfflFSTOFA AKUREYRt: SKIPAGÖTU 18 - SÍIáAR 21800 & 23727