Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
í KRAMHUSINU ER ALLTAF EITTHVAÐ UM AÐ VERA
IMÆSTU 3 MÁNUÐI
NANETTE NILMS
JAZZDANSARI FRÁ
NEW YORK JUBILATIONS
DANCECOMPANY
DANSARAR!
Getum skipu-
lagt sérstaka
tíma fyrir ykkur
undir hand-
leiðslu Nanette
Nilms.
TIMAR I:
•Sjúkraleikfimi
•Afríkudönsum
• Þrekleikfimi
• Leikfimi fyrir byrjendur
kRfiff)
Msi&
Dans- og leiksmiðja
v/Bergstaðastræti.
Innritun í símum:
15103 og 17860.
TÖLVUNÁMSKEIÐ
FYRIR VERKFRÆÐINGA
Stutt og hnitmiðað námskeið sem kynnir vel notkun smá-
tölva við verkfræðistörf
Dagskrá:
★ Örtölvubyltingin og notkun smátölva við verkfræðistörf.
★ Stýrikerfið MS-DOS.
★ Verkáætlanakerfið PROJECT.
★ Töflureiknirinn MULTIPLAN.
★ Gagnasafnskerfið D-base III.
★ Teikniforritin AUTO CAD.
★ Landmælingaforritin SATS 10.
★ Umræður og fyrirspurnir.
Ingólfur Eyfells, bróðursonur listamannsins, og Einar Eyfells sonur
Eyjólfs.
Yfirlitssýn-
ing á verkum
Ejjólfs J. Eyfells
Sýningin haldin í tilefni
aldarminningar listamannsins
YFIRLITSSÝNING á verkum
Eyjólfs J. Eyfells í tilefni aldar-'
minningar hans var opnuð á
Kjarvalsstöðum í gær kl. 14.00.
A sýningunni eru 102 verka hans,
sem er aðeins brot af því sem
listamaðurinn málaði á ferli
sínum. Afkomendur Eyjólfs og
tengdafólk stendur að sýning-
unni, en listamaðurinn lést árið
1979, þá 93 ára að aldri.
Eyjólfur fæddist 6. júní 1886 að
Seljalandsseli undir Eyjaíjöllum.
Foreldrar hans voru Jón Sigurðs-
son, bóndi, og Guðríður Eyjólfs-
dóttir. Eyjólfur ólst upp með móður
sinni að Súluholti í Flóa og stund-
aði hann öll almenn sveitastörf og
sjóróðra framan af. Árið 1908, þá
22 ára gamall, fluttist Eyjólfur til
Reykjavíkur og hóf teikninám hjá
Stefáni Eiríkssyni. Þar var hann í
þijú ár. Árið 1919 hélt hann sína
fyrstu sýningu í KFUM húsinu í
Reykjavík. Fjórum árum síðar hélt
hann til náms, til Dresden í Þýska-
landi og var kennari hans þar
prófessor E. O. Simonsen-Castelli,
sem var mjög þekktur. Eygolfur
hafði málaralistina að ævistarfí eða
frá 1914 til ársins 1977, þar til
hann varð 91 árs.
Eyjólfur bjó lengst af að Skóla-
vörðustíg 4 og hafði vinnustofu sína
á Safnahúsloftinu við Hverfísgötu.
Allar myndimar á sýningunni að
Kjarvalsstöðum nú em í einkaeign
og meðal þeirra er altaristafla úr
Staðarkirkju í Miðfírði eftir lista-
manninn. Þá eru á sýningunni tvær
Eyjólfur Eyfells
af elstu myndum Eyjólfs, málaðar
árið 1908.
Eyjólfur kvæntist árið 1921 Ingi-
björgu, dóttur Einars Pálssonar
prests í Reykholti og konu hans
Jóhönnu Eggertsdóttur Briem. Þau
eignuðust fjögur böm, Einar, verk-
fræðing búsettan í Reykjavík,
Jóhann, prófessor í listum við Uni-
versity og Central Florida í Orlando,
Kristínu, handavinnukennara, sem
nú er látin, og Elínu, húsmóður í
Reykjavík.
Sýningin stendur til 19. október
og er opin frá 14.00 til 22.00 alla
daga vikunnar.
Leidbeinendur
Halldór Kristjáns- Dr. Kristján Ingv-
son verkfræðingur. arsson verkfræð-
ingur.
Óskar B. Hauks- Örn Steinar Sig-
son verkfræðingur. urðsson verk-
fræðingur.
Tími: 13.—16. október kl. 17—20.
Innritun í símum 687590 og 686790.
Sigurður Elías
Hjaltason verk-
fræðingur,
M.S.C.E.
Tölvufræðslan
Samtök lækna gegn kjarnorkuvá:
Stöðva ber tilraunir
með kjarnorkuvopn
ALÞJÓÐASAMTOK lækna
gegn kjarnorkuvá, IPPNW, er
alþjóðleg friðarhreyfing. I henni
eru 150 þúsund Iæknar starfar
hún óháð stjórnmálaöflum.
Markmið samtakann er að koma
í veg fyrir kjamorkustríð, og
fengu þau friðarverðlaun Nóbels
árið 1985.
I fréttatilkynningu frá samtök-
unum segir: „Alþjóðasamtökin og
íslandsdeild þeirra, Samtök
íslenskra lækna gegn kjamorkuvá,
fagna því, að leiðtogar stórveld-
anna, þeir Ronald Reagan og
Michael Gorbachev, hafa ákveðið
að ræðast við á ný.
Samtökin hvetja leiðtogana til
að sameinast um að stöðva allar
tilraunir með kjamorkuvopn þar til
samkomulag næst um alþjóðlegt
bann við kjamorkuvopnatilraunum
og frekari útbreyðslu kjamorku-
vopna. Slíkt fmmkvæði yrði öðmm
kjamorkuveldum hvatning sem
draga mundi úr kjamorkuvopna-
kapphlaupinu.
Samtökin óska þess að fundurinn
í Reykjavík verði landsbyggðinni til
heilla.