Morgunblaðið - 05.10.1986, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
Nú er bara að glíma við
eigin sköpunargáfu því
TOYOTA-SAUMAVÉLIN SÉR UM FRAMKVÆMDINA
B0OO
TOYOTA 8900 er með 25 sporum sem gefa þér allar auðveldustu leiðirn-
ar til frábærs saumaskaps.
Þú snertir bara hnappinn og velur sporið sem þú vilt.
SOLUUMBOÐÍ
VIÐ ERUM EINU SPORI A UNDAN TIMANUM:
'VARAHLUTAUMBOÐIÐ
ISkotid
ÁRMÚLA 23 SÍMAR 685870-681733
KLAPPARSTÍG 31 SIMI 14974
Háskólaerindi í tilefni
75afmælisHÍ:
Höfundur
fyrstu
starfhæfu
tölvunnar
fjallar um
uppruna
hennar
TVÖ HÁSKÓLAERINDI verða
flutt í dag og á morgun í Odda.
Það fyrra, sem flutt verður af
dr. Jónasi Kristjánssyni, fjallar
um Eddukveðskap, aldur kvæð-
anna og uppskriftir þeirra. Á
morgun flytur hinn kunni upp-
finningamaður, Konrad Zuse frá
V-Þýskalandi erindi sem hann
nefnir „Um uppruna tölvunnar",
en Zusa smiðaði fyrstu starfhæfu
gagnavinnsluvélina í heiminum
og er viðurkenndur sem einn
helsti frumkvöðull „tölvubylting-
arinnar".
Dr. Jónas Kristjánsson er lands-
mönnum að góðu kunnur fyrir störf
sín, en hann veitir Stofnun Áma
Magnússonar forstöðu og hefur
lengi fengist við rannsóknir á Eddu-
kvæðunum.
Dr. Konrad Zuse verður einn
þeirra 20 sem sæmdir verða heið-
ursdoktorsnafnbót við Háskóla
íslands í tilefni afmælisins. Hann
fæddist í Berlín árið 1910 og nam
vélaverkfræði, byggingarverkfræði
og byggingarlist við tækniháskól-
ann þar í borg. Allt frá námsárum
sínum hefur Dr. Zuse verið upp-
finningamaður, en hann fór árið
1933 að bijóta heilann um vél sem
flýta átti burðarþolsútreikningum
og vinna sjálfstætt. Fyrstu reikni-
vélina fullgerði hann 1938 og
nefndist hún Zl. Vélin byggði á
grundvallaratriðum sem þá þóttu
nýstárleg; tviundakerfi, forriti með
sérstöku táknmáli, geymslubúnaði
og kommutölukerfi. Varð honum
fljótlega ljóst að ekki var einungis
um reiknivél að ræða .heldur vél
rökrænna aðgerða sem með endur-
bótum gæti tekið sjálfstæðar
ákvarðanir. Leiddi þetta til smíði
stærri og fullkomnari véla og varð
Z3 fullgerð árið 1941, en sú vél
hefur verið nefnd fyrsta starfhæfa
forritastýrða gagnavinnsluvél
heimsins.
Sem fyrr segir verða fyrirlestr-
amir báðir fluttir í stofu 101 í
Odda og hefjast klukkan 17.00.
Háskólaerindin verða 7 talsins og
verður eitt erindi flutt dag hvem
fram á föstudag.
.
. -4
I t l Y* %
f: V '* m.wmk
UIAFLAUS
ARSVEXTIR
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF.