Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
9
HUGVEKJA
Jesús fyrir-
gefur syndir
eftir ÓSKAR JÓNSSON
Texti: Matt. 9,1-8.
Jesús var í Kapemaum að
kenna fyrir fullu húsi. Þar færa
menn honum lama mann, sem lá
í rekkju. Þegar Jesús sá trú þeirra,
sagði hann við lama manninn:
„Vertu hughraustur, bamið mitt,
syndir þínar eru fyrirgefnar."
Nokkrir fræðimenn sögðu þá með
sjálfum sér: „Hann guðlastar!"
En Jesús þekkti hugsanir þeirra
og sagði: „Hví hugsið þér illt í
hjörtum yðar?“ Hvort er auðveld-
ara að segja: „Syndir þínar eru
fyrirgefnar" eða: „Statt upp og
gekk?“ En til þess að þér vitið,
að Mannssonurinn hefur vald á
jörðu að fyrirgefa syndir, þá segi
ég þér, — og nú talar hann við
lama manninn: „Statt upp, tak
rekkju þína og far heim til þín!“
En fólkið, sem horfði á þetta,
varð ótta slegið og lofaði Guð, sem
gefið hafði mönnum slíkt vald.
í Markúsarguðspjalli segir að
mennimir, sem báru lama mann-
inn til Jesú, hafi verið fjórir. Húsið
var troðfullt þar sem Jesús var
að kenna, svo mennimir fóru með
rekkjuna upp á þak hússins. Eftir
að hafa rofið þakið létu þeir sjúka
manninn í rekkjunni síga niður
þar sem þeir vissu að Jesús var.
Það var eitthvað sérstakt við
þessa fjóra menn, sem báru sjúka
manninn til Jesú. Þeir létu ekkert
hindra sig, voru einbeittir og áttu
sigrandi trú. Það var trú þeirra
sem bjargaði manninum. Án íjór-
menninganna hefði hann sjálfsagt
legið áfram hjálparvana heima hjá
sér.
Þessir kærleiksríku, trúuðu
menn eru sönn fyrirmynd kristn-
um mönnum þann dag í dag. Það
eru margir sem þurfa á hjálp þinni
og minni að halda. Tökum hönd-
um saman og vinnum verk fyrir
Drottin. Við getum sagt öðrum
frá reynslu okkar í samfélaginu
við Jesúm.
„Vertu hughraustur, bamið
mitt, syndir þínar eru fyrirgefn-
ar,“ sagði Jesús við lama mann-
inn.
Jesús sá strax hvað það var sem
þjáði manninn mest. Það var sam-
viskubit og sálarkvalir vegna
syndarinnar, sem skipti miklu
meira máli en þó svo að líkaminn
væri lamaður. Getur það verið?
Er það satt? Allt fyrirgefið. Jesús
sjálfur sagði það. Margir heyrðu
það og voru vitni að þessum
undraverða atburði.
I„Það eru margirsem þurfa á hjálp
þinni að halda. Tökum höndum saman
og vinnum verk jyrir Drottin. Við getum
sagt öðrum jrá reynslu okkar í sam-
félaginu við Jésum. “
Jesús er fær um að frelsa
fallna og synduga menn.
Sárþjáðum sálum að líkna
sífellt er Frelsarinn enn.
Jesú gef hug þinn og hjarta,
Hann þerrar tárvota kinn.
Nema burt eymd þína alla
einn megnar Frelsari þinn.
(E. R. Latta.)
Nokkrir fræðimenn hneyksluð-
ust á orðum Jesú: „Syndir þínar
eru þér fyrirgefnar." Jesús þekkti
hugsanir þeirra og segir: „Hví
hugsið þér illt í hjörtum yðar?“
... En til þess að þér vitið að
Mannssonurinn hefur vald á jörðu
að fyrirgefa syndir, þá segi ég
þér, — og nú talar hann við lama
manninn: „Statt upp, tak rekkju
þína og far heim til þín.“
í Markusarguðspjalli endar frá-
sögnin á þessa leið: Hann stóð
upp, tók jafnskjótt rekkjuna og
gekk burt í allra augsýn, svo að
allir voru furðu lostnir, lofuðu Guð
og sögðu: „Aldrei áður höfum vér
þvílíkt séð.“ Mark. 2,12.
Lamaði maðurinn hafði nú hlot-
ið lækningu bæði á sál og líkama.
Hann fór fagnandi heim með
rekkju sína. Nú gat hann lofað
Guð með vinum sínum fyrir undr-
ið mikla.
Jesús er hinn sami í dag og
verður að eilífu. Hann gerir
undraverða hluti á meðal okkar.
F'yrirgefur syndir, gefur lífsfögn-
uð og lífinu nýjan tilgang.
Þú frelsaði lýður, syng fagnaðarljóð.
■ Þú fagnandi lýður, syng lofgerðaróð.
Að baki er syndin, sem burtu var máð.
Nú blasir við sjónum hin eilífa náð.
Lofið Guð! Lofið Guð!
Fyrir gæsku og stjóm.
Lofið Guð! Lofið Guð!
Fyrir Guðs lambsins fóm.
Til hans má ég koma, þótt hrelli mig synd,
og hreinsast að nýju i dreyra hans lind.
Gakk ömggt að hásæti algæsku hans,
sem afmáir syndir og skuldir hvers manns.
Ver aldrei í vafa um ógrynnis náð
og eilífa visku, sem þekkir öll ráð.
(Fanny Crosby)
FJÁRFESTINGARFÉIAGIÐ
UERÐBREFAMflRKAÐURIMBI
Genqióidaq _____Markaftsfréttir____
Veðskuldabréf - verðtryggð
Veðskuldabréf - óverðtr.
Lánst.
2 afb.
áári
1 ár
2ár
3 ár
4ár
5ár
6ár
7 ár
8ár
9ár
10 ár
Nafn- vextir HLV Sölugengi m.v. mism. ávöxtunar- kröfu
12% 14% 16%
4% 95 93 92
4% 91 90 88
5% 90 87 85
5% 86 84 82
5% 85 82 78
5% 83 79 76
5% 81 77 73
5% 79 75 71
5% 78 73 68
5% 76 71 66
Lánst. 1 afb. á ári Sölugengi m/v. mism. nafnvexti
20% HLV 15%
1 ár 89 84 85
2ár 81 72 76
3 ár 74 63 68
4ár 67 56 61
5 ár 62 50 56
KJARABRÉF
Gengipr.3/10 1986 = 1,722
Nafnverð
Söluverð
5.000 8.610
50.000 86.100
I DAG BJÓÐUM VIÐ ÞÉR
BETRI KOSTINIM,
- SPARISKÍRTEINI MEÐ
7,5% ÁRSVÖXTUM.
Við bjóðum þér Spariskírteini Ríkissjóðs með hærri vöxtum.
fjármál þin - sárgrein okkar
6,5%
vextír
hja Riklssjóði
7,5%
vextir
hjá okkur
Odrl fiokkar
Sparhk <»T*lrva
RlklvsJOftj
Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7,101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 simsvari allan sólarhringinn
VJS/VSQ