Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986 43 Einstæðir foreldr- ar ræða um Félags- málastofnunina Fundur í Skeljahelli á mánudagskvöld FÉLAG einstæðra foreldra efnir til fyrsta félagsfundar vetrarins næstkomandi mánudagskvöld 6. október og verður rætt um starf- semi Félagsmálastofnunar Reykjavíkur. Fundurinn verður í Skeijahelli, Skeljanesi 6 og hefst kl. 21, stundvíslega. Erla Þórðardóttir, félagsráðgjafi og Aðalsteinn Sigfússon, bamasál- fræðingur kynna starfsemi stofnun- arinnar og þá þjónustu og aðstoð sem einstæðir foreldrar og böm þeirra geta leitað þar eftir, þegar vandi steðjar að, eins og komizt er að orði í fréttatilkynningu frá FEF. Alkunna er, að meðal skjólstæðinga Félagsmálastofnunar er mikill fjöldi einstæðra foreldra, einkum mæðra. Leitað er eftir margs konar fyrir- greiðslu, húsnæðis, framfærslu- styrks, ráðgjafar af ýmsu tagi og er þá aðeins drepið á það sem brýn- ast er flestum skjólstæðingum stofnunarinnar. Langoftast er um tímabundna aðstoð að ræða og á fundinum verða fyrirspumir gesta til framsögumanna og munu þeir væntanlega skýra hvaða skilyrði umsækjendur þurfa að uppfylla til að fá fyrirgreiðslu svo og hvaða takmörkunum hún er bundin. Félag einstæðra foreldra hefur um langa hríð haft samskipti af ýmsu tagi við félagsmálastofnunina og hafa þau aukist enn, eftir að FEF kom á laggimar neyðar- og bráðabirgða- húsnæði í Skeljanesi 6 og Öldugötu 11 og leysir þá einatt vanda ein- Aðalsteinn Sigfússon framsðgu- maður stæðra foreldra sem lenda í því að missa húsnæði skyndilega og Fé- lagsmálastofnunin getur ekki sinnt að bragði. Búast má við fjörugum umræð- um, segir í tilkynningu FEF. Fundarstjóri verður Hrafn Jökuls- son. Kaffi og meðlæti verður á borð- um. Áður en fundarefnið verður tekið fyrir verður kynnt vetrarstarf FEF í stómm dráttum. Eria Þórðardótdr framsögumað- ur Hrafn Jökulsson, fundarstjóri á mánudagskvöld. Yetrarstarf Askírkju SUNNUDAGINN 5. október, hefst vetrarstarf í Áskirkju. Við guðsþjónustuna kl. 2, þar sem Garðar Cortes syngur einsöng, verður tekinn í notk- un nýr messuskrúði og fagnað frágangi svæðisins utan kirkjudyra. Bamastarf vetrarins hefst með bamaguðsþjónustu kl. 11 á sunnudaginn og verða þær fram- vegis hvem sunnudagsmorgun á sama tíma. Klukkan tvö verður guðsþjón- usta í Áskirkju og nýr messuhök- ull og altarisklæði tekin í notkun eins og fyrr segir. Er skrúðinn grænn að lit svo sem hæfir þess- um tíma kirkjuársins. Er hann unninn af Ásdísi Jakobsdóttur, en auk ísaums hennar piýðir hökulinn mynd eftir kirkjulista- konuna Unni Ólafsdóttur, en allur annar skrúði Áskirkju er verk þeirrar merku listakonu og Ásdísar Jakobsdóttur, sem lengi starfaði með Unni. Við guðsþjónustuna syngur kirkjukór Áskirkju undir stjóm Kristjáns Sigtryggssonar og Garðar Cortes syngur einsöng. Þá verður lýst framkvæmdum sem staðið hafa í sumar við frá- gang stéttar við kirkjudyr og gangstíg og akbraut. Svæðið allt og brautir eru lagðar hitalögn sem veruleg bót verður að í hálku en þessar aðgerðir allar hafa rýmkað aðkomuna að kirkjunni verulega og prýtt hana mjög. Svæðið er teiknað af Reyni Vil- hjálmssyni landslagsarkitekt. Eftir guðsþjónustuna selur Safnaðarfélag Ásprestakalls kaffi í Safnaðarheimili Áskirkju og rennur ágóðinn í kirkjubygg- ingarsjóð sem mjög er fjárvana vegna kostnaðar við áðumefndar framkvæmdir og frágang þeirra. Á næstunni verða því gfróseðlar sendir inn á flest heimili í sókn- inni með beiðni um Qárstuðning. Er það von mín að vel verði við þeirri beiðni bmgðist eins og endranær er líkt hefur staðið á og ennfremur að sóknarböm og velunnarar Áskirkju fjölmenni til kirkjunnar á sunnudag og njóti þess sem fyrir augu og eyru ber og fram verður reitt. Árni Bergur Sigurbjörnsson ONEIIANLEGA SERSIAKUR E 1migendur Citroén BX hafa ástæðu til að bera höfuðið hátt, því BX-inn er svo sannarlega engum öðrum líkur. BX-inn er listilega hannaður í alla staði, en kostar samt aðeins frá kr. 478.000. BX er glæsilegur fjölskyldu- og sportbíll, fimm dyra, fram- hjoladrifinn, sparneytinn og með frábæra aksturseiginleika. Aðalsmerki Citroén eru auðvit- að á sínum stað; vökvafjöðrunin, hæðastillingin, falleg innréttingin og listilega hannað mælaborðið svo fátt eitt sé talið. Þú getur eignast þennan glæsi- lega bíl á mjög góðum greiðslu- kjörum. Innifalið í verðinu er m.a. ryðvörn, skráning, skattur, hlífðarpanna undir vél og stútfull- ur bensíntankur. Líttu við í Lágmúlanum og kynntu þér kosti BX. Umboðsmaður okkar á Akureyri er Gunnar Jóhannsson, sími 96-25684. Gfobust CITROEN BX BR BNGUM OÐRUM UKUR LAGMULA 5 SÍMI 681555 CITROÉN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.